Fréttablaðið - 11.09.2014, Blaðsíða 60
11. september 2014 FIMMTUDAGUR| MENNING | 40
„Ég er listamanna latastur að halda
einkasýningar. Síðasta stóra sýning-
in mín var á Kjarvalsstöðum 2007.
Hún hét Ljóshærð ungfrú heimur
1951 – því þá var ég búinn að mála
alla vinningshafa fegurðarsam-
keppninnar Miss World fram að
2007 og gerði þær allar ljóshærðar
og bláeygar. Það var þetta ljósku-
þema sem ég hef verið fastur í og er
enn. Ég er ekkert að losna úr þeim
viðjum.“ Þetta segir Birgir Snæ-
björn Birgisson glaðlega þar sem
hann er að setja upp sýningu sína í
Listasafni ASÍ.
Mikið rétt. Upp við einn vegginn
á efstu hæð halla sér myndir af nýj-
ustu fegurðardrottningu heimsins
og á gólfinu liggur myndröð með
blondínum. „Ég skráset þetta verk
2011-2014,“ segir Birgir og bendir
á blondínurnar á gólfinu. „Þá byrj-
aði ég að safna plötuumslögum með
ljóshærðum konum og sú myndröð
er orðin ansi stór. Það eru komin um
400 umslög. Þegar ég er á ferðalög-
um reyni ég að fara á markaði og
leita þessar plötur uppi þannig að
þetta er orðið áráttuverk líka.“
Birgir kveðst maska út allt á
umslögunum nema myndirnar af
ljóshærðu konunum. Það er gert
með ljósum litum sem hann vinn-
ur mikið með. „Ég segi stundum
að málverk mín séu meira hvísl en
hróp,“ segir hann en bendir á að
plötuumslögin séu undantekning því
ljósmyndirnar eru flestar í sterkum
litum.
Birgir viðurkennir að hvaða barn
sem er geti málað svona meðfram
ljósmynd. „Ég skal bara taka í hönd-
ina á því barni og óska því til ham-
ingju,“ segir hann brosandi. „Þraut-
in þunga er oft ekki að gera hlutinn
heldur að koma honum í eitthvert
samhengi og fá hann sýndan sem
myndlist og viðurkenndan sem slík-
an. Það getur verið grýtt leið.“
Pólitíska herbergið
Júlía Tímósjenkó, fyrrverandi for-
sætisráðherra Úkraínu, prýðir einn
vegg. „Júlía var lengi búin að vera í
huga mér út af þessari fallegu fléttu
sem hún ber,“ segir hann. „Þegar
ég byrjaði að mála hana sat hún í
fangelsi en nú þegar ég hef lokið
við verkin er hún sloppin út og er
enn að sækjast eftir valdaembætt-
um. Myndirnar mínar eru þó eng-
inn mælikvarði á sekt hennar eða
sakleysi.“
Næst skoðum við stórt málverk af
bréfi. Það málaði Birgir eftir hand-
skrifuðu bréfi sem Brigitte Bardot
ritaði til stuðnings Marie Le Pen í
aðdraganda frönsku forsetakosning-
anna 2012. Bréfið fangaði huga hans
og jók á sköpunarkraftinn eins og
enn betur kemur í ljós niðri á næstu
hæð.
„Segja má að þetta sé pólitíska
herbergið,“ segir Birgir og held-
ur leiðsögn sinni áfram. „Ég var í
Berlín í tvo mánuði og ákvað að gera
staðbundið verk. Angela Merkel er
valdamesta kona heims í dag. Mig
langaði í portrett af henni, varð
mér úti um undirskrift hennar og
ákvað að gera textaverk. Þau hef ég
hér á móti myndröð sem ég gerði af
Marie Le Pen, út af bréfinu sem er
á efstu hæð.“
Vændiskonur í kjallaranum
Þá er það kjallarinn. Þar er eitt bók-
verk í sýningarkössum og Birgir
segir sögu. „Árið 2010 var ég með
verk á sýningu í Listasafni Íslands
og samtímis nokkur í London. Þetta
var stór myndröð sem ég lét heita
Fallegu Parísarkonurnar. Það voru
textar upp úr gamalli leiðsagnar-
bók fyrir breska ferðamenn á leið
til Parísar og fjölluðu um vændis-
líf Parísarborgar þess tíma. Bókin
var fyrst gefin út 1883 og ég var í
mörg ár að velta fyrir mér hvað
ég gæti gert við hana áður en ég
ákvað að vatnslita textana sem voru
nákvæmar lýsingar á útliti, getu og
þjónustugleði þessara kvenna, með
hverjum þær hefðu verið og hvernig
þær hefðu komist til metorða. Þetta
voru 108 blöð og ég var meira en ár
að puða í þessu. Þegar ég var í tvo
mánuði í París 2012 ákvað ég að fara
í pílagrímsferð, heimsótti öll heimil-
isföngin í bókinni og gerði skrásetn-
ingarverk sem ég kalla 52 dagar
meðal fallegra Parísarkvenna. Ég
myndaði húsin og skráði hverja
heimsókn. Þessu fylgir svo götu-
kort af París þar sem ég hef merkt
inn alla staðina sem ég heimsótti.“
Ég hef orð á að textinn sé daufur
og illsýnilegur. „Já, samsinnir lista-
maðurinn. „Það þarf að rýna svolítið
í þetta, eins og í önnur verk mín. Þá
eru samskiptin orðin persónulegri
og ég segi oft varanlegri því hlut-
ir lifa lengur með fólki ef það hefur
eitthvað fyrir þeim.“
Allt under himmelens fäste heitir dagskráin sem þeir
Gunnar Guðbjörnsson og Jónas Ingimundarson ætla að
vera með í Norræna húsinu á laugardaginn. Þar verða
norræn sönglög í öndvegi, einkum sænsk og finnsk,
meðal annars eftir Grieg, Peterson-Berger, Alvén,
Sibelius og Merikanto.
