Fréttablaðið - 04.03.2015, Blaðsíða 16
4. mars 2015 MIÐVIKUDAGUR| SKOÐUN | 16
um og síðast en ekki síst í listinni
að lifa.
Kremena Demireva. Fyrir þrem-
ur árum datt ég út af vinnumarkaði
eftir skilnað og einangraðist í kjöl-
farið. Eftir innlögn á geðdeild LSH
var mér vísað í Hlutverkasetur. Þar
kynntist ég fólki sem var í sömu
sporum og ég og eignaðist vini. Ég
hef alltaf haft áhuga á saumaskap
og þegar ég uppgötvaði saumavél-
ina þá fannst mér ég vera komin
heim til mömmu í Búlgaríu. Mér
var boðið að nýta hana og tók ég
því þakksamlega. Ég fékk tækifæri
til að hanna og sauma föt. Fólkið,
saumavélin og hæfileikar mínir
hafa hjálpað mér að öðlast tilgang
á ný. Á konukvöldi sl. vor stóð ég
t.d. fyrir tískusýningu. Ég fæ mikið
hrós á staðnum og er hvött áfram í
því að útfæra nýjar hugmyndir og
halda áfram á sömu braut. Í dag er
ég komin í hlutastarf að aðstoða
aðra sem eru í svipuðum sporum og
ég var í þegar ég var að brjótast út
úr einangrun. Ég kem í Hlutverka-
setur til að gleðjast, fá stuðning og
kærleik sem er mér nauðsynlegur
til að halda áfram að lifa og geta
látið gott af mér leiða.
María Gísladóttir. Ég hef lengst
af búið í Reykjavík en ég hef einnig
búið í Mið-Austurlöndum og Króa-
tíu. Ég hef lifað við ofbeldi og hef
glímt við áfallastreituröskun. Um
síðastliðin áramót varð ég fyrir
enn einu áfallinu og frétti þá af
Hlutverkasetri og fór að sækja það
reglulega. Þar hef ég fengið stuðn-
ing, hvatningu, skilning og traust.
Ég hef ekki getað ræktað og hlúð
að listrænum hæfileikum mínum
fyrr en nú. Ég byrjaði að stunda
listsköpun og fljótlega var ég virkj-
uð í að leiðbeina og halda námskeið
í teikningu og fleiri listgreinum í
Hlutverkasetri. Síðustu mánuði hef
ég einnig liðsinnt gestum Vinjar í
myndmennt. Mig dreymir um að
nýta hæfileika mína og reynslu enn
frekar, læra meira og vinna við list-
kennslu í framtíðinni. Í haust hélt
ég mína fyrstu sýningu í Drekaslóð
og mun vera með á myndlistarsýn-
ingu á 10 ára afmæli Hlutverka-
seturs næsta ár. Draumurinn er að
verða leiðbeinandi í mismunandi
listformum sem nýtist fólki sem
á við einhvers konar erfiðleika að
stríða.
Það hryggir mig að þurfa
að setjast niður og skrifa
þetta bréf. Á meðan Land-
spítalinn og heilsugæslan
eru komin að þolmörkum
leggja nokkrir þingmenn
kapp á að auka álagið á heil-
brigðiskerfið.
Engin brjóstbirta
í Kollubúð
Þeir halda því fram að það
að gera áfengissölu frjálsa
sé allt í lagi og skerði ekki
lýðheilsu okkar. Ein rök-
semd þeirra er að Jón Jóns-
son á Hvanneyri eigi rétt
á sama aðgengi og Jónas
Jónasson í Borgarnesi. Samt hef
ég aldrei heyrt Jón Jónsson kvarta
undan því að hann þurfi að keyra til
Borgarness til að kaupa sér áfengi
eða finnist það brjóta gegn einstak-
lingsfrelsinu að geta ekki keypt sér
brjóstbirtu í Kollubúð.
Ungmenni kaupa áfengi
Ofneysla áfengis er eitt stærsta heil-
brigðisvandamál sem við horfumst
í augu við. Teymi sérfræðinga hjá
Alþjóðaheilbrigðismálastofnuninni
(WHO) hefur komist að þeirri niður-
stöðu að áhrifaríkustu leiðirnar til
að minnka áfengisneyslu eru allar á
valdi stjórnvalda. Þær eru takmörk-
un á framboði áfengis, verðstýring
og bann við áfengisauglýsingum.
Enda sýna gögn frá OECD að
neysla áfengis miðað við höfðatölu
er allt að tvöfalt meiri í löndum þar
sem áfengissala er frjáls – þar með
talin drykkja ungmenna undir lög-
aldri. Auk þess sýna rannsóknir að
þrefalt fleiri ungmenni geta keypt
áfengi í matvörubúðum en áfengis-
búðum án þess að vera spurð um
skilríki.
