Fréttablaðið - 11.09.2014, Blaðsíða 32
11. september 2014 FIMMTUDAGUR| SKOÐUN | 32
Ófremdarástand ríkir
í miðborg Reykjavíkur.
Ferðamenn streyma til
landsins og gista á hót-
elum og gistiheimilum í
miðborginni. Þeir vilja sjá
Ísland og kaupa sér dags-
ferðir til að sjá alla þessa
stórmerkilegu staði sem
Íslendingar eiga og kynn-
ast þannig náttúrunni örlít-
ið. Ökuleiðsögumenn og
bílstjórar keyra um mið-
borgina til að taka þessa
ferðamenn upp á morgnana eða
skila þeim á hótel að ferð lokinni.
En íbúar miðborgarinnar eru bull-
andi óánægðir því bílstjórarnir
verða stundum að hleypa út fólki
eða taka upp á miðri götu. Þetta er
vandamálið í hnotskurn.
Nýlega birtist grein á Vísi (http://
www.visir.is/rutur-stifla-gotur-i-
midborginni/article/2014140909549
og síðar http: //www.visir.is/
rutur-i-midborginni--oll-spjot-
beinast-ad-borgaryfirvoldum/
article/2014140909159) þar sem
fjallað var um óánægju borgarbúa
með umferðina um miðborgina á
kvöldin og um nætur þegar verið er
að koma heim með fólk. Harkalega
var deilt á ökumenn ferðaþjónustu-
bíla og það ónæði sem af fólksflutn-
ingunum hlýst. Um það er þetta að
segja: Bílarnir hafa yfirleitt góðan
öryggisbúnað. Sumir eru þannig
búnir að þeir pípa þegar bakkað
er. Yfirleitt er lítið ónæði af þess-
um tækjum og auðvitað má koma
þeim tilmælum til eigendanna að
aftengja bökkunarpípið. Það myndi
þá væntanlega koma niður á örygg-
ismálunum en það verður ekki bæði
sleppt og haldið.
Hótel í hnapp
Í sömu grein segist samgöngudeild
borgarinnar hafa komið
fyrir nokkrum rútustæðum
í miðborginni. En betur má
ef duga skal. Nánast hvergi
er gert ráð fyrir að jeppar
og stærri eða minni rútur
geti stoppað og alveg klár-
lega ekki á strætóbiðstöðv-
um eins og staðan er í dag.
Samt hafa borgaryfirvöld
óhikað veitt hótelum og
gistihúsum starfsleyfi tvist
og bast um miðborgina,
stundum jafnvel mörgum
hótelum á sömu torfunni án þess
að gera ráð fyrir að ferðaþjónustan
geti stoppað nokkurs staðar nærri.
Dæmi um þetta er Hlemmur.
Þar eru að minnsta kosti þrjú hótel
í hnapp, Hlemmur Square, Guest-
house 101 og 4th floor hotel auk
þess sem nokkur hótel eru örlítið
ofan og neðan við Hlemm. Hvergi
er hægt að stoppa á þessu svæði og
samt eru þar stundum tveir til þrír
minni bílar að sækja fólk af sama
hótelinu á sama tíma. Þetta veldur
miklum vandræðum og getur orðið
tilefni hnútukasts svo ekki sé meira
sagt.
Hvað er til ráða? Strætóbílstjórar
flauta. Ökuleiðsögumenn og rútu-
bílstjórar eru í klemmu. Viðbrögðin
eru þau að bíða færis og reyna að
stoppa þar sem nokkur möguleiki
er á, stundum uppi á stétt, stundum
á miðri götu og reyna að greiða úr
hlutunum eins hratt og örugglega
og hægt er. En íbúarnir steyta samt
hnefann og hnýta hátt og skýrt í
bílstjórana, lýsa því fjálglega fyrir
börnunum sínum hversu miklir
aumingjar og ræflar þeir eru.
Tæklum þetta jákvætt
Ökuleiðsögumenn og bílstjórar
aka ekki um göturnar í miðborg-
inni að gamni sínu. Þeir eru í
vinnu og verða að geta unnið sína
vinnu. Þjóðin byggir afkomu sína
meðal annars á erlendum ferða-
mönnum. Ferðaþjónustan hefur
komið til móts við íbúana og getur
örugglega gert betur. Sama gildir
um borgaryfirvöld og íbúa. Öku-
menn á rútum og jeppum forðast
eftir fremsta megni að keyra um
miðborgina á kvöldin. Ferðamenn
geta nú valið um það hvort þeir
kaupa skutl alveg upp að dyrum
eða draga ferðatöskurnar sínar um
göturnar í miðbænum. Stórar rútur
fara ekki um litlu göturnar lengur.
