Fréttablaðið - 11.09.2014, Blaðsíða 60

Fréttablaðið - 11.09.2014, Blaðsíða 60
11. september 2014 FIMMTUDAGUR| MENNING | 40 „Ég er listamanna latastur að halda einkasýningar. Síðasta stóra sýning- in mín var á Kjarvalsstöðum 2007. Hún hét Ljóshærð ungfrú heimur 1951 – því þá var ég búinn að mála alla vinningshafa fegurðarsam- keppninnar Miss World fram að 2007 og gerði þær allar ljóshærðar og bláeygar. Það var þetta ljósku- þema sem ég hef verið fastur í og er enn. Ég er ekkert að losna úr þeim viðjum.“ Þetta segir Birgir Snæ- björn Birgisson glaðlega þar sem hann er að setja upp sýningu sína í Listasafni ASÍ. Mikið rétt. Upp við einn vegginn á efstu hæð halla sér myndir af nýj- ustu fegurðardrottningu heimsins og á gólfinu liggur myndröð með blondínum. „Ég skráset þetta verk 2011-2014,“ segir Birgir og bendir á blondínurnar á gólfinu. „Þá byrj- aði ég að safna plötuumslögum með ljóshærðum konum og sú myndröð er orðin ansi stór. Það eru komin um 400 umslög. Þegar ég er á ferðalög- um reyni ég að fara á markaði og leita þessar plötur uppi þannig að þetta er orðið áráttuverk líka.“ Birgir kveðst maska út allt á umslögunum nema myndirnar af ljóshærðu konunum. Það er gert með ljósum litum sem hann vinn- ur mikið með. „Ég segi stundum að málverk mín séu meira hvísl en hróp,“ segir hann en bendir á að plötuumslögin séu undantekning því ljósmyndirnar eru flestar í sterkum litum. Birgir viðurkennir að hvaða barn sem er geti málað svona meðfram ljósmynd. „Ég skal bara taka í hönd- ina á því barni og óska því til ham- ingju,“ segir hann brosandi. „Þraut- in þunga er oft ekki að gera hlutinn heldur að koma honum í eitthvert samhengi og fá hann sýndan sem myndlist og viðurkenndan sem slík- an. Það getur verið grýtt leið.“ Pólitíska herbergið Júlía Tímósjenkó, fyrrverandi for- sætisráðherra Úkraínu, prýðir einn vegg. „Júlía var lengi búin að vera í huga mér út af þessari fallegu fléttu sem hún ber,“ segir hann. „Þegar ég byrjaði að mála hana sat hún í fangelsi en nú þegar ég hef lokið við verkin er hún sloppin út og er enn að sækjast eftir valdaembætt- um. Myndirnar mínar eru þó eng- inn mælikvarði á sekt hennar eða sakleysi.“ Næst skoðum við stórt málverk af bréfi. Það málaði Birgir eftir hand- skrifuðu bréfi sem Brigitte Bardot ritaði til stuðnings Marie Le Pen í aðdraganda frönsku forsetakosning- anna 2012. Bréfið fangaði huga hans og jók á sköpunarkraftinn eins og enn betur kemur í ljós niðri á næstu hæð. „Segja má að þetta sé pólitíska herbergið,“ segir Birgir og held- ur leiðsögn sinni áfram. „Ég var í Berlín í tvo mánuði og ákvað að gera staðbundið verk. Angela Merkel er valdamesta kona heims í dag. Mig langaði í portrett af henni, varð mér úti um undirskrift hennar og ákvað að gera textaverk. Þau hef ég hér á móti myndröð sem ég gerði af Marie Le Pen, út af bréfinu sem er á efstu hæð.“ Vændiskonur í kjallaranum Þá er það kjallarinn. Þar er eitt bók- verk í sýningarkössum og Birgir segir sögu. „Árið 2010 var ég með verk á sýningu í Listasafni Íslands og samtímis nokkur í London. Þetta var stór myndröð sem ég lét heita Fallegu Parísarkonurnar. Það voru textar upp úr gamalli leiðsagnar- bók fyrir breska ferðamenn á leið til Parísar og fjölluðu um vændis- líf Parísarborgar þess tíma. Bókin var fyrst gefin út 1883 og ég var í mörg ár að velta fyrir mér hvað ég gæti gert við hana áður en ég ákvað að vatnslita textana sem voru nákvæmar lýsingar á útliti, getu og þjónustugleði þessara kvenna, með hverjum þær hefðu verið og hvernig þær hefðu komist til metorða. Þetta voru 108 blöð og ég var meira en ár að puða í þessu. Þegar ég var í tvo mánuði í París 2012 ákvað ég að fara í pílagrímsferð, heimsótti öll heimil- isföngin í bókinni og gerði skrásetn- ingarverk sem ég kalla 52 dagar meðal fallegra Parísarkvenna. Ég myndaði húsin og skráði hverja heimsókn. Þessu fylgir svo götu- kort af París þar sem ég hef merkt inn alla staðina sem ég heimsótti.