Fréttablaðið - 22.10.2014, Side 6

Fréttablaðið - 22.10.2014, Side 6
22. október 2014 MIÐVIKUDAGUR| FRÉTTIR | 4 14,4 prósent af íbúðum á landinu voru tveggja herbergja á árinu 2009. Þá voru 18.762 af alls 130.019 íbúðum tveggja herbergja. Hlutfallið var svipað árið 2000. Þá voru 13,9 prósent, eða 14.620 íbúðir af alls 104.805 íbúðum, tveggja herbergja. Ranglega var sagt frá því í frétt blaðsins í gær um að eldri borgarar hefðu ekki efni á heyrnartækjum, að það væri Tryggingastofnun sem veitti styrk til kaupa á tækjunum. Það rétta er að það eru Sjúkratryggingar Íslands. LEIÐRÉTTING AUGLÝSINGADEILDIR FRÉTTABLAÐSINS– AUGLÝSINGASTJÓRI: Jón Laufdal jonl@frettabladid.is ALMENNAR SÍMI 512-5401: Hjördís Zoëga hjordis@frettabladid.is, Hlynur Þór Steingrímsson hlynur@365.is, Laila Awad laila@365.is, Sverrir Birgir Sverrisson sverrirbs@365.is, Örn Geirsson orn.geirsson@365.is FÓLK/LÍFIÐ/SÉRBLÖÐ SÍMI 512-5402: Atli Bergmann atli.bergmann@365.is, Bryndís Hauksdóttir bryndis@365.is, Jón Ívar Vilhelmsson jonivar@365.is, Kolbeinn Kolbeinsson kkolbeins@365.is, FÓLK OG SÉRBLÖÐ EFNI: Sólveig Gísladóttir solveig@365.is og Vera Einarsdóttir vera@365.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 512-5403: Hrannar Helgason hrannar@365.is, Viðar Ingi Pétursson vip@365.is ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 512-5407: Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@365.is, Sigrún Helga Guðmundsdóttir sigrunh@365.is SVONA ERUM VIÐ Soff ía Sveinsdóttir veðurfréttamaður Veðurspá KAFLASKIPT Í dag fer lægð yfir landið með heldur hlýrra lofti en undanfarið. Slydda í fyrstu SV-til en síðar rigning. Úrkomulítið N-lands fram yfir hádegi, þá má búast við slyddu eða snjókomu. Á föstudaginn léttir til SV-til og kólnar á nýjan leik. 1° 6 m/s 2° 10 m/s 4° 7 m/s 7° 12 m/s Allhvasst við SA- ströndina, annars 3-10 m/s. Yfi rleitt hæg breytileg átt. Gildistími korta er um hádegi 15° 28° 8° 13° 18° 7° 6° 13° 13° 28° 13° 21° 25° 24° 19° 10° 14° 9° 4° 7 m/s 5° 10 m/s 2° 6 m/s 3° 8 m/s 2° 4 m/s 2° 3 m/s -2° 3 m/s 3° 3° 2° -1° 4° 2° 4° 2° 2° 0° Alicante Aþena Basel Berlín Billund Frankfurt Friedrichshafen Gautaborg Kaupmannahöfn Las Palmas London Mallorca New York Orlando Ósló París San Francisco Stokkhólmur FÖSTUDAGUR Á MORGUN KJARAMÁL Lítið miðar áfram í viðræðum Læknafélags Íslands og samninganefndar ríkisins en fundað var í hálftíma í gær án árangurs. Þorbjörn Jónsson, for- maður Lækna- félagsins, segist ekki bjartsýnn á að samningar takist áður en boðaðar verk- fallsaðgerðir eiga að hefjast næstkomandi mánudag. „Það þokaðist ekkert í samkomulagsátt að okkar mati,“ segir Þorbjörn. „Ég held að það sé óhætt að segja að við teljum ekki miklar líkur á að þetta takist fyrir mánudag.