Fréttablaðið - 22.10.2014, Blaðsíða 26
FÓLK|FERÐIR
FÓLK ER KYNNINGARBLAÐ sem býður aug lýsendum að kynna vörur og
þjónustu í formi viðtala og umfjallana ásamt hefðbundnum auglýsingum. Blaðið
fylgir Fréttablaðinu daglega.
Útgefandi: 365 miðlar | Ábyrgðarmaður: Jón Laufdal | Hönnun: Silja Ástþórsdóttir
Sölumenn: Bryndís Hauksdóttir, bryndis@365.is, s. 512 5434
Kolbeinn Kolbeinsson, kkolbeins@365.is, s. 512 5447
RANNSAKAR
MOSANN
„Í mastersverkefni
mínu prófaði ég að
blanda mosa í súr-
mjólk til að græða
mosa á moldar-
undirlag. Mold-
in getur nefnilega
verið erfið þar sem
mikil hreyfing er á
henni og mosinn á
erfitt með að fest-
ast við hana. Súr-
mjólkin gerði yfir-
borðið stöðugra,
klessti mosann við
moldina og var auk
þess fín næring.“
Við erum að byrja á framkvæmd sem snýst um að tengja gufu-holurnar í Hverahlíð við Hellis-
heiðarvirkjun. Í því verkefni sem og
öllum öðrum reynum við að halda til
haga gróðurþekjunni sem við nýtum svo
til að ganga frá annaðhvort eftir við-
komandi verkefni eða á öðrum röskuðum
svæðum,“ segir Magnea Magnúsdóttir
landgræðslustjóri hjá Orku náttúrunnar.
Oftast eru notaðar vélar til verksins en
sums staðar er undirlagið óslétt og mosa-
þekjan þunn. „Því vantaði okkur hendur
til að safna mosanum. Mér datt í hug að
bjóða björgunarsveitum að gera þetta
í fjáröflunarskyni,“ segir Magnea. Þrjár
björgunarsveitir hafa komið að verkinu
ásamt hópi nemenda úr Landbúnaðar-
háskólanum og úr hjúkrunarfræði.
300 FERMETRAR AF MOSA
„Þetta var heilmikið verkefni. Sérstaklega
fyrri helgina þegar snjóað hafði nótt-
ina áður, en við náðum samt heilmiklum
mosa og dustuðum bara snjóinn af.
Seinni helgina gekk þetta ótrúlega vel. Við
skófluðum mosanum með göfflum upp
í jarðvegsdúk, fluttum hann í frystigám
og náðum að fylla hann,“ segir Magnea
glaðlega en hún býr nú að því að eiga 300
fermetra af mosa sem hún getur notað
til uppgræðslu. „Þessir 300 fermetrar
nýtast á mun stærra svæði því mosinn
getur nýst í uppgræðslu á margfalt stærra
svæði,“ segir Magnea.
Mosinn í gámnum bíður nú vors.
„Þegar búið er að ganga frá svæðinu við
Hverahlíð ætlum við að nota þennan
mosa til að leggja í svæðin og endur-
heimta þannig mosaþembuna.“
MOSABLÖNDUÐ SÚRMJÓLK TIL
LANDGRÆÐSLU
Magnea lærði landgræðslufræði í Land-
búnaðarháskóla Íslands og lagði áherslu
á endurheimt mosaþembu. „Mosinn er
þrautseigur og vex við mjög erfiðar að-
stæður. Hann hefur ekkert eiginlegt róta-
kerfi heldur aðeins rætlinga sem festa
sig við yfirborðið og því þolir hann þessa
meðferð að vera rifinn upp og frystur,“
segir Magnea og greinir frá því að á
Suðurskautslandinu hafi fundist mörg
þúsund ára mosi sem hafði lifað frosinn
í ísnum.
Hún hefur sjálf gert ýmsar tilraunir.
„Í skólanum tíndi ég mosa og geymdi í
frystikistunni heima í átta mánuði. Þegar
ég tók hann út var hann lifandi,“ segir
Magnea sem í M.Sc-verkefni sínu skoð-
aði hvernig hægt væri að dreifa mosa
og nýta í landgræðslu. Hún hafði séð á
bandarískri garðyrkjusíðu aðferð til að
gera steina gamla í útliti. „Það var gert
með því að maka á þá mosa sem bland-
aður hafði verið í svokallaða buttermilk.“
Magneu datt þá í hug að nota súrmjólk
hér heima. „Í mastersverkefni mínu próf-
aði ég að blanda mosa í súrmjólk til að
græða mosa á moldarundirlag. Moldin
getur nefnilega verið erfið þar sem mikil
hreyfing er á henni og mosinn á erfitt
með að festast við hana. Súrmjólkin gerði
yfirborðið stöðugra, klessti mosann við
moldina og var auk þess fín næring,“ lýsir
Magnea. Þessi aðferð hefur síðan verið
notuð nokkuð í landgræðsluverkefnum
Orku náttúrunnar.
„Ég keypti súrmjólk hjá MS í þúsund
rúmmetra vís. Þeir spurðu mig hvort
ég væri að reka sumarbúðir,“ segir hún
glettin.
MIKIL VERÐMÆTI Í MOSA
Enn er nokkur mosi eftir á framkvæmda-
svæðinu á Hellisheiði og stefnt er að því
að fara í frekari aðgerðir til að bjarga
honum. „Það liggja mikil verðmæti í
mosa. Þetta eru eldgamlar plöntur sem
vaxa mjög hægt og alveg þess virði að
leggja smá pening í að bjarga honum,“
segir Magnea. ■ solveig@365.is
BJARGA MOSA
AF HELLISHEIÐI
LANDGRÆÐSLA Síðustu helgar hafa björgunarsveitir og fleiri hópar unnið
að því að tína mosa á Hellisheiði og frysta. Orka náttúrunnar stendur fyrir
verkefninu sem er hluti af landgræðsluaðgerðum fyrirtækisins.
BJÖRGUN Í SNJÓ
Mosabjörgunarfólkið lét
snjóinn ekki aftra sér.
SÚRMJÓLKURMOSI Magnea blandar
stundum mosa við súrmjólk til þess að hann
festist betur við undirlagið.
MOSABJÖRGUN Mosanum var mokað á jarðvegsdúka og hann var síðan fluttur
í frystigám til geymslu fram á vor. Þá verður mosinn notaður til að græða upp
svæðið á ný eftir að framkvæmdum lýkur.
Skipholti 29b • S. 551 0770
NÝ SENDING!
AF VINSÆLU KULDASKÓNUM
MEÐ MANNBRODDUNUM
FYRI
R DÖ
MUR
OG H
ERRA
Verð
:24.0
00.-
Ábendingahnappinn má
finna á www.barnaheill.is
Við skutlum Júlíu heim
Póstdreifing | Vatnagörðum 22 | 104 Reykjavík | Sími 585 8300 | www.postdreifing.is
Birtingur treystir okkur fyrir
öruggri dreifingu á Júlíu