Fréttablaðið - 11.09.2014, Side 8

Fréttablaðið - 11.09.2014, Side 8
11. september 2014 FIMMTUDAGUR| FRÉTTIR | 8 KJARAVIÐRÆÐUR Formenn aðild- arfélaga Starfsgreinasambands Íslands (SGS) segja að ríkisstjórn- in sé í herferð gegn tekjulágu fólki og atvinnulausum, þess sjáist glögg merki í fjárlagafrumvarpinu. Þeir telja átök líkleg á vinnumark- aði í vetur. Það geti orðið þrautin þyngri að koma nýjum kjarasamn- ingi á koppinn. Samningar á almenna vinnu- markaðnum eru lausir eftir áramót og samningagerðin að fara af stað. Fyrst á að reyna að ná utan um sér- kröfur, síðan á að takast á um krón- ur og aura. Þó ríkisstjórnin sé ekki beinn aðili að kjarasamn- ingum á almenna markaðnum er það þó efnahags- stefna stjórn- valda á hverjum tíma sem markar ytra umhverfi kjarasamninga. Á næstunni ætla menn að vega og meta hverju síðustu kjarasamning- ar skiluðu verkafólki í raun. Hvort það hafi fengið einhverjar kjara- bætur. „Frumvarp til fjárlaga kemur eins og skratt- inn inn í umræðu um kjarasamn- inga. Sú nálg- un að segja að það breyti engu að hækka virðisauka á matvælum vegna þess að þeir fái það leiðrétt í gegnum barnabætur gengur ekki upp í hugum fólks,“ segir Sigurður Bessason, formaður Eflingar og talsmaður Flóabandalagsins. Í sama streng tekur Björn Snæ- björnsson, talsmaður Starfsgreina- sambandsins. Björn segir alvarlegt að stjórnvöld ætli að stytta bóta- tímabil atvinnuleysisbóta um hálft ár. Atvinnulausir hverfi ekki úr samfélaginu þó þeir fari af bótum. „Það er verið að velta vandanum yfir á sveitarfélögin en þær bætur sem fólk fær lækka. Sumir fá ekk- ert því það ræðst meðal annars af tekjum maka hvort fólk á rétt á bótum frá sveitarfélaginu svo og af ýmsum öðrum þáttum,“ segir Björn og bætir við að með þessu sé enn frekar verið að skerða kjör þeirra sem minnst hafi. Sigurður segir að verkalýðshreyf- ingin ætli að reyna að fá stjórnvöld til að draga fyrirhugaðar breytingar til baka en er ekki vongóður um að það takist. „Við gerð síðustu kjarasamninga setti ríkisstjórnin fram bókun um að breytingar á virðisaukaskatts- kerfinu ættu að fara fram í sam- ráði við launþegahreyfinguna. Það voru hins vegar engar viðræður við okkur. Við fréttum af fyrirhuguðum breytingum í fjölmiðlum,“ segir Sigurður. johanna@frettabladid.is Herferð gegn tekjulág- um og atvinnulausum Forystumenn innan Starfsgreinasambandsins segja ríkisstjórnina í herferð gegn tekjulágu fólki og atvinnulausum. Verkalýðsfélögin eru að hefja undirbúning að gerð nýs kjarasamnings og segja að fjárlagafrumvarpið trufli þá vinnu verulega. Starfsgreinasambandið er fjölmennasta landssamband verkafólks á Íslandi og stærsta sambandið innan ASÍ, með samtals um 50 þúsund félagsmenn. Umreiknað í full stöðugildi er þessi fjöldi hins vegar tæplega 30.000. Af félagsmönnum aðildarfélaga SGS eru karlar um 47 prósent félaga og kon- ur 53 prósent. Meginhlutverk Starfsgreinasambandsins er að sameina verkalýðsfélög í baráttunni fyrir bættum kjörum og standa vörð um áunnin réttindi og vera leiðandi afl innan verkalýðshreyfingarinnar og vettvangur umræðu um þróun samfélagsins í þágu launafólks. 