Fréttablaðið - 22.10.2014, Síða 56
visir.is
Meira um leiki
gærkvöldsins
MEISTARADEILDIN
E-RIÐILL
CSKA MOSKVA - MANCHESTER CITY 2-2
0-1 Sergio Agüero (29.), 0-2 James Milner (38.),
1-2 Seydou Doumbia (64.), 2-2 Bibras Natkho,
víti (86.).
ROMA - BAYERN MÜNCHEN 1-7
0-1 Arjen Robben (8.), 0-2 Mario Götze (23.), 0-3
Robert Lewandowski (25.), 0-4 Robben (30.), 0-5
Thomas Müller, víti (35.), 1-5 Gervinho (66.), 1-6
Franck Ribéry (78.), 1-7 Xherdan Shaqiri (80.)
STIG LIÐA: Bayern München 9, Roma 4,
Manchester City 2, CSKA Moskva 1.
F-RIÐILL
BARCELONA - AJAX 3-1
1-0 Neymar (7.), 2-0 Lionel Messi (24.), 2-1
Anwar El Ghazi (88.), 3-1 Sandro (90.+4).
APOEL - PARIS SAINT-GERMAIN 0-1
0-1 Edinson Cavani (87.)
STIG LIÐA: PSG 7, Barcelona 6, Ajax 2, APOEL 1.
G-RIÐILL
CHELSEA - MARIBOR 6-0
1-0 Loïc Rémy (13.), 2-0 Didier Drogba, víti (23.),
3-0 John Terry (31.), 4-0 Sjálfsmark (54.), 5-0
Eden Hazard, víti (77.), 6-0 Eden Hazard (90.).
SCHALKE - SPORTING LISSABON 4-3
STIG LIÐA: Chelsea 7, Schalke 5, Maribor 2,
Sporting 1.
H-RIÐILL
BATE - SHAKHTAR DONETSK 0-7
0-1 Alex Teixeira (11.), 0-2 Luiz Adriano (28.),
0-3 Douglas Costa (35.), 0-4 Luiz Adriano (36.),
0-5 Luiz Adriano (40.), 0-6 Luiz Adriano (44.),
0-7 Luiz Adriano (82.)
PORTO - ATHLETIC BILBAO 2-1
STIG LIÐA: Porto 7, Shakhtar 5, BATE 3, Bilbao 1.
FÓTBOLTI „Það er tóm vitleysa að
ég sé að fara að hætta í fótbolta,“
segir Íslandsmeistarinn Veigar
Páll Gunnarsson um þann orðróm
að hann ætli sér að leggja skóna
á hilluna eftir ævintýratímabil
Stjörnunnar í sumar.
„Mér finnst ég eiga að minnsta
kosti eitt gott ár inni og ég á tvö
ár eftir af samningi mínum við
Stjörnuna. Ég er nógu sprækur
enn þá til þess að spila á næsta
ári. Hungrið er enn til staðar og
það gefur líka mikið hvað það
er gaman og spennandi að vera
í Stjörnunni þessa dagana. Ég
vil vera hluti af þessu umhverfi
áfram.“
Veigar segir að planið sé að
klára þessi tvö ár sem hann á eftir
og síðan fari skórnir væntanlega
inn í bílskúr. Hann er að þjálfa 5.
flokk karla hjá Stjörnunni og þjálf-
un er einmitt það sem Veigar ætlar
að einbeita sér að í framtíðinni.
„Ég kann mjög vel við að þjálfa
guttana og planið er að gerast
þjálfari þegar ferlinum lýkur,“
segir Veigar Páll sem er með
B-þjálfaragráðu og er á leiðinni í
fimmta stigið í næsta mánuði.
„Planið er að vera kominn með
full réttindi þegar knattspyrnu-
ferlinum lýkur. Maður veit samt
aldrei hvort maður verði spilandi
aðstoðarþjálfari einhvers staðar.
Ég hef heyrt að það sé sniðugt
að byrja þannig. Þá lærir maður
mikið og kemst almennilega inn í
starfið. Vera til staðar. Smá svona
Dean Martin-dæmi. Ég ætla nú
ekki að spila jafn lengi og hann
samt. Maðurinn er náttúrulega
gerður úr einhverju efni sem
kemur ekki frá þessari plánetu.“
Veigar Páll segist alls ekki vera
mettur þó svo hann sé búinn að
vinna Íslandsmeistaratitilinn með
uppeldisfélaginu.
„Ég er alls ekki saddur og þetta
ár er heldur betur til að byggja
á. Svo er endalaust af frábærum,
ungum mönnum hérna til þess að
styðja við gamla manninn,“ segir
Veigar léttur.
