Fréttablaðið - 04.02.2015, Side 12
4. febrúar 2015 MIÐVIKUDAGUR| FRÉTTIR | 12
Ég nota
SagaPro
Hjálmar Sveinsson, verkefnastjóri
„Nú vakna ég úthvíldur“
www.sagamedica.is
Sama góða varan í nýjum umbúðum
E
N
N
E
M
M
/
S
IA
•
N
M
6
49
16
KJARAMÁL Biðstaða er í launadeilu
starfsmanna við Norðurál. Vil-
hjálmur Birgisson, formaður Verka-
lýðsfélags Akraness, segir deilunni
mjög fljótt hafa verið vísað til Ríkis-
sáttasemjara. Næsti sáttafundur
er boðaður níunda þessa mánaðar.
„Það er alveg ljóst að enn er him-
inn og haf á milli deiluaðila,“ segir
hann.
Á vef verkalýðsfélagsins hefur
verið greint frá því að Norðurál hafi
hafnað nær öllum kröfum starfs-
manna, en boðið 2,5 prósenta launa-
hækkun, auk 75 þúsund króna ein-
greiðslu og tengingu við hækkanir
sem um kann að semjast á almenn-
um vinnumarkaði. Kröfur starfs-
manna hljóða
hins vegar meðal
annars upp á 20,9
prósenta hækkun
byrjunarlauna, úr
206 þúsund krón-
um í 249 þúsund
og að tekið verði
upp vaktakerfi
sem byggist á þrí-
skiptum átta tíma
vöktum, á sömu launum og starfs-
menn fá nú greidd fyrir 12 tíma
vaktir.
„Það er ekki mikil hreyfing á
þessu en við erum alltaf vongóðir
á meðan menn tala enn þá saman,“
segir Vilhjálmur. Einhugur sé um
baráttumálin meðal starfsmanna.
„Grundvallaratriði er að fyrirtæki í
þessum geira hafa hagnast mjög vel
og Norðurál, eitt glæsilegasta fyrir-
tæki á Íslandi, hefur hagnast nær
öll ár frá byrjun. Og í því viljum
við fá hlutdeild, því að allir græða
ef þeir sem starfa í þessum fyrir-
tækjum fá góð laun. Sveitarfélögin
fá hærri útsvarstekjur, ríkið meiri
skatttekjur og verslun og þjónusta
blómstrar á þeim svæðum sem slík-
ar verksmiðjur starfa,“ segir Vil-
hjálmur. Því skipti miklu máli að
ná sem mestu út úr þessum fyrir-
tækjum. „Og það er hlutverk okkar
í verkalýðsfélögunum að gera það.“
Hvað varðar aðgerðir til að þrýsta
á um lausn deilunnar segir Vilhjálm-
ur eðli starfseminnar hjá Norðuráli
setja vinnustöðvunum ákveðin tak-
mörk. Ál er brætt í kerum sem þola
ekki að vera stöðvuð í lengri tíma
en fáeinar klukkustundir því þá
storknar í þeim málmurinn og þarf
að endurnýja kerin með ærnum til-
kostnaði. Hinn 1. apríl geti starfs-
menn hins vegar kosið um aðgerðir.
„Og að sjálfsögðu munum við beita
hverjum þeim tækjum og tólum
sem við höfum til að ná fram sann-
gjarnri leiðréttingu á launum þeirra
sem þarna starfa.“
Ragnar Guðmundsson, forstjóri
Norðuráls, sem fer fyrir samninga-
nefnd fyrirtækisins segir best fara
á því að halda samningaviðræðum
við samningaborðið, en ekki í fjöl-
miðlum. Málið sé í eðlilegum far-
vegi hjá Ríkissáttasemjara.
olikr@frettabladid.is
VILHJÁLMUR
BIRGISSON
HJÁ NORÐURÁLI Svona renna álkubbarnir úr mótunum hjá Norðuráli. Starfsemi
álvera er viðkvæm með framleiðsluferli sem þolir illa truflanir. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
Himinn og haf er
á milli deilenda
Verkalýðsfélag Akraness segir grunnlaun byrjenda í stóriðju Norðuráls til skammar.
Farið er fram á ríflega fimmtungshækkun þeirra. Ríkissáttasemjari miðlar málum.
0
3
-0
2
-2
0
1
5
2
2
:0
0
F
B
0
5
6
s
_
P
0
5
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
4
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
0
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
1
2
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
3
A
0
-4
D
3
8
1
3
A
0
-4
B
F
C
1
3
A
0
-4
A
C
0
1
3
A
0
-4
9
8
4
2
8
0
X
4
0
0
5
A
F
B
0
5
6
s
C
M
Y
K