Fréttablaðið - 11.09.2014, Blaðsíða 86
11. september 2014 FIMMTUDAGUR| LÍFIÐ | 66
„Ég get ekki svarað fyrir ráðuneyt-
ið, eða tjáð mig um hvaða aðstæð-
ur liggja að baki, en ég get staðfest
það að framleiðendur myndarinnar
Noah, sem tekin var upp hér á landi
sumarið 2012, hafi ekki enn feng-
ið þá 20 prósenta endurgreiðslu
frá atvinnuvega- og nýsköpunar-
ráðuneytinu sem þeim ber að fá,“
segir Helga Margrét Reykdal, hjá
íslenska framleiðslufyrirtækinu
Truenorth, en fyrirtækið þjónu-
staði kvikmyndaverið Paramount
Pictures við að skjóta stóran hluta
myndarinnar hér á landi.
„Að sjálfsögðu kemur þetta sér
ekki vel. Allar tafir eru slæmar
og það geta verið misjafnar ástæð-
ur fyrir því af hverju greiðslunum
seinkar en það sem skiptir öllu máli
er að vinnsluhraðinn hjá ráðuneyt-
inu sé góður. Hann hefur ekki alltaf
verið það,“ segir hún jafnframt.
Helga Margrét er ekki sú fyrsta
úr kvikmyndageiranum á Íslandi
sem tjáir sig um seinagang stjórn-
valda. Atvinnuvega- og nýsköpunar-
ráðuneytið endurgreiðir erlendum
framleiðendum sem taka kvikmynd-
ir og sjónvarpsþætti hér á landi 20
prósent af framleiðslukostnaði, en
í viðtali við Vísi í janúar síðastliðn-
um nefndi leikstjórinn Baltasar
Kormákur dæmi um seinagang við
endurgreiðslur vegna myndarinnar
Oblivion sem tekin var upp á Íslandi
árið 2012 og skartaði Tom Cruise í
aðalhlutverki.
Baltasar nefndi í sama viðtali að
endurgreiðslurnar væru mjög mikil-
vægur þáttur í ferlinu að trekkja
erlend kvikmyndaverkefni til lands-
ins. Hann lagði mikla áherslu á að
lánafyrirtækin sem leggja út fyrir
20 prósentunum yrðu að geta treyst
því að fá endurgreitt.
Baltasar bætti við að þó mikið
af erlendum stórmyndum hefði
verið tekið hér á landi undan-
farið væri í flestum tilfellum um
fjallatökur að ræða. Hann sagði
nauðsynlegt að erlendir fram-
leiðendur hefðu traust á íslenska
kerfinu og þá myndu hugsanlega
koma hingað til lands verkefni í
heilu lagi.
„Við getum ekki endalaust skot-
ið sama fjallið. Það verður að vera
vit í þessu peningalega. Við erum
með sendinefndir þegar kemur að
álverum. Það vantar einhverja til að
liðka fyrir til að menn hafi traust á
kerfinu, þó Íslandsstofa standi sig
ágætlega. Ég er ekki að ásaka neinn
um klúður heldur að benda á að
kerfið er ekki nógu vakandi. Það er
pirrandi að fara með 60 milljón doll-
ara verkefni til Ítalíu þegar ég gæti
tekið það hér,“ bætti Baltasar við, og
átti þá við tökur á nýjustu kvikmynd
sinni, Everest.
Hilmar Sigurðsson, formaður
Samtaka íslenskra kvikmyndafram-
leiðenda, tekur undir þessi orð Balt-
asars og segir endurgreiðslurnar
frá ráðuneytinu eitt af þremur lykil-
atriðum sem miði að því að
trekkja erlend verkefni
til Íslands. „Hluti af
því að erlendar
myndir eru tekn-
ar hér á landi er
auðvitað náttúr-
an og umhverf-
ið, og starfs-
fólkið okkar, og
svo þetta endur-
greiðslukerfi.
Styrkurinn í
íslenska
kerfinu er einfaldleiki þess, það á
að vera tiltölulega þægilegt og gagn-
sætt. Það er náttúrulega áhyggju-
efni ef greiðslur eru að dragast
of lengi, en við þurfum líka að
átta okkur á því að um er að ræða
greiðslur úr ríkissjóði sem lúta lög-
málum ríkisreiknings og eðlilegr-
ar meðferðar opinbers fjár. Maður
skilur að það sé ekki bein ávísun um
leið og öllum gögnum hefur verið
skilað, en það verður að gera þær
kröfur að svona kerfi virki eins og
þeim er lýst.“
Endurgreiðslur á borð við þær
sem greiddar eru á Íslandi tíðk-
ast um allan heim. „Hagræn áhrif
þeirra hafa verið reiknuð út, marg-
sinnis, og þjóðfélagið hefur hag af
þessu, til dæmis út af vinnusköttum.
Þróunin í þessu í nágrannalöndum
okkar er sú að ráðuneytin eru að
hækka þessar endurgreiðslur.
