Fréttablaðið - 11.09.2014, Blaðsíða 43
Aukahlutir í miklu úrvali fást í iStore í Kringlunni. MYND/GVA
SPJALDTÖLVUR
FIMMTUDAGUR 11. SEPTEMBER 2014
Verslunin iStore í Kringl-unni býður upp á fjölmarga spennandi og gagnlega
aukahluti fyrir iPad-spjaldtölv-
ur. Að sögn Sigurðar Þórs Helga-
sonar, framkvæmdastjóra iStore,
er einn vinsælasti aukahluturinn
ZooGue Prodigy Elite-taskan sem
ætluð er fyrir iPad Air-spjaldtölv-
una. „Þetta er langvinsælasta task-
an frá okkur enda seljum við fimm
sinnum meira af henni en öðrum
töskum. Um er að ræða nýja út-
færslu á hinum vinsælu Prodigy-
segulhulstrum og er hún 40%
þynnri og 25% léttari en fyrri út-
gáfur. Þær koma í svörtum lit og
hafa sex mismunandi hallastill-
ingar til að velja úr.“
Taskan er ótrúlega þunn og fal-
leg og virkar bæði sem hefðbund-
in taska og sem statíf og því með
marga notkunarmöguleika. „Þar
sem ein útgáfa töskunnar inni-
heldur einnig teygju má festa
spjaldtölvuna til dæmis á höfuð-
púða í bíl þannig að tölvan nýtist
sem nokkurs konar sjónvarpsskjár
fyrir aftursætisfarþegana.“
iStore býður einnig upp á ís-
lenska lyk laborðstösku f yrir
iPad. Taskan er svört á lit og veitir
örugga vörn fyrir höggum, skrám-
um og rispum. „Lyklaborðstaskan
hefur innbyggðan stand þannig að
mjög þægilegt er til dæmis að lesa
af skjánum eða horfa á kvikmynd-
ir. Lyklaborðið sjálft er ofurþunnt
bluetooth-lyklaborð og auðvelt er
að losa það frá hulstrinu enda er
það fest með seglum.“
Frábær heyrnartól
Buddy Phones eru heyrnartól fyrir
börn sem eru bæði ódýr og frá-
bærlega hönnuð að sögn Sigurðar.
„Þetta eru heyrnartól sem börn-
in geta ekki brotið enda eru þau
rosalega sterk. Þau má beygja og
teygja á allan hátt án þess að þau
skemmist. Þeim fylgja límmiðar
með ýmsu skemmtilegu munstri
þannig að börnin geta skreytt þau
að vild og gert persónuleg.“ Buddy
Phones hafa einnig innbyggða
hljóðsti l l ingu sem tak mark-
ast við 85 desíbil og því geta for-
eldrar verið öruggir um að börn-
in skemmi ekki heyrnina. „Helsta
snilldin við heyrnartólin er síðan
að hægt er að raðtengja þau þann-
ig að fjögur heyrnartól geta tengst
sömu spjaldtölvunni. Því geta fjög-
ur börn til dæmis horft og hlustað
á sömu bíómyndina samtímis.“
Að lokum nefnir Sigurður ótrú-
lega skemmtilega nýjung í lýsing-
um fyrir heimili landsins. Um er að
ræða þráðlausa ljósakerfið Phil ips
Hue sem gerir húseigendum kleift
að stýra lýsingu gegnum spjald-
tölvur og snjallsíma. „Ljósakerf-
ið getur tengst allt að 50 perum
sem síðan tengist við router-inn
á heimilinu. Því er hægt að stýra
gegnum alla snjallsíma og spjald-
tölvur og er mjög einfalt í notkun.
Notandinn nær í eitt app og þegar
peran er skrúfuð í peru stæðið
birtist hún í forritinu. Þar er síðan
bæði hægt að stýra stökum perum
og setja nokkrar saman í grúppu.“
Hver pera býr yfir ótal litamögu-
leikum og hægt er að sækja um 60
forrit sem stýra kerfinu á mismun-
andi hátt.
Að sögn Sigurðar er hægt að
Mikið úrval af aukahlutum
iPad-spjaldtölvan hefur náð mikilli útbreiðslu hérlendis. Verslunin iStore í Kringlunni býður upp á fjölmarga spennandi aukahluti
fyrir spjaldtölvurnar fyrir fólk á öllum aldri. Til dæmis töskur, heyrnartól, lyklaborð, bílahleðslutæki og þráðlaust ljósakerfi.
Að sögn Sigurðar er hægt að spara um
80% af ljósanotkun heimilisins með
notkun Hue-peranna. MYND/ERNIR Þráðlausa ljósakerfinu er stýrt gegnum spjaldtölvur og snjallsíma. MYND/ÚR EINKASAFNI
spara um 80% af ljósanotkun
heimilisins með notkun Hue-
peranna. „Ljósakerfið virkar líka
vel með Philips-sjónvörpum sem
innihalda ambi light-baklýsingu
sem gefur skemmtilega stemningu
í sjónvarpsholið.“
Allar nánari upplýsingar um
aukahluti iStore má finna á
www.istore.is.