Fréttablaðið - 22.10.2014, Blaðsíða 42

Fréttablaðið - 22.10.2014, Blaðsíða 42
 | 8 22. október 2014 | miðvikudagur „Þetta er spennandi starfsvett- vangur í smásölugeiranum sem ég þekki vel og tengist líka ferðalögum og ferðamönnum sem er mjög vax- andi markaður á Íslandi,“ segir Þor- gerður Þráinsdóttir, nýráðin fram- kvæmdastjóri Fríhafnarinnar. Þorgerður starfar í dag sem for- stöðumaður verslana- og markaðs- sviðs Lyfju en mun fara yfi r til Frí- hafnarinnar á næstu vikum. „Þetta er afar athyglisverður starfsvettvangur og velta Fríhafn- arinnar hefur vaxið á undanförn- um árum og stefnir í að fara upp í átta milljarða króna á þessu ári. Farþegum um Kefl avíkurfl ugvöll er að fjölga mikið og það er áskor- un fyrir Fríhöfnina sem verður spennandi að takast á við,“ segir Þorgerður. Hún er stúdent frá Framhalds- skólanum á Húsavík og með BA- og Cand.psych-gráður í sálfræði frá Háskóla Íslands. Einnig lauk hún PMD-stjórnendanámi frá Opna háskólanum í Reykjavík í fyrra. „Ég starfaði sem fl ugfreyja hjá Atlanta með námi og á sumrin frá 1998-2003,“ segir Þorgerður þegar blaðamaður spyr um hennar fyrri störf. Hún nefnir einnig starf við ráðgjöf hjá fyrirtækinu IBM Con- sulting Services sem er í dag hluti af PwC á Íslandi. „Svo var ég ráðin starfsmanna- stjóri Lyfju árið 2003 og ég sinnti því starfi í sjö ár eða þangað til ég tók við verslana- og markaðssvið- inu,“ segir Þorgerður. Hún hefur nú yfi rumsjón með daglegum rekstri verslana Lyfju, Apóteksins og Heilsuhússins og sér því um öll innkaup, samninga við birgja og auglýsinga- og mark- aðsmál. Þorgerður er gift Ingvari Jóhanni Kristjánssyni viðskipta- fræðingi og þau eiga þrjú börn á aldrinum fi mm til sjö ára. „Frítíminn fer mikið í fjölskyld- una. Ég eignaðist þrjú börn á innan við tveimur árum sem var pínu erf- itt en það er allt að verða mun ein- faldara núna,“ segir Þorgerður og hlær. „En ég hef einnig áhuga á lík- amsrækt og ýmiss konar hreyfi ngu. Ég þarf líka að fara að dusta rykið af golfkylfunum. Þær fóru aðeins á hilluna þegar ég eignaðist börn- in. Svo fi nnst mér gaman að elda og spá í uppskriftir og gera eitthvað nýtt og spennandi í þeim málum.“ Vann um tíma sem flugfreyja hjá Atlanta Þorgerður Þráinsdóttir var nýverið ráðin framkvæmdastjóri Fríhafnarinnar. Hún er fædd og uppalin á Húsavík, lærði sálfræði við Háskóla Íslands og hefur starfað hjá Lyfju frá 2003. Ætlar að dusta rykið af golfkylfunum. SVIPMYND Haraldur Guðmundsson haraldur@frettabladid.is TEKUR VIÐ FRÍHÖFNINNI Þorgerður er fædd og uppalin á Húsavík og segist vita fátt betra en að eyða sumarfríinu fyrir norðan. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA „Þorgerður, eða Dæja eins og ég kalla hana, er nagli, traust, klár, skemmtileg, pottþétt og svo miklu meira til. Hún er einhver skipu- lagðasta manneskja sem ég þekki og það er draumur hverrar „þetta redd- ast“-týpu að ferðast með henni. Löngu fyrir brottför er hún búin að mastera lestakerfi áfangastaðanna og er orðin vel upplýst um bestu verslanirnar og lagerstöð þeirra (í alvöru). Dæja er fáránlega tæknivædd og hugsar vel um sitt, hún verður komin með Apple- úrið á úlnliðinn áður en við vitum af og á sennilega einn snyrtilegasta fjölskyldubíl á landinu. Hún hefur alla tíð stefnt hátt og ég held að við séum rétt að byrja að fylgjast með flottu flugi hennar.“ Kolbrún Þorkelsdóttir lögfræðingur hjá Völvu lögmönnum „Við Þorgerður höfum verið samstarfsaðilar og vinkonur í ein níu ár eða allt frá því hún réð mig til Lyfju árið 2005. Þorgerður er ein- staklega greind kona, hefur gríðarlegan metnað í að gera vel og á mjög auð- velt með að setja sig inn í nýja hluti og tileinka sér ný störf. Ég veit ekki hvort það liggur í grunnmenntuninni eða ekki, en ég held að störf hennar í hinum ýmsum menningarheimum og heimshlutum fyrir háskólaárin hafi kennt henni að lesa vel í umhverfi sitt og skilja aðstæður betur en aðrir. Hún er algjört tækjanörd og mikill fagurkeri, finnst gott að borða góðan mat, drekka eðalvín og kaupa falleg föt, elskar allt með glimmeri. Frábær manneskja sem verður sárt saknað!“ Unnur Steinsson vörustjóri Lyfju TÆKJANÖRD SEM HÆGT ER AÐ TREYSTA Á Sérfræðingar þér við hlið
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.