Fréttablaðið - 11.09.2014, Side 44
KYNNING − AUGLÝSINGSpjaldtölvur FIMMTUDAGUR 11. SEPTEMBER 20142
Spjaldtölvur hafa valdið byltingu á mörgum sviðum samfélagsins undan farin ár. Útbreiðsla þeirra er
mikil hérlendis og margar starfsstéttir
hafa tekið þær í þjónustu sína með marg-
víslegum hætti. Meðal þeirra eru tón-
listarmenn og tónlistarkennarar sem
nýta spjaldtölvur við tónlistarsköpun,
kennslu og á tónleikum. Meðlimir rokk-
sveitarinnar góðkunnu Agent Fresco til-
heyra þessum hópi en Vignir Rafn Hilm-
arsson, bassaleikari sveitarinnar, notar
meðal annars spjaldtölvu á tónleikum.
„Við höfum aðeins nýtt okkur spjaldtölvur
þegar við semjum en helst notum við þær
þegar við spilum á tónleikum. Þar notum
við ýmis forrit eins og iGrand Piano,
Animoog og Sound Prism.“
Vignir starfar einnig sem kennari í
Skólahljómsveit Grafarvogs þar sem hann
sér um þróunarverkefni sem snýr að inn-
leiðingu spjaldtölva í tónlistarkennslu. Þar
nýtast þær á marga vegu auk þess þegar
hann kennir börnum og unglingum á
bassa. „Í tónmennt læt ég krakkana búa til
trommutakta og semja gítarhljóma. Þann-
ig vinna hóparnir saman og semja tónlist.
Einnig blöndum við mikið saman tón-
list og hljómum úr spjaldtölvu og al-
vöru hljóðfærum. Sumir
nemenda minna kunna
á hljóðfæri og þá býr
kannski einn til
trommutakt í
tölvunni og
annar spilar
inn á með raf-
magnsgítar.“
Þegar Vignir kennir á bassa hjálpar
spjaldtölvan líka mikið og gefur kennsl-
unni mun meiri möguleika, ekki síst þegar
krakkarnir eru farnir að missa áhugann.
„Margir nemenda minna hafa aldrei spil-
að í hljómsveit og því get ég auðveldlega
útbúið trommutakta og gítar þar sem þeir
spila með á bassann sinn. Þannig fá þeir
tilfinninguna fyrir því að spila í hljómsveit
og um leið verður þessi upplifun vonandi
frekari hvatning til að halda áfram á sömu
braut.“
Hjálpar mörgum
Spjaldtölvan nýtist einnig vel fyrir þann hóp
sem hefur ekki tök á að læra á hefðbundin
hljóðfæri, til dæmis einhverfa krakka. „Ég
hef tekið eftir því hvernig spjaldtölvan hvet-
ur krakka til tónlistarsköpunar sem ekki
hafa tök á að læra á hefðbundið hljóðfæri af
ýmsum ástæðum. Það er mjög mikil upp-
lifun fyrir krakkana og mig sem kennara
þegar til verður tónlist með
hjálp spjaldtölvunnar.“
Fjölmörg ókeypis og
ódýr forrit eru til á spjaldtölv-
ur sem gera fólki kleift að semja
eigin tónlist án þess að hafa tónlistar-
legan bakgrunn. „Krakkar og ungling-
ar geta til að mynda unnið með auðvelt
forrit sem heitir Garage
Band. Þar er hægt að
spila inn gítar,
bassa, tromm-
ur og einn-
ig syngja. Þeir
sem eru lengra komnir
geta nýtt sér flóknari forrit og
má nefna þar til dæmis Animoog.“ Hann
segir frekar einfalt að læra inn á þessi for-
rit og semja tónlist þótt hljóðfærakunnátta
sé ekki til staðar. „Reyndar mæli ég ein-
dregið með því að börn og unglingar læri
á hljóðfæri þar sem ekkert kemur í stað
þess að hafa hljóðfærið sjálft í höndunum,
semja og spila tónlist þrátt fyrir að forrit og
spjaldtölvur búi yfir öllum þessum mögu-
leikum.“
Eykur áhuga og sköpunarþörfina
Tónlistarmenn og tónlistarkennarar eru meðal þeirra starfsstétta sem hafa tekið spjaldtölvur í þjónustu sína. Spjaldtölvur nýtast vel
til tónlistarkennslu og á tónleikum. Krakkar eru fljótir að læra inn á spjaldtölvur og þær ýta undir áhuga þeirra á tónlistarnámi.