„Það er eiginlega erfitt að lýsa
því hvað það var gaman í sumar.
Þegar ég kom heim var ég að von-
ast eftir því að það gæti orðið eitt-
hvað í þessa átt. Að vera fyrirliði
í æskufélaginu og lyfta Íslands-
bikarnum var draumur fyrir mig.
Þetta var magnað og verður seint
toppað hjá hvaða félagi sem er. Við
erum taplausir og alltaf vorum við
litla liðið og enginn hafði þannig
séð trú á okkur. Fórum líka langt
í Evrópukeppni. Við töpuðum
engum leik í venjulegum leiktíma.
Þróttur vann okkur í framleng-
ingu og það þurfti Inter til þess
að vinna okkur í venjulegum leik-
tíma. Þetta er magnað.“
Stjörnumenn ætla að fylgja
þessu frábæra sumri eftir og halda
áfram að berjast um Íslandsmeist-
aratitilinn.
„Við búumst við styrkingu og
það er stefnan. Ég veit ekki hvað
við erum að spá í en auðvitað er
talað um að Halldór Orri sé að
koma heim. Ég ætla þá rétt að vona
að hann komi til okkar. Ég held að
hann vilji það líka.“
henry@frettabladid.is
VEIGAR STEFNIR Í ÞJÁLFUN
Veigar Páll Gunnarsson er ekki á því að henda skónum upp í hillu strax og verður áfram á fullu með Stjörn-
unni. Hann er þó farinn að sjá endalokin á knattspyrnuferlinum og þá ætlar hann sér að fara að þjálfa.
FLEST MÖRK
2013
1. Halldór Orri Björnsson 9 mörk
2. Veigar Páll Gunnarsson 4 mörk
2. Garðar Jóhannsson 4 mörk
2014
1. Ólafur Karl Finsen 11 mörk
2. Veigar Páll Gunnarsson 6 mörk
2. Arnar Már Björgvinsson, Jeppe Hansen og
Rolf Glavind Toft 6 mörk
FLESTAR STOÐSENDINGAR
2013
1. Veigar Páll Gunnarsson 8 stoðsendingar
2. Atli Jóhannsson 7 stoðs.
3. Garðar Jóhannsson 5 stoðs.
2014
1. Arnar Már Björgvinsson 8 stoðs.
2. Veigar Páll Gunnarsson 4 stoðs.
2. Pablo Oshan Punyed 4 stoðs.
ÞÁTTUR Í FLESTUM MÖRKUM
2013
1. Veigar Páll Gunnarsson 12 mörk
1. Halldór Orri Björnsson 12 mörk
3. Garðar Jóhannsson 10 mörk
2014
1. Ólafur Karl Finsen 16 mörk
2. Arnar Már Björgvinsson 14 mörk
3. Veigar Páll Gunnarsson 10 mörk
- óój
HÆTTULEGUSTU LEIKMENN STJÖRNUNNAR SÍÐUSTU TVÖ SUMUR
ÁFRAM GAKK Veigar
Páll er enn hungraður og
ætlar sér meiri árangur
sem leikmaður áður en
hann gerist þjálfari. Hér
fagnar hann einu af sex
mörkum sínum í sumar.
FRÉTTABLAÐIÐ/DANÍEL
FÓTBOLTI Stórleikur kvöldsins í þriðju umferð Meistaradeildar Evrópu í
knattspyrnu fer fram á Anfield þar sem heimamenn í Liverpool taka á móti
stjörnum prýddu liði Real Madrid.
Þessir tveir Evrópurisar hafa ekki mæst í Meistaradeildinni síðan 2009
þegar Liverpool valtaði yfir spænska liðið í 16 liða úrslitum keppninnar,
samanlagt 5-0. Liverpool vann fyrri leikinn 1-0 í Madríd og bauð svo upp á 4-0
flugeldasýningu á heimavelli.
Í liði Real Madrid er maður sem Liverpool kannast vel við; Cristiano
Ronaldo, besti leikmaður heims. Ronaldo var ekki í liði Real 2009 þegar liðin
mættust síðast því þá var hann enn að hrella Liverpool-menn í ensku úrvals-
deildinni. Ronaldo er alltaf hættulegur enda skorar hann meira en mark í
leik, en Liverpool-menn geta huggað sig við það, að hann hefur aldrei skorað
mark á Anfield. Hann spilaði þar sex sinnum með Manchester United án þess
að skora, en lagði upp mark í sigrum árin 2005 og 2007. Leikurinn verður í
beinni útsendingu á Stöð 2 Sport á eftir upphitun sem hefst klukkan 18.00.
