Fréttablaðið - 11.09.2014, Blaðsíða 37

Fréttablaðið - 11.09.2014, Blaðsíða 37
 | FÓLK | 3HEILSA|F LK Anna Lilja Marteinsdóttir snyrtifræðing-ur á von á sínu fyrsta barni í haust og hugsar því sérstaklega vel um heils- una. „Áður en ég varð ólétt tók ég inn Nutra-fjöl- vítamín fyrir konur því það inniheldur ráð- lagðan dagskammt af fólínsýru fyrir konur á barneignaraldri, auk helstu bætiefna sem kon- ur þarfnast í dagsins önn,“ segir Anna Lilja sem byrjaði að taka inn Nutra-fólínsýru þegar hún varð barnshafandi. „Við nánari eftirgrennslan um fólat fyrir barnshafandi konur komst ég að raun um að Nutra-fólínsýra er sú eina sem uppfyllir ráðlagðan dagskammt fólats fyrir óléttar kon- ur í einni töflu, eða 500 míkrógrömm á dag, samkvæmt viðmiðum Embættis landlæknis,“ segir Anna Lilja. Fyrstu tólf vikur meðgöngunnar var Anna Lilja illa haldin af morgunógleði. „Ég gubbaði frá morgni til kvölds og átti af þeim sökum erfitt með að tryggja fóstrinu nauðsynleg vítamín og steinefni með fæðunni einni saman. Því fannst mér gott að geta tekið inn fjölvítamín og fólínsýru í töfluformi og vita til þess að fóstrið dafnaði vel þrátt fyrir tímabundna vanlíðan mína.“ Vinnu sinnar vegna hefur Anna Lilja mikinn áhuga á Nutra Húð, hári og nöglum. „Á meðgöngu vex hár yfirleitt helmingi hraðar en vanalega en hárlos er þekkt eftir barnsburð og þá mun ég klárlega byrja að taka inn þær töflur,“ segir Anna Lilja, ánægð með líðan sína og hraustleika á meðgöngunni. „Mér þykir þægilegt að geta keypt þau vítamín sem ég þarf um leið og ég geri inn- kaupin í Bónus og gott verð á Nutra kom mér verulega á óvart þrátt fyrir mikinn fjölda taflna í hverjum stauk.“ Nutra-vítamínin fást í verslunum Hagkaups og Bónuss. FYRIR VERÐANDI MÓÐUR OG BARN AÐFÖNG KYNNA Barnsvon fylgir dásamleg tilhlökkun og gleði. Þá fyllast verðandi mæður löngun til að huga sérlega vel að heilsu sinni og barnsins litla sem í vændum er. Einmitt þá er nauðsynlegt að taka inn fólínsýru og bætiefni fyrir þroska fósturs og almenna hreysti móður. MEÐ BARNI Anna Lilja Marteinsdóttir snyrtifræðingur var illa haldin af morgunógleði fyrstu tólf vikur meðgöngunnar og þótti þá gott að tryggja ófæddu barni sínu nauðsynleg vítamín og steinefni með Nutra-vítamínunum. MYND/ARNÞÓR FJÖLVÍTAMÍN FYRIR 16–50 ÁRA KONUR Nutra Fjölvítamín fyrir konur er þriggja mánaða skammtur af mikilvægum bætiefnum fyrir konur á aldrinum 16 til 50 ára. Fjölvítamínblandan er sérvalin og breiðvirk formúla fyrir konur sem vilja fá mikilvæg- ustu bætiefnin í einni töflu. Þau innihalda meðal annars 400 míkrógrömm af fól- ínsýru, sem er ráðlagður dagskammtur kvenna á barneignaraldri og er best að fólínsýra sé í nægjanlegu magni í líkam- anum þegar barn verður til. STYRKIR ÓNÆMIS- KERFI LÍKAMANS Rannsóknir sýna að þeir sem taka inn gott fjölvítamín eru með sterkara ónæmiskerfi og því lík- legri til að sleppa við umgangs- pestir og sýkingar. Ein tafla á dag af Nutra-Fjölvíta míni er góð viðbót við daglegt gott fæði en óhætt er að auka skammtinn í tvær töflur til að tryggja nægjan- legt magn mikilvægra bætiefna sé kona undir miklu álagi eða stundi mikla líkamsrækt. FÓLÍNSÝRA