Fréttablaðið - 11.09.2014, Page 78

Fréttablaðið - 11.09.2014, Page 78
11. september 2014 FIMMTUDAGUR| SPORT | 58 Á meðan alþingsmenn Íslands rifust um fjár-lagafrumvarp við setningu Alþingis niðri í bæ ríkti þjóðarsátt um eitt; Gylfi Þór Sigurðs- son er kominn aftur!“ Svo komst kollegi minn að orði í umfjöllun sinni í Fréttablaðinu um leik Íslands og Tyrk- lands í fyrrakvöld. Gylfi átti magnaðan leik á miðju íslenska liðsins og var að öðrum ólöst- uðum maður leiksins sem Ísland vann sann- færandi með þremur mörkum gegn engu. Lengi vel var mönnum tíðrætt um tvö vandamál tengd íslenska landsliðinu: hvar ætti að nota Gylfa Þór Sigurðsson í leikkerfinu 4-4-2 og hver ætti að fylla skarðið á miðjunni sem Rúnar Kristinsson skildi eftir sig þegar hann lagði landsliðsskóna á hilluna fyrir tæpum áratug. Lausnin á báðum þessum vandamálum fannst þann 6. september 2013. Það blés ekki byrlega fyrir íslenska liðinu í hálfleik gegn Sviss í undankeppni HM 2014 þennan dag. Staðan var 3-1 og fátt benti til þess að breyting yrði þar á. En í hálfleik gerði landsliðsþjálfarinn Lars Lagerbäck skiptingu; tók Helga Val Daníelsson af velli og setti Eið Smára Guðjohnsen inn á í hans stað. Og það sem mikilvægara var, þá færði Svíinn Gylfa úr framlínunni og niður á miðjuna. Það tók smá tíma fyrir þessa breytingar að virka. Sviss komst fljótlega í 4-1, en þá sögðu Íslendingar hingað og ekki lengra. Þeir skoruðu þrjú mörk og tryggðu sér stig með einhverri mögnuðustu endurkomu sem sést hefur frá íslensku liði. Og með stiginu héldu þeir lífi í HM-draumnum. Gylfi byrjaði á miðjunni í næsta leik gegn Albaníu og hefur spilað þá stöðu með lands- liðinu síðan þá. Og eins og sást í fyrrakvöld líður honum afskaplega vel þar. Vera má að hann njóti sín best sem „tía“ (í stöðunni fyrir aftan framherjann), en það hentar honum ekki síður vel að spila sem annar af tveimur miðju- mönnum í leikkerfinu 4-4-2. Yfirsýn hans, spyrnutækni og leikskilningur eru í hæsta gæðaflokki, og hann er gæddur þeim einstaka hæfileika að vita hvenær hann á að keyra upp hraðann og hvenær hann á að róa spilið. Það var frábært að fylgjast með því hvernig Gylfi stjórnaði leiknum gegn Tyrkjum í gær og þá sérstaklega eftir að Ömer Toprak var rekinn af velli á 59. mínútu. Og það sem meira er, þá er Gylfi agaður og sinnir varnarvinnunni samviskusamlega. Það tók Lagerbäck og Heimi Hallgrímsson tíma að finna lausn á „Gylfa-klemmunni“, en um leið og hún fannst leystu þeir einnig nær áratugs gamalt vandamál íslenska landsliðsins. Gylfi Þór Sigurðsson var svarið. UTAN VALLAR INGVI ÞÓR SÆMUNDSSON ingvithor@365.is LAUSNIN FANNST Í BERN FÓTBOLTI Eiður Smári Guðjohnsen, markahæsti leikmaður í sögu íslenska knattspyrnulandsliðsins, mun ekki ganga í raðir danska úrvalsdeildarliðsins FC København. Frá þessu var greint á heimasíðu FCK í gær. Eiður æfði með FCK um nokkurra daga skeið og spilaði æfingaleik með liðinu gegn Nordsjælland á mánudaginn. Eiður lagði upp tvö mörk í 4-2 sigri FCK. Forráðamenn FCK ákváðu hins vegar að semja ekki við Eið, en hluti ástæðunnar fyrir því