Fréttablaðið - 15.08.2014, Síða 15
FÖSTUDAGUR 15. ágúst 2014 | SKOÐUN | 15
Í DAG
Pawel Bartoszek
stærðfræðingur
„Samsetning reiðhjóla er BÖNN-
UÐ í flugstöðinni.“ Svona skila-
boð blöstu við mér, þrykkt á hurð
í komusal Leifsstöðvar þaðan
sem von var á mínum „sérstæða“
farangri, innpökkuðu hjóli eldri
sonarins sem ég hafði keypt ein-
hvers staðar í Evrópusamband-
inu.
Ekki að til hafi staðið að draga
fram skiptilykilinn, skrúfa fram-
hjólið og pedalana á, rétta við
stýrið og senda barnið hjólandi
til höfuðborgarinnar en ég velti
því samt fyrir mér hvort það
væri ekki dálítið glatað að þetta
færu fyrstu skilaboðin sem hjól-
reiðamenn fengju við komuna
til landsins. Ekki bara: „Vinsam-
legast ekki skrúfa hjólin saman
hérna í komusalnum, hér er lítið
pláss.“ Nei: „Gjörvöll millilanda-
flugstöðin er of lítil til að rúma
þetta furðulega áhugamál ykkar.
Verið úti.“
Hjól manns maki
Þegar inn í flugrútuna var komið
var mér tilkynnt að ég ætti eftir
að greiða fyrir hjólið. Að flytja
hjól sem var pakkað í kassa af
stærð 140 x 80 x 20 cm, og komst
inn í farangurshólfið án teljandi
vandræða kostaði það sama og að
flytja fullorðinn farþega í sæti.
Nú ætla ég ekki gráta mörgum
tárum yfir þessum tvöþúsund-
kalli. Það er samkeppni á þess-
ari leið og sem ábyrgur neyt-
andi hefði maður kannski átt að
ganga milli miðasölustanda og
láta rútufyrirtækin bítast um að
flytja hjólið manns á sem ódýr-
astan máta. Hitt er svo annað að
heimasíða Flybus þegir þunnu
hljóði yfir þessum viðbótarkostn-
aði og það virðist ekki vera hægt
að panta flutning á hjóli á netinu.
Dálítið ófagmannlegt.
Alltaf rukkaðir
Það er annars skondið hvað þetta
handhæga farartæki sem sjálft
er svo hjálplegt þegar kemur að
því að flytja mann á milli staða er
til trafala þegar það sjálft þarfn-
ast flutnings. Það þarf að skrúfa
það í sundur og pakka því í sér-
stakan kassa og jafnvel þannig
kostar stundum sitt að flytja það
einn fluglegg.
Ég las eitt sinn blogg, raun-
ir manns sem ferðast hafði um
heiminn með ferðareiðhjólið sitt.
Hann var með ráðleggingar í ell-
efu liðum. Fjórir af þeim ellefu
liðum voru „Ekki hringja í flug-
félagið!“
Ástæðan var þessi: Upplýs-
ingarnar sem flugfélagið myndi
veita myndu hvort sem er ekki
standast og maður væri bara lát-
inn borga eitthvað. Hans villta
ráð var að mæta bara á staðinn
og vona það besta.
Annað ráðið var að flytja reið-
hjólið í sem venjulegastri tösku
og reyna að fela öll ummerki
þess að um reiðhjól væri að ræða.
Þannig var oft hægt að kom-
ast hjá því að vera rukkaður um
aukagjald. Ef flugvallastarfsfólk-
ið spurði hvað væri í töskunni var
svarið: „Reiðhjólapartar.“
Hraðbrautin
Á Reykjanesbrautinni rakst
maður reyndar á einhverja
ferðamenn sem greinilega höfðu
ætlað sér að hjóla til Reykjavík-
ur, sem var raunar ekki galin
hugmynd enda var þetta um
miðjan dag og veðrið ágætt.
Það er draumur margra
að banna mönnum að hjóla á
Reykjanesbrautinni. Einhvern
tímann voru meira að segja sett
upp skilti sem bönnuðu hjólafólki
að fara yfir mislægu gatnamót-
in á leiðinni, án þess þó að neitt
lægi fyrir um hvaða aðra leið
ætti að fara í staðinn.
