Fréttablaðið - 04.02.2015, Side 27
Reykjavík cocktail weekend4. FEBRÚAR 2015 MIÐVIKUDAGUR 3
Don Draper (Jon Hamm) er ósjaldan
með kokteilinn Old Fashioned í hendi
í sjónvarpsþáttunum Mad Men. Í
drykknum er viskí, ís,
sykurmoli, vatn og
Angostura bitter.
Við verðum
með
sérstakan
Master
Class á
Hótel Plaza
þar sem
fjölmargir
fyrirlesarar
verða með
fræðslu um
ýmiskonar
áfengi.
The Dude (Jeff Bridges) drekkur
ótæpilega af kokteilnum White Russian
í myndinni The Big Lebowski og hafa
vinsældir drykkjarins aukist til muna
vegna þess. Í drykknum er vodki, kaffi-
líkjör, rjómi og ís.
James Bond er
heimsþekktur fyrir
setningu sína „Vodka
martini, shaken, not
stirred.“ Í drykknum
er vodki og vermút en
blandan hefur verið
kæld niður með ís en
er borin fram án hans.
Oft er drykkurinn
skreyttur með ólívu.
Stelpurnar í Sex
and the City gerðu
drykkinn Cosmo-
politan heims-
þekktan enda er
hann vinsælasti
kokteill heims í dag.
Í honum er að finna
vodka, triple sec,
trönuberjasafa og
súraldinsafa.
Söguhetjur í hinum ýmsu kvikmyndum og
sjónvarpsþáttum eiga sína uppáhaldsdrykki og
kokteila eins og við hin. Hér má sjá nokkrar
persónur og þá drykki sem tengjast þeim.
Stjörnur með
drykk í hendi
Fredo
Corleone
(John
Cazale)
pantar sér
Banan Daiquiri
í myndinni í
The Godfather:
Part II.
Sonny Crockett (Don Johnson) úr Miami Vice
átti uppáhaldsdrykkinn Mojito. Í honum er romm,
hrásykur, súraldinsafi, sódavatn, minta og ís.
Reykjavík Cocktail Weekend gekk vonum framar í fyrra og því ákváðum við að blása
til hennar aftur í ár. Þetta er góður
árstími til þess, það er kalt úti og
við höfum öll gott af upplyftingu,“
segir Tómas Kristjánsson, forseti
Barþjónaklúbbs Íslands, en klúbb-
urinn stendur nú fyrir Reykjavík
Cocktail Weekend annað árið í röð.
Alls taka þrjátíu barir, skemmti-
og veitingastaðir víðs vegar um
borgina þátt. Hver staður hefur
sérhannað kokteilalista sem verð-
ur á lægra verði meðan hátíðin
stendur yfir eða að hámarki 1.500
krónur drykkurinn. Hátíðin hefst
í dag og stendur fram á sunnudag.
Tómas segir kjörið að skella sér
á kokteilarölt í bænum og ekki
þurfi að hafa áhyggjur af því að
komast heim.
„Við fengum BSR með okkur
í lið og á þeim stöðum sem taka
þátt geta gestir fengið sérstakt
spjald með drykknum, sem gefur
400 króna afslátt af ferð með BSR.
Okkar slagorð er nefnilega að
áfengis skuli neytt af ábyrgð,“ segir
Tómas.
Fræðsla og drykkjarmenning
Samhliða hátíðinni fer fram Ís-
landsmót barþjóna og keppni
milli veitingastaða í kokteilagerð
sem áhugasamir geta fylgst með.
Undan keppnin fer fram á fimmtu-
dag í Gamla bíói og úrslitin á sunnu-
Snýst ekki bara um romm í kók
Barþjónaklúbbur Íslands stendur fyrir árlegri kokteilhátíð í samstarfi við helstu veitinga- og skemmtistaði í Reykjavík og helstu
víninnflytjendur landsins. Hátíðin hefst í dag og stendur fram á sunnudag. Tómas Kristjánsson, formaður Barþjónaklúbbsins, vill
bæta drykkjarmenningu landans með fræðslu um áfenga drykki og hvetur áhugasama til að mæta á Master Class á laugardag.
„Með fræðslu
og kynningu á
drykkjum langar
okkur til að koma
almennilegri
kokteilmenningu á
framfæri á Íslandi.“
Tómas Kristjánsson,
forseti Barþjóna-
klúbbs Íslands, lofar
frábærri stemmingu
á Reykjavík Cocktail
Weekend.
MYND/VALLI
dag. Sá aðili sem vinnur Íslands-
mótið keppir fyrir Íslands hönd
á heimsmeistaramóti barþjóna í
haust sem fram fer í Búlgaríu.
Þá stendur Barþjónaklúbburinn
fyrir fræðslu um áfengi á laugar-
daginn sem Tómas segir lið í að
auka þekkingu fólks á drykkjum
og kokteilmenningu.
„Við verðum með sérstakan
master class á Hótel Plaza þar sem
þrír erlendir fyrirlesarar verða með
fræðslu um áfengi, svo sem gin,
viskí og romm. Fjöldi innlendra
fyrirlesara kemur einnig fram og
boðið verður upp á smakk af fjölda
drykkja. Það er opið öllum áhuga-
sömum og kostar einungis 1.000
krónur inn. Með fræðslu og kynn-
ingu á drykkjum langar okkur til
að koma almennilegri kokteil-
menningu á framfæri á Íslandi og
því til skila að drykkur er ekki bara
romm í kók.“
0
3
-0
2
-2
0
1
5
2
2
:0
0
F
B
0
5
6
s
_
P
0
3
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
3
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
1
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
2
7
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
3
A
0
-4
8
4
8
1
3
A
0
-4
7
0
C
1
3
A
0
-4
5
D
0
1
3
A
0
-4
4
9
4
2
8
0
X
4
0
0
4
B
F
B
0
5
6
s
C
M
Y
K