Fréttablaðið - 02.10.2014, Blaðsíða 10

Fréttablaðið - 02.10.2014, Blaðsíða 10
2. október 2014 FIMMTUDAGUR| FRÉTTIR | 10 ATVINNUMÁL „Ég held að þessum breytingum geti fylgt tækifæri til að efla samfélagið hérna. Að því leytinu er þetta jákvætt og ekki ástæða til að óttast þessar breytingar miðað við það sem við okkur er sagt,“ segir Arn- björg Sveinsdóttir, forseti bæj- arstjórnar á Seyðisfirði, um mat bæjarstjórnarinnar eftir tíðindi gærdagsins. Síldarvinnslan í Neskaup- stað hefur keypt öll hlutabréf í Gullbergi ehf. á Seyðisfirði sem gerir út togarann Gullver NS 12. Samhliða kaupum á togaranum keypti fyrirtækið húsnæði og búnað Brimbergs til fiskvinnslu á staðnum. Áfram er stefnt að því að gera út frá Seyðisfirði og tryggja störf tengd sjávarútvegi í byggðarlaginu. Síldarvinnslan hefur þegar töluverð umsvif á Seyðisfirði og rekur þar þegar fiskimjölsverksmiðju. „Við gerum okkur grein fyrir þeirri samfélagslegu ábyrgð sem spilar inn í þessi kaup. Við erum ekki að koma hingað inn til að fara, enda felur fjárfestingin sjálf í sér fyrirheit um áfram- haldandi starfsemi,“ segir Gunn- þór Ingvason, framkvæmdastjóri Síldarvinnslunar, spurður um kaupin og þýðingu þeirra fyrir útgerð og vinnslu. Gunnþór segir að þegar eigendur Gullbergs leit- uðu eftir viðræðum hafi ekki verið sjálfgefið að kaupa fyrirtækið, en ljóst að þá hefðu aðrir keypt. „Verk- efnið er að spila úr þessu núna. Umsvif Síldarvinnslunnar á Seyðis- firði munu aukast, verði viðskiptin samþykkt af Samkeppnisftirlitinu, en óábyrgt að lýsa því yfir að starf- semin verði í sama farvegi og hing- að til. Markmiðið er að skapa góða umgjörð um traust störf og útgerð á svæðinu,“ segir Gunnþór. Arnbjörg bætir við að það sé vissulega jákvætt, og viss trygging í því falin, að rótgróið fyrirtæki á Austurlandi kaupi fyrirtækið, sem hefur verið máttarstólpi í bæjar- félaginu í yfir hálfa öld. „Við gerum okkur grein fyrir þeirri samfélagslegu ábyrgð sem spilar inn í þessi kaup. Við erum ekki að koma hingað inn til að fara, það er ekki markmiðið,“ segir Gunnþór Ingvason, framkvæmda- stjóri Síldarvinnslunnar, spurður um kaupin og þýðingu þeirra fyrir útgerð og vinnslu. Gunnþór segir að þegar eigendur Gullbergs leit- uðu eftir viðræðum hafi ekki verið sjálfgefið að kaupa fyrirtækið, en ljóst að aðrir hefðu keypt ef þessi ákvörðun hefði ekki verið tekin. „Verkefnið er að spila úr þessu núna, og óábyrgt á þessum tíma- punkti að lýsa því yfir að starfsem- in verði í sama farvegi og hingað til. Við verðum að fá að vinna úr þessu, en það er skiljanlegt að það sæki ótti að fólki,“ segir Gunnþór. Hjá fyrirtækjunum á Seyðis- firði starfa um sjötíu manns í dag. svavar@frettabladid.is Seyðfirðingar líta á söluna sem tækifæri Síldarvinnslan í Neskaupstað hefur keypt útgerð og fiskvinnslu Gullbergs og Brimbergs á Seyðisfirði. Áfram er stefnt að því að gera út frá staðnum. Bæjaryfir- völd telja ekki ástæðu til að óttast neikvæð áhrif af viðskiptunum í framtíðinni. GUNNÞÓR INGVASON ARNBJÖRG SVEINSDÓTTIR GULLVER NS-12 Óvissutímar eru fram undan hjá áhöfn skipsins við breytingar á eignarhaldi. MYND/ADOLF Adolf Guðmundsson, framkvæmdastjóri Gullbergs ehf. á Seyðisfirði, hefur tilkynnt stjórn LÍÚ að hann gefi ekki kost á sér til