Fréttablaðið - 02.10.2014, Blaðsíða 60

Fréttablaðið - 02.10.2014, Blaðsíða 60
2. október 2014 FIMMTUDAGUR| MENNING | 48 FIMMTUDAGUR HVAÐ? HVENÆR? HVAR? FIMMTUDAGUR 02. OKTÓBER 2014 Tónleikar 19.30 Píanómeistarinn Evgeny Kissin leikur í fyrsta sinn með Sinfóníuhljóm- sveit Íslands í Eldborgarsal Hörpu í kvöld. Hann spilar með Vladimir Ashkenazy sem vart þarf að kynna fyrir Íslendingum. Þeir munu spila Sinfóníu nr. 3 eftir Johannes Brahms og píanó- konsert nr. 2 eftir Sergej Rakhmanínov. Verð frá: 3.400 kr. til 7.900 kr. 20.00 Hipphopptónleikar á Gauknum í kvöld. Valby bræður, Þriðja hæðin, Alexander Jarl og Guðmundur Ft, MC Bjór og Bland og Kilo koma fram. 18 ára aldurstakmark og frítt inn. Ókeypis bjór á krana á meðan birgðir endast. 20.00 The Marel Blues Band spilar á Café Flóru í Laugardalnum í kvöld. 20.00 Ingibjörg Guðjónsdóttir sópran- söngkona, Arnhildur Valgarðsdóttir píanóleikari og Trausti Ólafsson, leiklist- arfræðingur og þýðandi, efna til söng- og ljóðakvölds í Hljóðbergi á Grundar- stíg 10. Ingibjörg og Arnhildur frum- flytja þýðingu Trausta á ljóðaflokknum On this Island eftir W. H. Auden við tónlist Benjamins Britten. Þær flytja einnig lög og texta eftir íslenska höf- unda og Trausti les þýðingu Magnúsar Ásgeirssonar á ljóðinu Ferð til Íslands eftir Auden. 2.000 krónur inn. 21.00 Tónlistarmennirnir Felix Bergs- son og Hlynur Ben hafa haldið tónleika víðs vegar um landið undanfarið. Í kvöld spila þeir í Vatnasafninu. Þeir Hlynur og Felix hlakka mikið til að spila og syngja í Vatnasafninu enda mun hljómburður þar vera einstakur. Báðir eru þeir með nýja plötu í farteskinu og í sameiningu flytja þeir lög af þeim í bland við eldra sólóefni. 21.00 Helgi Björns fagnar 30 ára starfsafmæli með veglegum tónleikum á Græna hattinum á Akureyri í kvöld. 2.900 krónur í aðgangseyri. 22.00 Aðrir tónleikar í sólóverkefni Uni Stefson, söngvara Retro Stefson, verða haldnir í kvöld kl. 22.00 á Boston, Laugavegi 28b. Tónleikarnir verða sendir út í beinni í Funkþættinum á X-inu FM 97,7. Tónleikarnir hafa einnig því hlutverki að gegna að kynna fyrstu útgáfu hans, EP1. Platan kemur út hjá útgáfufélagi Retro-klíkunnar, Les Freres Stefson, í þessari viku. 22.00 Magnús R. Einarsson heldur tón- leika á Ob-La-Dí-Ob-La-Da við Frakka- stíg í kvöld. Aðgangur er ókeypis. Sýningar 11.00 Expo-skálinn í Hörpu - 360°upplif- un af íslenskri náttúru verður opnuð í dag. Í skálanum er sýnd 15 mínútna íslensk kvikmynd framleidd af Sagafilm, þar sem íslenskri náttúru er varpað á fjórar hliðar og loft skálans og myndar þannig tening utan um gesti. Myndin er sýnd á hálftíma fresti. Aðgangseyrir er kr. 1.500. Síðustu forvöð 09.00 Síðasti dagur textílverkasýningar Ragnheiðar Guðmundsdóttur, Snerting, á Mokkakaffi er í dag. 15.00 Síðasta tækifæri til að sjá Landini, myndlistarsýningu Véronique Legros í Ketilhúsinu á Akureyri. Heimildarmyndir 20.30 RIFF býður til kvikmyndasýn- ingar og partís í kvöld. Myndin Hinsegin hljómur (e. Sounds Queer) verður sýnd á Húrra í kvöld. Þessi heimildarmynd Dan Bahl hefur vakið nokkra athygli síðustu misseri en hún fjallar um þrjá kvenkyns plötusnúða í Berlín og dregur upp mynd af vinnu þeirra sem plötusnúðar og hversdagslífi. Að sýningu lokinni munu þrjár af vinsælustu kvenkyns plötusnúðum landsins þeyta skífum. Þær DJ Yamaho, DJ Sunna Ben og DJ Magga Maack. Enginn aðgangseyrir. Kynningar 17.00 Á milli 17.00 og 19.00 mun fata- búðin JÖR blása til rýmingarsölu á þeim vörum sem þurfa að víkja fyrir haust- vörum. Líkt og fyrr þá eru fjögur verð á útsölunni; 2.500 kr., 5.000 kr., 10.000 kr. og 15.000 kr. Þá verður merkið OAK kynnt en það er merki sem mun skipa stóran sess í verslun JÖR á komandi árum. Einnig eru nýjar vörur komnar í hús frá Lacausa, Janessa Leone og JÖR. Uppistand 21.00 Tilraunauppistand í kvöld í Comedy klúbbnum í kjallaranum á BAR 11 í boði Tuborg og Aktu taktu. Fram koma Andri Ívarsson, Snjólaug Lúðvíks- dóttir, Ólafur Freyr Ólafsson, Andri Gunnar Hauksson, Jón Magnús Arnars- son, Bylgja Babýlons, Andri Már Friðriks- son og Marlon Pollock, sem verður kynnir kvöldsins. Frítt inn. Tónlist 21.00 DJ Mike Hunt þeytir diskóskíf- um eftir Díönu Ross á sérstöku Donna Ross þemakvöldi á Dollý. Fyrirlestrar 15.00 Antonio Costanzo mun flytja erindi í tilefni af útgáfu bókarinnar Il sacrificio di Odino. Fyrirlesturinn fer fram í fyrirlestrarsal Þjóðminjasafnsins og er öllum opinn. Bókin er gefin út á Ítalíu en erindi Antonios er á íslensku og fjallar um efni bókarinnar; fórnir Óðins. Sjónum verður beint að tákn- máli fórna Óðins sem lýst er í Háva- málum. Í erindinu verður einnig fjallað um tengsl fórna Óðins við sjamanisma og búddatrú. 