Fréttablaðið - 02.10.2014, Blaðsíða 24
2. október 2014 FIMMTUDAGUR| FRÉTTIR VIÐSKIPTI | 24
Peningastefnunefnd Seðlabankans
kynnti í gær ákvörðun sína um að
halda stýrivöxtum bankans óbreytt-
um. Vext irnir hafa verið óbreytt ir
frá nóvembermánuði 2012.
Í rökstuðningi nefndarinnar segir
að nokkuð hafi dregið úr hagvexti á
fyrri hluta ársins en að þróunin hafi
þó í meginatriðum verið í samræmi
við ágústspá Peningamála. Horfur
séu á minni verðbólgu næstu mán-
uði en spáð var í ágúst. - hg
Stýrivöxtum var ekki breytt:
Vöxtunum ekki
breytt í tvö ár
Ólafur Þ. Steph-
ensen, fyrrver-
andi ritstjóri
Fréttablaðsins og
annarra frétta-
miðla 365, hefur
verið ráðinn
framkvæmda-
stjóri Félags
atvinnurekenda
(FA) og hóf hann
störf í gær.
„Baráttumál
félagsins á borð við frjálst við-
skiptaumhverfi, sanngjarna sam-
keppni og opið hagkerfi falla prýði-
lega að þeim skoðunum sem ég hef
talað fyrir á ýmsum vettvangi,“
segir Ólafur í tilkynningu félags-
ins um ráðninguna. - hg
Hóf störf hjá félaginu í gær:
Ólafur ráðinn
til að stýra FA
TEKUR VIÐ Ólafur
er stjórnmálafræð-
ingur með MSc-
próf í alþjóðasam-
skiptum.
Ingimundur Sigurpálsson,
stjórnar formaður Isavia, segir
félagið ekki hafa farið gegn
ákvörðun fyrri stjórnar Isavia
um að forval vegna verslunar-
og veitingarýmis í Leifsstöð ætti
að fara fram í opnu og gagnsæju
ferli. Samtök verslunar og þjón-
ustu (SVÞ) hafa gagnrýnt fram-
kvæmd forvalsins harðlega.
„Það er okkar niðurstaða að
þetta sé eins opið og gagnsætt
eins og frekast er kostur í forvali
af þessu tagi,“ segir Ingimundur.
Hann segir stjórn Isavia, sem var
kosin í apríl síðastliðnum, hafa
rætt verklagið ítarlega á þremur
fundum.
„Okkar gagnrýni beinist fyrst
og fremst að því að ferlið var ekki
opið og gagnsætt eins og lög um
opinber innkaup og útboðslög bjóða,“ segir Andrés
Magnússon, framkvæmdastjóri SVÞ og heldur
áfram:
„Þar af leiðandi gagnrýna fyrirtæki sem fengu
ekki aðstöðu í Leifsstöð það að þau hafi ekki fengið
upplýsingar um hvar í röðinni þau lentu eða hvaða
atriði í skilmálunum felldu þau.“
Ingimundur segir það standa til að gefa þeim
fyrir tækjum sem óski eftir frekari upplýsingum
um niðurstöðu forvalsins tækifæri á að ræða við
fulltrúa þess verkefnahóps Isavia sem sá um það.
„Eftir á að hyggja viðurkenni ég þó, í ljósi þeirr-
ar umræðu sem verið hefur um forvalið, og varðar
skipan verkefnahópsins, að af þeirri fimm manna
nefnd eru fjórir starfsmenn Isavia og einn utanað-
komandi aðili. Það hefði hugsanlega verið betra að
hafa annan utanaðkomandi aðila.“
Andrés segir SVÞ bíða svars Isavia við bréfi sem
samtökin sendu félaginu fyrir rúmum mánuði þar
sem óskað er eftir frekari upplýsingum um hvernig
umsóknir þeirra fyrirtækja sem sóttu um aðstöðu í
Leifsstöð voru metnar.
„Að okkar mati hefði verið snyrtilegra og heiðar-
legra af hálfu Isavia að lýsa því strax yfir að lög um
opinber innkaup giltu um þetta ferli allt saman. Þá
hefði enginn getað sagt neitt og allar upplýsingar
verið á borðinu,“ segir Andrés. haraldur@frettabladid.is
Deilt um gagnsæi forvalsins
Stjórnarformaður Isavia segir forval félagsins hafa verið opið og gagnsætt. Framkvæmdastjóri SVÞ er ósam-
mála því og gagnrýnir verklag Isavia. Alls barst 71 umsókn um aðstöðu í Leifsstöð en þrettán urðu fyrir valinu.