áframhaldandi formennsku í sam- bandinu. Adolf hefur verið formaður stjórnar LÍÚ frá árinu 2008, eða í sex ár. Hann hverfur frá formennsku þar sem hann verður ekki lengur aðili að sam- bandinu eftir sölu fyrirtækisins. „Þetta var einfaldlega ákvörðun hluthafa félags- ins á aðalfundi í maí. Það er ekki mikið meira um tilurð sölunnar að segja,“ segir Adolf. Hluthafar eru fjórtán, en um gróið fjölskyldufyrirtæki er að ræða. „Þetta er stór ákvörðun fyrir okkur. Eitt skilyrða var að tryggt yrði, eins og hægt er, að áfram yrði gert út frá Seyðisfirði og reynt yrði að styrkja fiskvinnslu eftir fremsta megni. Ég held því fram að þessi samningur eigi eftir að renna styrkari stoðum undir byggð á staðnum,“ segir Adolf sem trúir því að sala til Síldar- vinnslunnar sé gæfuspor og þess vegna hafi verið leitað þangað með kaupin. Adolf telur ekki rétt að greina frá einstökum atriðum er varða kaupin fyrr en samþykki Samkeppniseftirlits- ins liggur fyrir. Trúir því að salan styrki byggð á Seyðisfirði ÚKRAÍNA, AP Uppreisnarsinnar í austurhluta Úkraínu virtust í gær vera að ná völdum yfir flugvellin- um í borginni Donetsk, sem hefur verið á umráðasvæði stjórnvalda. Þetta þykir hernaðarlega mikil- vægur sigur fyrir uppreisnar- sinna. Að minnsta kosti tíu voru drepnir á svæðinu í kringum flugvöllinn, þar af fjórir skammt frá skóla. Um 70 börn voru inni í skólanum á meðan átökin áttu sér stað en aðeins fullorðnir voru á meðal látinna. - fb Tíu drepnir í Úkraínu: Ná völdum yfir flugvellinum HOLLAND, AP Radovan Karadzic, fyrr- verandi leiðtogi Bosníu-Serba, sagði í réttarhöldum í gær að saksóknarar hefðu ekki „snefil af sönnunargögn- um“ sem tengja hann við voðaverkin í Bosníustríðinu. Í 874 blaðsíðna bréfi þar sem vörn hans í málinu er útlist- uð viðurkennir hann að sem leiðtogi Bosníu-Serba beri hann „siðferðis- lega ábyrgð á öllum þeim glæpum sem voru framdir af almennum borg- urum og herliði Srpska“. Karadzic er ákærður í ellefu liðum af stríðsglæpadómstólnum í Haag, þar á meðal fyrir þjóðar- morð og ofsóknir Bosníu-Serba á meðan á stríðinu í Júgóslavíu stóð 1992 til 1995. Um eitt hundrað þús- und manns féllu í stríðinu. Hinn 69 ára gamli Karadzic sagðist ekki hafa vitað af því að Bosníu-Serbar hefðu slátrað rúmlega sjö þúsund múslím- um í Srebrenica árið 1995. Það var stærsta fjöldamorð í sögu Evrópu frá því í síðari heimsstyrjöldinni. Hann sagði réttarhöldin ekki aðeins vera yfir honum heldur öllum Bosníu-Serbum. „Ef ég er brjálað- ur er ein og hálf milljón manna líka brjáluð fyrir að leyfa sonum sínum að fara í ískaldar skotgrafir til að verja heimili þeirra og fjölskyldur í þrjú ár?“ spurði hann. Karadzic á yfir höfði sér lífstíðarfangelsi verði hann fundinn sekur. Talið er að nokkrir mánuðir muni líða áður en dómstóll- inn kemst að niðurstöðu í málinu. - fb Réttarhöld yfir Radovan Karadzic, fyrrverandi leiðtoga Bosníu-Serba, fara fram í borginni Haag: Viðurkennir siðferðilega ábyrgð á glæpum FYRIR RÉTTI Radovan Karadzic sagði saksóknara ekki hafa „snefil af sönnunargögnum“ í réttarhöld- unum yfir sér. FRÉTTABLAÐIÐ/AP Otrivin Comp - gegn nefstíflu og nefrennsli Andaðu með nefinu múslímar voru drepnir í Srebrenica árið 1995. 7.000
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.