Fréttablaðið - 11.09.2014, Qupperneq 16
11. september 2014 FIMMTUDAGUR| FRÉTTIR |
Fleiri en
ein leið er til
að túlka og
skýra at-
burðina. Það
er þó ekki
brýnt í bili og
líka rétt að láta allar spár
eiga sig, en gera engu að
síður ráð fyrir að mjög
öflugt gos geti hafist í
Bárðarbungu sjálfri. Eins,
og jafnvel samtímis, að
gjósi undir Dyngjujökli og
á íslausu landi og þá
einnig mun meira en í
augnablikinu.
Ari Trausti Guðmundsson,
jarðvísindamaður og rithöfundur
Eftir þriggja vikna linnulausar
jarðhræringar í og við Vatnajökul,
sem teljast þegar með markverð-
ustu jarðvísindalegu atburðum
sem vísindamenn og almenning-
ur á Íslandi hafa orðið vitni að,
beinast augu manna sérstaklega
að siginu í öskju Bárðarbungu.
Jarðvísindamenn telja umbrotin
þar sérstakt áhyggjuefni.
En hvað segir sagan okkur
um eldsumbrot í eldstöðvakerfi
Bárðarbungu, og hvers er að
vænta ef eldgos hefst undir jökli,
eins og menn óttast nú?
Mörg gos í árþúsundir
„Þegar verið er að mála sviðs-
myndir, þrjár til fjórar eins og
nú er gert, er það meðal annars
gert með hliðsjón af eldfjallasög-
unni, og þá auðvitað sögu Bárðar-
bungukerfisins. Á síðastliðnum
10.000 árum eða svo finnast um
100 aðskilin ummerki um eldgos
í kerfinu. Mest eru þetta gjósku-
lög í jarðvegi og einum ískjarna,
en líka hraun,“ segir Ari Trausti
Guðmundsson, jarðeðlisfræðing-
ur og rithöfundur, en eftir hann
liggja um tveir tugir bóka um nátt-
úru landsins, ekki síst jarðfræðirit
og bækur um sögu íslenskra eld-
stöðva.
Ari Trausti útskýrir að ekkert
gjóskulaganna frá eldstöðvakerfi
Bárðarbungu sé mjög þykkt, nema
þau sem upprunnin eru úr suður-
hluta kerfisins. Lítið er í raun
hægt að segja um önnur gjósku-
lög, hvort þau hafa komið úr gosi
í þeim hluta sprungu reinar Bárð-
arbungu sem þakin er jökli eða úr
gosi í eldfjallaöskjunni sjálfri.
„Þykku gjóskulögin má rekja
t.d. til Vatnaöldugossins um 870
og Veiðivatnagossins nálægt
árinu 1480. Enda þótt fátt sé um
mikil forsöguleg gjóskulög geta
samt hafa orðið öflug gjóskugos í
eða við Bárðarbungu. Ástæðan er
einfaldlega sú að útbreiðsla jökla
fyrir allt að 14.000 árum var önnur
en nú, og mikið af hraunum hefur
runnið á áhrifasvæði eldstöðva-
kerfisins í árþúsundir. Sýnileiki
gjóskulaga er þar með ekki alltaf
fyrir hendi og í mikilli fjarlægð
frá Bárðarbungu getur gjóskulag
úr öflugu gosi verið frekar þunnt.
Svo er vitað um nokkur forsögu-
leg hamfarahlaup niður Jökulsá á
Fjöllum og óvíst hvort þau stöfuðu
öll eða einhver af eldsumbrotum –
brostnar jökulstíflur og tæmd lón
hafa líka verið nefnd til sögunn-
ar. Hafi eitthvert hlaupanna átt
upptök í gosi undir jökli í Kverk-
fjöllum eða Bárðarbungu, getur
það komið heim og saman við afar
öflug þeytigos,“ segir Ari.
Ekkert viðlíka sést
Hraun í Bárðarbungukerfinu eru
mörg og teljast sum merki um stór-
ar og miklar aðfærsluæðar kviku.
