Fréttablaðið - 22.10.2014, Blaðsíða 4

Fréttablaðið - 22.10.2014, Blaðsíða 4
22. október 2014 MIÐVIKUDAGUR| FRÉTTIR | 2 NOREGUR Dómstóll í Ósló hefur úrskurðað að norsku öryggis- lögreglunni sé heimilt að frysta tímabundið bankainnistæður tveggja manna á þrítugsaldri sem farið hafa frá Noregi til að berj- ast fyrir samtökin Íslamska ríkið í Sýrlandi. Aftenposten hafði eftir yfir- manni öryggislögreglunnar í september að rannsóknir hefðu sýnt að einn af hverjum níu sem berjast erlendis með vígahópum taki þátt í hryðjuverkum í heima- landinu eftir að þeir hafa snúið aftur. - ibs Viðvörun öryggislögreglu: Innistæður í bönkum frystar UMFERÐ Fjölmargir sátu fastir í umferðarteppu í Vatnsenda- og Kóra- hverfum í Kópavogi í gærmorgun þegar fyrsti vetrarsnjórinn á höfuð- borgarsvæðinu lét sjá sig. Áttu margir í erfiðleikum með akstur vegna færðar og voru ýmsir allt upp í tvo tíma á leið til vinnu. Mikil hálka var á götum í Kópavogi. Samkvæmt upplýsingum frá Kópavogsbæ urðu mannleg mistök við útkall til þess að leiðir voru ekki saltaðar nægjanlega snemma um morguninn. Sigríður Björg Tómasdóttir, upplýsingafulltrúi Kópavogsbæjar, segir verklagsreglur í tengslum við mokstur gatna og söltun verða yfirfarnar hjá Kópavogsbæ vegna ástandsins sem skapaðist. - hó Mannleg mistök leiddu til umferðaröngþveitis í Kópavogi: Umferðartafir vegna hálku GÆGST ÚT UM GLUGGA Margir sátu allt að tvo tíma í umferðarteppu í gærmorgun í Vatnsenda- og Kórahverfum í Kópavogi. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA Þórunn, náið þið ekki eyrum stjórnvalda? „Við tölum allavega fyrir daufum eyrum.“ Heyrnartæki eru allt of dýr fyrir efnaminni eldri borgara. Þórunn Sveinbjörnsdóttir er formaður Félags eldri borgara. DÓMSMÁL Stjórn Faxaflóahafna heldur til streitu fyrri ákvörðun um að Björgun ehf. víki af lóð á Sævarhöfða en gefur félaginu tvö ár til að rýma svæðið. Björgun leigði lóðina á Sævar- höfða til 40 ára árið 1969 og átti samningurinn að renna út 2009. Stjórn Faxaflóahafna segir að viðræður um flutning á starfsemi Björgunar af lóðinni ásamt könn- un á möguleikum þess að koma starfseminni fyrir á öðrum stað hafi staðið allt frá árinu 2004 án árangurs. Björgun segir hins vegar í bréfi til Faxaflóahafna að þegar viðauki hafi verið gerður við leigusamn- inginn árið 2004 í tengslum við landfyllingu hafi félaginu verið tryggður leiguréttur til 25 ára umfram árið 2009 – það er allt til ársins 2034. „Hægt er að hafa mörg orð um augljósa hagsmuni Björgunar af því að farsæl lausn verði fundin í máli þessu. Þá eru ótalin atriði sem varða námavinnsluna sjálfa og hversu umhverfisvæn hún er miðað við aðra valkosti í stöðunni, sem hlýtur að skipta borgaryfir- völd miklu að fái að halda áfram í óbreyttri mynd,“ segir í bréfi lögmanns Björgunar sem kveður fyrir ætlanir stjórnar Faxaflóa- hafna gagnvart félaginu ekki geta náð fram að ganga, „að minnsta kosti ekki bótalaust“. Björgun segir að mikilvæg atvinnuréttindi félagsins njóti verndar stjórnarskrárinnar og félagið hafi gríðarlega fjárhags- lega hagsmuni í málinu. „Allur réttur er áskilinn af hálfu Björgunar, þar með talinn réttur til að krefja sérstakra bóta fyrir þá verðmætarýrnun á félaginu sem ótímabær fjölmiðlaumræða hefur þegar haft í för með sér vegna áforma Faxaflóahafna um uppsögn leigusamningsins,“ segir í bréfi Björgunar sem stjórn Faxa- flóahafna tók fyrir á síðasta fundi sínum. Hafnarstjórnin segir fullyrðing- ar Björgunar um að með viðauk- anum frá 2004 hafi verið samið um 25 ára leigurétt til handa félaginu frá 2009 vera „haldslausar hug- leiðingar“. Þótt getið sé um for- leigurétt nái hann aðeins fram að ganga ef leigusalinn vill leigja lóð sína áfram. Það vilji Faxaflóa- hafnir ekki. Að auki segir hafnarstjórnin að þegar NBI hf. hafi sett Björgun í sölu árið 2010 hafi komið fram í útboðsgögnum að leigusamningur um lóðina væri útrunninn. „Núver- andi eigendum Björgunar ehf. var því fullkunnugt um að engin lóða- réttindi fylgdu félaginu er þeir keyptu það af NBI hf.