Fréttablaðið - 11.09.2014, Blaðsíða 2
11. september 2014 FIMMTUDAGUR| FRÉTTIR | 2
STJÓRNMÁL Vilhjálmur Árnason, þingmaður
Sjálfstæðisflokks, mun í dag leggja fram frum-
varp um breytingar á áfengislöggjöf sem felur
í sér að leyfilegt verður að selja áfengi í mat-
vöruverslunum. Vilhjálmur gerir ráð fyrir
átökum um málið en þingmenn allra flokka, ef
frátaldir eru Vinstri grænir, eru meðflutnings-
menn hans.
Þetta er í sjöunda skiptið sem frumvarp sem
þetta er lagt fram. Tuttugu og níu þingmenn
hafa verið meðflutningsmenn í þessi skipti,
alltaf hafa verið meðflutningsmenn úr Samfylk-
ingu, Sjálfstæðisflokki og Framsóknarflokki.
Ellefu þessara þingmanna eru á þingi í dag og
allir ráðherrar Sjálfstæðisflokksins,
ef frá er talin Hanna Birna Krist-
jánsdóttir, sem er ný á þingi,
hafa flutt málið. Það ætti því að
blása byrlega fyrir Vilhjálmi.
Samkvæmt heimildum blaðs-
ins er um að ræða framsóknar-
þingmennina Karl Garðarsson,
Willum Þór Þórsson og Harald Ein-
arsson, auk Jóns Þórs Ólafssonar úr
Pírötum, Bjartar Ólafsdóttur úr
Bjartri framtíð og svo sex til
sjö þingmanna Sjálfstæðis-
flokks.
Vilhjálmur telur víst að í það minnsta 30
þingmenn muni styðja frumvarpið sem þýðir
að mjótt verður á munum þegar til atkvæða-
greiðslu kemur. „Og svo þegar þetta kemur
til meðferðar þingsins koma inn umsagn-
ir og annað og ég hef fulla trú á því að þá
muni fleiri þingmenn bætast í hópinn,“ segir
Vilhjálmur. - jbg
Frumvarp sem heimilar sölu áfengis í matvöruverslunum lagt fram á Alþingi í dag:
Bjartsýnn á meirihluta fyrir vínfrumvarpi
VILHJÁLMUR ÁRNASON Leggur
fram frumvarp um breytingar á
áfengislöggjöf sem felur í sér að
leyfilegt verður að selja áfengi í
matvöruverslunum.
HVALVEIÐAR Alls höfðu í gær 116
langreyðar verið veiddar síðan
hvalveiðitímabilið hófst 15. júní
síðastliðinn. Fjögur dýr voru
dregin að landi í Hvalstöðinni í
Hvalfirði í gær.
Leyfi er fyrir veiðum á 154
langreyðum á þriggja mánaða
tímabili, sem lýkur á mánudag-
inn. Veiðarnar hafa farið fram
fyrir austan Surtsey en þar hefur
ekki verið veitt undanfarin ár.
Um 150 manns sinna störfum
sem tengjast veiðunum. Níutíu
eru í vinnslunni í Hvalfirði, auk
hvalveiðimanna og þeirra sem
starfa á Akranesi og í Hafnar-
firði. Allt hvalkjötið sem veiðist
er selt á Japansmarkað. - fb
Nóg að gera í Hvalstöðinni:
116 langreyðar
verið veiddar
SAMFÉLAG Átaksverkefnið Göng-
um í skólann var sett í áttunda
skipti í gær og fór setningarhá-
tíðin fram í Laugarnesskóla í
Reykjavík.
Illugi Gunnarsson, mennta-
og menningarmálaráðherra, og
Dagur B. Eggertsson borgar-
stjóri fluttu stutt ávörp og
hvöttu nemendur til þess að
ganga, hjóla eða nota annan
virkan ferðamáta á leið sinni í
skólann. Að því loknu kom Solla
stirða í heimsókn og tók nokkr-
ar léttar æfingar í morgunsárið
auk þess að láta borgarstjóra
dansa ballett við mikla kátínu
nemenda jafnt sem starfsfólks.
- fb
Göngum í skólann sett:
Borgarstjóri
dansaði ballett
REYKJAVÍK Glipnir verktakar standa í framkvæmdum fyrir Reykja-
víkurborg í miðbæ Reykjavíkur. Verið er að leggja snjóbræðslukerfi í
kringum strætóskýli við Lækjargötuna svo biðin eftir strætisvagnin-
um verði notalegri þegar snjórinn lætur sjá sig.
Hundurinn Bobbi fylgist grannt með framkvæmdunum en hann fer
á hverjum degi með eiganda sínum, sem starfar hjá Glipni, í vinnuna.
- ebg
Vegavinnuhundurinn Bobbi fylgist með framkvæmdum:
Verið að gera klárt fyrir veturinn
HUNDUR Í VINNU Bobbi fer á hverjum degi með eiganda sínum í vinnu við alls
kyns vegaframkvæmdir. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
HEILBRIGÐISMÁL „Við munum klárlega skoða þetta og
geri ég fastlega ráð fyrir að þetta verði tekið upp í
mótun nýrrar geðheilbrigðisstefnu,“ segir Kristján
Þór Júlíusson heilbrigðisráðherra þegar hann er
spurður um viðbrögð stjórnvalda við mikilli umræðu
síðastliðna daga um sjálfsvíg.