Þær má tengja kvikuhólfi Bárðar-
bungu eingöngu eða líka kviku úr
dýpri þró þar undir. Samvirkni
þarna á milli kemur enn fremur
til greina. Þarna kom upp Þjórs-
árhraun fyrir rúmum 8.000 árum;
stærsta hraun sem vitað er um hér
á landi síðastliðin 10.000 ár. Nokk-
ur stór hraun, svokölluð Tungna-
árhraun, og mikill hraunstraumur
niður Bárðardal einnig, og raunar
koma líka við sögu fleiri hraun-
breiður sem eru mun stærri en
hraunið sem nú rennur fyrir norð-
an sporð Dyngjujökuls.
„Almannavarnir og vísinda-
menn horfa nú til atburðanna í
Bárðarbungu og eru að vonum
áhyggjufullir yfir sumum sviðs-
mynda sinna. Viðlíka skjálfta-
virkni og er nú í eldfjallinu og
hreyfingar í öskjunni hafa ekki
sést fyrr á mælum hér á landi.
Fleiri en ein leið er til að túlka og
skýra atburðina. Það er þó ekki
brýnt í bili og líka rétt að láta allar
spár eiga sig, en gera engu að síður
ráð fyrir að mjög öflugt gos geti
hafist í Bárðarbungu sjálfri. Eins,
og jafnvel samtímis, að gjósi undir
Dyngjujökli og á íslausu landi og
þá einnig mun meira en í augna-
blikinu. Það er heldur ekki fullvíst
að hamfarir í Bárðarbungu hafi
mikil áhrif á Holuhraunsgosið úr
stóru kvikufylltu sprungunni, eða
bergganginum. En auðvitað getur
gos í Bárðarbungu orðið minna
en verstu sviðsmyndir gera ráð
fyrir,“ segir Ari Trausti.
Þeytigos
Sagan segir okkur að ef öflugt gos
verður, annaðhvort á sveigsprung-
um innan við öskjurimann í Bárð-
arbungu, úr sprungum á öskju-
botninum eða úti í hlíðum fjallsins,
hefst það sem gos fastra efna sem
bræða jökulís. Fljótlega – hér er
það háð staðsetningu og stærð
eldgossins hvort um klukkustund-
ir eða daga er um að ræða – hefst
svo þeytigos með mikilli gjósku.
„Gjóskan berst fyrir vindi eins
og við þekkjum vel og getur orðið
afar óþægileg og skemmandi, þótt
benda megi á að fjallið er nán-
ast í miðju landsins og alllangt
til byggða eða afrétta. Engin leið
er að geta sér til um magnið en í
stórum gjóskugosum innan rek-
beltisins hafa komið upp nokkrir
rúmkílómetrar af gosefnum, þ.e.
nokkrir milljarðar rúmmetra.
Mikið af bræðsluvatni safnast
fyrir þegar frá upphafi og það
getur líka numið einhverjum rúm-
kílómetrum, t.d. ef gýs inni í sig-
dældinni. Það ræðst svo af því á
hvaða vatnasviði í norðvestur-
jöklinum eða í Bárðarbungu gýs
og svo jökulþykkt, hvað úr verð-
ur,“ segir Ari Trausti og bætir við
að jökulhlaup geti steypst í átt að
virkjanasvæðinu sem kennt er við
Köldukvísl, Tungnaá og Þjórsá, í
farveg Skjálfandafljóts og Jökuls-
ár á Fjöllum, og jafnvel til Gríms-
vatna ef gýs nógu sunnarlega
utan í eldfjallinu. Um áhrif á flug
er ekki hægt að gefa sér neitt, en
truflanir geta auðvitað orðið veru-
legar ef um stórgos er að ræða, er
mat Ara Trausta sem ítrekar að
sagan kenni það eitt að engu er
hægt að spá, aðeins skoða mögu-
leika.
