Fréttablaðið - 04.02.2015, Side 18

Fréttablaðið - 04.02.2015, Side 18
 | 2 4. febrúar 2015 | miðvikudagur Gengi félaga í Kauphöll Íslands Á UPPLEIÐ Félög sem hækkuðu í verði Á NIÐURLEIÐ Félög sem lækkuðu í verði STÓÐU Í STAÐ Félög sem stóðu í stað MESTA HÆKKUN NÝHERJI 18,7% frá áramótum NÝHERJI 23% í síðustu viku MESTA LÆKKUN BANK NORDIC -2,9% frá áramótum REGINN -0,6% í síðustu viku 10 2 2 FIMMTUDAGUR 5. FEBRÚAR Marel – Kynning á ársreikningi Össur - Birting ársreiknings Icelandair - Birting ársreiknings FÖSTUDAGUR 6. FEBRÚAR Lánamál ríkisins – Útboð ríkis- bréfa FÍ Fasteignafélag – Birting árs- reiknings MÁNUDAGUR 9. FEBRÚAR Lánamál ríkisins – Mánaðarlegar markaðsupplýsingar ÞRIÐJUDAGUR 10. FEBRÚAR Fasteignaskrá – Fjöldi þinglýstra leigusamninga um íbúðahúsnæði VÍB - Skuldabréfamarkaðuirnn MIÐVIKUDAGUR 11. FEBRÚAR Hagstofa Íslands – Efnahagslegar skammtímatölur í febrúar Allar markaðsupplýsingar eru aðgengilegar á Dagatal viðskiptalífsins dagatal viðskiptalífsins Sónarhátíðin verður haldin í þriðja sinn í Reykjavík dagana 12.-14. febrúar. Sömu helgi fer hátíðin fram í Stokkhólmi í annað sinn og verður svo haldin í Kaupmanna- höfn í mars. Björn Steinbekk, framkvæmda- stjóri Sónar Reykjavík, segist bjartsýnn á að miðar á hátíðina hér heima seljist upp, en 3.300 miðar eru í boði. „Við seldum 2.600 miða fyrsta árið, seldum upp í fyrra og það stefnir allt í að það verði upp- selt núna,“ segir Björn. Þriggja daga miði kostar 18.900 og það þýðir að tekjur af sölu aðgöngu- miða einni saman nemi um 62 milljónum. En tekjupóstarnir eru fl eiri og Björn segir erfi tt að gera sér grein fyrir því hver heildarveltan verði núna. Hann segir að tekjur séu að aukast um þrjátíu prósent á milli ára. „Það er miðasala, tekjur frá samstarfsaðilum, styrkur og þar fram eftir götunum,“ segir Björn. Fjöldi erlendra gesta aukist líka með ári hverju. „Við seldum 700 erlendum gestum fyrsta árið, um ellefu hundruð í fyrra og það stefnir í að það fari upp í fi mm- tán hundruð núna,“ segir Björn. Björn segir að hugmyndin að Sónar hafi upprunalega komið frá Icelandair. „Þeir báðu mig um að fi nna einhvers konar við- burð sem væri hægt að setja upp yfi r vetrar tímann. Einhvern sem myndi ná til erlendra gesta í febrúar. Hugmyndin var ein- hvers konar dj-hátíð. Niðurstað- an varð sú að við fengum Sónar sem er náttúrlega 22 ára gam- alt brand frá Barcelona og er ein stærsta elektróníska hátíð- in á hverju ári,“ segir Björn. Hugmyndin að hátíðinni hafi því orðið til að frumkvæði Ice- landair og verið unnin í sam- vinnu við þá. „Við vinnum með þeim og seljum ferðapakka með þeim og við markaðssetjum Reykjavík með þeim. Þetta er stigvaxandi milli ára. Hann segir að það hafi tekið Iceland Airvawes 7-8 ár ár að komast í sama erlenda gesta- fjölda og Sónar er að fara upp í á þriðja árinu. „Það er aðallega, myndi ég segja, vegna innkomu samfélagsmiðla, notkunar á þeim og hvað Ísland hefur unnið sér