„Þetta er fjölbreytt dagskrá. Sum laganna hafa fylgt
okkur lengi, eins og til dæmis Tonerna eftir Sjöberg,“
segir Gunnar, spurður út í efnisskrána og segir stóra
kippu af lögunum vera af diski sem kom út fyrir um tutt-
ugu árum. „En það eru líka ný lög inn á milli, svo sem
eftir finnska tónskáldið Merikanto, þau eru sungin á
finnsku en lengi vel var lítið til af finnskum textum fyrir
ljóðasönginn, þeir voru alltaf þýddir yfir á sænsku. Sib-
elius var Finnlandssænskur og hafði líklega þessi áhrif.“
Þeir Gunnar og Jónas hafa ferðast víða í gegnum árin
vegna tónleikahalds, bæði hér á landi, í Bretlandi og
Þýskalandi. „Samt er þetta í fyrsta skipti sem við tileink-
um Norðurlöndunum heila dagskrá,“ upplýsa þeir.
Tónleikarnir hefjast kl. 16 á laugardag og miðar verða
seldir við innganginn á 3.000 krónur. - gun
Lög sem hafa fylgt okkur lengi
Kapparnir Gunnar Guðbjörnsson óperusöngvari og Jónas Ingimundarson
píanóleikari ætla að fl ytja norræn sönglög í Norræna húsinu á laugardaginn.
Þrautin þunga er oft
ekki að gera hlutinn
heldur að koma honum í
eitthvert samhengi og fá
hann sýndan sem mynd-
list og viðurkenndan sem
slíkan. Það getur verið
grýtt leið.
Birgir Snæbjörn Birgisson
JÓNAS OG GUNNAR „Þetta er í fyrsta skipti sem við
tileinkum Norðurlöndunum heila dagskrá,“ segja þeir
um tónleikana í Norræna húsinu. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Meðal fallegra, ljóshærðra kvenna
Ladies, Beautiful Ladies er heiti sýningar Birgis Snæbjörns Birgissonar sem opnuð verður í Listasafni ASÍ á laugardaginn. Crymogea
gefur líka út bók sem ber sama titil. Tilefnið gott til að ónáða Birgi við frágang sýningarinnar sem teygir sig um allt safnið.
LISTAMAÐURINN Birgir Snæbjörn umkringdur myndröðinni Ljóshærðir tónlistarmenn sem gerð er úr plötuumslögum.
FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Sýningin Ladies Beautiful Ladies
verður opnuð í Listasafni ASÍ að
Freyjugötu 1 13. september klukkan
15 og verður opin alla daga til
5. október nema mánudaga frá klukk-
an 13 til 17. Aðgangur er ókeypis.
Birgir mun einnig halda sýningu
með sama heiti í Helsinki Contemp-
orary galleríinu í Helsinki í lok
nóvember. Sýningarstjóri beggja
sýninganna er Mika Hannula. Í tilefni
af sýningunum gefur Crymogea út
bókina Ladies, Beautiful Ladies með
verkum eftir Birgi og texta, meðal
annars eftir Hannula.
Ladies Beautiful Ladies
Gunnþóra
Gunnarsdóttir
gun@frettabladid.is
MENNING
VERIÐ VELKOMIN Í NETTÓ
GRANDA OG MJÓDD
DAG SEM NÓTT