„Hins vegar er fyllilega eðlilegt
að horfa með áhyggjusvip á eld-
stöðvakerfið allt, efla enn eftir-
lit, rannsóknir og samstarf, eins
og þegar er orðið, og ræða við-
brögð við nokkrum sviðsmyndum
sem geta orðið að veruleika, ásamt
skipulagningu viðbragðanna. Við
höfum verið sæmilega heppin
með eldvirknina, hvað stærð gosa
varðar, allt frá Öskjugosinu og
Sveina gjáreldum árið 1875, en eld-
fjallasagan kennir að við stórum
atburðum má búast á örfárra alda
fresti og við það verðum við að
búa,“ segir Ari Trausti.
Sagan geymir afar öflug þeytigos
Sig Bárðarbunguöskjunnar um rúmlega 20 metra á stuttum tíma, og fjöldi stórra jarðskjálfta, veldur jarðvísindamönnum miklum áhyggj-
um. Það er ekki að ástæðulausu segir Ari Trausti Guðmundsson jarðeðlisfræðingur sem þekkir sögu eldstöðvakerfisins út í hörgul.
ELDAR UPPI Eldgosið í Holuhrauni gæti haldið áfram í langan tíma óháð því hvort einnig tæki að gjósa í Bárðarbungu. Þeytigos og hraungos gætu því verið á sama tíma.
FRÉTTABLAÐIÐ/AUÐUNN
Svavar
Hávarðsson
svavar@frettabladid.is
Öskjusigið sem hafið er í Bárðarbungu veldur verulegri óvissu um fram-
vindu mála enda hefur slíkur atburður ekki orðið hér á landi síðan Öskjuvatn
myndaðist. Öskjusig geta þó ekki talist sjaldgæf á heimsvísu. Askjan í eldfjall-
inu Piton de la Fournaise á eyjunni Reunion í Indlandshafi seig um 340 metra
á 10 dögum árið 2007 samfara verulegu gosi í hlíðunum. Fernandina-askjan
á Galapagos seig um 300 metra 1968 við svipaðar aðstæður. Svipaðir atburðir
urðu á Kamtsjatka 1975-76 (Tolbachik).
Öskjuvatn byrjaði að myndast í umbrotahrinu sem gekk yfir 1874-75
og náði askjan núverandi lögun á nokkrum árum. Þá urðu sprungugos í
Sveinagjá, 50-60 kílómetra norðan Öskju og mikið sprengigos varð í lok mars
1875 þegar ljós vikur lagðist yfir hluta Austurlands og öskufall varð í Noregi
og Svíþjóð.
Við núverandi aðstæður getur atburðarásin orðið með margvíslegum hætti.
1. Sigið hættir áður en það verður mjög mikið og gosið í Holuhrauni fjarar út.
2. Sigið heldur áfram og verður jafnvel nokkur hundruð metrar jafnframt því
sem gos heldur áfram í Holuhrauni og/eða undir Dyngjujökli. Reikna verður
með að gosið yrði langvinnt og gæti stærð þess mælst í rúmkílómetrum
áður en yfir lýkur. Ef gossprungan lengist til suðurs eða gos opnast á nýjum
stað má búast við jökulhlaupum og gjóskufalli. Ekki er hægt að útiloka að
ný sprunga leiti til suðvesturs, opnist undir jökli sunnan bungunnar eða á
landi utan jökuls.
3. Að kvikan finni sér leið upp öskjubrotið og að gos hefjist innan öskjunnar.
Slíkt gos gæti brætt mikinn ís og valdið verulegu jökulhlaupi. Einnig gæti
það gerst að vatnið slyppi ekki út ef sigið væri langt komið þegar gos
hæfist. Það vatn kæmi þá síðar í miklu jökulhlaupi. Þegar gosið næði í
gegnum ísinn myndi gosið breytast í sprengigos með tilheyrandi gjóskufalli.
Magnús Tumi Guðmundsson– Páll Einarsson á Jarðvísindastofnun:
Hugleiðingar um öskjusig í Bárðarbungu og mögulegar sviðsmyndir.
ÖSKJUVATN MYNDAÐIST FYRIR 139 ÁRUM
ÖSKJUVATN Myndaðist á nokkrum árum í stórgosinu 1875. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
ASKÝRING | 16
JARÐHRÆRINGAR Í VATNAJÖKLI: SIG Í BÁRÐARBUNGU