er sú staðreynd að íslenski framherjinn hefði ekki getað leikið með danska liðinu í Evrópudeildinni. FCK er í riðli með HJK frá Finnlandi, ítalska liðinu Torino og belgíska liðinu Club Brugge, en samningur Eiðs við síðastnefnda félagið rann út að síðasta tímabili loknu. Hann hefur verið án félags síðan þá. - iþs Eiður ekki til FCK SPORT GOLF Staðfest var á dögunum að ákveðið hefði verið að senda ekki karlalið á heimsmeistaramót áhuga- manna í golfi í ár en mótið fór fram í Japan. Sendi GSÍ kvennalið til keppni og hafnaði það í 29.-31. sæti. Skapaðist umræða um það hvort Golfsamband Íslands væri illa statt fjárhagslega í ljósi pistils Margeirs Vilhjálmssonar sem birtist á heimasíðu Kylfings í gær en Haukur Örn Birgisson, forseti Golfsambands Íslands, staðfesti við Fréttablaðið að enginn fótur væri fyrir slíkum sögum. „GSÍ styrkir ár hvert landslið og kylfinga til þess að taka þátt í mótum erlendis og er valið í samráði við í upphafi hvers árs. Unnið er innan ákveðinna fjárheimilda sem ákveðin eru á hverju ári og er ákvörðunin unnin samráði við Úlfar Jónsson, þjálfara íslenska landsliðsins í golfi,“ sagði Haukur Örn. „Ákveðið var að þessu sinni að senda tvö karlalandslið á EM en eitt kvennalið sem leiddi til þess að kvennaliðið tók þátt í heimsmeistara- mótinu. Það á ekki við rök að styðjast að ákvörðunin hafi verið tekin þegar sambandið á að hafa komist að því að ekki væru til peningar til að senda út annað lið.“ Ákvörðunin var tekin í upphafi ársins GÓÐUR Gylfi átti frábæran leik gegn Tyrklandi. FRÉTTABLAÐIÐ/ANDRI MARINÓ ÓSANNINDI Ekkert er til í sögunum um að GSÍ sé illa statt. FRÉTTABLAÐIÐ/DANÍEL Leikmaður Ár Andstæðingur Örn Óskarsson 1972 Noregur Lárus Guðmundsson 1981 Tyrkland Tryggvi Guðmundsson 1997 Liechtenstein Eiður Smári Guðjohnsen 1999 Andorra Jón Daði Böðvarsson 2014 Tyrkland SKORUÐU MARK Í FYRSTA KEPPNISLEIK Nafn Mínútur Ár Tryggvi Guðmundsson 8 1997 Ármann Smári Björnsson 9 2007 Eiður Smári Guðjohnsen 12 1999 Jón Daði Böðvarsson 18 2014 Lárus Guðmundsson 20 1981 Hörður Magnússon 41 1992 Brynjar Björn Gunnarsson 58 1997 Gunnar Heiðar Þorvaldsson 68 2005 Örn Óskarsson 90 1972 STYSTA BIÐ EFTIR MARKI Í KEPPNISLEIK FÓTBOLTI Jón Daði Böðvarsson skoraði fyrsta mark Íslands í sigr- inum á Tyrklandi á Laugardals- velli á þriðjudaginn en með því varð hann fimmti Íslendingur- inn til þess að skora mark í sínum fyrsta keppnisleik. Varð hann jafnframt fjórði fljót- asti maðurinn til þess að skora mark keppnisleik þegar hann skallaði boltann í netið af stuttu færi á Laugardalsvelli. Jón Daði fékk óvænt tækifærið í byrjunarliði íslenska liðsins í sínum fyrsta mótsleik en hann hefur leikið þrjá æfingarleiki með liðinu en ekki komist á blað. „Mér var búið að ganga mjög vel á æfingum og ég vissi að Heimir og Lars hefðu mikla trú á mér og treystu mér. Þeir treystu mér nægilega mikið til þess að gefa mér byrjunarliðssæti og þetta gekk bara mjög vel,“ sagði Jón sem fékk sannkallaða draumabyrj- un en hann skoraði fyrsta mark Íslands eftir átján mínútur. „Þetta létti auðvitað pressunni, þetta var minn fyrsti keppnisleik- ur fyrir A-landsliðið og það var eðlilega smá stress fyrir leik en um leið og þjóðsöngurinn kom þá fór allt stress. Það gleymist allt um leið og maður kemst af stað.