Fréttablaðið - 02.10.2014, Side 37
| FÓLK | 3
Guðmundur Þór Guðmundsson, stöðvarstjóri hjá Olís í Norð-lingaholti, var stirður í baki
eftir aðgerð sem hann gekkst undir við
brjósklosi fyrir þremur árum.
„Sökum stirðleika var ég iðulega
erfiður upp á morgnana og slæmur í
skrokknum,“ segir Guðmundur, sem
fékk ábendingu um gæðavítamínin frá
Nutra og hefur síðan endurheimt út-
hald, styrk sinn og vellíðan.
„Ég hef lengi haft tröllatrú á magnesí-
umi og D-vítamíni sem styrkir ónæmis-
kerfið og er allra meina bót. Því skellti
ég mér á Nutra-magnesíum og D-vítamín
og var aðeins mánuði síðar orðinn mun
styrkari, liðugri og betur á mig kominn,“
segir Guðmundur, sem hafði áður tekið
inn sambærileg vítamín og steinefni frá
þekktum en mun dýrari framleiðendum.
„Nutra-vítamínin eru verulega hag-
kvæm fyrir budduna og maður fær meira
magn fyrir lægra verð. Þau gera mér
afskaplega gott og hafa ekki síður góða
virkni en dýrari vítamín á markaðinum.“
Guðmundur hefur síðan bætt við
Nutra-kalki því kalk styrkir bein á meðan
magnesíum slakar á vöðvaspennu á nátt-
úrulegan hátt.
„Ég er nú allt annar í bakinu og léttari
á líkama og í lund. Í frístundum rembist
ég við að spila golf og þá kemur sér vel að
hafa tekið inn aukaskammt af fjörefnum,
því það er ekki alltaf sem maður fær ráð-
lagðan dagskammt fjörefna úr fæðunni,“
segir Guðmundur kátur.
„Með þessari kærkomnu Nutra-þrennu
er ég nú betur í stakk búinn til að takast
á við líf og leik og líður svo miklum mun
betur.“
FJÖREFNI FYRIR ALLA ÍSLENDINGA
AÐFÖNG KYNNA Nutra-vítamín eru frábær kostur fyrir þá sem hugsa um heilsuna og vilja taka inn fjölbreytt og góð bætiefni á
sanngjörnu verði. Nutra er sérsniðið að þörfum Íslendinga og annarra sem búa á norðurslóðum.
KALK – FYRIR TENNUR OG BEIN
Nutra Kalk inniheldur 500 mg af kalki fyrir tennur og bein. Ein tafla uppfyllir 63
prósent af ráðlögðum dagskammti og því auðvelt að uppfylla kalkþörf líkamans
með Nutra Kalki. Flestum dugar að taka inn eina töflu á dag en óhætt er að taka
tvær ef ekki er neytt kalkríkrar fæðu.
Nutra-kalk fæst í 120 taflna pakkningum og er ódýr og góður kostur fyrir þá
sem taka inn kalk daglega því skammturinn dugar í tvo til fjóra mánuði. Gott er að
taka inn D-vítamín með kalki þar sem upptaka og nýting verður þá mun meiri. Því
er mælt með að taka inn eina töflu af Nutra D3 1000 AE kólikalsiferól samhliða
Nutra-kalki.
MAGNESÍUM PLÚS – SLAKANDI
OG RÓANDI FYRIR LÍKAMA OG SÁL
Nutra Magnesíum Plús inniheldur magnesíum, B12-vítamín, B6-vítamín og fólinsýru.
Magnesíum og B-vítamín virka einkar vel saman, til dæmis gegn mí grenihöfuðverk. B-
vítamín nýtist einnig vel með magnesíumi við orkuframleiðslu í líkamanum. Magnesíum
hjálpar ekki aðeins vöðvum og taugum að starfa eðlilega, heldur viðheldur það stöðugum
hjartslætti, blóðsykursjafnvægi, eðlilegum blóðþrýstingi og eflir heilbrigði ónæmiskerfis-
ins.
