Fréttablaðið - 16.10.2014, Side 56
16. október 2014 FIMMTUDAGUR| MENNING | 44
„Ég hef verið að semja dálítið gott
safn af verkum við ljóð íslenskra
skálda og hluti af þeim verð-
ur fluttur á þessum tónleikum
á morgun,“ segir Leifur Gunn-
arsson, listrænn stjórnandi tón-
leikaraðarinnar Jazz í hádeginu.
„Ég byrjaði að semja lög við þessi
ljóð þegar ég var í námi úti í Dan-
mörku og hef núna í þrjú ár hægt
og rólega verið að bæta í safnið.“
Ljóðin eru eftir Huldu, Stein
Steinar, Jóhannes úr Kötlum,
Þorstein Erlingsson, Tómas Guð-
mundsson og Örn Árnason. Það
er Ingrid Örk Kjartansdóttir sem
syngur en Leifur spilar sjálfur
á kontrabassa og Kjartan Valde-
marsson leikur á píanó. „Það er
svo sem engin stefna í því hvern-
ig ég hef valið ljóðin,“ segir Leif-
ur. „Ljóðskáldin eru frá mismun-
andi tímum og mjög ólík innbyrðis,
þetta eru bara ljóð sem hafa höfð-
að til mín.“
Leifur segir tónleikana sniðna
að hádegishléum fólks og því séu
þeir ekki nema um það bil fjöru-
tíu mínútur að lengd. „Við erum
bæði að búa til rými fyrir fólk að
ná þessu í hádeginu og kúpla sig
frá hversdagsamstrinu og eins er
hugsunin sú að þessi tónleikalengd
hæfi öllum, fólk geti jafnvel mætt
með börnin sín, þótt efnisskráin
sé ekki sérsniðin með börn í huga.
Á sunnudögum hefjum við leikinn
klukkutíma seinna, það er oft erf-
iðara að koma sér af stað á sunnu-
dögum.“
Þessir fyrstu tónleikarnir í röð-
inni Jazz í hádeginu verða á morg-
un klukkan 12.15 og síðan endur-
teknir á sunnudaginn klukkan
13.15.
Þriðju tónleikarnir í tónleika-
röðinni Jazz í hádeginu verða flutt-
ir 14. og 16. nóvember næstkom-
andi. Þá mun Sigurður Flosason
saxófónleikari flytja sína uppá-
haldsstandarda með aðstoð Leifs
Gunnarssonar, Agnars Más Magn-
ússonar píanóleikara og Einars
Scheving trommuleikara. - fsb
Ljóð sem höfða til
tónskáldsins
Jazz í hádeginu er ný viðburðaröð í Gerðubergi.
Leifur Gunnarsson kontrabassaleikari er listrænn
stjórnandi dagskrárinnar.
LJÓÐADJASS
Ingrid Örk
Kjartans dóttir
syngur lög
Leifs Gunnars-
sonar við ljóð
íslenskra skálda
í hádeginu á
morgun.
MYND ÚR EINKASAFNI
„Undirtitill sýningarinnar er
drullumall enda er lífið oft
skemmtilegt drullumall og
gaman að leika sér í moldinni og
drullunni,“ segir Helga Arnalds
brúðuleikhúskona sem hannar
myndræna hlið verksins Lífið
sem 10 fingur setur upp. „Við
erum með dálítið táknrænar
myndir og sýningin er öll mynd-
ræn, textinn er sáralítill. Börn-
in sem hafa komið á æfingar
hafa margvísleg svör við spurn-
ingunni um það hvað verkið fjalli
um. Sum segja það fjalla um
framtíðina, önnur um fortíðina
og enn önnur um nútíðina. Það
les hver myndirnar sem verkið
birtir á sinn hátt. En við lögðum
upp með það að sýningin fjallaði
um sköpunarkraftinn, vináttu og
hringrás lífsins.“
Sýningin er unnin á sama hátt
og Skrímslið litla systir mín með
óvenjulegri aðferð þar sem sagan
í verkinu fær að kvikna út úr efni-
viðnum sem notaður er í sýning-
unni. Leikhópurinn vann spuna-
vinnu í um þrjá mánuði við sköpun
verksins. „Þetta var spuni hóps-
ins með ákveðið efni. Í Skrímsl-
ið litla systir mín unnum við með
pappír en hér erum við að vinna
með mold. Við byrjuðum á að
leika okkur með moldina og búa
til myndir úr henni,“ segir Helga.
„Síðan röðuðum við þeim mynd-
um saman og út úr því fengum við
söguþráð. Þetta er ekki hefðbund-
ið leikhús þar sem unnið er eftir
handriti heldur er þetta meira
eins og myndlist og ég myndi kalla
þetta myndleikhús, sem er auðvit-
að dálítið nálægt brúðuleikhúsi.
Hlutir lifna við á sviðinu en við
erum ekki með neinar eiginlegar
brúður.“
Það er Charlotte Böving sem
leikstýrir Lífinu og auk hennar og
Helgu samanstendur leikhópur-
inn, sem allur er skrifaður fyrir
verkinu, af þeim Sólveigu Guð-
mundsdóttur og Sveini Ólafi Gunn-
arssyni. Tónlist semur Margrét
Kristín Blöndal og lýsingu hannar
Björn Bergsteinn Guðmundsson.
Frumsýningin verður í Tjarnar-
bíói á laugardaginn klukkan 14 og
önnur sýning strax á sunnudag á
sama tíma. fridrikab@frettabladid.is
Lífi ð er oft skemmti-
legt drullumall
Leikhúsið 10 fi ngur frumsýnir á laugardag barnasýninguna Lífi ð í Tjarnarbíói. Að
baki sýningunni stendur sama teymi og setti upp verðlaunasýninguna Skrímslið
litla systir mín sem hlaut Grímuverðlaun sem besta barnasýningin 2012
LEIKHÓPURINN Verkið er unnið í spunavinnu innan leikhópsins út frá ákveðnu efni sem í þessu tilfelli er mold.
MYND: JÓHANNA ÞORKELSDÓTTIR