Fréttablaðið - 11.09.2014, Qupperneq 47
KYNNING − AUGLÝSING Haust- og vetrartíska11. SEPTEMBER 2014 FIMMTUDAGUR 5
Konur safna í KAREN
MILLEN skápinn
Í KAREN MILLEN fæst hágæða tískufatnaður á góðu verði. Flestir tengja merkið við kápur
og kjóla en á undanförnum misserum hefur bæst við mikið úrval hversdagsfatnaðar.
„Áður fyrr voru kjólar og háir hælar í aðalhlutverki en nú
er að bætast við mikið af buxum, toppum, bolum, skóm
og peysum. Fötin, sem koma í stærðum átta til sextán,
eiga það sameiginlegt að vera svakalega töff enda eru sí-
fellt fleiri konur farnar að klæða sig þannig upp eftir öllum
aldri,“ segir verslunarstjórinn Hulda Ingvarsdóttir Bethke.
„Við erum til dæmis með ótrúlega flott úrval af buxum sem
seljast ítrekað upp. Þetta eru gallabuxur, svartar glansbux-
ur og leðurlíkisbuxur. Flestar konur kannast við að eiga
erfitt með að finna gott buxna snið en þessi snið virðast
henta jafnt kornungum konum sem og þeim sem eldri eru
og þær sem komast á bragðið koma aftur og aftur.“
Hulda segist aldrei hafa verið með jafn mikið úrval af
leðurjökkum og þetta haust en þeir fást í ýmsum litum.
Hún segir jafnframt mikið um flotta og þægilega ökklaskó
og stigvél. Þá eru haustlitirnir farnir að láta á sér kræla.
„Burgundy-liturinn er áberandi og sömuleiðis
svakalega fallegir bláir tónar.“ Hulda segir kjól-
ana vitaskuld á sínum stað en KAREN MILLEN
er ein af fáum verslunum sem selja síðkjóla.
„Úrvalið er því breitt og höfðar jafnt til þeirra
sem eru að leita að flottum hversdagsfatnaði og
galakjólum.“
Hulda segir KAREN MILLEN líka hafa þá
sérstöðu að hægt er að fá allt í stíl. „Þú getur því
keypt kápu í stíl við kjólinn, seðlaveski í stíl við
töskuna og sömuleiðis hanska, belti og skó.“
KAREN MILLEN leggur að sögn Huldu
gríðar lega áherslu á gæði og er hvert einasta smá-
atriði úthugsað. „Mörg efnanna eru sérframleidd
í Como á Ítalíu en þar eru líka framleidd efni fyrir
risa á borð við Prada, Versace, Valentino, Louis Vu-
itton, Christian Dior og Chanel. Smáatriði eins og
rennilásar og tölur eru líka sérframleidd fyrir Karen
Millen. Framleiðsluaðferðirnar eru sömuleiðis gríð-
arlega vandaðar. Kaðlarnir í kaðlapeysunum eru til
dæmis handprjónaðir og munstrin búin til frá grunni
svo dæmi séu nefnd. Vinnan á bak við einn köflóttan
kjól kemur líka mörgum á óvart. Munstrið er reikn-
að nákvæmlega út og liggur því alveg eins hvort sem
um er að ræða stærð átta eða sextán en sams konar
vinnubrögð tíðkast hjá öllum stærstu tískuhúsum
heims. Vandvirknin skilar sér svo í flíkum sem end-
ast árum saman. Ég tala alltaf um að konur safni í
KAREN MILLEN skápinn sinn enda hönnunin tíma-
laus og klassísk,“ segir Hulda.
Í ljósi gæða kemur verðið að sögn Huldu
mörgum á óvart. „Við fáum oft þá spurn-
ingu hvernig það sé hægt og svarið er í
krafti stærðarinnar. Fyrirtækið er með
gríðarlega útbreiðslu og hefur víða
laðað til sín ánægða við-
skiptavini.“
KAREN MILLEN
er til húsa í Smára-
lind og Kringlunni.
KAREN MILLEN