Ég skil þennan hraðbrautar-
draum svo sem ágætlega og til
að gæta sanngirni þá eru hjól-
reiðar á hraðbrautum almennt
ekki leyfðar. Vandinn er bara sá
að Reykjanesbrautin er enn sem
komið er ekki hraðbraut og fólk
sem vill fara þessa leið á hjóli
hefur engan annan valkost.
Ef menn ætla sér að banna
fólki að hjóla á Reykjanes-
brautinni þá þarf einfaldlega
að leggja stíg meðfram henni.
Sá stígur gæti að hluta til legið
í vegstæði gamla Keflavíkur-
vegarins og náð allavega að
Vatnsleysustrandarveginum
þaðan sem hjóla mætti til Voga
og svo í gegnum Reykjanesbæ.
Þetta myndi hugsanlega vera
örlítið lengri leið en mun fjöl-
skylduvænni upplifun en vegöxl
Reykjanesbrautar.
Ímyndum okkur
Ég er ungur náttúruunnandi. Ég
kem til landsins á hjóli. Labba út
úr flugstöðinni. Við mér blasir
skilti með merki af hjóli á bláum
fleti ásamt ör og nokkrum vega-
lengdum:
Keflavík (5 km)
Vogar (16 km)
Hafnarfjörður (45 km)
Reykjavík (55 km)
Væru þetta ekki vingjarnlegri
móttökur en „Viltu gjöra svo vel
að vera úti með þetta hjól þitt“?
Frá Leifsstöð á hjóli
Ef menn ætla sér að
banna fólki að hjóla
á Reykjanesbrautinni þá
þarf einfaldlega að leggja
stíg meðfram henni.
Gæðabílar
á góðu verði
Bílabúð Benna • Notaðir bílar
Vagnhöfða 23 • 110 Reykjavík
Sími: 590 2035
Bílabúð Benna Reykjanesbæ
Njarðarbraut 9 • 260 Reykjanesbæ
Sími: 420 3330
Þú finnur
rétta bílinn á
benni.is
Nýskráður í janúar 2013 | Ekinn 65.000 km
Dísel | Sjálfskiptur
VERÐ 4.690.000,-
Nýskráður í júní 2012 | Ekinn 78.000 km
Bensín | Beinskiptur
VERÐ: 1.990.000,-
Nýskráður í júní 2013 | Ekinn 76.000 km
Bensín | Sjálfskiptur
VERÐ: 1.990.000,-
Nýskráður í júní 2012 | Ekinn 78.000 km
Bensín | Sjálfskiptur
VERÐ: 2.590.000,-
Nýskráður í desember 2012 | Ekinn 51.000 km
Bensín | Sjálfskiptur
VERÐ: 2.150.000,-
Nýskráður í apríl 2012 | Ekinn 80.000 km
Bensín | Beinskiptur
VERÐ: 1.390.000,-
CHEVROLET AVEO LTZ CHEVROLET CAPTIVA LT
CHEVROLET CRUZE LT
CHEVROLET SPARK VW POLO COMFORTLINE
VW GOLF TRENDLINE
Svívirðileg hryðju-
og níðingsverk
Þessa daganna er
verið að fremja
svívirðileg hryðju-
og níðingsverk á
minnihlutahópum og
fleirum í Írak. ISIS-
samtökin ráðast meðal annars á
kristið fólk, jasída og shia-mús-
lima, allt vegna trúarskoðana.
Þúsundir eru innikróaðir á
flótta undan glæpamönnunum.
ISIS-liðar hafa þegar framið
fjöldamorð á kristnum, jasídum
og shia-múslimum og nauðgað
og selt kristnar konur í ánauð og
stolið öllu.
Hver eru viðbrögð hins svo-
nefnda frjálsa heims? Dögum
saman sat Obama Bandaríkjafor-
seti aðgerðarlaus og það gerðu
Cameron, Merkel, Hollande og
aðrir Evrópuleiðtogar einnig. Svo
var farið í takmarkaðar aðgerðir
með hangandi hendi.
jonmagnusson.blog.is
Jón Magnússon
Af netinu
GEFÐU
HÆNU
gjofsemgefur.is
9O7 2OO3