“ Í góðra manna hóp Með marki sínu komst Jón Daði í hóp fjögurra annarra leikmanna sem hafa skorað í sínum fyrsta keppnisleik fyrir íslenska landslið- ið, þeirra Eiðs Smára Guðjohnsen, Tryggva Guðmundssonar, Lárusar Guðmundssonar og Arnar Óskars- sonar. „Það er gaman að heyra það, þetta eru flott nöfn og það er frá- bært að vera í hóp með jafn góðum leikmönnum. Vonandi nær maður að fylgja því eftir og byggja ofan á þetta,“ sagði Jón Daði en hann er með fjórðu stystu biðina eftir marki í keppnisleik. „Þegar maður heyrir þetta fyll- ist maður stolti, ekki bara þessar upplýsingar heldur að hafa spil- að nánast heilan mótsleik fyrir Íslands hönd í gær. Fjölskyldan var með mér í gær og það eru allir himinlifandi yfir þessu og vonandi er þetta það sem koma skal,“ sagði Jón Daði sem vonast eftir sæti í A- landsliðshóp Íslands í næstu leikj- um en á sama tíma spilar U21 árs landsliðið gríðarlega mikilvægan leik í umspili upp á sæti á Evrópu- mótinu 2015. „Það er vonandi að maður hafi sýnt að maður eigi heima í þess- um frábæra hóp. Það væri gaman að taka þátt í verkefninu með U21 en maður vill auðvitað komast eins langt og mögulegt er og það stærsta sem maður getur upplifað í þessu eru leikir með A-landslið- inu.“ kristinnpall@365.is, ooj@365.is Vonandi það sem koma skal Jón Daði Böðvarsson stimplaði sig inn í íslenska A-landsliðið með látum gegn Tyrkjum. Það tók hann aðeins 18 mínútur að skora sitt fyrsta A-landsliðsmark. Hann er þó ekki sá fl jótasti í landsliðssögu Íslands. MAGNAÐUR Jón Daði fór mikinn í fyrsta A-landsliðsleiknum sínum og kom Íslandi á bragðið í frábærum 3-0 sigri á Tyrkjum á Laugardalsvelli. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON FÓTBOLTI Víkingur hafnaði í gær tilboði Aalesund í Aron Elís Þrándarson, miðjumann liðsins, en norska úrvalsdeildarfélagið lagði fram kauptilboð í leikmann- inn í síðustu viku. Tilboðið var einfaldlega ekki nægilega gott að mati Víkings en það staðfesti Heimir Gunnlaugs- son, formaður meistaraflokks- ráðs Víkings, við íþróttadeild. Aron Elís hefur verið eftir- sóttur um nokkurt skeið, ekki síst vegna frammistöðu sinnar í 1. deildinni í fyrra þar sem hann skoraði 14 mörk í 14 leikjum og svo í Pepsi-deildinni í ár þar sem hann bar sóknarleik Víkingsliðs- ins á herðum sér framan af móti. Aron, sem er uppalinn í Vík- ingi, mun því klára tímabilið með liðinu en liðið er í harðri baráttu um sæti í Evrópukeppni að ári. Að sögn Heimis hafa fleiri lið áhuga á Aroni Elís en útsendar- ar hafa fylgst með honum í allt sumar og sérstaklega undanfarn- ar vikur. Miðað við áhugann sem erlend félög hafa verið að sýna þessum stórefnilega leikmanni þá verður að teljast afar ólíklegt að hann spili áfram með Víkingum næsta sumar. - kpt Sagði nei við Álasund EFTIRSÓTTUR Aron Elís getur örugg- lega valið úr tilboðum. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.