Fréttablaðið - 04.02.2015, Qupperneq 20
| 4 4. febrúar 2015 | miðvikudagur
Það er því
óvíst að ég
myndi sækjast eftir
endurráðningu.
Nefnd sem vinnur að breyting-
um á stjórnskipulagi Seðlabanka
Íslands áformar að skila Bjarna
Benediktssyni, fjármála- og efna-
hagsráðherra, tillögunum áður en
febrúar er á enda.
Í þingmálaskrá kemur fram að
Bjarni Benediktsson, fjármála-
og efnahagsráðherra, hyggst
leggja fram frumvarp um málið
á Alþingi ekki síðar en 26. mars.
Þráinn Eggertsson, hagfræð-
ingur og formaður nefndarinnar,
segir að nefndin sé ekki komin
að endanlegri niðurstöðu. Hug-
myndir verði kynntar fulltrúum
stjórnmálaflokkanna og aðila
atvinnulífsins áður en þær verði
kynntar formlega.
Þegar ríkisstjórn Samfylk-
ingarinnar og Vinstri grænna
tók við völdum árið 2009 voru
gerðar breytingar á lögum um
Seðlabankann. Seðlabankastjór-
um var fækkað úr þremur í einn.
Peningastefnunefnd var stofnuð
sem hefur það hlutverk að taka
ákvörðun um vexti bankans.
Í maí í fyrra skipaði Bjarni
Benediktsson nefnd sérfræðinga
um heildarendurskoðun laga um
Seðlabanka Íslands. Í nefndina
voru skipuð, auk Þráins, þau Ólöf
Nordal lögfræðingur sem nú er
innanríkisráðherra og Friðrik
Már Baldursson, prófessor í hag-
fræði við Háskólann í Reykjavík.
Upphafl ega var áætlað að nefnd-
in skilaði frumvarpi til nýrra
laga fyrir síðustu áramót, en það
varð ekki að veruleika. Þegar
Bjarni skipaði nefndina sagði
hann hugsanlegt að fjölga seðla-
bankastjórum aftur úr einum
í þrjá. Í skýrslu sendinefndar
Alþjóðagjaldeyrissjóðsins, frá
því 19. desember síðastliðinn,
kemur fram að það sé mikil-
vægt að varðveita sjálfstæði og
trú verðug leika Seðlabankans.
„Ný löggjöf um heildarskipulag
Seðlabankans ætti að byggja á
þeim umbótum sem voru gerð-
ar árið 2009, með peningastefnu-
nefnd og gegnsæjum og áreiðan-
legum ákvörðunum. Fjárhagslega
traustur, sjálfstæður og áreiðan-
legur seðlabanki gerir stefnumót-
un betri. Það leiðir til efnahags-
legs stöðugleika og vaxtar,“ segir
í skýrslunni.
Þráinn Eggertsson segir að
enda þótt nefndin hafi lagt mikla
vinnu í mótun tillagna þá sé enn
eftir að velja á milli valkosta
sem séu fyrir hendi. Hann segir
að nefndin hafi talað við starfs-
menn Alþjóðagjaldeyrissjóðs-
ins sem komu í desember. Það
verði rætt við þá aftur í febrúar
og grein gerð fyrir hugmyndum
nefndarinnar.
Þá starfar nefndin einnig með
nefnd þingmanna sem skipuð er
einum þingmanni úr hverjum
þingfl okki. „Þeir eru samstarfs-
aðilar og svo hefur verið sam-
starf við seðlabankann sjálfan,“
segir Þráinn.
Már Guðmundsson var endur-
skipaður seðlabankastjóri þann
15. ágúst síðastliðinn.
Í skipunarbréfi sem Bjarni
Benediktsson, fjármála- og
efnahagsráðherra, sendi Má í
maí kom fram að tillögur nefnd-
ar um endurskoðun á lögum um
bankann gætu leitt til breytinga á
stjórnskipulagi sem myndu hafa
áhrif á störf Más hjá bankanum.
Már brást við þessum orðum
með því að upplýsa að hann hafi
í nokkur ár haft hug á að skoða
möguleikann á að hverfa á ný til
starfa erlendis.
„Ég taldi ekki heppilegt að
gera það nú í ljósi ástandsins og
verkefnastöðunnar í Seðlabank-
anum auk fjölskylduaðstæðna.