Útskýrt er fyrir fólki að rútur megi
ekki fara um miðborgina og því sé
fólk beðið um að labba. Þessu taka
ferðamenn alltaf vel. En ábyrgðin
á að vera hjá þeim sem ábyrgðina
eiga. Skipulagsyfirvöld og sam-
gönguyfirvöld hafa ekki sinnt
hlutverki sínu nægilega vel. Öku-
tæki í ferðaþjónustunni verða að
geta stoppað í miðborginni. Ég vil
því hvetja til þess að við komum
með tillögur um það hvernig leysa
megi vandann í miðborginni frekar
en að hnýta hvert í annað. Það er
alveg ljóst að fjölga þarf stórlega
svæðum þar sem jeppar og rútur
geta stoppað við hótel. Það þarf
að taka þessa umferð inn í skipu-
lagninguna. Borgaryfirvöld þyrftu
alltaf að gera ráð fyrir bílaumferð í
kringum hótel og gististaði áður en
og þegar þau veita starfsleyfi.
Lausnin felst tæpast í því að
úthýsa öllum hótelum og gististöð-
um úr miðborginni. Tæklum þetta
frekar jákvætt. Komum með tillög-
ur að lausn.
Umferðarkrísan í miðborginni
Útvarpsstjóri sagðist fella
niður morgunbæn og orð
kvöldsins til að fá pláss
fyrir annað efni á Rás 1.
Skildist mér að nýja efnið
væri fræðsla um trúar-
brögð. Miðað við kröft-
ug mótmæli hlustenda
er greinilegt að útvarps-
stjóri hefur ekki kynnt sér
hversu margir eru árris-
ulir og finnst gott að fara
út í daginn eftir morgun-
bæn útvarpsins og sofna út frá
orði kvöldsins. Ólíklegt er að nýja
efnið fái meiri hlustun en þessar 3
+ 5 mínútur, sem skulu klipptar út
fyrir almenna trúarbragðafræðslu.
Annars hélt ég trúarbragðafræðsla
vera hlutverk skóla. Líklegast er
það misskilningur, því ekki má
lengur gefa Nýja testamentið í
barnaskólum, sem segir að ekki
megi kenna kristinfræði í barna-
skólum. Í 12 ára bekk gáfu Gídeon-
félagar öllum Nýja testamentið og
er ég þakklátur fyrir gjöfina.
Útvarpsstjóri hætti við að fella
niður þriggja mínútna morgun-
bæn, en orð kvöldsins skal burt úr
ríkis útvarpi allra landsmanna, sem
flestir játa kristna trú og greiða
RÚV skylduáskrift.
Ég fletti dagskrá Rásar 1 upp og
komst að því að ekki vantar pláss
fyrir nýtt efni miðað við hversu
mikið efni er endurflutt.
Fimmtudagurinn 21. ágúst byrj-
aði á bæn dagsins 06:36 til 06:39.
Áfangastaður Ísland endurflutt frá
13:00 til 14:00. Steypiregn endur-
flutt frá 16:05 til 17:00. Stund með
KK endurflutt frá 20:50 til 21:30.
Orð kvöldsins frumflutt frá 22:10
til 22:15. Segðu mér end-
urflutt frá 22:15 til 23:00.
Sjónmál endurflutt frá
23:00 til 24:00. Fyrstu fréttir voru
kl. 07:00 og endurfluttar á klukku-
stundar fresti svo til óbreyttar.
Trúariðkun í 8 mínútur skal kippt
út á sama tíma og nóg pláss er fyrir
endurflutt efni í 5 klukkustundir!
Daginn á undan var endurtekið efni
einni klst. lengur.
Greinilega er til nóg pláss til að
bæta dagskrána. Fyrsta skrefið
gæti verið að taka orð kvöldsins
inn aftur og í stað endurtekningar
frétta kl. 9:00 og 11:00 mætti end-
urtaka bæn dagsins fyrir þá sem
ekki voru komnir á ról kl. 06:36.
Það fer ekki hjá því að maður
velti fyrir sér rekstri RÚV sem í
áratugi hefur verið rekið með tapi.
Fyrri útvarpsstjóri, Páll Magn-
ússon, reyndi að slá á tapið með
fjöldauppsögnum þeirra, sem vinna
á gólfinu. Sá nýi var rétt byrjaður,
þegar hann rak alla stjórana og
ætlar nú að bæta reksturinn með
breyttri dagskrá og það í kjölfar
þess að mikilli þekkingu hefur
verið hent út.
Skyldi ekki vera best fyrir rekst-
ur RÚV, úr því sem komið er, að
leggja alveg niður Rás 2 og vera
með eina góða rás?
Ríkisútvarpið
og kristin gildiUMFERÐ
Guðrún Helga
Sigurðardóttir
blaðamaður og
ökuleiðsögumaður
➜ Hvað er til ráða? Strætó-
bílstjórar fl auta. Ökuleið-
sögumenn og rútubílstjórar
eru í klemmu. RÚV
Sigurður Oddsson
byggingaverk-
fræðingur
➜ Ég fl etti dagskrá
Rásar 1 upp og komst
að því að ekki vantar
pláss fyrir nýtt efni
miðað við hversu
mikið efni er endur-
fl utt.