Öll líffæri þurfa á magnesíumi að halda en hjarta og nýru þurfa einkum og sér í lagi á
þessu mikilvæga steinefni að halda. Þá gegnir magnesíum mikilvægu hlutverki fyrir vöxt
og viðhald tanna og beina, það virkjar ensím líkamans og hefur áhrif á orkuframleiðslu
(vinnur vel með B-víta mínum). Magnesíum stjórnar hlutfalli margra mikilvægustu efna
líkamans og kemur meðal annars jafnvægi á kalk, kopar, sink og D-vítamín.
TAKTU D-VÍTAMÍN Á HVERJUM DEGI
Íbúar á norðurslóðum fá ekki nægjanlegt D-vítamín úr daglegri fæðu nema þeir borði
umtalsvert magn af laxi á degi hverjum. D-vítamín er því eitt af mikilvægustu vítamínum
til inntöku. Húðin vinnur D-vítamín einnig úr sólarljósi en fyrir þá sem búa á norðurhveli
jarðar er best að taka inn D-víta mín allt árið til að tryggja nægjanlegt magn þess fyrir
líkamann. D-vítamín
gegnir mikilvægu hlutverki í starfsemi líkamans og er meðal annars talið nauðsynlegt
fyrir eðlilega starfsemi ónæmiskerfisins. Það gefst vel gegn húðþurrki, í baráttunni við
sóríasis og gegnir mikilvægu hlutverki fyrir vöðva líkamans. D-vítamín er ómissandi fyrir
upptöku kalks og annarra steinefna og því mikilvægur þáttur í uppbyggingu beina og
tanna.
MEIRA MAGN FYRIR
MUN LÆGRA VERÐ
Nutra-vítamín fást í stærri pakkningum og á mun
betra verði en íslenskir neytendur hafa átt að venjast.
Nutra-vítamínin eru vönduð hágæðabætiefni fyrir alla
fjölskylduna, framleidd undir ströngu gæðaeftirliti í
Svíþjóð. Í flestum pakkningum eru 120 töflur eða hylki
og dugar því hver pakkning í tvo til fjóra mánuði, eftir
því hvort teknar eru inn ein eða tvær töflur á dag.
Nutra fæst í verslunum Bónuss og Hagkaups.
ÖFLUGUR Guðmund-
ur Þór Guðmundsson
öðlaðist meiri styrk
og betri heilsu eftir
að hann fór að taka
inn Nutra-vítamín að
staðaldri.
MYND/GVA
MEIRI GÆÐI Á BETRA VERÐI
Nutra er hugsað fyrir alla sem vilja geta tekið inn fjölbreytt og góð
bætiefni á sanngjörnu verði. Allar umbúðamerkingar eru á íslensku,
samkvæmt íslenskum reglum um næringargildi og ráðlagða dag-
skammta, og með íslenskum heitum á innihaldsefnum.
NÁTTÚRULEGT OG ÁN ERFÐABREYTTRA EFNA
Nutra er framleitt samkvæmt ströngustu GMP-framleiðslustöðlum
og inniheldur einungis virk efni frá viðurkenndum framleiðendum.
Vítamín frá Nutra innihalda einungis náttúruleg hjálparefni og engin
erfðabreytt innihaldsefni eða hjálparefni eru notuð við framleiðsl-
una.
SÉRHANNAÐ FYRIR FÓLK Á NORÐURSLÓÐUM
Við þróun og framleiðslu á Nutra er sérstaklega tekið mið af þörfum
fólks á norðlægum slóðum, matarvenjum þess og veðurfarslegum
aðstæðum. Þannig er til dæmis óumdeilt að fólk á norðurhveli þarf
meira D-vítamín en þeir sem búa á sólríkari slóðum.
■ Nutra D3 1000-vítamíntöflur eru litlar og auðvelt að kyngja þeim.
Ein tafla inniheldur 1000 AE, 25 míkrógrömm (mcg) af D3-vítam-
íni, sem er besta og virkasta fáanlegt form af D-vítamíni og er oft
kallað D3-kólikalsiferól.
■ 1000 AE 25 mcg er 500 prósent af ráðlögðum dagskammti og
óhætt að gefa það börnum allt niður í eins árs.