Fréttablaðið - 15.08.2014, Qupperneq 2
15. ágúst 2014 FÖSTUDAGUR| FRÉTTIR | 2
UMFERÐ „Jafnan hafa mun fleiri
verið teknir vegna ölvunar við
akstur heldur en aksturs undir
áhrifum ávana- og fíkniefna, en
bilið hefur minnkað síðustu ár og
ef fram heldur sem horfir stefn-
ir í að í árslok verði þessu öfugt
farið í fyrsta sinn,“ segir Snorri
Örn Árnason, félagsfræðingur hjá
upplýsinga- og áætlanadeild lög-
reglunnar á höfuðborgarsvæðinu.
Guðbrandur Sigurðsson, yfir-
maður umferðardeildar lögregl-
unnar á höfuðborgarsvæðinu,
segir þetta þó ekki bestu mæli-
stikuna til að meta fjölda þeirra
sem aka undir áhrifum ávana-
og fíkniefna. Til þess væri betra
að líta til fjölda þeirra umferðar-
óhappa þar sem ávana- og fíkni-
efni koma við sögu. Þar er Bakk-
us reyndar fyrirferðarmeiri enn
sem komið er en þeim tilfellum
þar sem ávana- og fíkniefni koma
við sögu í umferðarslysum fjölg-
ar ört. Reyndar eru þau meira en
helmingi fleiri á fyrri helmingi
þessa árs en á sama tíma í fyrra.
Þróunin virðist því blasa við og
þau á Samgöngustofu hafa vissu-
lega áhyggjur af henni. Það er þó
ekki vandalaust að blása til átaks
enda getur það valdið undrun ef
fólk, sem þegar er að brjóta lög í
þeim tilfellum þegar um fíkniefni
er að ræða, er beðið um að sýna
skynsemi og aka ekki. „Fíkni-
efnaneysla er í sjálfu sér ólöglegt
athæfi sem vandi hefur reynst
að bregðast við, hvað þá þegar
akstur undir áhrifum bætist við,“
segir Þórhildur Elínardóttir, upp-
lýsingafulltrúi á Samgöngustofu.
„Í þeim tilgangi að sporna gegn
þessari óheillaþróun vill Sam-
göngustofa leggja aukna áherslu
á samvinnu um þetta málefni,
sérstaklega við til að mynda lög-
reglu og landlækni en einnig safna
gögnum og upplýsingum um þær
aðferðir sem reyndar hafa verið
hjá öðrum þjóðum.“
jse@frettabladid.is
Fleiri teknir dópaðir
en ölvaðir við stýrið
Það sem af er ári hafa fleiri ökumenn verið teknir undir áhrifum ávana- og fíkni-
efna en ölvaðir á höfuðborgarsvæðinu. Samgöngustofu er vandi á höndum. Þeim
tilfellum fjölgar ört þar sem ávana- og fíkniefni koma við sögu í umferðarslysum.
BLÁSIÐ Í ÁFENGISMÆLINN Ölvunarakstur hefur verið eitt mesta áhyggjuefni
umferðarlögreglu en nú virðist ekki síður algengt að menn aki undir áhrifum ávana-
og fíkniefna. FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY
Teknir undir áhrifum ávana- og fíkniefna Teknir ölvaðir
2011 338 475
2012 435 491
2013 428 514
2014 628 509
Umferðaróhöpp þar sem ávana- og fíkniefni koma við sögu vs. ölvun
2011 33 68
2012 36 69
2013 20 71
2014 48 56
Umferðaróhöpp fyrri helming ársins í ár: 231
Tölur fyrir fyrri helming áranna.
Heimild: Afbrotatölfræði 2014. Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu.
Undir áhrifum í umferðinni
Jóhannes, er þetta kúvending?
„Það er ekki hægt að neyta/neita því.“
Jóhannes Gunnarsson, formaður Neytenda-
samtakanna, viðraði ýmis viðbrögð vegna
þess að fimmtungur af nautakjöti á markaði
er innfluttur.
ATVINNUMÁL Ljóst mátti vera frá
því í vor að rof yrði hjá Kalkþör-
ungaverksmiðjunni á Bíldudal
segir Þórður Guðmundsson, for-
stjóri Landsnets, en framkvæmda-
stjóri Kalkþörungaverksmiðjunn-
ar gagnrýndi að hann vissi með
tveggja vikna fyrirvara að flutn-
ingur til verksmiðjunnar yrði
skertur svo vélar standa straum-
lausar yfir daginn.
„Landsnet gefur út ársáætlun 1.
mars um viðhald ársins sem send
er öllum viðskiptavinum Lands-
nets,“ segir Þórður. „En Kalkþör-
ungavinnslan er ekki í þeim hópi,
heldur er hún viðskiptavinur Orku-
bús Vestfjarða.“
Halldór Magnússon, fram-
kvæmdastjóri veitusviðs hjá Orku-
búi Vestfjarða, segir að undanfarin
ár hafi þurft að koma til skammt-
ana eins og þessarar vegna við-
gerða. Hann segir að eflaust megi
bæta upplýsingaflæði milli allra
aðila. „Ég mun leggja það til að
allir aðilar fundi að vori svo að allt
svona liggi fyrir,“ segir hann. - jse
Landsnet segir að orkubú verði að upplýsa viðskiptavini um straumrof:
Stendur ekki upp á Landsnet
FRÁ ORKUBÚI VESTFJARÐA Forsvars-
menn Orkubúsins, Landsnets og Kalk-
þörungaverksmiðjunnar eru sammála
um að auka samvinnu og upplýsinga-
flæði sín á milli. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR
BANDARÍKIN Bandaríski leikarinn
Robin Williams, sem fyrirfór sér
fyrr í vikunni, var með Parkin-
sons-sjúkdóminn á frumstigi.
