Fréttablaðið - 11.09.2014, Blaðsíða 65
FIMMTUDAGUR 11. september 2014 | MENNING | 45
„Hátíðin hefur alltaf verið að
stækka og ég er viss um að hátíðin
í ár verður sú flottasta hingað til,“
segir Ísak Rúnarsson, formaður
Stúdentaráðs, en í kvöld hefst Októ-
berfest með pompi og prakt á svæði
Háskóla Íslands í Vatnsmýrinni.
Hátíðin, sem haldin er af Stúdenta-
ráði HÍ, fer nú fram í ellefta sinn og
verður boðið upp á mikla tónleika-
veislu.
„Við gerum smá breytingar frá
því í fyrra og verðum með tvö stór
tjöld í ár í stað þess að hafa eitt stórt
og tvö lítil,“ segir Ísak. Í báðum
tjöldunum fara fram tónleikar en í
nýja tjaldinu verða plötusnúð-
ar í forgrunni. Alls koma um
tuttugu hljómsveitir fram á
hátíðinni.
Auk þess að bjóða upp á
tónleika verður á staðn-
um fallturn og talsvert
framboð af matvælum.
„Það verður gaman
að sjá hvernig fólk
tekur í fallturninn
þegar það er komið
í gott stuð,“ bætir Ísak við. Hátíðin
fer fram í kvöld, föstudagskvöld og
laugardagskvöld. „Við verðum með
búningakeppni á föstudagskvöld
og það verða veitt verðlaun fyrir
flottasta búning karla og kvenna.
Einnig verðlaunum við þann aðila
sem er með flottustu mott-
una.“
Húllumhæið hefst
klukkan 20.00 í kvöld
í Vatnsmýrinni og er
sala á miði.is og við
innganginn. - glp
Fallturn og festival í Vatnsmýrinni
Fjöldi listamanna kemur fram Októberfest Stúdentaráðs hefst í kvöld.
HÁTÍÐARSKAP Ísak Rúnarsson
formaður Stúdentaráðs HÍ lofar miklu
stuði í Vatnsmýrinni.
■ Agent Fresco
■ Mamm´´ut
■ Vök
■ Kiriyama Family
■ Ourlives
■ Emmsjé Gauti
■ Reykjavíkurdætur
■ Úlfur Úlfur
■ Dikta
■ Jón Jónsson
■ Ojba Rasta
■ Hinemoa
■ Páll Óskar
■ Steindi
■ Bent
■ Friðrik Dór
■ Amabadama
FRAM KOMA
MEÐAL ANNARS
Fæst í apótekum, heilsubúðum
og stórmörkuðum
www.gengurvel.is
BELLAVISTA náttúrulegt
efni fyrir augun, ríkt af
lúteini og bláberjum
ÞREYTT AUGU
2.000 kr. afsláttur af
áskriftarkortum
Borgarleikhússins
Vildarþjónusta
Tilboðið gildir til 20. september
islandsbanki.is Netspjall Sími 440 4000 Facebook
Íslandsbanki býður viðskiptavinum í Vildarþjónustu 2.000 kr.
afslátt af áskriftarkortum Borgarleikhússins. Í vændum er
kröftugt og töfrandi leikár hjá Borgarleikhúsinu sem þú getur
kynnt þér á borgarleikhus.is.
Íslandsbanki er stoltur bakhjarl Borgarleikhússins.
Tilboð á áskriftarkortum
Almennt verð 14.500 kr.
Vildarþjónustuverð 12.500 kr.
Áskriftarkort fyrir 25 ára og yngri
Almennt verð 9.900 kr.
Vildarþjónustuverð 7.900 kr.
Áskriftarkortið gildir á fjórar sýningar
að eigin vali.
„Í raun hófst þetta verkefni fyrir
12 árum án okkar vitundar þegar
ég hitti Óskar í fyrsta skipti í
London. Það var eins og við hefð-
um spilað saman í mörg ár og
að hann vissi allt um grúvið og
sálina í brasilískri tónlist en þó
þannig að hann bætti einhverju
mjög sérstöku við hana. Tveim
árum síðar var ég á Íslandi að
spila með Óskari og fleiri íslensk-
um tónlistarmönnum. Tilfinning-
in varð enn þá sterkari. Ég hafði
fundið nýja leið til að spila tón-
listina sem ég elska,“ segir bras-
ilíski söngvarinn og gítarleik-
arinn Ife Tolentino sem kemur
nú til Íslands 12. árið í röð til að
leika með Óskari Guðjónssyni
saxófónleikara í Mengi í kvöld
klukkan 21.00. Leiðir þeirra lágu
saman í London er Óskar var
búsettur þar. Eitt af markmiðum
Óskars var að kynnast brasilísk-
um gítarleikara og söngvara til
að nema þá fögru list sem þetta
einstaklega hjartahlýja fólk hefur
gefið umheiminum. Bossa nova
og samba eru bara þekktustu stíl-
ar þessarar margslungnu tónlist-
ar sem Ife og Óskar munu leika.
Það má segja að þetta hafi verið
ást við fyrsta tón. Vinátta Ife og
Óskars hefur getið af sér geisla-
diskinn VOCÊ PASSOU AQUI.
Ife hefur um árabil verið búsett-
ur í London og er vel þekktur
innan brasilískrar tónlistarsenu
þar í borg. Hlaut hann nýverið
verðlaun, Brazilian International
Press Awards. - glp
Leiða saman
hesta sína
GOTT TEYMI Óskar Guðjónsson og Ife
Tolentino koma fram í Mengi í kvöld.