“ gar@frettabladid.is Krefjast fébóta vegna fjölmiðlaumfjöllunar Faxaflóhafnir hafna tilkalli Björgunar til áframhaldandi leigu á lóð á Sævarhöfða. Félagið segir rangt að leigusamningur hafi runnið út 2009 heldur gildi hann til 2035. Verðmæti Björgunar hafi rýrnað vegna „ótímabærrar fjölmiðlaumfjöllunar“. Í SÆVARHÖFÐA Faxaflóahafnir ætla að gefa Björgun tvö ár til að flytja starfsemi sína úr Sævarhöfða og þrífa eftir sig. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI Hægt er að hafa mörg orð um augljósa hagsmuni Björgunar af því að farsæl lausn verði fundin í máli þessu. Lögmaður Björgunar ehf. PÓLLAND, AP Radek Sikorski, fyrrverandi utanríkisráðherra Póllands og núver- andi þingforseti, var gagnrýndur í heima- landi sínu í gær fyrir ummæli í banda- rísku blaðaviðtali, þar sem hann fullyrðir að Vladimír Pútín Rússlandsforseti hafi árið 2008 boðið Pólverjum helminginn af Úkraínu. Rússar hafi þá ætlað sér hinn helminginn. Hann fór undan í flæmingi þegar hann var spurður út í þetta í gær, sagðist hafa þetta eftir öðrum og sagði að þetta meinta boð Pútíns hefði verið tekið sem hálfgerður brandari á sínum tíma. Talsmaður Pútíns sagði ekkert hæft í þessu. Ewa Kopacz forsætisráðherra, sem er flokkssystir Sikorskis, gagnrýndi hann fyrir að koma sér undan því að svara spurn- ingum um málið á blaðamannafundi í gær. „Ég mun ekki líða hegðun af þessu tagi,“ sagði hún, og krafðist þess að Sikorski svaraði nú spurningum blaðamanna undanbragðalaust. Stjórnarandstæðingar krefjast þess að hann segi af sér, ekkert pláss sé lengur fyrir ábyrgðarleysi af þessu tagi í pólsk- um stjórnmálum. - gb Fyrrverandi utanríkisráðherra Póllands gagnrýndur fyrir ummæli í blaðaviðtali: Sagði Pútín hafa boðið hálfa Úkraínu RADEK SIKORSKI Fór undan í flæmingi í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/AP DÓMSMÁL Dæmt hefur verið í 105 málum í héraði af þeim málum sem sérstakur saksókn- ari hefur ákært í frá því að emb- ættið var stofnað í byrjun árs 2009. Embættið heldur ekki tölfræði yfir það hversu mörgum málum lýkur með sakfellingu og hversu mörgum lýkur með sýknu. Heildarfjöldi mála sem hefur verið í ákærumeðferð hjá emb- ættinu að lokinni rannsókn voru 185 en alls er búið að ákæra í 147 málum. Um síðustu mánaða- mót voru 96 mál á rannsóknar- stigi hjá embættinu. Þau mál embættisins sem hafa verið hvað mest áberandi í fjölmiðlum eru þau sem eru rekin gegn fyrrverandi stjórn- endum föllnu bankanna. Í gær var dæmt í einu þeirra þegar þau Sigurjón Árnason, fyrrver- andi forstjóri Landsbankans, og Elín Sigfúsdóttir, fyrrverandi framkvæmdastjóri hjá bankan- um, voru sýknuð af ákæru um umboðssvik vegna svokallaðrar Panamafléttu. Það er í annað sinn sem þau tvö eru sýknuð í málum sem höfðuð hafa verið fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur. Ólafur Þór Hauksson, sér- stakur saksóknari, segir í svari við fyrirspurn Fréttablaðsins að það sé í höndum ríkissaksókn- ara að taka ákvörðun um hvort því máli verði áfrýjað. - jhh Í höndum ríkissaksóknara að taka ákvörðun um áfrýjun Landsbankamálsins: Dæmt hefur verið í 105 málum SÉRSTAKUR SAKSÓKNARI Ólafur Þór Hauksson segir að af þeim 185 málum sem hafi verið til rannsóknar sé búið að ákæra í 147 málum. FRÉTTABLAÐIÐ/DANÍEL KJARAMÁL Verkfall tónlistar- kennara skellur væntanlega á í dag af fullum þunga. Enginn árangur varð af samningafundi, sem haldinn var í gær og átti verkfall þá að hefjast á mið- nætti. Um 500 tónlistarkennarar leggja því niður störf, en ekki hafði verið boðað til annars sáttafundar. Samninganefnd sveitarfélag- anna lagði í fyrradag fram til- boð, sem að mati samninga- nefndar tónlistarkennara var lakara en eldra tilboð. - gb Tónlistarkennarar í verkfall: Fundað í gær án niðurstöðu SPURNING DAGSINS
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.