50 þúsund félagsmenn SKIPULAGSMÁL Forsætisráðuneytið segir í umsögn um tillögu að deili- skipulagi við Fjallsárlón að skoða þurfi hvort ekki sé verið að færast of mikið í fang í uppbyggingunni. „Það er mat ráðuneytisins að leitast eigi við að vernda hina sér- stöku náttúru lónsins og umhverfi þess,“ segir í umsögn forsætis- ráðuneytisins sem vill halda svæð- inu sem mest óröskuðu. „Ráðuneytið hefur fyrirvara gagnvart því að leyfa uppbyggingu varanlegra mannvirkja við Fjalls- árlón,“ segir áfram í umsögninni þar sem jafnframt er gerð athuga- semd við fjölda og staðsetningu stæða fyrir rútur og fólksbíla. Plan fyrir 100 bíla sé of stórt og rétt sé að takmarka það við sjötíu eða jafnvel fimmtíu bíla. „Þessu til viðbótar verður að telja að vel komi til álita að færa bílastæði og byggingarreit enn fjær lóninu til austurs nær þjóð- vegi,“ segir einnig í umsögninni sem Hornfirðingar hyggjast ræða við fulltrúa ráðuneytisins. - gar Forsætisráðuneytið gerir athugasemdir við deiliskipulag fyrir Fjallsárlón: Vilja ekki varanleg mannvirki LONDON,AP Vísindamenn hafa búið til stafræn kort af jörðinni undir hinu forna mannvirki Stonehenge á Englandi. Tilgangurinn er að leysa ráðgátuna um Stonhenge, sem er á heimsminjaskrá UNESCO. Unnin voru sautján nákvæm kort sem sýna áður óþekkt mannvirki á svæðinu sem búin voru til fyrir helgisiði, auk stórrar timburbygg- ingar. Talið er að hún hafi verið notuð fyrir jarðarfarir. „Ný mannvirki hafa verið afhjúp- uð og einnig nýjar tegundir mann- virkja sem fornleifafræðingar hafa aldrei séð áður,“ sagði Vincent Gaffney, prófessor við Birmingham- háskóla og stjórnandi rannsóknar- innar. Einnig fannst stór, forsöguleg gryfja, sem virðist hafa tengst sól- inni. Wolfgang Neubauer, prófessor hjá fornleifastofnun í Vínarborg, segir að með nýju kortunum verði í fyrsta sinn mögulegt að finna út hvernig Stonehenge og landslagið á svæðinu hefur þróast í gegnum aldirnar. Fornleifafræðingar hafa stund- að uppgröft á Stonehenge-svæðinu og velt fyrir sér tilurð þess síðan á sautjándu öld. Um 1,2 milljónir ferðamanna koma þangað á hverju ári. - fb Vísindamenn hafa búið til stafræn kort af jörðinni undir fornu mannvirki á Englandi: Kort afhjúpa leyndardóma Stonehenge SIGLT UM JÖKULLÓN Bátsferðir innan um ísjaka njóta vinsælda. Myndin er frá Jökulsárlóni. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI UNDIRBÚNINGUR Forystumenn í verkalýðshreyfingunni segja að hækkun virðis- aukaskatts á matvæli skerði kjör þeirra sem lítið hafi. Undirbúningur að gerð nýs kjarasamnings er að hefjast og þeir segja þetta ekki gott innlegg. FRÉTTABLAÐIÐ /VILHELM BJÖRN SNÆBJÖRNSSON SIGURÐUR BESSASON STONEHENGE Mannvirkið hefur lengi verið hjúpað dulúð. Enginn veit nákvæmlega hvað fór þar fram. FRÉTTABLAÐIÐ/AP Guðni Arinbjarnar Sérfræðingur í bæklunarskurðlækningum Hef flutt læknastofu mína í Læknaráð - Holtasmára 1 - 7. hæð - 201 Kópavogur Tímapantanir virka daga kl. 9 - 15 í síma 552 4800 Ábendingahnappinn má finna á www.barnaheill.is 30-40% afsláttur af öllum h jólum Skóladag ar Götuhjól • Fjallah jól • Barn ahjól Racerar • 29er hjó l ALÞINGI Þingmál um fjármögnun á uppbyggingu ferðamannastaða mun væntanlega líta dagsins ljós á allra næstu vikum, segir Ragn- heiður Elín Árnadóttir iðnaðarráð- herra. Miklar deilur urðu í sumar þegar landeigendur við Geysi hófu gjaldtöku sem síðar var sett lög- bann á. Ragnheiður Elín segir að hún hafi lagt málið til hliðar í vor vegna tímaskorts. „Þetta er brýnt mál, en það er mikilvægt að við náum sem mestri samstöðu um það,“ segir Ragnheiður Elín. - jhh Ráðherra undirbýr nýtt mál: Vonast eftir meiri samstöðu 1.200.000 Á hverju ári heimsækja 1,2 milljónir ferðamanna Stonehenge.

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.