“ Næsti fundur er á morgun. - bá Töluðu saman í hálftíma: Lítið miðar í læknadeilunni ÞORBJÖRN JÓNSSON Alveg mátulegur Heimilis GRJÓNAGRAUTUR H V ÍT A H Ú SI Ð / S ÍA SVÍÞJÓÐ Glæpamenn sem segjast hafa verið skotnir hafa í sumum tilfellum skotið sjálfa sig vegna mistaka, að því er rannsókn lög- reglunnar í Malmö hefur leitt í ljós. Sydsvenska Dagbladet hefur það eftir lögreglunni að glæpa- mennirnir vilji ekki segja að um voðaskot hafi verið að ræða því þeim þyki það niðurlægjandi. Jafnframt sé líklegt að þeir hafi ekki vopnaleyfi. Lögreglan segir málin alvarleg þar sem alltaf sé hætta á að ein- hver annar hljóti skaða af. - ibs Glæpamenn segja ósatt: Þykir voðaskot niðurlægjandi STJÓRNSÝSLA Gunnsteinn R. Ómars- son, sveitarstjóri Ölfuss, átti pers- ónulega hlut í Gámaþjónustunni þegar hann tók ákvörðun um að neita að afhenda Íslenska gáma- félaginu gögn. Úrskurðarnefnd um upplýsinga- mál úrskurðaði á þá leið að sveitar- félaginu bæri að afhenda Íslenska gámafélaginu gögn í útboði Ölfuss þar sem Gámaþjónustan varð hlut- skörpust. Ákvörðun Gunnsteins R. Ómars- sonar fór á sínum tíma ekki fyrir bæjarstjórn sveitarfélagsins né bæjarráð, heldur tók hann þessa ákvörðun einn sem framkvæmda- stjóri sveitarfélagsins. „Já, það er rétt, ég á sjálfur hlut í Gámaþjónustunni og hef aldrei farið dult með það,“ segir Gunn- steinn Þegar Gunnsteinn er spurður hvort það hafi ekki haft áhrif á hæfi hans til að fara með málið, sem er nátengt persónulegum hagsmunum hans sem hluthafa í Gámaþjónust- unni, segir hann að það hafi ekki skipt máli. „Nei, það hafði ekki áhrif, ég vann þetta í umboði sveitarstjórnar eins og margoft hefur komið fram,“ segir bæjarstjórinn. Í stjórnsýslulögum er tekið á hæfi sveitarstjórnarmanna. Þar segir í þriðju grein laganna að starfsmað- ur sé vanhæfur ef að fyrir hendi eru þær aðstæður sem eru falln- ar til þess að draga óhlutdrægni hans í efa með réttu. Tryggvi Þór- hallsson, lögfræðingur Sambands íslenskra sveitarfélaga, telur mála- vöxtu óheppilega. „Það er óheppilegt að ráðnir sveitar stjórar taka að sér afgreiðslu mála þar sem hægt er að draga hæfi þeirra í efa,“ segir Tryggvi. Íslenska gámafélagið vildi fá að sjá hvaða forsendur lágu að baki útboði Gámaþjónustunnar í sorp- hirðu Ölfuss. Ölfus neitaði að afhenda gögn- in keppinaut Gámaþjónustunnar. Úrskurðarnefnd um upplýsinga- mál tók undir með Íslenska gáma- félaginu og úrskurðaði að sveitar- félaginu væri skylt að afhenda gögnin. Samt sem áður neitaði bæj- arstjóri Ölfuss að afhenda gögnin og kærði úrskurðinn til dómstóla. Í viðtali við Fréttablaðið þann 3. september síðastliðinn sagði Gunn- steinn R. Ómarsson, bæjarstjóri Ölfuss, að hagsmunir sveitarfélags- ins í þessu máli væru óverulegir, en að sama skapi væru hagsmunir Gámaþjónustunnar nokkuð ríkir. „Við gerum þetta vegna þess að viðsemjandi okkar telur