Fréttablaðið, ásamt öðrum miðlum, hefur fjallað
um sjálfsvíg, rætt við fagaðila, eftirlifendur og þá
sem reynt hafa að fremja sjálfsvíg. Allir eru sam-
mála um að umræðan þurfi að opnast með aukinni
fræðslu um geðheilbrigði og stuðningur þurfi að vera
meiri. Einnig hefur verið bent á að sálfræðiþjónusta
á Íslandi sé of dýr og því hafi ekki allir jafnt aðgengi
að aðstoð þegar bera fer á vanlíðan.
„Við erum að þreifa okkur áfram varðandi sálfræði-
þjónustu, til dæmis að hún verði teymisvinna í heilsu-
gæslunni,“ segir Kristján og bendir á að fjármunir
séu veittir í málaflokkinn með þjónustu á Land spítala
og hjá heilsugæslunni. „Það má hins vegar alltaf gera
betur.“
Kristján var á málþingi í gær vegna Alþjóðadags
forvarna og varð djúpt snortinn af því sem hann varð
vitni að þar. „Það þarf hugrekki til að standa upp og
lýsa þeim gríðarlega tilfinningavendi sem menn verða
fyrir þegar aðstandandi fremur sjálfsvíg og umræðan
sem slík frásögn vekur er afar mikilvæg,“ segir Krist-
ján og bætir við að fordómalaus umræða sé jafnvel
mikilvægari en fjármagn í fagþjónustuna. - ebg
Sjónum verður beint að sjálfsvígsforvörnum í nýrri geðheilbrigðisstefnu:
Dáist að hugrekki eftirlifenda
FAGNAR AUKINNI UMRÆÐU Kristján Þór Júlíusson heil-
brigðisráðherra segir fordómalausa umræðu um sjálfsvíg vera
mikilvægt skref í auknum stuðningi. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR
Hreinn, er ríkisstjórnin á
rangri leið?
„Þeir eru allavega á villigötum.“
Í fjárlögum ársins 2015 er ekki gert ráð fyrir
auknu fjármagni í viðhald vega. Hreinn
Haraldsson vegamálastjóri bendir á að við-
haldsleysið komi niður á endingu veganna.
SKIPULAGSMÁL „Slík stærð yrði
afar umdeilanleg á þessum forna
sögustað og myndi vart skapa
frið um staðinn,“ segir hverfisráð
Kjalarness sem leggst gegn því
að Sri Chinmoy-miðstöðin fái að
reisa þrettán metra háa styttu af
Chinmoy við Esjuberg. Umhverf-
is- og skipulagsráð Reykjavíkur
hafnaði styttunni einnig í gær.
Styttan á að verða manngengt
listaverk tileinkað friði. Hún er
hönnuð af Englendingnum Kaiv-
aliya Torpy sem mun hafa gert
margar styttur af Chinmoy víða
um lönd. Indverski gúrúinn og
kraftlyftingamaðurinn Chinmoy
lést árið 2007.
„Þetta á að verða vin í eyði-
mörkinni frá daglegu stressi. Fólk
mun fá aðgang þarna inn en alls
ekki þannig að það trufli nágrann-
ana,“ sagði Marteinn Arnar Mar-
teinsson hjá Sri Chinmoy-miðstöð-
inni í samtali við Fréttablaðið í
maí. Einnig kom fram hjá Mar-
teini að meðlimir Sri Chinmoy-
miðstöðvarinnar ætluðu að planta
trjám og útbúa tjarnir á lóðinni
sem kaupa átti undir styttuna.
Hverfisráð Kjalarness segist
styðja gerð náttúrulegs garðs og
plöntun trjáa í landi Esjubergs
og hugmyndir um opið útivistar-
svæði.
„Hverfisráðið getur hins vegar
ekki stutt það að svona stór minn-
isvarði/stytta af Sri Chinmoy sé
reist á staðnum,“ segir hverfisráð-
ið og vísar í fyrri bókun sína þar
sem fram kemur að Esjubergs sé
getið í fornbókmenntum og að þar
sé talið að fyrsta kirkja á Íslandi
hafi staðið.
„Í mörg ár hafa Kjalnesingar
rætt um hvernig best sé að vekja
athygli á sögu staðarins,“ segir
hverfisráðið sem kveður sóknar-
nefnd Brautarholtskirkju og Sögu-
félagið Steina hafa staðið fyrir
útimessum á Esjubergi undan-
farin sumur.
„Hugmyndir eru uppi meðal
Kjalnesinga um að setja þar upp
útialtari. Í þessu ljósi er bent á að
nauðsynlegt er að taka til vand-
legrar skoðunar hvaða mann-
virki, byggingar eða listaverk
munu setja svip á staðinn, sér í
lagi ef þau koma til með að verða
jafn áberandi í landslaginu og
umrætt listaverk virðist munu
verða,“ segir hverfisráðið og
bætir við að Chinmoy-styttan yrði
mjög áberandi í landslaginu undir
Esju og skera sig úr.
gar@frettabladid.is
SPURNING DAGSINS
Smiðjuvegi 2, Kóp - S. 554 0400
3 brennarar úr ryðfríu stáli
Vilja ekki risavaxinn
bronsjóga við Esjuna
Fyrirætlanir áhangenda Sri Chinmoy heitins um að reisa þrettán metra styttu af jóg-
anum við rætur Esju verða ekki að veruleika. Hverfisráð Kjalarness segir hæðina afar
umdeilanlega á fornfrægum sögustað og ekki myndu skapa frið eins og ætlað væri.
STYTTAN AF CHINMOY Bronsstyttan í landi
Esjubergs átti að vera þrettán metrar á hæð.
MYND/SRI CHIMNOY-MIÐSTÖÐIN
Hugmyndir eru uppi
meðal Kjalnesinga um að
setja þar upp útialtari.
Hverfisráð Kjalarness