Mikil ábyrgð fylgir því að kjósa
Vonandi er óþarfi að skrifa þetta
bréf en ef þú, ágæti þingmaður, átt
eftir að gera upp hug þinn hvort
leyfa eigi frjálsa áfengissölu þá bið
ég þig um að hafa hugfast, að ef þú
kýst með frumvarpinu þá gætir þú
einnig verið að velja eftirfarandi:
1. Tvöföldun á heildar-
áfengisneyslu Íslendinga.
2. Þreföldun á áfengisað-
gengi íslenskra ungmenna.
3. Fjölgun krabbameinstil-
fella – áfengisneysla eykur
líkur krabbameini í níu líf-
færum.
4. Fjölgun geðsjúkdóma
eins og þunglyndis og
kvíða raskana ásamt
örorku.
5. Fjölgun annarra sjúk-
dóma svo sem skorpulifr-
ar, briskirtilsbólgu, gátta-
flökts, heilablæðinga og
smitsjúkdóma.
6. Aukningu á tíðni fóstur-
skaða vegna áfengisneyslu.
7. Fjölgun alvarlegra slysa og
banaslysa í umferðinni.
8. Aukið heimilisofbeldi og van-
rækslu barna.
9. Fjölgun líkamsárása og glæpa.
10. Aukningu á tíðni sjálfsvíga.
Það er mikil ábyrgð sem fylgir því
að samþykkja umrætt frumvarp og
mikilvægt að geta staðið heils hugar
við ákvörðun sína eftir að hafa skoð-
að allar hliðar málsins. Gríðarleg
vinna hefur verið lögð í að rannsaka
skaðlegar afleiðingar áfengisneyslu
ásamt því að finna leiðir til að lág-
marka skaðann á heilsu þjóðarinnar.
Með því að auka aðgengi að áfengi
erum við að kasta frá okkur þeim
árangri sem þessi vinna hefur skilað.
Þú stendur vörð
um heilsu fólksins
Eins og fyrr sagði eru allar mikil-
vægustu forvarnaraðgerðir til að
auka lýðheilsu Íslendinga lagðar í
hendur ykkar þingmanna. Ykkur
ber skylda til að gera allt sem í
ykkar valdi stendur til að draga úr
áfengisneyslu en ekki auka hana og
standa þannig vörð um heilsu fólks-
ins í landinu.
Ef þingmaður heldur því fram að
það að gera áfengisneyslu frjálsa
auki ekki áfengisneyslu, sérstak-
lega meðal ungmenna, þá vil ég sjá
þær rannsóknir sem styðja þessar
staðhæfingar.
Opið bréf
til þingmanna
Þessi grein er skrifuð í
tilefni umræðna um þýð-
ingu þýðenda og Alþingis
á löggjöf Íslendinga í kjöl-
far fréttar af ummælum
Sigrúnar Magnúsdóttur
umhverfisráðherra. Ráð-
herra viðraði það í Frétta-
blaðinu hvort ekki væri
hægt að nota mildara orða-
lag við þýðingu Evrópu-
tilskipana. Eftirfarandi
dæmi sýna hins vegar að
ströng lög og strangar reglugerðir
koma ekki aðeins frá Evrópusam-
bandinu. Íþyngjandi lög og reglu-
gerðir virðast koma frá Alþingi og
íslenskum eftirlitsstofnunum og
eru stundum í andstöðu við evr-
ópsk lög um frelsi og frjálsan flutn-
ing vöru og þjónustu.
Tilskipun ESB um umhverfis-
mat segir að allar meiriháttar
framkvæmdir sem hafa áhrif á
umhverfið skuli fara í umhverfis-
mat áður en framkvæmdir hefj-
ast. Síðan skilgreinir tilskipunin
nánar hvaða framkvæmdir telj-
ast meiriháttar og þar á meðal
eru tiltekin samgöngumannvirki.
Til meiriháttar samgöngumann-
virkja teljast langar járnbrautir,
flugbrautir sem eru lengri en 2.100
metrar, hraðbrautir og nýir fjög-
urra akreina vegir sem eru lengri
en 10 km.
Í íslensku löggjöfinni, lög um
mat á umhverfisáhrifum frá árinu
2000, eru mun fleiri framkvæmd-
ir skyldaðar í umhverfismat. Með
öðrum orðum þá er íslenska lög-
gjöfin mun meira íþyngjandi en
tilskipun ESB gefur tilefni til. Í
íslensku löggjöfinni verða „nýir
fjögurra akreina vegir sem eru
lengri en 10 km“ að „nýjum vegum
sem eru 10 km eða lengri“.
Almennir vegir á Íslandi
þurfa að lúta sömu kröfum um
umhverfis mat og fjögurra akreina
vegir innan ESB. Ekki er
líklegt að þessi íþyngjandi
íslenska löggjöf sé innleidd
vegna villu í þýðingu. Lík-
legra er að íslenski löggjaf-
inn vilji hafa lögin strang-
ari en almennt gerist í
Evrópu.