álitamál hvort eigi að láta þessar upplýsing- ar í té og óskar eftir því að haldinn sé trúnaður við fyrirtækið,“ sagði Gunnsteinn. Anna Björg Níelsdóttir, formað- ur bæjarráðs Ölfuss, telur sveitar- stjórann hæfan til að taka ákvarð- anir sem þessar. Hún muni þó ekki eftir því að Gunnsteinn hafi til- kynnt kjörnum sveitarstjórnar- mönnum um að hann ætti sjálfur hlut í Gámaþjónustunni. „Hann tekur þessa ákvörðun ekki sjálfur. Þó að þetta hafi ekki farið formlega fyrir bæjarstjórn eða bæj- arráð þá vorum við með í ráðum þegar ákvörðun var tekin um að áfrýja úrskurði úrskurðarnefndar um upplýsingamál,“ segir Anna. Í ársreikningi Gámaþjónustunn- ar sést að foreldrar hans, Ómar Þórðarson og Friðgerður Friðgeirs- dóttir, eiga báðir hlut í fyrirtækinu sem og bróðir hans, Atli Ómarsson. Ef hlutur þeirra er lagður saman eru þau fjórði stærsti hluthafi í fyrirtækinu. sveinn@frettabladid.is Situr beggja vegna borðs í skiptum við Gámaþjónustu Gunnsteinn R. Ómarsson, sveitarstjóri Ölfuss, á hlut í fyrirtækinu Gámaþjónustunni. Ölfus neitaði að afhenda gögn í útboði sem Gámaþjónustan fékk. „Afar óheppilegt,“ segir lögfræðingur Sambands sveitarfélaga. SUÐUR-AFRÍKA Spretthlauparinn Oscar Pistorius þarf líklega ekki að afplána nema tíu mánuði í fangelsi af fimm ára dómi sem hann hlaut í gær fyrir að hafa orðið kærustu sinni að bana. Að tíu mánuðum afplánuðum á Pistorious möguleika á að sækja um náðun vegna góðr- ar hegðunar, eða í það minnsta að fá að taka út frekari refsingu á heimili sínu. Eftir að dómur hafði verið kveðinn upp var hann fluttur til Kgosi Mampuru-fang- elsisins í Pretoríu, þar sem hann á að fara í læknisskoðun til að byrja með. Talið var að hann yrði vegna fötlunar sinnar hafður í haldi í eins manns sjúkra- klefa í fangelsinu, en Pistorius er fótalaus og hefur notað gervifætur frá íslenska fyrir- tækinu Össuri. Hvorki verjendur né saksóknari höfðu í gær tekið ákvörðun um hvort dómnum yrði áfrýjað. Pistorius var sýknaður af ákæru um morð að yfirlögðu ráði en sakfelldur fyrir mann- dráp af gáleysi. Hann hélt því fram að hann hefði talið sig vera að skjóta á innbrotsþjóf þegar hann skaut á kærustu sína, sem var inni á salerni í íbúð hans að næturlagi í febrúar á síðasta ári. - gb Pistorius fær fimm ára fangelsi fyrir að hafa orðið kærustu sinni að bana á heimili þeirra: Sleppur líklega með tíu mánuði í fangelsi OSCAR PISTORIUS Leiddur burt úr réttarsal í gær eftir að dómari hafði skýrt frá refs- ingu. FRÉTTABLAÐIÐ/AP ÖLFUS Sveitarstjóri Ölfuss tók ákvörðun um að áfrýja úrskurði um að afhenda útboðsgögn sem fyrirtæki í hans eigu fékk. Já, það er rétt, ég á sjálfur hlut í Gámaþjónust- unni og hef aldrei farið dult með það. Gunnsteinn R. Ómarsson, sveitarstjóri Ölfuss.

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.