Fréttablaðið - 04.03.2015, Page 2

Fréttablaðið - 04.03.2015, Page 2
4. mars 2015 MIÐVIKUDAGUR| FRÉTTIR | 2 Sigrún, er þetta barnaefni? „Þetta fjallar að minnsta kosti um barnaefni sem ekki fór til spillis.“ Sigrún Ósk Kristjánsdóttir hefur gert sjón- varpsþáttaröð um margra barna mæður. Fyrsti þátturinn er á Stöð 2 í kvöld. FÓLK „Þetta var mjög skrítið en hefði nú ekki orðið í umræðunni ef kunningi minn hefði ekki hringt og spurt hvort ég hefði séð örninn. Ég sagði að ég gæti ekki neitað því þar sem hann hefði verið kominn inn í fjárhús.“ Þetta segir Gunnar Ketill Sig- urðsson, bóndi á Krossi, sem er næstysti bær í Berufirði. Sést hefur til hafarnar í Djúpavogs- hreppi og út fyrir svæðið á und- anförnum mánuðum. Það var fyrir tæpum tveim- ur vikum sem Gunnar sá örn- inn þegar hann fór til gegninga. „Þegar ég kom út í fjárhús í leið- indaveðri var hann þarna á flögri greyið. Hann hefur farið inn um hálfhurð á neðanverðu fjárhús- inu. Mér stóð ekki á sama og það var spurning hvor okkar var hræddari þegar við horfðumst í augu. Ef haförn fer í andlitið á manni getur hann stórslasað hann.“ Gunnar kvaðst hafa flýtt sér að opna stórar dyr á fjárhúsinu því hann var hræddur um að haförn- inn myndi skaða sig og flaug þá fuglinn, sem hafði flögrað aðeins þremur metrum frá honum, út. „Það voru kannski mistök að hafa ekki farið til að fá einhvern til að taka mynd. Það er auðvelt að vera vitur eftir á. Ég veit ekki til að fara með það hversu lengi hann hefur verið inni í fjárhús- inu en mér flaug í hug hvort hann gæti hafa verið að elta bráð inn sem hefur þá verið farin en ekki hann. Nokkrum dögum áður fann ég ræfil af smyrli í vegkantinum en ég hafði ekki frétt af því að þessi fugl væri á ferðinni.“ Að sögn Gunnars voru rollurn- ar hálfhræddar. „En hann kom ekki nálægt þeim þegar ég var þarna. Hann hafði ekkert gert þeim og hann settist aldrei.“ Bóndinn á Krossi kveðst aldrei áður hafa séð örn á svæðinu en hann hafi oft séð erni vestur á fjörðum þegar hann bjó þar. Haf- örninn sást aftur á Krossi síð- astliðinn laugardag þegar hann renndi sér niður í dúfnahóp. „Það er mjög sérstakt að maður skyldi verða þess aðnjótandi að sjá hann. Ég myndi ímynda mér að þetta væri ungur fugl. Hann var svo ljós. Maður hefur aðeins gluggað í bækur.“ ibs@frettabladid.is Kom að haferni á flögri inni í fjárhúsi Bóndinn á Krossi í Berufirði, Gunnar Ketill Sigurðsson, sá haförn í fjárhúsinu þegar hann fór til gegninga. Bóndinn, rollurnar og fuglinn voru óttaslegin. Á undan- förnum mánuðum hefur sést til hafarnar í Djúpavogshreppi og út fyrir svæðið. Í FJÁRHÚSINU Gunnar Ketill Sigurðsson, bóndi á Krossi í Berufirði, segir það hafa verið spurningu hvor hafi verið hræddari, hann eða haförninn. MYND/SVAVAR PÉTUR EYSTEINSSON Mér stóð ekki á sama og það var spurning hvor okkar var hræddari þegar við horfðumst í augu. Ef haförn fer í andlitið á mönnum getur hann stórslasað mann. BANDARÍKIN Benjamín Netanj- ahú, forsætisráðherra Ísraels, hóf ræðu sína á Bandaríkjaþingi í gær með því að segja að sér þætti leitt hve umdeild hún hafi orðið. Hann hafi alls ekki ætlað sér að vera „pólitískur“. Síðan þakkaði hann Barack Obama Bandaríkjaforseta fyrir allt það „sem hann hefur gert fyrir Ísrael“. Meginefni ræðunnar fór þó í að reyna að útskýra fyrir banda- rískum þingmönnum hve mikil mistök það yrðu ef Bandaríkin gerðu samkomulag við Íran um kjarnorkumál. „Þessi samningur mun ekki gera Íran að betra landi, heldur verra,“ sagði hann og fullyrti að í kjölfarið muni hefjast kjarnorku- kapphlaup í Mið-Austurlöndum. Hann talaði í tæpa klukku- stund og hlaut langvarandi lófa- klapp frá þingheimi þegar hann lauk máli sínu. Tugir þingmanna voru fjarver- andi, flestir þeirra demókratar, en aðstoðarmenn þingmanna voru hvattir til þess að setjast í auð sæti þannig að Netanjahú þyrfti ekki að horfa yfir hálftóm- an þingsal. Obama forseti mætti ekki heldur. Þetta mun vera í þriðja sinn sem Netanjahú ávarpar Banda- ríkjaþing, en til þessa hafði Winst on Churchill, fyrrver- andi forsætisráðherra Bret- lands, verið eini erlendi þjóðar- leiðtoginn sem hafði orðið þess heiðurs aðnjótandi. - gb Tugir þingmanna fjarverandi þegar Benjamín