ANDRÉS
MAGNÚSSON
INGIMUNDUR
SIGURPÁLSSON
Segafredo og Joe and the Juice fara inn
Fulltrúar Isavia kynntu í gær niðurstöður val-
ferlisins á blaðamannafundi þar sem kom fram
að félaginu hefðu borist 71 umsókn um aðstöðu
vegna verslunar- eða veitingareksturs í brott-
fararsal Flugstöðvar Leifs Eiríkssonar. Umsókn-
ir þrettán fyrirtækja urðu fyrir valinu og þar á
meðal eru ítalska kaffihúsakeðjan Segafredo og
veitingastaðurinn Joe and the Juice.
Framkvæmdir við breytingar á brottfararsalnum
eiga að hefjast í nóvember og þeim á að ljúka
næsta vor. Með þeim á að stækka verslunarrýmið og
fjölga veitingastöðum og auka þannig tekjur Isavia
af þessum hluta verslunarsvæðisins um 60 prósent.
„Við erum mjög ánægð með niðurstöðu valferlis-
ins. Markmiðið var að auka arðsemi af verslun,
þjónustu, opna markaðinn og stuðla að aukinni
samkeppni með því að nota eins opið og gagn-
sætt ferli og kostur er til að velja rekstraraðila,“
sagði Björn Óli Hauksson, forstjóri Isavia.
Veitingar
Joe and the Juice mun opna samloku- og
safabar en NQ ehf. reka áfram veitinga-
staðinn Nord, í samstarfi við alþjóðlega fyrir-
tækið Lagardére Services, auk þess að opna
sjálfsafgreiðsluveitingastað, bar með íslensku
þema og Segafredo kaffihús.
Sérverslanir
Samið var við Elko sem óskaði eftir að reka
verslun með raftæki og margmiðlun, Optical
Studio um opnun gleraugnaverslunar og
Rammagerðina um sölu minjagripa. Bláa
lónið mun áfram selja húðvörur í flug-
stöðinni og 66°N opna nýja verslun með úti-
vistarvörur. Eymundsson fékk einnig aðstöðu
sem og fyrirtækið Airpoirt Retail Group, ARG,
sem hyggst opna tískuvöruverslun. Fyrirtæki
í eigu NQ ehf. og Lagerdére Services ætlar að
selja sælkeravörur í flugstöðinni.
NIÐURSTÖÐURNAR KYNNTAR Björn
Óli Hauksson forstjóri Isavia fór ásamt
öðrum starfsmönnum félagsins yfir for-
valsferlið á blaðamannafundi í gær.
Í SEÐLABANKANUM Már Guðmunds-
son kynnti ákvörðun Peningastefnu-
nefndar í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR
Seðlabanki Íslands hefur ekki
enn tekið afstöðu til beiðna slita-
stjórnar gamla Landsbankans
(LBI hf.) um undanþágur frá
lögum um gjaldeyrismál. Seðla-
bankinn telur hins vegar góðar
líkur á að hægt verði að gefa
svar á allra næstu vikum.
Þetta kemur fram í svarbréfi
bankans vegna beiðni LBI um
undanþágur. Þar segir að ekki
hafi verið unnt að ljúka fyrir til-
skilinn frest þeim athugunum
og umræðum sem séu forsendur
þess að bankinn geti tekið efnis-
lega afstöðu til beiðnanna. LBI
hafði óskað eftir að málið yrði
afgreitt í byrjun ágúst en sá
frestur var framlengdur til
1. október.
Landsbankinn og LBI sömdu í
maí síðastliðnum um breytingar
á uppgjörsskuldabréfum með
eftirstöðvar að jafnvirði 226
milljarða króna. Slitastjórnin
setti þá fram skilyrði um að fá
undanþágur frá gjaldeyrishöft-
um vegna útgreiðslna úr búinu.
- hg
Fresturinn rann út í gær:
Hefur ekki enn
svarað LBI hf.
SÖMDU Í MAÍ Undanþágubeiðnir LBI
hf. tengjast samkomulagi við Lands-
bankann frá því í vor. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
FRÉTTABLAÐ
IÐ
/PJETU
R