17.30 Ungir fjárfestar halda fyrir- lesturinn Fyrstu skrefin í fjármálum í stofu V101 í HR. Hvernig er skyn- samlegt að haga sér í fjárfestingum, ávöxtun og varðandi skuldir? Rætt verður um algeng mistök og hvað þarf að hafa í huga þegar stórar fjárhags- legar ákvarðanir eru teknar. Fyrirlesarar eru Björn Berg Gunnarsson, deildar- stjóri fræðslu og viðskiptaþróunar VÍB, og Kolbrún Kolbeinsdóttir, hjá fagfjár- festaþjónustu VÍB. Myndlist 13.00 Rakel McMahon opnar nýja myndlistarsýningu í Týsgallerí á Týs- götu 3 þar sem hún kannar samskipti í gegnum einfalt myndrænt tungumál, eins og má finna á flugvélum. 17.00 TEXTÍLFÉLAGIÐ opnar sýningu í SÍM-salnum í Hafnarstræti 16 í Reykjavík, fimmtudaginn 2. október kl. 17-19. Félagið er 40 ára á þessu ári og fagnar því með röð sýninga víðs vegar um landið. Sýningin í SÍM-salnum er sú fjórða og síðasta af þessu tilefni. Tuttugu og átta listakonur taka þátt í þessari sýningu Textílfélagsins í SÍM- salnum og sýna þar bæði myndverk og hönnun. Samkoma 17.00 Stofnfundur Félags íslenskra bjóráhugakvenna verður haldinn í dag á Bunk, Laugarvegi 28, kjallara. Til að gerast meðlimur þarf að uppfylla tvennt: 1) Vera kona (samt ekki bara cis gender) 2) Hafa brennandi áhuga á bjór. Allar sem uppfylla inngönguskil- yrðin tvö eru hjartanlega velkomnar. Upplýsingar um viðburði sendist á hvar@frettabladid.is og einnig er hægt að skrá þá inni á visir.is. „Við erum alveg súperstemmdir fyrir þessu. Við munum frum- flytja heilan helling af nýjum lögum sem verða á væntanlegri plötu,“ segir Jóhann Dagur Þor- leifsson eða Jói Dagur, meðlim- ur rapphópsins Þriðju hæðinnar en í kvöld verður hipphoppveisla á Gauknum. „Það er frír bjór og læti. Þetta verður súper hipphopp partí.“ Valby-bræður munu einnig taka ný lög en þeir eru meðlim- ir í „krúi“ Blaz Roca eða Erps Eyvindarsonar, Klan Roca. Síðan munu trylla lýðinn Alexander Jarl og Guðmundur FT úr krúinu Villta vestrið sem „reppar“ Vest- urbæinn, rapphljómsveitin MC Bjór & Bland sem spilar á hljóð- færi en ekki bara taktmaskínur og Kíló, sem hefur verið að rappa á ensku í mörg ár og er „andlit íslensks hipphopps í Keflavík“ að sögn Jóa Dags. Tónleikarnir hefjast klukkan 20.00, það verður 18 ára aldurs- takmark og frítt inn. Það eru engin skilyrði sett upp með klæðaburð en mælst er til að menn mæti í hettupeysum og með bakpoka að hefðbundnum íslensk- um skopparasið. - þij Súper hipphoppveisla Valby-bræður, Þriðja hæðin og fl eiri halda skopparapartí á Gauknum í kvöld. ÞRIÐJA HÆÐIN Rapp af ýmsu tagi verður á boðstólum í kvöld. Við erum alveg súperstemmdir fyrir þessu. Við munum frum- flytja heilan helling af nýjum lögum sem verða á væntanlegri plötu. „Það verður vonandi þrusustuð,“ segir Uni Stefson, betur þekktur sem Unn- steinn Manuel Stefánsson, söngvari Retro Stefson, en hann kemur fram á öðrum sólótónleikum sínum í kvöld á skemmtistaðnum Boston. Þetta mun vera live-kvöld Funkþáttarins á X-inu FM 97,7 en þátturinn sendir tónleikana út í beinni klukkan 23. „Stuttskífan er nýkomin út og þetta eru bara tónleikar númer tvö,“ segir Unnsteinn en hann er nú í fullu fjöri við að kynna fyrstu útgáfu sína, EP1, sem kom út hjá útgáfufélagi Retro Stefson, Les Fréres Stefson, í þessari viku. „Þannig að þetta verður eitthvað hæp!“ Tónleikarnir hefjast upp úr klukkan 22 og er frítt inn. - þij Tónleikar tvö hjá Una Stefson UNI STEFSON Heldur sólótónleika í kvöld á Boston.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.