Þetta mun breytast á næstu
misserum. Það er því óvíst að ég
myndi sækjast eftir endurráðn-
ingu komi til slíks ferlis vegna
breytinga á lögum um Seðla-
banka Íslands á næstu misser-
um,“ sagði Már.
Kynna nýjar tillögur að breytingum á
Seðlabanka fyrir næstu mánaðamót
Nefnd um heildarendurskoðun á lögum um Seðlabanka Íslands áformar að skila tillögum fyrir mánaðamót.
Bjarni Benediktsson gerir svo ráð fyrir að leggja fram frumvarp fyrir lok mars. AGS vill ekki stórbreytingar.
SEÐLABANKASTJÓIRI Már Guðmundsson hefur sagt að óvíst sé hvort hann muni sækja um stöðu seðlabankastjóra að nýju, verði starfið
auglýst. FRÉTTABLAÐIÐ/DANÍEL
STJÓRNSÝSLA
Jón Hákon Halldórsson | jonhakon@frettabladid.is
„Ég ætla að ræða aðeins um
það hvaða möguleikar eru fyrir
hendi, bæði fyrir Íslendinga og
Norðmenn. Og ég ætla að reyna
að varpa ljósi á hvað er líkt með
Íslendingum og Norðmönnum
og svo hvað er ólíkt,“ segir Arne
Hjeltnes.
Arne, sem er Norðmaður, held-
ur erindi á morgunverðarfundi
Norsk-íslenska viðskiptaráðsins
og Samtaka fyrirtækja í sjávar-
útvegi um markaðssetningu
sjávarafurða og íslensk hugvits
á Grand hóteli í fyrramálið. „Við
getum lært ýmislegt af ykkur og
vonandi getið þið lært mikið af
okkur,“ segir Arne í samtali við
Markaðinn. Hann segist að mestu
leyti ætla að fjalla um aðferða-
fræði og hvað náttúran hefur
gefi ð Íslendingum og Norðmönn-
um til að markaðssetja landið.
„Þetta verður svolítið sagnfræði-
legt líka vegna þess að ég ætla að
tala um útfl utning frá Norður-
löndunum á fyrri árum,“ segir
Arne sem ætlar að beina augum
sínum að sjávarútvegi, ferðamál-
um og mat. „Ég hef séð hversu
miklum árangri Íslendingar hafa
náð við að markaðssetja lamba-
kjöt í Bandaríkjunum,“ segir
Arne.
Hann segir að Íslendingum
hafi að mörgu leyti tekist vel upp
í markaðssetningu. „Ykkur hefur
tekist að skapa persónulegt við-
mót í markaðssetningu, til dæmis
í ferðaiðnaðinum,“ segir hann.
Íslendingar séu álitnir svalir,
villtir og persónulegir í viðmóti.
Norski markaðsmaðurinn Arne Hjeltnes segir að Íslendingar og Norðmenn geti lært mikið hverjir af öðrum í markaðssetningu:
Telur Íslendinga svalari en Norðmenn
MARKAÐSMAÐUR Arne Hjeltnes heldur fyrir-
lestur á fimmtudagsmorgun.
„Við teljum að niðurstaða dóms-
ins sé í samræmi við málfl utning
okkar, þ.e. að sérfræðingar Deloitte
ollu Toyota ekki tjóni vegna starfa
sinna,“ segir Sigurður Páll Hauks-
son, forstjóri Deloitte. Héraðsdóm-
ur Reykjaness sýknaði á föstudag
Deloitte í skaðabótamáli sem Toyota
á Íslandi höfðaði á hendur fyrirtæk-
inu. Toyota taldi að Deloitte hefði
valdið fyrirtækinu tjóni vegna ráð-
gjafar við samruna Bergeyjar og P.
Samúelssonar. - jhh
Deloitte sýknað af kröfum Toyota:
Fallist á rök
Deloitte
Rekstrarvörur
0
3
-0
2
-2
0
1
5
2
2
:0
0
F
B
0
5
6
s
_
P
0
3
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
3
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
2
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
2
5
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
3
A
0
-5
C
0
8
1
3
A
0
-5
A
C
C
1
3
A
0
-5
9
9
0
1
3
A
0
-5
8
5
4
2
8
0
X
4
0
0
6
B
F
B
0
5
6
s
C
M
Y
K