Fréttablaðið - 22.10.2014, Blaðsíða 17
MIÐVIKUDAGUR 22. október 2014 | SKOÐUN | 15
www.opera.is
2. sýning 25. október kl. 20
3. sýning 1. nóvember kl. 20
4. sýning 8. nóvember kl. 20
Miðasala í Hörpu og á harpa.is
Miðasölusími 528 5050
Giuseppe Verdi
– RÖP, Mbl.
Glæsileg uppfærsla
– Jónas Sen, Fbl.
Fimmstjörnu-kvöld í Íslensku óperunni.
Hver stórsöngvarinn toppar annan í
glæsilegri og þaulunninni sviðsetningu.
Kristinn rís bókstaflega í
shakespearskar hæðir í nístandi og
hrollvekjandi túlkun sinni …
– Jón Viðar Jónsson
Stórviðburður í íslensku menningarlífi … Stórkostleg sýning
– Óðinn Jónsson, RÚV
Kristinn söng svo vel að jöklar bránuðu
– Silja Aðalsteinsdóttir, tmm.is
Hitti mig í hjartastað
– Bergþór Pálsson, óperusöngvari
Hrein unun!
– Svanhildur Konráðsdóttir, sviðsstjóri hjá Rvk.
Gaman að sjá stjörnu fæðast …
– Magnús Ragnarsson, kórstjóri
Var að koma af flottustu óperusýningu sem ég hef séð á Íslandi
– Hildigunnur Rúnarsdóttir, tónskáld
Ég fór í Óperuna. Það var geggjað. Drífið ykkur.
– Sigríður Thorlacius, söngkona
Tónlistin úr útvarps-
viðtækinu í bílnum, úr
tölvunni eða af geisla-
plötunni verður ekki til
í tækjunum. Hún verður
til í hjarta og huga fólks
sem oftast á langt tónlist-
arnám að baki. En hver
yrðu viðbrögð okkar ef
hennar nyti ekki lengur
við?
Fyrirlestur Dr. Roberts
Faulkner á málþingi Tón-
skóla Sigursveins í fyrri viku
verður mér minnisstæður. Hann
stýrir tónlistarskóla fyrir á
annað þúsund nemendur í Ástr-
alíu en er öllum hnútum kunn-
ugur hér eftir áratuga störf í
Hafralækjarskóla í Þingeyjar-
sveit. Skilaboð hans voru að
tónlistarnám efli námsgetu og
almenna samfélagslega virkni
og vitund ungs fólks. Tónlistar-
iðkun bæti fólk og færi þeim eig-
inleikann til að njóta vel mikil-
vægra lífsgæða, tónlistarinnar.
Verðmæt var framtíðarsýn
Gylfa Þ. Gíslasonar sem í emb-
ætti menntamálaráðherra skap-
aði grunninn með lagasetningu
að uppbyggingu núverandi kerfis
um miðja síðustu öld. Tónlistar-
skólarnir hafa fært Íslendingum
tónlistarlíf sem hefur gert mörg-
um lífið á þessari harðbýlu eyju
þess virði að lifa því. Svo einfalt
er málið í mínum huga.
Tónleikar íslenskra hljóm-
sveita erlendis eru taldir í hundr-
uðum og hafa tónlistarskólarn-
ir sjálfir brotið múrana milli
sígildrar tónlistar og hryntón-
listar. Tvær sinfóníuhljómsveitir
æskufólks starfa í Reykjavík og
nýjustu landvinningar Sinfóníu-
hljómsveitar Íslands á Proms í
haust sýna okkur hvert tónlistar-
lífið hér á landi er í raun komið.
Árangurinn er frábær.
Rekstrarvandamál
Stórgallað samkomulag um fjár-
mögnun framhaldsstigs í tón-
listarnámi og framhalds- og mið-
stigsnámi í söng frá árinu 2011
hefur enn ekki verið endurskoð-
að frekar en gengið hafi verið
frá nauðsynlegri lagasetningu
varðandi starfsemi skólanna.