“ Ég hef orð á að textinn sé daufur og illsýnilegur. „Já, samsinnir lista- maðurinn. „Það þarf að rýna svolítið í þetta, eins og í önnur verk mín. Þá eru samskiptin orðin persónulegri og ég segi oft varanlegri því hlut- ir lifa lengur með fólki ef það hefur eitthvað fyrir þeim.“ Allt under himmelens fäste heitir dagskráin sem þeir Gunnar Guðbjörnsson og Jónas Ingimundarson ætla að vera með í Norræna húsinu á laugardaginn. Þar verða norræn sönglög í öndvegi, einkum sænsk og finnsk, meðal annars eftir Grieg, Peterson-Berger, Alvén, Sibelius og Merikanto. „Þetta er fjölbreytt dagskrá. Sum laganna hafa fylgt okkur lengi, eins og til dæmis Tonerna eftir Sjöberg,“ segir Gunnar, spurður út í efnisskrána og segir stóra kippu af lögunum vera af diski sem kom út fyrir um tutt- ugu árum. „En það eru líka ný lög inn á milli, svo sem eftir finnska tónskáldið Merikanto, þau eru sungin á finnsku en lengi vel var lítið til af finnskum textum fyrir ljóðasönginn, þeir voru alltaf þýddir yfir á sænsku. Sib- elius var Finnlandssænskur og hafði líklega þessi áhrif.“ Þeir Gunnar og Jónas hafa ferðast víða í gegnum árin vegna tónleikahalds, bæði hér á landi, í Bretlandi og Þýskalandi. „Samt er þetta í fyrsta skipti sem við tileink- um Norðurlöndunum heila dagskrá,“ upplýsa þeir. Tónleikarnir hefjast kl. 16 á laugardag og miðar verða seldir við innganginn á 3.000 krónur. - gun Lög sem hafa fylgt okkur lengi Kapparnir Gunnar Guðbjörnsson óperusöngvari og Jónas Ingimundarson píanóleikari ætla að fl ytja norræn sönglög í Norræna húsinu á laugardaginn. Þrautin þunga er oft ekki að gera hlutinn heldur að koma honum í eitthvert samhengi og fá hann sýndan sem mynd- list og viðurkenndan sem slíkan. Það getur verið grýtt leið. Birgir Snæbjörn Birgisson JÓNAS OG GUNNAR „Þetta er í fyrsta skipti sem við tileinkum Norðurlöndunum heila dagskrá,“ segja þeir um tónleikana í Norræna húsinu. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA Meðal fallegra, ljóshærðra kvenna Ladies, Beautiful Ladies er heiti sýningar Birgis Snæbjörns Birgissonar sem opnuð verður í Listasafni ASÍ á laugardaginn. Crymogea gefur líka út bók sem ber sama titil. Tilefnið gott til að ónáða Birgi við frágang sýningarinnar sem teygir sig um allt safnið. LISTAMAÐURINN Birgir Snæbjörn umkringdur myndröðinni Ljóshærðir tónlistarmenn sem gerð er úr plötuumslögum. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA Sýningin Ladies Beautiful Ladies verður opnuð í Listasafni ASÍ að Freyjugötu 1 13. september klukkan 15 og verður opin alla daga til 5. október nema mánudaga frá klukk- an 13 til 17. Aðgangur er ókeypis. Birgir mun einnig halda sýningu með sama heiti í Helsinki Contemp- orary galleríinu í Helsinki í lok nóvember. Sýningarstjóri beggja sýninganna er Mika Hannula. Í tilefni af sýningunum gefur Crymogea út bókina Ladies, Beautiful Ladies með verkum eftir Birgi og texta, meðal annars eftir Hannula. Ladies Beautiful Ladies Gunnþóra Gunnarsdóttir gun@frettabladid.is MENNING VERIÐ VELKOMIN Í NETTÓ GRANDA OG MJÓDD DAG SEM NÓTT
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.