Ronaldo hefur aldrei skorað á Anfi eld
Æ, EKKI ANFIELD Ronaldo hefur ekki
gengið vel þar. FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY
VITA
Skógarhlíð 12
Sími 570 4444
Flogið með Icelandair
ÁFRAM ÍSLAND!
Styðjum strákana okkar
Verð frá: 115.000 kr.
á mann í tvíbýli á Best Western Majestic Plaza ****
í 2 nætur með morgunverð.
Einstakt tækifæri til að sjá og styðja við bakið á strákunum
okkar á leið sinni á EM 2016. ÁFRAM ÍSLAND!
Tékkland - Ísland 15. - 17. nóvember
KÖRFUBOLTI Nýliðar Tinda-
stóls hafa byrjað vel í Dom-
inos-deildinni í ár og eru Stól-
arnir eitt af fjórum liðum sem
hafa unnið tvo fyrstu leiki
sína. Tindastólsliðið vann
endurkomusigur á Stjörn-
unni á útivelli í fyrstu umferð
og fylgdi því síðan eftir með
sannfærandi heimasigri á Þór
í Síkinu.
Tveir ungir og stórefnilegir
leikmenn, hinn 20 ára Ingvi
Rafn Ingvarsson og hinn 18
ára Pétur Rúnar Birgisson,
fá mikið ábyrgðarhlutverk
á Sauðárkróki í vetur og eru
báðir byrjunarliðsbakverðir liðsins. Strákarnir hafa
staðið sig vel í þessum tveimur fyrstu leikjum og eru
báðir meðal efstu manna í stoðsendingum eftir tvær
fyrstu umferðirnar.
Ingvi Rafn átti 11 stoðsendingar í sigrinum á Þór og
hefur gefið flestar stoðsendingar (14 eða 7,0 í leik)
af öllum leikmönnum deildarinnar en Pétur Rúnar
sem var efstur í
liðinu í stoðsend-
ingum í sigrinum
í Garðabæ er með
þremur stoðsend-
ingum minna í 3.
til 6. sæti.
Pétur Rúnar skor-
aði 21 stig í sigr-
inum á Þór og
var þá næststiga-
hæsti leikmaður
Tindastólsliðs-
ins en hann hitti
þá meðal annars
úr fjórum af sjö
þriggja stiga skot-
um sínum. Ingvi Rafn hitti ekki vel í þeim leik en tók
fimm sóknarfráköst auk 6 stiga og 11 stoðsendinga.
Reynslumeiri leikmenn Stólanna spila allir nær körf-
unni en þeir Ingvi og Pétur og þó að Darrel Keith
Lewis hjálpi vissulega mikið við leikstjórnina þá er
gaman að sjá Tindastólsmenn stóla á ungu strákana
sína í Dominos-deildinni í vetur. - óój
Stóla á ungu strákana sína í vetur
Byrjunarliðsbakverðir Tindastóls í Dominos-deildinni eru 18 og 20 ára gamlir
PÉTUR RÚNAR BIRGISSON
Fæddur árið 1996.
INGVI RAFN INGVARSSON
Fæddur árið 1994.
FIMMA Luiz Adriano skoraði 5 af 7
mörkum Shakhtar Donetsk í gær.
MYND/NORDICPHOTOS/GETTY
Fátt getur komið í veg fyrir að Rúnar Kristinsson verði ráðinn þjálfari
Lilleström því samkvæmt áreiðanlegum heimildum íþróttadeildar 365 verður
Rúnar næsti þjálfari norska liðsins. Guðjón Guðmundsson
greindi frá þessu á Stöð 2 í gærkvöldi en hann sækir
heimildir sínar til Noregs. Pétur Pétursson, sem hefur
verið aðstoðarmaður Rúnars hjá KR, er sagður fylgja
með í kaupunum. Lilleström er á höttunum eftir
nýjum þjálfara þar sem Magnus Haglund, núverandi
þjálfari liðsins, hefur tilkynnt að hann sé að hætta með
liðið. KR-ingar munu í þessari viku tilkynna hver muni
taka við af Rúnari og verða næsti þjálfari félagsins. Bjarni
Guðjónsson, fyrrverandi fyrirliði liðsins, er þar efstur á
blaði. Bjarni er búinn að vera í eitt ár í burtu frá Vestur-
bænum en hann hætti með lið Fram á dögunum eftir
aðeins eitt sumar í þjálfarastólnum í Safamýrinni.
Rúnar fer frá KR til Lilleström
SPORT 22. október 2014 MIÐVIKUDAGUR