ER MIKILVÆG FYRIR MÓÐUR OG BARN Fólínsýra er mikilvæg fyrir alla, en sérstaklega konur á meðgöngu. Samkvæmt ráðleggingum Embættis land- læknis eiga konur á meðgöngu og með barn á brjósti að taka inn 500 míkró grömm af fólínsýru daglega. Nutra Fólínsýra inniheldur þessi mikilvægu 500 míkrógrömm og uppfyllir því daglega þörf verðandi mæðra með aðeins einni töflu. Fólínsýra er vatnsleysanlegt vítamín úr flokki B-vítamína og nauðsynleg fyrir eðlilega blóðmyndun og frumuskipt- ingu. Hún er líka mikilvæg fyrir eðlilega myndun og viðhald amínósýra í blóði því mikið af amínósýrum í blóði hefur tengingu við hjarta- og æðasjúk- dóma. Jafnframt er fólínsýra talin þýðingarmikil fyrir andlegt jafn- vægi, hún spornar gegn þreytu og sleni og hefur mjög jákvæð áhrif á ónæmiskerfi líkamans. AF HVERJU FÓLÍN SÝRA Á BARNEIGNARALDRI? Rannsóknir hafa sýnt að rífleg fólat neysla fyrir getnað og á fyrstu tólf vikum meðgöngunnar dregur úr hættu á alvarlegum skaða í miðtaugakerfi fósturs, svo sem klofnum hrygg og heila- leysu. Því er öllum konum, sem geta orðið barnshafandi, ráðlagt að taka inn 400 míkró gramma fólínsýrutöflu á dag ásamt því að borða fólatríkan mat. Konum á meðgöngu og með barn á brjósti er ráðlagt að taka inn 500 míkró- grömm. HÚÐ, HÁR OG NEGLUR Nutra Húð, hár og neglur er sérvalin bætiefnablanda fyrir húð, hár og neglur. Bætiefnablandan inniheldur meðal ann- ars amínósýrur sem eru mikilvægar heilbrigðri húð, hári og nöglum. Blönduna er hægt að nota sem kúr í skamman tíma eða til að taka yfir lengra tímabil til að auka hárvöxt, koma í veg fyrir hárlos og styrkja húð og neglur. Auk amínósýra eru í blöndunni B-vítamínin B1, B2, B3, B5, B6 og bíótín, og svo selen og PABA sem styrkja húð, hár og neglur. Bætiefnablandan inniheldur einnig E- og A-vítamín. A-vítamín gegnir mikilvægu hlutverki í endurnýjun húðfruma og hjálpar til við framleiðslu á náttúrulegri sebum-olíu. Hún er okkur nauðsynleg til að hafa réttan raka í hár- sverði, gerir hann vatnsheldan og dregur úr ótímabæru hárlosi. Auk þess gefur A-vítamín hárinu gljáa og fallegan blæ. E-vítamín er öflugt andoxunarefni og mikilvægt fyrir allar frumur líkam- ans. Það er græðandi og dregur úr bólum og örum, eykur súrefnisflæði og hjálpar rauðum blóðkornum að flytja súrefni og næringu til húðar. Í Nutra Húð, hári og nöglum eru rúm 300 milligröm næringargers sem gefur bætiefninu sérstaka lykt og bragð. Ger er einstaklega gott fyr- ir húð, hár og neglur og hollt á marga aðra vegu. Ger er ríkt af B-víta- mínum og prótíni, sem er mikilvægt fyrir húð og hár, en auk þess stein- efnum og snefilefnum, eins og járni, kalki, sínki og kopar sem húð, hár og neglur þarfnast. Í bætiefnablöndunni er þykkni úr ofurjurtinni elftingu (e. horsetail), sem gefur andoxunarefni, og silica sem notið hefur mikilla vin- sælda og verið notað um langa hríð í vörur fyrir húð, hár og neglur. Silica styrkir líka beinin og er talið geta hægt á hrukkumyndun í húð. Ráðlagður dagskammtur af Nutra Húð, hár og neglur er 1 til 2 töflur á dag og sé blandan tekin sem kúr er mælt með tveimur töflum á dag.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.