Fréttablaðið - 15.08.2014, Síða 28
FRÉTTABLAÐIÐ Nýjar Stelpur Augnablikið Líf ið mælir með. Jógaþon 10 spurningar Erna Ómars viðtalið Fataskápurinn Jet Korine Tískuvikan í Kaupmannahöfn
4 • LÍFIÐ 15. ÁGÚST 2014
„Við tökumst á við það neikvæða
með hinu jákvæða og þess
vegna völdum við jóga. Jóga er
alltaf friður og ró,“ segir Salka
Margrét Sigurðardóttir, formað-
ur Ungmennaráðs UN Women
sem stendur fyrir maraþoni í
jóga á laugardaginn í Hljóm-
skálagarðinum, eða svokölluðu
jógaþoni.
„Ofbeldi er aldrei friður. Við
viljum senda þau skilaboð út
í samfélagið að ofbeldi gegn
konum eigi ekki að líðast.“
Verkefnið er samstarfsverk-
efni ungmennaráðs UN Women
og Pop Up Yoga Reykjavík.
Jógaþonið lýsir sér þannig að
þátttakendur gera 108 sólarhyll-
ingar og senda þannig í sam-
einingu friðarákall út í heiminn
um afnám ofbeldis gegn konum.
Þrír jógakennarar sjá um að
leiða hópinn og skipta þeir á
milli sín sólarhyllingunum.
„Byrjendur geta alveg verið
með eins og reyndir jógar,“ út-
skýrir Salka. „Það verður hægt
að hvíla sig á milli og þú átt ekki
að ofreyna þig.“
Skráning fer fram á un-
women.is og skráningargjald er
2.900 krónur, sem rennur óskipt
til verkefna UN Women.
Mikilvægt er að fólk skrái
sig með fyrirvara og undirbúi
sig bæði líkamlega og andlega.
„Þetta er mikil andleg upplif-
un. Það myndast svo mikill sam-
takamáttur þegar margir hugsa
það sama.“
Ungmennaráð UN Women
var stofnað fyrir aðeins tveimur
árum en þegar hefur ráðið hald-
ið vel heppnaða viðburði. „Við
viljum vekja athygli á málefnum
kvenna og UN Women fyrir ungu
fólki. Ungt fólk getur haft áhrif
með vitundarvakningu og fram-
lagi sínu til samfélagsins.“
HEILSA SENDA FRIÐARÁKALL
ÚT Í HEIM MEÐ JÓGAÞONI
„Jóga er alltaf friður og ró,“ segir formaður Ungmennaráðs UN Women.
Jóga er ákaflega slakandi og styrkjandi íþrótt sem byggist á innri friði. MYND/POPUPYOGA
108 hefur í gegnum söguna og í hinum
ýmsu trúarbrögðum verið talin heil-
ög tala. Þegar gerðar eru 108 sólar-
hyllingar er það talið til þess fallið
að fagna breytingum eða til þess að
boða frið, virðingu og skilning.
Salka Margrét
Sigurðardóttir
1. Þegar ég var ung hélt ég að … málgleðin í mér væri ein-
ungis til skemmtunar og samkjaftaði því ekki allan daginn og gaf for-
eldrunum aldrei frí.
2. Núna veit ég þó … að fullorðið fólk þarf stundum frið og ró,
því dóttir mín er nákvæmlega sami karakter og ég var.
3. Ég mun eflaust aldrei skilja … við verðandi manninn minn
því ég elska hann svo mikið.
4. Ég hef engan sérstakan áhuga á … að umgangast fólk
sem kemur ekki til dyranna eins og það er klætt. Ég hef meiri áhuga
á að umgangast fólk sem er heilt og
heiðarlegt.
5. Karlmenn eru … alls
konar fólk, eins og konur.
6. Ég hef lært að
maður á alls ekki
að … sitja á hugmynd-
um sínum eða draumum –
bara láta vaða.
7. Ég fæ samvisku-
bit þegar ég … segist
ætla að gera eitthvað sem
ég stend ekki við, því reyni
ég að láta það ekki koma fyrir.
8. Ég slekk á sjón-
varpinu þegar … aðrir
gleyma því, ég horfi eig-
inlega aldrei á sjón-
varp.
9. Um þessar
mundir er ég upp-
tekin af … verkefn-
um haustsins sem eru
mjög spennandi og
skemmtileg. Einnig er
ég að koma fjölskyld-
unni fyrir á nýju heimili í
nýju landi.
10. Ég vildi óska
að fleiri vissu af …
í augnablikinu mikilvægi
þvottavélar (!) en mín bilaði
nefnilega í vikunni og ég vissi
það ekki fyrr en núna hvað ég
þarfnast hennar mikið. Skrít-
in ósk.
10 SPURNINGAR
VIL UMGANGAST HEILT OG
HEIÐARLEGT FÓLK
ELÍSABET GUNNARSDÓTTIR, ANNAR EIGANDI
TRENDNET.IS OG VIÐSKIPTAFRÆÐINGUR
Markaður,
veitingar,
and lits máln ing
happ drætti og
upp ákomur.
Fjölskyldudagur á KEX til
styrktar börnum í Palestínu
KEX Hostel 17. ágúst frá 14–17
Allur peningur sem safnast
rennur óskipt ur til hjálpar-
starfs Rauða krossins.
Frjáls framlög eru einnig vel
þegin, hægt er að leggja inn
á reikning 0140-05-071350,
kt. 081288-2839.