„Ég hef tekið eftir því hvernig spjaldtölvan hvetur krakka til tónlistarsköpunar,“ segir Vignir Rafn Hilmarsson,
bassaleikari og tónlistarkennari. MYND/VALLI
Tölvur og íhlutir síðan 1986
Tæknibær ehf • Skipholt 50c • 105 Reykjavík • 582 6000 • sala@tb.is • www.tb.is • www.computer.is
Glæný sending af spjaldtölvum
frá Asus
Við mælum með með spjaldtölvum frá ASUS en þeir eru þekktir fyrir vandaðar vörur og ótrúlega
lága bilanatíðni. ASUS MeMO Pad vörulínan hefur hlotið haug af verðlaunum og fengið góða um-
fjöllunum um allan heim, m.a. fyrir vandaða hátalara, hágæða skjái, langa rafhlöðu endingu o.fl.
ASUS MeMO Pad 10 taska
Verð kr. 7.990
Pat Says Now hliðartöskur
Verð kr. 5.990
Port Designs töskur
Verð frá kr. 3.990
Pennar fyrir snertiskjái
Verð frá kr. 490
Bílahleðslutæki
Verð kr. 2.490
Standar
Verð frá kr. 1.290
Festingar í bíl, við höfuð-
púða eða með sogskál
Verð kr. 3.490
Kaplar, Micro HDMI,
Micro USB o.fl.
Verð frá kr. 1.190
Bluetooth hátalarar
Verð frá kr. 3.990
Fylgihlutir fyrir spjaldtölvur:
ASUS MeMO Pad HD 7
• Skjár: 7” IPS fjölsnertiskjár (1280x800)
• Örgjörvi: Quad Core 1,2 GHZ
• Minni: 16 GB SSD, stækkanlegt um 32 GB
• Þráðlaust: Wireless-N, Bluetooth 4.0, GPS
• Myndavélar: Tvær myndavélar, 5 MP og 1,2 MP
• Rafhlaða: Allt að 10 klst rafhlöðuending
• Stýrikerfi: Android 4.2
Verð: 29.990
ASUS MeMO Pad HD 8
• Skjár: 8” IPS fjölsnertiskjár (1280x800)
• Örgjörvi: Quad Core 1,6 GHZ
• Minni: 16 GB SSD, stækkanlegt um 64 GB
• Þráðlaust: Wireless-N, Bluetooth 3.0+EDR, GPS
• Myndavélar: Tvær myndavélar, 5 MP og 1,2 MP
• Rafhlaða: Allt að 9 klst rafhlöðuending
• Stýrikerfi: Android 4.2
Verð: 34.990
ASUS MeMO Pad FHD 10
• Skjár: 10” IPS fjölsnertiskjár (1920x1200)
• Örgjörvi: Intel Atom Z2560 HT X2 1,6 GHz
• Minni: 16 GB SSD, stækkanlegt um 64 GB
• Þráðlaust: Wireless-N, Bluetooth 3.0+EDR, GPS
• Myndavélar: Tvær myndavélar, 5 MP og 1,2 MP
• Hátalarar: Sonic Master stereo hátalarar
• Rafhlaða: Allt að 10 klst rafhlöðuending
• Stýrikerfi: Android 4.2
• Mál: Aðeins 9,5 mm og 580 grömm
Verð: 59.990
Komdu og prófaðu sýningareintökin