Þessu greindi Susan Schneider,
ekkja Williams, frá í gær.
Schneider sagði jafnframt að
Williams hefði verið allsgáður
þegar hann fyrirfór sér en hann
hefði þjáðst af þunglyndi og kvíða
um langa hríð.
Hún vonar að sviplegt fráfall
Williams verði til þess að fólk
leiti sér hjálpar í erfiðleikum - ih
Þjáðist af þunglyndi og kvíða:
Williams var
með Parkinsons
BANDARÍKIN Edward Snowden
segir að bandaríska þjóðarörygg-
isstofnunin (NSA) hafi valdið því
að netsambandslaust varð í Sýr-
landi um tveggja daga skeið árið
2012.
Hingað til hefur verið talið að
annaðhvort stjórn Assads Sýr-
landsforseta eða uppreisnarmenn
hafi borið ábyrgð á netleysinu.
Snowden fullyrðir hins vegar
að starfsmenn NSA hafi reynt
að koma fyrir hugbúnaði sem
gert hefði þeim kleift að fylgjast
með megninu af netsamskiptum
í Sýrlandi. Aðgerðin hafi farið
úr böndunum með fyrrgreindum
afleiðingum. - ih
Sýrland missti netsamband:
Segir NSA hafa
valdið netleysi
„Við erum sátt með þetta fyrirkomulag,“ segir Eiríkur Kristinn Jónsson,
einn íbúa við Grettisgötu. Umhverfis- og skipulagsráð Reykjavíkur hefur
ákveðið að 106 ára silfurreynir, sem til stóð að fella vegna hótelbyggingar
á Laugavegi, fái að standa.
Borgaryfirvöld samþykktu í vikunni málamiðlunartillögu sem eigendur
lóðarinnar sem tréð stendur á höfðu lagt fram. Borgin mun finna tveimur
friðuðum húsum á lóðinni nýjan samastað og tréð fær að standa óáreitt. Í
staðinn verður hluti nýbyggingarinnar við Laugaveg hækkaður um eina
hæð.
„Það hefur svo sem ekki bein áhrif á skuggavarp á okkar svæði,“ segir
Eiríkur. „Ekki eins og það hefði gert að færa þessi tvö hús fram fyrir.“ - bá
Borgaryfirvöld samþykktu málamiðlun í deilu á Grettisgötu:
Silfurreynirinn fær að standa
SILFURREYNIRINN ER FRÁ 1908 Nú liggur fyrir að þetta glæsilega tré, sem stend-
ur við Grettisgötu, verður ekki fellt. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
EFNAHAGSMÁL 732 milljóna króna halli var á rekstri
ríkissjóðs árið 2013 sem er mun betri afkoma en
gert var ráð fyrir. Reiknað hafði verið með halla
upp á 19,7 milljarða króna en virðisaukning á hlut
ríkisins í Landsbankanum gerði það að verkum að
tekjur ríkissjóðs urðu mun meiri en búist var við.
Þetta er meðal þess sem fram kemur í uppgjöri
ríkisreiknings fyrir árið 2013 sem birt er á vef fjár-
málaráðuneytisins. Ríkisreikningur fyrir árið 2012
sýndi tekjuhalla að upphæð 35,8 milljarðar króna.
Tekjurnar árið 2013 voru 31,7 milljörðum króna
hærri en gert var ráð fyrir og gjöldin 12,8 milljörð-
um króna hærri. Frumjöfnuður ársins er jákvæð-
ur um 57,2 milljarða króna en gert var ráð fyrir að
hann yrði jákvæður um rúma 36 milljarða króna.
Þessi frávik frá áætlunum skýrast að stórum
hluta af óreglulegum liðum þar sem munar mest um
24,9 milljarða króna tekjufærslu vegna virðisaukn-
ingar á eignarhluta ríkissjóðs í Landsbankanum hf.
og 11,9 milljarða hærri afskriftir skattkrafna en
gert hafði verið ráð fyrir.
Árið 2013 var lánsfjárþörf upp á 1,7% af lands-
framleiðslu samanborið við 3,6% árið á undan. - ktd
Sjö hundruð milljóna króna halli var á rekstri ríkissjóðs á árinu 2013:
Vænlegri staða en búist var við
FJÁRMÁLARÁÐHERRA Bjarni Benediktsson hafði ástæðu til
að gleðjast yfir ríkisreikningi. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR
ÍRAK Nouri al-Malíki, forsætis-
ráðherra Íraks, hefur ákveð-
ið að víkja fyrir Haider al-Abad
sem taka mun við embætti hans
á mánudag. Þetta var tilkynnt í
íraska ríkissjónvarpinu í gær-
kvöldi.
Eftirmaðurinn hefur þá, sam-
kvæmt stjórnarskrá landsins,
mánuð til þess að mynda nýja
ríkisstjórn.
Mikið hefur mætt á Malíki og
stjórn hans en hún á í höggi við
her Íslamska ríkisins sem hefur
lagt undir sig mestan norðurhluta
landsins.
Forsætisráðherrann fráfarandi
hefur verið undir þrýstingi um
nokkurn tíma að stíga til hliðar.
- jse
Forsætisráðherra Íraks fer:
Malíki víkur
SPURNING DAGSINS
20% afsláttur
Fæst án lyfseðils.
Lesið leiðbeiningar í fylgiseðli vandlega fyrir notkun.