Fréttablaðið - 11.09.2014, Qupperneq 30
11. september 2014 FIMMTUDAGUR| SKOÐUN | 30
EAPN (European Anti
Poverty Network) eru
evrópsk samtök sem
mynduð eru af frjálsum
félagasamtökum sem
hafa það í markmiðum
sínum að vinna að mál-
efnum fátækra. EAPN
lítur svo á að fátækt og
félagsleg einangrun séu
brot á grundvallarmann-
réttindum. Orsakavaldar
fátæktar eru flókið sam-
spil margra ólíkra þátta
og því þarf að ráðast gegn þeim
á breiðum grunni. Þær aðgerð-
ir sem stjórnvöld hérlendis,
sem og annars staðar í Evrópu,
hafa gripið til í þeim tilgangi að
draga úr fátækt hafa ekki dugað
og eru þeir sem bjuggu við
kröppust kjör fyrir efnahags-
hrunið jafnvel enn verr settir nú
en áður.
EAPN á Íslandi – samtök gegn
fátækt voru stofnuð í nóvember
árið 2011. Það er mikilvægt að
starfið einskorðist ekki við höf-
uðborgarsvæðið og því er búið að
stofna deild innan samtakanna á
Akureyri og einnig er starfandi
hópur á Suðurnesjum. Jafnframt
hefur verið unnið að því að fjölga
aðildarfélögum.
Hafin er vinna við heimasíðu
EAPN á Íslandi og einnig er
unnið að því að útbúa kynningar-
efni fyrir samtökin.
Árleg PeP-samkoma (People
experiencing Poverty) var haldin
í fyrrasumar í Brussel en þar
kemur saman fólk víðs vegar að
úr Evrópu sem býr við fátækt og
félagslega einangrun. Það var
virkur hópur þriggja kvenna
frá Suðurnesjum sem fór utan
ásamt fulltrúa stjórnar EAPN á
Íslandi. Samkoman var
mikil upplifun fyrir kon-
urnar sem komu úr erf-
iðum aðstæðum. Þátttaka
í PeP-samkomum hefur
verið mjög vald eflandi
fyrir þá einstaklinga sem
þær hafa sótt og í mörg-
um tilfellum verið vendi-
punktur þar sem fólk öðl-
ast nýja sýn og finnur hjá
sér kjark til að takast á
við aðstæður sínar.
Gagnkvæmur stuðningur
EU Inclusion Strategies Group er
vinnuhópur innan EAPN. Megin-
markmið hópsins er að fylgjast
með stefnu og aðgerðum stjórn-
valda til að draga úr fátækt. Á
það bæði við um Evrópusam-
bandið og stjórnvöld í hverju
landi fyrir sig. Mjög mikilvægt
er að upplýsingarnar séu nýtt-
ar til að þrýsta á stjórnvöld að
bregðast við þar sem þörf er á.
Hópurinn er vettvangur fyrir
gagnkvæman stuðning milli
meðlima EAPN víðs vegar í Evr-
ópu í baráttu þeirra gegn fátækt.
Árlega svarar hvert land
ítarlegum spurningalista um
aðgerðaáætlun ríkisstjórnar-
innar með áherslu á hvað hún
hyggst gera til að draga úr
fátækt. Þessi vinna hefur reynst
mjög gagnleg við að sjá hvað
hefur verið gert og hvað ekki til
að draga úr fátækt hér á landi.
Í nóvember sl. héldu Evrópu-
samtökin aðalstjórnarfund í
Reykjavík. EAPN á Íslandi sá
um undirbúning fundarins.
Þurftum við einnig að leggja til
fjármuni vegna fundarins og
tókst það m.a. með styrkjum frá
aðildarfélögum samtakanna. Allt
skipulag og aðstaða var til mik-
illar fyrirmyndar.
Á síðasta ári hófst vinna við
svokallað EMIN-verkefni innan
EAPN sem hefur það markmið
að finna út hvað þarf í hverju
landi fyrir sig til að fólk geti
lifað mannsæmandi lífi, þ.e.
hvað er viðunandi framfærsla.
Í EMIN-verkefninu erum við
hluti af norrænum hópi sem er
undir leiðsögn Dana en hópurinn
leitast m.a. við að svara þeirri
spurningu hvort til sé norrænt
velferðarkerfi.