Framlög ríkisins nægja ekki
til að fjármagna kennsluna á
þessum stigum og því hafa flest
sveitarfélög á landinu brúað
bilið; öll nema Reykjavík raunar.
Ekki dugir að fækka nemendum
því að þá lækkar framlag svo-
kallaðs Jöfnunarsjóðs til skól-
anna og þar með eiga skólarn-
ir ekki neitt frekar fyrir þeirri
kennslu sem þeir veita. Fyrir
vikið hefur fjárhagsleg staða
tónlistarskólanna versn-
að til muna og glíma þeir
allir við rekstrarvanda-
mál. Sumir eru upp á lán
komnir og með hliðsjón
af árferðinu má í raun
segja að þeir séu þegar
gjaldþrota.
Útlit er fyrir að verk-
fall hefjist hjá Félagi
tónlistarkennara í dag.
Þótt fyrir að það hafi
verið samkomulag um
að laun tónlistarkennara fylgdu
launaþróun annarra kennara í
landinu eru tilboð samninga-
nefnda langt undir samningum
við aðra félaga í KÍ. Bregðist for-
eldrar tónlistarnemenda við með
því að láta þá hætta í námi fer
illa fyrir skólunum sem þegar
eru í slæmri stöðu vegna gallaðs
samkomulags um fjármögnun.
Það er ekki tónlistarkennslan
sem er að hruni komin heldur
er það bakhjarlinn að hinu öfl-
uga kerfi sem bregst. Á sama
tíma keppast stjórnmálamenn
við að hæla því á uppskeru hátíð
tónlistarskólanna „Nótunni“ í
Hörpu, hinu glæsilega húsi tón-
listarinnar. Hressileg var því
áminning Faulkners og ekki síst
hvatning, þar sem hann sagði:
Það má aldrei leyfa stjórnmála-
mönnum að komast upp með að
hlaða starfsemi lofsorði öðruvísi
en fylgi gerðir í samræmi.
Ég krefst því þess af borgar-
stjóra og menntamálaráðherra
að þeir leysi deiluna um fjár-
mögnum skólanna. Ég krefst
þess af sveitarfélögunum að
samið verði við tónlistarkennara
um sömu laun og kennarar fengu
í Kennarasambandi Íslands.
Ég krefst þess að bjargað verði
kerfi sem skilar árangri.
Björgum því sem bjargað verður
MENNTUN
Gunnar
Guðbjörnsson
óperusöngvari
➜ Ég krefst þess af sveitar-
félögunum að samið verði
við tónlistarkennara um
sömu laun og kennarar
fengu í Kennarasambandi
Íslands. Ég krefst þess að
bjargað verði kerfi sem
skilar árangri.
Hnignun heilsugeirans
Á markmiðið að
vera eingöngu að
gera þá ríku ríkari
eða að bæta hag
alls almennings
og sameigin-
lega þjónustu í
heilbrigðis- og
menntamálum?
Ég gef mér að meirihluti sé fyrir
seinna markmiðinu.
Það þarf að móta trúverðuga
stefnu um að snúa þróuninni
við sem allra fyrst. Leggja fram
ítarlega tímasetta áætlun um
enduruppbyggingu og úrbætur,
ásamt vandaðri útfærslu á því
hvernig greiða eigi fyrir endur-
reisnina. Aukin notendagjöld
eru ekki ásættanleg leið.
Ekkert er þjóðinni mikil-
vægara en traust og gott heil-
brigðiskerfi.
Stjórnmálamenn úr öllum
flokkum verða að rísa undir
nafni og sýna að þeir geti gert
eitthvað gagnlegt á þessu sviði.
Sýna að þeir vilji virkilega
gera eitthvað í málinu.
http://blog.pressan.is
Stefán Ólafsson
AF NETINU