Fréttablaðið - 22.10.2014, Blaðsíða 46
USD 120,1
GBP 193,99
DKK 20,59
EUR 153,52
NOK 18,29
SEK 16,66
CHF 127,02
JPY 1,12
Netfang rit stjorn@markadurinn.is Sími 512 5000 Fax 512 5301
Netfang auglýsingadeildar auglys ing ar@markadurinn.is Veffang visir.is
Gengi gjaldmiðla FTSE
6.372,33 +105,26
(1,68%)
Viðskiptavefur Vísis
@VisirVidskipti
STJÓRNAR -
MAÐURINN
@stjornarmadur
20.10.2014 Hættan er nefnilega fyrir hendi. Hér liggja
enn þá alveg gríðarlegar eignir, bæði til lengri tíma og
skemmri tíma þótt, eins og ég hef skilið það, tekist hafi
að losa um skammtímakrónueignir. Þær hafa minnkað
úr 700 milljörðum í 350 milljarða en samt liggja enn
gríðarlegar langtímaeignir og skammtímaeignir
þannig að losun hafta getur á mannamáli skapað
rými fyrir stóra aðila til að fara með eignir sínar
úr landi sem getur skapað verulega hættu fyrir
almennt launafólk. Katrín Jakobsdóttir, formaður VG
Hrefnu Ösp Sigfi nnsdóttur hjá
Landsbankanum þætti skyn-
samlegt að sjá stjórnvöld beita
skattaafslætti til að auka þátttöku
almennings á hlutabréfamarkaði.
HLUTABRÉFAMARKAÐURINN man
sinn fífil fegurri. Viðskipti í ár eru
minni en í fyrra og langt frá því
sem var fyrir hrun. Vonandi stend-
ur það til bóta enda skilvirkur
hlutabréfamarkaður nauðsynlegur.
Stjórnarmaðurinn er sammála
Hrefnu um aðkomu almennings
að hlutabréfamarkaði en ósam-
mála þeirri leið sem hún leggur til.
Markaðurinn er hærra verðlagður
en helstu samanburðarmarkaðir
og varhugavert að keyra upp eftir-
spurn með skattafslætti og valda
innistæðulítilli verðhækkun og
viðkvæmum pappírsgróða.
En mætti ekki veita skattafslátt
til fjárfestingar í frumkvöðlastarf-
semi?
SPROTAFYRIRTÆKI eiga erfitt upp-
dráttar í núverandi rekstrarum-
hverfi. Ofan á þau vandamál sem
erlendir kollegar þeirra þurfa að
yfirstíga, búa íslenskir sprotar við
haftastefnu sem gerir nær ómögu-
legt að sækja erlent fjármagn.
Skattafsláttur gegn fjárfestingu í
frumkvöðlastarfsemi gæti auðveld-
að aðgengi sprota að fjármagni.
Stjórnarmaðurinn leggur því
til svokallaða frumkvöðlavottun.
Slíkt væri veitt ungum fyrirtækj-
um, með tekjur undir ákveðnu
hámarki og meginstarfsemi á
Íslandi. Fjárfesting í frumkvöðla-
vottuðu fyrirtæki myndi skapa
tekjuskattsafslátt fyrir fjárfestinn
sem næmi 50% fjárfestingarinn-
ar. Færi sprotafyrirtækið síðar í
þrot myndi fjárfestirinn fá auka-
tekjuskattsafslátt sem næmi 25%
af fjárfestingunni, en myndi ekki
þurfa að greiða fjármagnstekju-
skatt ef hún skilaði hagnaði.
Galið munu sumir segja, en
þetta er nú samt fyrirkomulag sem
hefur gefið góða raun í Bretlandi.
Sprotafyrirtækin nota fjárfest-
ingu til að ráða nýja starfsmenn,
kaupa hráefni o.fl. Skattafslátt-
urinn skilar sér því jafnharðan út í
þjóðfélagið og skapar skatttekjur.
Eftir hverju erum við að bíða?
ALLTAF LÉTTIST PYNGJAN Sam-
tal Geirs Haarde og Davíðs Odds-
sonar í tengslum við lán Seðlabank-
ans til Kaupþings var í fréttum
í síðustu viku. Lánveitingin var
ákveðin sama sólarhring og neyð-
arlögin svokölluðu, sem eins og
allir vita kipptu stoðum endanlega
undan alþjóðlegri bankastarfsemi
á Íslandi. Báðir hafa varið ákvörð-
unina síðan. Geir sagði hana rétta
í ljósi aðstæðna, og Davíð gekk
enn lengra á prentaðri einkablogg-
síðu sinni sem í daglegu tali kallast
Reykjavíkurbréf. Eitt er þó erfiðara
að verja, sú staðreynd sem endur-
speglast í nýlegri Capacent-könnun
að í ritstjóratíð Davíðs á Morgun-
blaðinu hefur lestur blaðsins dreg-
ist saman um þriðjung, með tilheyr-
andi tekjutapi fyrir útgáfufélagið.
Frumkvöðlavottun
Nánari upplýsingar í síma 590 2045 eða á benni.is
Söluaðilar um land allt
„Gripið sem
ég þarf - hvernig
sem viðrar“
Toyo harðskeljadekk hafa
sannað sig við íslenskar aðstæður
Halldór Már Þórisson - Sölufulltrúi Wurth á Íslandi
„Ég er á ferðinni allt árið. Keyri yfir sex þúsund kílómetra á mánuði
landshorna á milli. Ég þekki vegina vel, en færðin er fljót að breytast.
Maður leggur stundum af stað í bongóblíðu en endar í blindbyl. Ég hef
notað harðskeljadekkin frá Toyo í mörg ár. Þau gefa mér gripið sem ég
þarf – hvernig sem viðrar.”
ÖRY
GGI
ALLA
N
HRI
NGIN
N
60 MILLJÓNA TAP
Viðsnúningur hjá Kosti
Rekstur verslunarinnar Kosts í Kópavogi
skilaði 60 milljóna króna tapi eftir skatta
á síðasta ári. Þetta kemur fram í árs-
reikningi Kosts lágvöruverðsverslunar
ehf. Þar segir að skuldir félagsins hafi
verið 13,5 milljónum umfram eignir
við síðustu áramót. Viðsnúningur hafi
hins vegar orðið í rekstri félagsins,
það sem af er árinu 2014, og eigið fé
sé nú jákvætt.
KEYPTI HEIMKAUP.IS
Vefverslun í nýjar hendur
Móberg ehf. hefur ákveðið að selja Heimkaup.is úr rekstri
sínum. Kaupendur eru Guðmundur Magnússon, fram-
kvæmdastjóri hjá Latabæ, og fleiri fjárfestar. Þeir eignast
fyrirtækið með kaupum sínum á Magna verslunum ehf.,
eiganda Heimkaup.is, Skífunnar og Gamestöðvarinnar.
Guðmundur var áður framkvæmdastjóri Sony Center,
Office One og BT.
Skorri Rafn Rafnsson, forstjóri Móbergs, segir í frétta-
tilkynningu að Móberg ætli að einbeita sér að öðrum
sviðum og þar á meðal Bland.is.