Fréttablaðið - 11.09.2014, Blaðsíða 48
KYNNING − AUGLÝSINGHaust- og vetrartíska FIMMTUDAGUR 11. SEPTEMBER 20146
Í litunum hjá okkur eru mjúku tónarnir mikið í tísku, ekki of dökkir þó,“ segir Elín Birna
Harðardóttir, hársnyrtimeist-
ari á Hári & Dekri hársnyrti-
stofu. „Gjarnan er meiri dýpt í rót-
inni, en endarnir þá ýmist hafð-
ir ljósari eða litaðir í öðrum lit, til
dæmis vel rauðir, koparlitaðir eða
með vínrauðum tón,“ segir Elín
Birna og samstarfskonur henn-
ar taka undir þetta. „Það eru ekki
bara ungu skvísurnar sem eru að
fá sér þessa liti, heldur henta þeir
fyrir allar konur.“ Þær sem eru með
mjög ljóst hár allt árið um kring,
eru meira að fara út í kaldari liti á
haustin, til dæmis út í sand- og silf-
urtóna.
Elín Birna segir klassískar klipp-
ingar vera í tísku í öllum síddum.
„Klippingarnar eru frekar hreinar,
mjúkar og kvenlegar og ekki mikið
um ýktar línur. Axlarsíddin kemur
sterk inn með haustinu. Eftir sum-
arið er gott að klippa hárið en þá
eru endarnir oft orðnir upplitaðir
og þurrir. Það má eiginlega segja
að heilbrigt hár sé í tísku og marg-
ar konur eru að koma í djúpnær-
ingu núna til þess að fá hárið aftur
mjúkt, glansandi og fallegt,“
Mjúkir liðir verða áfram vin-
sælir og alls konar fléttur. „Flétt-
urnar verða áfram mikið notaðar í
greiðslur en greiðslurnar í dag eru
lausar og rómantískar, minna er
um stífar uppgreiðslur. Dagsdag-
lega finnst okkur háir, stórir og
„messy“ snúðar flottir, enda marg-
ar sem skarta þeim. Þetta er þægi-
leg og fljótleg greiðsla sem flestar
konur geta gert.“
Elín Birna bætir því við, að það
hafi færst í aukana að konur komi
í hárlengingu til þeirra, bæði til að
lengja hárið en líka til að fá meiri
fyllingu í það.
Heilbrigt og fallega
glansandi hár í tísku
Klassískar klippingar verða áberandi í haust og vetur hjá bæði körlum og
konum. Allar síddir eru í tísku en ýktar línur eru ekki málið lengur. Með
haustinu dökknar hárið og mjúkir tónar verða ráðandi. Flétturnar sem hafa
verið í tísku í töluverðan tíma halda áfram að vera inni, í öllum útgáfum.
Fleiri fá sér nú hárlenging ar, bæði til að lengja hárið og til
að fá meiri fyllingu í það.
Mjúkir liðir og fléttur eru
áfram vinsæl. AÐSEND MYND
Það verður áfram í tísku hjá strákum að raka í hliðum og að aftan. MYND/ERNIR
Elín Birna á hársnyrtistofunni
Hári & Dekri segir klassískar
klippingar vera í tísku í haust.
„Strákarnir halda áfram að raka
í hliðum og að aftan en vilja halda
vel í hárið að ofan. Línurnar eru þó
ekki eins ýktar og þær voru í sumar.
Hárið er svo greitt með vaxi frá
andlitinu, til hliðar.“
FYRIR EFTIR
MYND/ERNIR
Opið virka daga kl
. 11–18.
Opið laugardaga k
l. 10–15.
Kí
ki
ð
á
m
yn
di
r o
g
ve
rð
á
F
ac
eb
oo
k
Laugavegi 178 (Bolholtsmegin) | Sími 555 1516
Verð 13.900 kr.
Einn litur: svart
Stærð 34 - 48
Bæjarlind 1-3
201 Kópavogur
s: 571-5464
my style
Flott föt, fyrir flottar konur
Stærðir 38-52
Ábendingahnappinn má finna á
www.barnaheill.is