Fréttablaðið - 22.10.2014, Síða 22
| 4 22. október 2014 | miðvikudagur
„Ég held að það gæti verið spennandi
fyrir greinina að fá fl eiri eigendur
inn en við höfum engar upplýsing-
ar um að sjávarútvegsfyrirtækin
séu að skoða skráningu í Kauphöll-
ina,“ segir Kolbeinn Árnason, fram-
kvæmdastjóri Landssambands
íslenskra útvegsmanna (LÍÚ), þegar
hann er spurður hvort fyrirtæki
innan sambandsins séu að skoða
skráningu á markað.
„Engu að síður hlýtur að vera
spennandi fyrir þessi fyrirtæki að
geta verið með eggin í fl eiri en einni
körfu, þegar kemur að fjármögnun,
og maður myndi horfa á hlutabréfa-
markaðinn sem valkost í því. Ég held
að það væri einn af stóru plúsunum
fyrir þá sem hér sitja að fá fl eiri hag-
aðila inn að þessu blessaða borði,“
segir Kolbeinn.
Úr 24 fyrirtækjum í eitt
Greiningardeild Arion banka rifjaði
nýverið upp að sjávarútvegurinn var
burðarás í uppbyggingu Kauphallar
Íslands á tíunda áratugnum og að
blómaskeið hans á hlutabréfamark-
aði endaði á árunum fyrir hrun. Í
Markaðspunktum deildarinnar í lok
september var bent á að 24 fyrir-
tæki í sjávarútvegi voru skráð á
markað við síðustu aldamót. Í þeim
hópi voru mörg af stærstu fyrirtækj-
unum innan LÍU, eins og Samherji,
Vinnslustöðin og Síldarvinnslan, en
einnig fyrirtæki sem einungis sinntu
fiskvinnslu eða markaðssetningu
sjávarafurða.
Aðeins eitt fyrirtæki, HB Grandi,
er enn í höllinni en í apríl síðastliðn-
um sagði það skilið við First-North
og fór aftur inn á Aðalmarkaðinn.
„HB Grandi ruddi brautina og það
er mín niðurstaða að það hljóti eigin-
lega að gerast á næstu árum að fl eiri
fyrirtæki skoði þetta alvarlega,“
segir Kolbeinn.
„Sjávarútvegsfyrirtækin hafa
styrkst heilmikið frá hruni. Afl a-
heimildir hafa verið þokkalegar,
markaðsaðstæður fínar og veiking
krónunnar hefur hjálpað útfl utnings-
greinunum. Greinin er mjög fjárfrek
því það þarf miklar fjárfestingar til
að standa undir þessu. Þær eru áber-
andi miklar núna þannig að þessi
fyrirtæki hljóta að vera að leita leiða
til að fjármagna sig með einhverjum
hætti.“
Ýmsar ástæður
Óvissa um framtíð fi skveiðistjórnun-
ar og veiðigjöldin hafa verið nefnd
sem aðalástæðurnar fyrir því af
hverju nýskráningarnar hafa ekki
verið fl eiri en raun ber vitni.
„Það er kannski það sem stend-
ur þessu fyrir þrifum að einhverju
leyti en auðvitað er þetta mismun-
andi eftir fyrirtækjum. Samfélags-
leg sjónarmið spila einnig inn í þetta
að einhverju leyti og í öðrum tilvik-
um eru menn jafnvel að hugsa um að
halda sinni stjórn yfi r fyrirtækjun-
um, bara eins og gengur,“ segir Kol-
beinn og heldur áfram:
„Þetta er einnig að einhverju leyti
það að menn eru að komast í gegnum
ákveðinn skafl núna sem er skuld-
setningin sem kom hart niður á
þessum fyrirtækjum eins og öðrum
í hruninu þegar erlendu skuldirnar
hækkuðu. Það er að jafna sig núna og
ef okkur tekst að klára það og koma
fyrir vind þessari umræðu um fi sk-
veiðistjórnunarkerfi ð og veiðigjöldin,
og koma af stað kerfi sem hægt er að
vinna eftir til lengri tíma, þá verða
uppi aðrar aðstæður í greininni.“
Leið til að koma almenningi inn
Í samantekt Arion banka er einn-
ig rifjað upp að áður var hægt að
fylgjast með fréttum af afkomu og
horfum greinarinnar í gegnum til-
kynningar stærstu sjávarútvegsfyr-
irtækja landsins til Kauphallarinn-
ar. Almenningur hafi þá haft greiðari
aðgang að upplýsingum um gengi
greinarinnar í gegnum ársfjórðungs-
uppgjör og aðrar tilkynningar.
„Þetta er ein leið til að koma
íslenskum almenningi inn í rekst-
urinn á þessum fyrirtækjum. Fleiri
skráningar myndu hjálpa greininni
að fl ytja sitt mál um að þetta séu
fyrir tæki sem þurfa að hafa arðsemi
á sitt eigið fé og að vera spennandi
kostur fyrir eigendur sína. Því fl eiri
sem hagsmunaaðilarnir eru því lík-
legra er að fólk fari aftur að horfa á
sjávarútveginn sem atvinnugrein en
ekki eitthvað annað,“ segir Kolbeinn.