Netanjahú ávarpaði Bandaríkjaþing: Segir kjarnorkukapphlaup vera yfirvofandi BENJAMÍN NETANJAHÚ Varar banda- ríska þingmenn við því að gera samn- inga við Íran um kjarnorkumál. FRÉTTABLAÐIÐ/EPA EGYPTALAND Mikil ólga hefur verið í Egyptalandi upp á síðkastið. Síðast- liðinn sunnudag brutust út átök í egypsku borginni Giza og hópur náms- manna í Kaíró-háskóla mótmælti ríkisstjórninni. Stjórnlagadómstóll í Egyptalandi tilkynnti á dögunum um úrskurð sem kemur í veg fyrir að þingkosningar verði haldnar í landinu þann 21. mars næstkomandi líkt og til stóð. Þingkosningarnar áttu að vera þær fyrstu í landinu frá því að Muhammed Morsi var hrakinn úr stóli forseta árið 2013. Þetta kemur fram á sænska fréttamiðlinum SVT. - ngy Námsmenn í Egyptalandi mótmæla ríkisstjórninni: Mótmæli námsmanna MÓTMÆLI Námsmenn í Egyptalandi hrópa slagorð með mótmælaspjöld á lofti. GARÐABÆR Refur sást í garði í Ásbúð í Garðabæ í vikunni. Hrönn Kjærnested kennari varð vör við refinn í garði sínum og segist halda að hann hafi verið slasaður. „Þetta var hvítur refur. Hann hreyfði sig ekki neitt og mér sýndist hann vera eitthvað laskaður. Það kom hingað meindýraeyðir, sem staðfesti að þetta væri refur og vildi skjóta hann. Hann spurði mig hvort ég ætti byssu, það átti ég að sjálfsögðu ekki,“ segir Hrönn. Meindýraeyðirinn sneri aftur með byssu og skaut refinn. Hann reyndist fótbrot- inn, líklega eftir ákeyrslu. Afar óvenjulegt er að refir séu að þvælast svo nærri mannabyggð þótt Guðmundur Björnsson, meindýraeyðir Reykjavíkurborgar, segi þá færa sig nær og nær þéttbýli í leit að æti. „Þeir eru að nálgast. Það er eins og hefur gerst víða erlendis, þar flækjast dýrin inn í borgirnar. Þeir eru komnir ansi nálægt okkur, koma ofan úr fjöllunum og eru helst á ferð um nætur,“ segir Guðmundur og telur borgarbúa helst verða vara við refi nálægt Úlfars- felli þar sem hafa verið refagreni. „Þeir hafa sést fara yfir Vesturlandsveginn á leið niður í fjöru. Ég man líka eftir ref sem fannst á Stórhöfða. Þetta eru dýr sem eru að reyna að bjarga sér og lífið er harð- ara fyrir þau á veturna.“ - kbg Refur sást í garði í Garðabæ og var skotinn: Færa sig nær og nær byggð HVÍTUR REFUR Þessi refur sást í garði við Ásbúð í Garðabæ. Refir leita eftir æti og eru helst á ferð um nætur. MYND/SVERRIR EYJÓLFSSON HÉRAÐSDÓMUR Ingiríður Lúðvíks- dóttir var sett í embætti dóm- ara við Héraðsdóm Reykjavíkur. Þann 11. desember 2014 auglýsti innanríkisráðuneytið laust til umsóknar embætti dómara við Héraðsdóm Reykjavíkur til setn- ingar til og með 15. september 2017. Alls bárust sjö umsóknir um embættið. Ingiríður var talin hæfust umsækjenda til að hljóta setningu í embættið. Konum fer smám saman fjölg- andi í hópi héraðsdómara, en þær eru nú 13 af 38 héraðsdómurum í landinu. - ngy Kona sett í embætti dómara: Nýr dómari við héraðsdóm REYKJAVÍK Barnamenningarhátíð verður haldin 21.-26. apríl næst- komandi. Markmið Barnamenningar- hátíðar er að efla menningar- starf barna og ungmenna í borginni. Hátíðin er vettvang- ur fyrir menningu barna, með börnum og fyrir börn. Hún fer um öll hverfi borgarinnar og rúmar allar listgreinar og annað sem að börnum og menningu þeirra snýr. Hátíðin er nú haldin í fimmta sinn og enn er hægt að skrá verkefni til þátttöku á hátíðinni. - ngy Barnamenningarhátíð í apríl: Efla menningar- starf barna SPURNING DAGSINS Skógarhlíð 18 • Sími 595 1000 www.heimsferdir.is B irt m eð fy rir va ra u m p re nt vi llu r. H ei m sf er ði r á sk ilj a sé r r ét t t il le ið ré tt in g a á sl ík u. A th . a ð ve rð g et ur b re ys t á n fy rir va ra . Tenerife Frá kr. 79.900 Netverð á mann frá kr. 79.900 á Tamaimo Tropical m.v. 2 í stúdíó. Aukagjald per mann fyrir allt innifalið 30.000 kr. 9. mars í 7 nætur 0 3 -0 3 -2 0 1 5 2 2 :3 2 F B 0 5 6 s _ P 0 5 5 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 5 5 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 0 2 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 0 2 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 3 F F -D 4 A 8 1 3 F F -D 3 6 C 1 3 F F -D 2 3 0 1 3 F F -D 0 F 4 2 8 0 X 4 0 0 1 B F B 0 5 6 s C M Y K

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.