Fréttablaðið - 11.09.2014, Blaðsíða 18
11. september 2014 FIMMTUDAGUR| FRÉTTIR | 18
11. SEPTEMBER MINNST Í BANDARÍKJUNUM Námsmenn
við Pepperdine-háskólann í Kaliforníu hafa dregið að húni
um þrjú þúsund fána til minningar um þá sem létu lífið í
árásum hryðjuverkamanna á Bandaríkin fyrir þrettán árum.
NORDICPHOTOS/AFP
HÁTÍÐ Á SPÁNI Í
borginni Guadix í
Granada-héraði syðst á
Spáni er haldið upp á
Casca morras-hátíðina,
þar sem einn þorpsbúi
klæðir sig upp sem
furðufuglinn Casca-
morras og ferðast
ásamt hópi fylgis-
manna sinna til næsta
þorps, þar sem hann
reynir í þykjustunni að
stela styttu af Maríu
mey. Síðan snúa þeir
aftur til Guadix þar
sem heimamenn
„refsa þeim“.
FLÓÐ Í PAKISTAN Maður þessi bar sauð sinn á öxlum sér þar
sem hann óð í gegnum flóðvatnið í útjaðri borgarinnar Multan
í Punjab-héraði. Flóðin hafa kostað nokkur hundruð manns
lífið og tugir þúsunda hafa þurft að flýja heimili sín.
NORDICPHOTOS/AFP
LEÐURVERKSMIÐJA Í AFGANISTAN Í útjaðri borgarinnar
Mazar-i-sharif, í norðurhluta Afganistans, er leðurverksmiðja
þar sem þessir tveir verkamenn tóku sér hvíld stundarkorn.
Leðurvörur eru ein helsta útflutningsvara Afgana.
ÁSTAND
HEIMSINS
ELDSVOÐI Í ÞÝSKALANDI Þetta er ekki eldgosið í Holu-
hrauni heldur varð sprenging í efnaverksmiðju í Ritterhude,
skammt frá Bremen í Þýskalandi. Einn hlaut alvarleg bruna-
sár og hús í nágrenninu skemmdust. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
ÚTFÖR UND-
IRBÚIN Í PAK-
ISTAN Íbúar í
Lahore búa sig
þarna undir
fjöldaútför, en
að minnsta
kosti tuttugu
og fjórir fórust
þegar þak á
mosku hrundi
á þriðjudag-
inn.
1
1
4
4
2
2
5
5
3
3
6
6
RúmGott · Smiðjuvegi 2 (við hliðina á Bónus) · Kópavogi · Sími 544 2121
Opið virka daga frá kl. 10-18 og laugardaga kl. 11-16 · www.rumgott.is
VIÐ FRAMLEIÐUM ÞITT RÚM EFTIR ÞÍNUM ÞÖRFUM
Framleiðum dýnur og rúm fyrir hótel og gistiheimili
FAGLEG RÁÐGJÖF OG
FRÍ LEGUGREINING
Komdu í heimsókn,
prófaðu legugreininguna,
og fáðu faglega ráðgjöf
um val á heilsudýnum,
án skuldbindinga!
· HAUSTTILBOÐ ·
20-30% AFSLÁT
TUR