„Tökum sem dæmi sveiflur í
afkomu greinarinnar eins og þær
þegar loðnukvótinn er ekki jafn
stór og menn gerðu ráð fyrir. Þegar
fyrir tæki sem eru skráð á markað
verða fyrir slíku átta menn sig betur
á því hvað við er að eiga þegar þeir
sjá gengi bréfa í sínum fyrirtækjum
fara upp eða niður.“
Kolbeinn segir fyrirtækin innan
LÍÚ spennandi kost fyrir fjárfesta,
meðal annars vegna þess að þau séu
með sínar tekjur meira og minna í
erlendri mynt, sem virki sem ákveð-
in sveifl ujöfnun gegn fjárfestingum í
fyrirtækjum með tekjur í íslenskum
krónum.
„Reyndar er það svo að þetta er
ein af fáum greinum á Íslandi sem
er eftirsótt af bönkum sem vilja lána
henni. Við erum að sjá erlenda banka
koma inn og hasla sér völl á þessu
sviði í samvinnu við íslenska banka.“
Ekki á leið í Kauphöllina á næstunni
Kolbeinn Árnason, framkvæmdastjóri LÍÚ, segist ekki vita til þess að fyrirtæki innan sambandsins séu að
skoða skráningu á markað. Aukin aðkoma almennings gæti hjálpað greininni að flytja mál sitt. Forstjóri
Kauphallarinnar segir það ákveðin vonbrigði hversu hægt miðar í skráningum fyrirtækja í sjávarútvegi.
Páll Harðarson, forstjóri Kauphallarinnar (Nasdaq),
segir það ákveðin vonbrigði að nú sex árum eftir hrun
sé einungis eitt fyrirtæki í sjávarútvegi í höllinni.
„Það kemur þó ekki á óvart vegna þess að óvissan
varðandi framtíðarskipan sjávarútvegsmála hefur flækst
fyrir skráningunum. Sjávarútvegurinn hefur síðustu ár
búið við þessa óvissu og þá var jafnvel ekki æskilegt
að huga að þessu. En nú hygg ég að það hafi dregið
úr óvissunni og því tel ég að það séu að skapast kjör-
aðstæður fyrir þessi fyrirtæki til að koma inn á markað,“ segir Páll.
„Ég held að það sé ekki að vænta mikilla hreyfinga hjá fyrirtækjum í
sjávarútvegi á allra næstu mánuðum. Þó eru einhver sjávarútvegstengd
verkefni sem eru til skoðunar varðandi skráningu. Til framtíðar litið finnst
mér hins vegar liggja í augum uppi að þessi stærstu sjávarútvegsfélög
landsins ættu að vera skráð á markað af mörgum ástæðum. Ég held að
þetta yrði afskaplega gott fyrir félögin sjálf þegar fram í sækir, bæði varð-
andi aðgang að fjölbreyttari fjárfestahópi og svo væri þetta líka geysilega
sterk viðbót fyrir hlutabréfamarkaðinn,“ segir Páll.
VONBRIGÐI HVERSU HÆGT MIÐAR
FRAMKVÆMDASTJÓRI LÍÚ Kolbeinn Árnason segir fleiri skráningar geta leitt til þess að fólk fari aftur að horfa á sjávarútveginn sem atvinnu-
grein en „ekki eitthvað annað.“ FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
SVIPMYND
Haraldur Guðmundsson
haraldur@frettabladid.is
Sjávarútvegs-
fyrirtækin hafa
styrkst heilmikið frá
hruni.
FJÖLDI SKRÁÐRA SJÁVARÚTVEGSFYRIRTÆKJA Í KAUPHÖLL ÍSLANDS
3 3 3
1 1 11 1 1 1
4
8 8 8
14
18 18
13 12
9
9
21 24
1992 1994 1996 1998 2000 2002 2004 2006 2008 2010 2012 2014
Tap af rekstri fjarskiptafyrir-
tækisins Alterna nam 22,3 millj-
ónum á síðasta ári, samkvæmt
ársreikningi sem skilað var
til ársreikningaskrár þann 13.
október síðastliðinn. Fyrirtækið
rekur almenna talsíma- og inter-
netþjónustu og er í eigu World
Cell Inc.
Í ársreikningnum kemur fram
að rekstrartap án afskrifta, fjár-
munatekna og fjármagnsgjalda
nemur 9,9 milljónum króna,
en afskriftir nema svo um 500
þúsund krónum og því nemur
rekstrartapið fyrir fjármagns-
liði í heild, eða EBITDA, um 10,4
milljónum íslenskra króna. Mesta
tapið er hins vegar vegna gengis-
munar en það nemur rúmum tólf
milljónum króna. Eignir félags-
ins nema 8,2 milljónum króna,
þar af er stærstur hluti í við-
skiptakröfum. - jhh
Gengisþróun er helsta skýring á tapi fjarskiptafyrirtækisins Alterna:
Alterna tapaði 22
milljónum króna
ALTERNA Fyrirtækið er við Borgartún.
HEIMILD: GREININGARDEILD ARION BANKA
Rekstrarvörur
- vinna með þér