inn í ferðaþjónustu og markaðssetn- ingu á síðustu árum,“ segir Björn. jonhakon@frettabladid.is Velta af Sónar vex um þrjátíu prósent á ári Tekjur af Sónar Reykjavík hafa aukist um þrjátíu prósent á ári frá því að hún var fyrst haldin árið 2012. Gera má ráð fyrir að heildar tekjur af sölu aðgöngumiða nemi um 62 milljónum í ár. ÞRIÐJA STÆRSTA FYRIRTÆKI lands- ins er á förum. Promens, alþjóðlegt fyrirtæki í plastiðnaði sem á rætur að rekja til Sæplasts á Dalvík, neyð- ist til að fl ytja frá Íslandi til að geta áfram keppt á alþjóðlegum markaði. Promens er ekki einsdæmi. Fleiri alþjóðleg fyrirtæki eiga í vaxandi erfi ðleikum með að keppa á alþjóða- mörkuðum úr höftum á Íslandi. Úr þessum hópi má nefna CCP, Marel og Össur, fyrir utan öll sprotafyrir- tækin sem ekki komast á legg og hin, sem neyðast til að selja sig til útlanda til að dafna. SEÐLABANKINN hefur að ein- hverju marki veitt þessum alþjóðlegu fyrirtækjum undan- þágur frá hinum ströngu gjaldeyrishöftum en það dugar ekki til. Fjárfestar forðast fyrir tæki innan haftamúra. Kornið sem fyllti mælinn hjá Promens var synjun á undanþágu frá gjaldeyris- höftum til að fl ytja nokkra tugi millj- óna evra úr landi til fjárfestingar í vexti fyrirtækisins. FORSÆTISRÁÐHERRA gerir lítið úr þessari ástæðu og heldur því fram að Promens hefði rétt eins getað tekið lán erlendis eins og að fl ytja fjármuni héðan. Þetta er skætingur hjá ráð- herranum. Eitt meginverkefni hans og ríkisstjórnarinnar allrar er að afl étta gjaldeyrishöftunum en ekki réttlæta þau eða gera lítið úr. TIL ÞESS AÐ AFLÉTTA gjaldeyris- höftum þarf að ganga frá þrotabúum gömlu bankanna. Heppilegast er að það gerist með samningum við full- trúa kröfuhafa en slitastjórnirnar virðast ekki á þeim buxunum að ljúka slitum. Þær eru með viðskiptaáætlun fram til ársins 2019 sem bendir til þess að þær ætli sér að sitja við glóð- irnar og skara eld að eigin köku í alla vega 11 ár frá hruni. Á MEÐAN TAPAR þjóðarbúið millj- arðatugum vegna þeirrar fjárfesting- ar, sem ekki verður, og hinnar, sem hverfur úr landi, vegna þess að gjald- eyrishöftin fella Ísland úr leik. Það er langsótt að raunverulegir erlend- ir fjárfestar hafi áhuga á að kaupa Íslandsbanka eins og fregnir berast reglulega um frá slitastjórn Glitnis. ÞVÍ MÁ EKKI DRAGAST að grípa til þeirra aðgerða sem þarft til að afl étta höftunum. Það þarf að gera upp slita- búin. Það þarf að tryggja að mögu- legt fall krónunnar setji hagkerfi ð ekki á hliðina með stökkbreytingu á verðtryggðum lánum fyrirtækja og heimila, sem ekki þola annað áfall á borð við það sem varð árið 2008. LYKILATRIÐI við afnám hafta er jafn- framt að stjórnvöld verði búin að marka stöðugleikastefnu í efna- hags- og peningamálum til fram- tíðar. Stöðug leiki í peningamálum verður aldrei tryggður með krónunni eins og forystumenn ríkisstjórnar- innar reyna þó að telja sjálfum sér og öðrum trú um. Glötuð tækifæri – framtíðin hverfur úr