Í Bretlandi hafa þær hækkað
upp í 25-30 prósent, á Írlandi
er endurgreiðslan í 28 prósent-
um en stendur til að hækka
hana upp í 32 %. Í Kanada, sem
er kannski heldur óvenjulegt, er
hægt að fara í yfir 50 prósent
undir ákveðnum skilyrðum.“
Fréttablaðið óskaði eftir upplýs-
ingum um ástæður þess að endur-
greiðslur úr ríkissjóði vegna
kvikmyndarinnar
Noah hefðu ekki verið
greiddar framleiðand-
anum.
Þau svör fengust
að ráðuneytið gæfi
ekki upplýsing-
ar um stöðu ein-
stakra verkefna.
olof@frettabladid.is
„Ég er með allt í rugli sjálfur. Ég
er hræðilegur fjármálagæi. Þannig
að þetta verkefni er gott fyrir mig.
Þess vegna er ég fenginn í þetta því
ef ég skil þetta ekki gengur þetta
ekki upp. Þetta er þáttur á manna-
máli,“ segir leikstjórinn Baldvin Z.
Hans nýjasta verkefni er að leik-
stýra neytendaþætti á RÚV en
stjórnandi þáttarins er Helgi Selj-
an. Þættirnir eru í tökum núna og
verða sýndir eftir áramót.
„Ég á vin sem heitir Breki Karls-
son. Fyrir þremur árum gerði ég
með honum sjónvarpsseríu sem hét
Ferð til fjár og fjallaði um fjármála-
læsi. Hljómar mjög sexí og spenn-
andi,“ segir Baldvin og hlær. „Nú
ákvað Breki að gera sex nýja þætti
og Helgi er með okkur í þeim. Upp-
runalega var ég ráðinn í þetta verk-
efni til að finna skemmtilega leið að
þessu viðfangsefni. Það gekk mjög
vel og því var ég fenginn til að gera
þetta aftur. Það er bara gaman.“
Baldvin er hvað þekktastur fyrir
að leikstýra kvikmyndunum Óróa
og Vonarstræti.
„Þetta verkefni er allt öðruvísi.
Markmiðið er að breyta hugsun
landsmanna örlítið og gera okkur
að betri neytendum. Við sýndum til
dæmis fram á að við verðum ekki
rík á því að fá peninga heldur á því
að spara í útgjöldum. Við berum
nefnilega miklu meiri ábyrgð á því
hvernig sölumenn haga sér gagn-
vart okkur en við gerum okkur
grein fyrir,“ segir Baldvin. - lkg
Gerir landsmenn að betri neytendum
Leikstjórinn Baldvin Z leikstýrir neytendaþætti. Talsvert öðru vísi en bíóbransinn segir hann en Baldvin er
hvað þekktastur fyrir myndirnar Óróa og Vonarstræti. Sjálfur er Baldvin með allt í rugli.
FJÖLHÆFUR Baldvin er nýkominn frá
Toronto þar sem Vonarstræti var sýnd.
FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
„Pokémonserían er uppáhaldið mitt,
þetta eru virkilega einstakir leikir sem
geta verið eins einfaldir eða flóknir og
þú vilt gera þá. Ég byrjaði á Pokémon
Blue árið 2000 og var síðast að klára
Pokémon X sem kom út í fyrra. Núna
bíð ég spennt eftir Pokémon Omega
Ruby & Alpha Sapphire sem koma út í
nóvember.“
Júlía Hermannsdóttir, söngkona Oyama
TÖLVULEIKURINN
Hamskiptin
★★★★★
The Guardian
★★★★★
Sunday Express
★★★★★
Daily Mail
★★★★★
Daily Telegraph
★★★★★
What’s On Stage
„Snilldarverk“
New York Times
★★★★★
The Australian Stage
★★★★★
Time Out Hong Kong
eftir Franz Kafka í leikgerð Vesturports
Rómuð sýning Vesturports snýr aftur
eftir sigurgöngu um heiminn.
Sýnt frá 17. september.
Aðeins 9 sýningar.
Tryggðu þér leikhúskort!
WWW.LEIKHUSID.IS
Kerfi ð verður að virka
eins og því er lýst
Tuttugu prósenta endurgreiðsla hefur ekki borist fyrir kvikmyndina Noah, í leik-
stjórn Darrens Aronofsky, en hluti myndarinnar var tekinn hér á landi árið 2012.
ÁHYGGJUEFNI EF GREIÐSLUR DRAGAST Hilmar Sigurðsson,
formaður Samtaka íslenskra kvikmyndaframleiðenda, segir að
það verði að gera kröfu um að kerfið virki. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR
SKIPTIR MÁLI AÐ VINNSLUHRAÐINN SÉ GÓÐUR Helga
Margrét Reykdal, hjá Truenorth, segir allar tafir í afgreiðslu
endurgreiðslna mjög slæmar. AÐSEND MYND
Að sjálfsögðu kemur þetta sér ekki vel. Allar tafir
eru slæmar, og það geta verið misjafnar ástæður fyrir
því af hverju um seinkun á greiðslunum er að ræða, en
það sem skiptir öllu máli er að vinnsluhraðinn hjá
ráðuneytinu sé góður. Hann hefur ekki alltaf verið það
Helga Margrét Reykdal
BALTASAR
KORMÁKUR