Unnin hefur verið skýrsla á
vegum EAPN á Íslandi um stöð-
una hér á landi. Tekin voru viðtöl
við ýmsa aðila, s.s. fólk sem býr
við fátækt, fræðimenn og full-
trúa verkalýðsfélaga. Þann 19.
september nk. verður haldin ráð-
stefna á vegum samtakanna þar
sem EMIN-verkefnið og úttekt á
viðunandi framfærslu á Íslandi
verður kynnt. Niðurstaða skýrsl-
unnar mun án efa verða sterkt
vopn í baráttunni fyrir bættum
lífskjörum þeirra sem búa við
kröppust kjör hér á landi.
Ráðstefnan er öllum opin og
er þátttaka ókeypis. Skráning
er til 16. september á heimasíðu
Öryrkjabandalags Íslands.
Úttekt á viðunandi framfærslu
Gallar (í smíði og hönn-
un) og hættur eru í Hörpu
sem óvinsælt er að fjalla
um opinberlega. Má t.d.
nefna eftirfarandi:
1) Aðalstigi Hörpu er í
einu hlaupi og skáskorinn
þannig að m.a. eldra fólk
og fólk með skerta göngu-
getu á erfitt með að fóta
sig og er uggandi í stig-
anum. Skáinn á honum
beinir fólki út að handrið-
inu. Dæmi er um að kall-
að hafi verið eftir aðstoð
í stiganum.
Við arkitektar, sem höfum
fylgst með Hörpu-„smíði“ frá
2010, fullyrðum að millipallur
eigi að vera þar til öryggis skv.
hönnunarreglum um stiga í
leik- og tónlistarhúsum og sjá
þá „Neufert/Bauentwurfslehre“
hönnunar- og regluhandbók allra
arkitekta (alþjóðleg). Þar segir
að 18 þrep sé hámarksfjöldi og
svo komi pallur. Þeim mun meiri
ástæða er fyrir palli að stiginn á
líka að nýtast sem neyðarstigi í
vá (í eldi, jarðskjálfta eða ann-
arri vá). Hrasi einhver þarna við
neyðarrýmingu gæti það vald-
ið lífshættulegri skriðu fallandi
fólks og því er pallur nauðsyn-
legur. Lesa má um slíka stiga í
byggingarreglum nýrrar Mann-
virkjastofnunar. Minnt skal á
að tvisvar kom upp (skyndilega)
eldur í Eldborgarsal á smíðatím-
anum.
2) Handriðin uppi á svölum í Eld-
borgarsal eru hættulega lág.
Mælast 71 cm og aðeins eru um
30 cm frá brún mjórra sætanna
að handriði sem er hættulega
lítið. Stór gestur sem fengi t.d.
aðsvif eða misstigi sig getur hæg-
lega fallið yfir handriðið. Sam-
kvæmt byggingarreglum ættu
handriðin að vera mun hærri.
Spurt var hverjir samþykktu
stigann og handriðin með tilliti
til öryggis gesta og tóku út? Ekki
hafa fengist svör frá Bygginga-
fulltúaembættinu þar um.
3) Af hættulegri stétt við malbiks-
torgið: Hellusteinarnir í stéttinni
eru ekki fasaðir. Miðað við þá teg-
und má hæðarmismunur vera að
hámarki 2 mm eftir niðurlögn.
En hann hefur mælst þarna að 5
mm. Gestir hafa dottið kylliflatir
og vitað er um slys.
Hve margar lögregluskýrslur
skyldu vera komnar vegna
óhappa þarna?
Af göllum og
hættum í tónlistar-
húsinu Hörpu
SAMFÉLAG
Þorbera
Fjölnisdóttir
fulltrúi ÖBÍ í EAPN
á Íslandi
➜ Þær aðgerðir sem
stjórnvöld hérlendis, sem
og annars staðar í Evrópu,
hafa gripið til í þeim tilgangi
að draga úr fátækt hafa
ekki dugað og eru þeir sem
bjuggu við kröppust kjör
fyrir efnahagshrunið jafnvel
enn verr settir nú en áður.
BYGGINGAR
Örnólfur Hall
arktitekt
➜ Hrasi einhver
þarna við neyðarrým-
ingu gæti það valdið
lífshættulegri skriðu
fallandi fólks og því
er pallur nauðsyn-
legur. Lesa má um
slíka stiga í byggingar-
reglum nýrrar Mann-
virkjastofnunar.