landi Vinsamlegast láttu vita í gjaldfrjálst númer 800 1177 eða á dreifing@postdreifing.is Hjálpaðu okkur að bæta þjónustuna. Blaðið á að berast þér fyrir kl. 7:15 virka morgna og 8:15 á laugardögum FÉKKSTU EKKI BLAÐIÐ Í MORGUN? KOM ÞAÐ OF SEINT? Hvenær einstaklingur kaupir vöru á netinu eða hversu hratt hann slær inn upplýsingar getur gefi ð glögga mynd af kaupand- anum. Þessu hefur fyrirtækið Klarna komist að í rannsóknum sínum en fyrirtækið var stofnað árið 2005 í Svíþjóð og sérhæfi r sig í greiðsluþjónustu og áhættu- stýringu fyrir rafræn viðskipti. Þá hefur fyrirtækið rannsak- að hegðun kaupenda á netinu og unnið áhættulíkön fyrir netversl- un. „Markmið Klarna er að gera netversl- un einfaldari og öruggari. Söfnun upplýsinga hefur enga þýðingu í sjálfu sér heldur hvernig þær eru nýttar eins og við erum að gera til að einfalda netverslun fyrir millj- ónir viðskiptavina,“ segir Kristoff- er Cassel, framkvæmdastjóri hjá Klarna. Kristoffer heldur erindi á ráð- stefnu sem Creditinfo stendur fyrir og ber yfi rskriftina „Leiðin að upplýstum ákvörðunum“ en hún fer fram í Hörpu í dag. Þar verð- ur fjallað um hvernig fyrirtæki geta nýtt sér gögn til þess að lág- marka afskriftir og auka viðskipti með því að umbuna fjárhagslega ábyrgum viðskiptavinum. Klarna sinnir greiðsluþjónustu fyrir 50 þúsund netverslanir í Evr- ópu, en notendur þjónustunnar eru um 35 milljónir. - jhh Sænska fyrirtækið Klarna sérhæfir sig í greiðsluþjónustu og áhættustýringu fyrir rafræn viðskipti: Nethegðun kemur upp um þig KRISTOFFER CASSELL Aðallisti Kauphallarinnar | Nasdaq OMX Iceland Félag Gengi í gær Frá áramótum Vikubreyting Bank Nordic (DKK) 101,0 -2,9% 0,0% Eimskipafélag Íslands 237,00 0,0% -0,4% Fjarskipti (Vodafone) 38,45 9,9% 2,0% Hagar 42,00 3,8% 0,2% HB Grandi 39,80 17,8% 2,3% Icelandair Group 23,00 7,5% 0,0% Marel 145,00 5,1% 1,8% N1 24,00 3,4% 1,9% Nýherji 6,15 18,7% 23,0% Reginn 14,40 6,3% -0,6% Sjóvá 12,00 0,4% 1,7% Tryggingamiðstöðin 27,80 5,7% 0,4% Vátryggingafélag Íslands 9,28 2,5% 0,3% Össur 410,00 13,6% 3,3% Úrvalsvísitalan OMXI8 1.393,19 6,3% 0,7% First North Iceland Century Aluminum 3.300,00 0,0% 0,0% Hampiðjan 25,50 12,8% 0,0% Sláturfélag Suðurlands 1,85 0,0% 0,0% Sk jó ða n SKJÓÐAN er frekju- og leiðindaskjóða, sem lætur ekkert mannlegt sér óviðkomandi. HELDUR TÓNLEIKA Sjö hundruð erlendir gestir keyptu miða á Sónar fyrsta árið en Björn Steinbekk býst við því að þeir verði 1.500 í ár. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN 0 3 -0 2 -2 0 1 5 2 2 :0 0 F B 0 5 6 s _ P 0 3 9 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 3 0 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 1 8 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 2 7 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 3 A 0 -4 8 4 8 1 3 A 0 -4 7 0 C 1 3 A 0 -4 5 D 0 1 3 A 0 -4 4 9 4 2 8 0 X 4 0 0 4 B F B 0 5 6 s C M Y K

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.