Fréttablaðið - 04.02.2015, Síða 24
FÓLK|FERÐIR
FÓLK ER KYNNINGARBLAÐ sem býður aug lýsendum að kynna vörur og
þjónustu í formi viðtala og umfjallana ásamt hefðbundnum auglýsingum. Blaðið
fylgir Fréttablaðinu daglega.
Útgefandi: 365 miðlar | Ábyrgðarmaður: Svanur Valgeirsson | Hönnun: Silja
Ástþórsdóttir Sölumenn: Bryndís Hauksdóttir, bryndis@365.is, s. 512 5434
Jón Ívar Vilhelmsson, jonivar@365.is, s. 512 5429
Það er svo gríðarlega mikil saga falin í landinu sem er ekki sýnileg. Þegar ferðast er um Miðjarðarhafslöndin
til dæmis er við hvert fótmál áþreifanlegir
hlutir eins og byggingar, brýr og turnar.
Hér er ekki neitt, bara einhver gamall og
fróður sem bendir á þúfu og segir „hér
stóð Gunnar“,“ segir Ingólfur Björgvins-
son myndskreytir.
Ingólfur hefur teiknað ófá íslensk
sögukort, en einnig sögukort fyrir Suður-
eyjar og Orkneyjar við Skotland, Noreg
og Ungverjaland. Aðspurður hvort hann
horfi öðruvísi í kringum sig á ferðalögum
eftir slíka vinnu segist hann alltaf hafa
heillast af söguslóðum. Snæfellsnes sé í
uppáhaldi, Dalirnir og Breiðafjörður.
„Ég hef alltaf haft sérstaka tilfinningu
fyrir sögustöðum og áhuga á sögunni í
landinu. Ég var rétt um tvítugt þegar ég
fór fyrst hringinn um Snæfellsnesið og sá
einhverjar minjar frá 18. öld. Þær kveiktu
í ímyndunaraflinu og mig langaði til að
myndgera þær til að festa mér betur
þessa sjónrænu upplifun. Ég hef alltaf
verið meira fyrir hana en stafi í bók,“
segir hann enda taki hann teikniblokkina
ávallt með á ferðalögum.
„Ég teikna frekar ferðasöguna þó ég
skrifi líka eitthvað niður. Ég hef mjög
gaman af að ganga um gamlar borgir.
Þá les ég mér til um söguna og skoða
mig um. Ég bjó mörg ár í Barselóna og
uppgötvaði einn daginn að kunningi
minn átti heima við hliðina á húsinu þar
sem Kólumbus bjó. Tröppur og götur
Í Barselóna voru lagðar á sama tíma
og Snorri Sturluson sat hér og skrifaði.
Hér er nánast allt horfið nema skinn-
handritin sem tengja okkur við söguna,
eins og náttúran hafi náð að útmá öll
spor mannsins. Það er bæði eftirsjá að
því en líka ákveðinn sjarmi fyrir mynd-
skreyti. Maður getur leyft sér að skálda
í eyðurnar sem er heillandi, þó auðvitað
reyni maður að hafa hlutina eins rétta og
hægt er.“
Það kemur því ekki á óvart þegar Ing-
ólfur er spurður hvert fjölskyldan haldi
helst í frí að borgarferðir og sögufrægir
staðir verði frekar fyrir valinu en sólar-
strendur. En hvert er ferðinni heitið í
sumar?
„Annaðhvort til Grænlands eða suður
til Miðjarðarhafsins. Vonandi get ég farið
á báða staði, á erfitt með að gera upp á
milli. Báðir staðir eru mjög spennandi en
ég hef aldrei komið til Grænlands.“
SAGAN LEYNIST
Í LANDSLAGINU
FERÐIR Myndskreytirinn Ingólfur Björgvinsson hefur teiknað ófá sögukort
bæði íslensk og erlend. Hann segir sjónræna upplifun alltaf hafa skipt sig
miklu máli á ferðalögum enda tekur hann skissubókina alltaf með.
SAGAN KVEIKIR Í
ÍMYNDUNARAFLINU
Ingólfur Björgvinsson
er meira fyrir sjónræna
upplifun en stafi í bók og
skissar á ferðalögum.
MYND/VALLI
Ábendingahnappinn má
finna á www.barnaheill.is
0
3
-0
2
-2
0
1
5
2
2
:0
0
F
B
0
5
6
s
_
P
0
3
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
3
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
2
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
2
4
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
3
A
0
-6
A
D
8
1
3
A
0
-6
9
9
C
1
3
A
0
-6
8
6
0
1
3
A
0
-6
7
2
4
2
8
0
X
4
0
0
8
A
F
B
0
5
6
s
C
M
Y
K