Hefði Alþingi samþykkt
lög um mat á umhverfis-
áhrifum samhljóða til-
skipun ESB hefði vegur
um Teigsskóg verið lagð-
ur án umhverfismats og tafa sem
hafa hlotist af langvarandi deil-
um um áhrif vegar á skóginn. Sé
það vilji Alþingis getur það fært
íslensku lögin að tilskipun ESB og
lagt venjulegan íslenskan þjóðveg
um Teigsskóg án umhverfismats
þar sem hann telst ekki meirihátt-
ar framkvæmd samkvæmt tilskip-
un ESB.
Svo er það annar íslenskur mis-
skilningur eða þýðingarvilla að
Teigsskógur sé skóglendi. Sam-
kvæmt alþjóðlegum stöðlum og
málvenjum þá er Teigsskógur
ekki skógur, á ensku „wood eða
forest“ þar sem hann er ekki sam-
fellt gróðurlendi sem er að jafnaði
vaxinn 5 m eða hærri trjám. Teigs-
skógur er kjarr, á ensku „shrub“,
en það er gróðurlendi sem er að
jafnaði lægra en 6 m.
Kadmíum í áburði
Innan ESB hefur það verið kann-
að í áratugi hvort tilefni sé til þess
að setja lög um hámark kadmíums
í áburði. Ekki hefur verið talin
ástæða til þess þrátt fyrir ára-
tuga rannsóknir. Þrjú ríki innan
ESB, Austurríki, Finnland og Sví-
þjóð, hafa hins vegar tímabundna
undanþágu frá almennu viðskipta-
frelsi með áburð innan ESB til
þess að setja hámark á kadmíum
í áburði. Ísland hefur sett hámark
á kadmíum í áburði án sérstakrar
heimildar frá ESB. Þegar Ísland
setti slíkt hámark var miðað við
ströngustu reglu sem finnst en hún
finnst hjá Finnum. Hún er helmingi
strangari en sú sem Svíar nota en
þeir eru með næst ströngustu regl-
una. Samkvæmt skilningi ESB er
þessi takmörkun á kadmíum við-
skiptahindrun sem ekki byggir á
vísindalegum grunni. Rannsóknir
íslenskra vísindamanna, Þorsteins
Þorsteinssonar, Friðriks Pálma-
sonar og Ingvars Björnssonar,
benda til þess að ekki hafi stafað
nein hætta af kadmíum í áburði á
Íslandi. Hætta af kadmíum í áburði
getur verið mismunandi eftir lönd-
um, jarðvegi og úrkomu. Verulega
íþyngjandi reglur um kadmíum
í áburði eru því án vísindalegra
raka og í andstöðu við reglur ESB
um fjórfrelsið.
Hér að ofan eru rakin tvö dæmi
um íþyngjandi ákvarðanir Alþingis
sem ganga mun lengra en tilskip-
anir ESB, jafnvel í andstöðu við
megin reglu ESB um fjórfrelsið.
Það má finna fleiri dæmi um ein-
dreginn vilja íslenska löggjafar-
valdsins til þess að vera kaþólsk-
ara en páfinn. Nægir þar að nefna
íþyngjandi reglur um innflutning
á kjöti.
Löggjafarvaldið er Alþingis.
Þá á Alþingi að fylgjast með því
að framkvæmdarvaldið, eftirlits-
stofnanirnar, gangi ekki lengra en
lög heimila í því að setja íþyngjandi
reglugerðir. Boltinn er hjá Alþingi,
ekki þýðendum.
Boltinn er hjá Alþingi,
ekki þýðendum
GEÐORÐIN 10
Grein 9
Greinin er níunda greinin af tíu
í greinaröð jafn margra úrræða
og/eða félaga á geðheilbrigðis-
sviðinu á höfuðborgarsvæðinu um
Geðorðin 10.
Hlutverkasetur er starfsendur-
hæfingar- og virknimiðstöð. Fólk
kemur til að auka lífsgæði sín,
brjótast út úr einangrun, halda sér
virku eða undirbúa sig til náms
eða vinnu. Edna, Kremena og
María eru mæður sem allar hafa
nýtt listræna hæfileika sína til að
endurheimta vonina og trú á eigin
áhrifamátt eftir áföll í lífinu.
Edna Lupita. Ég kom Íslands frá
Mexíkó 1998. Ég varð þunglynd
fyrir nokkrum árum og lagðist í
kjölfarið á geðdeild LSH. Ég kynnt-
ist Hlutverkasetri og tók m.a. þátt
í leiklistartímum. Sjálfstraustið óx
og ég öðlaðist kjarkinn á ný. Ég hef
síðan haldið námskeið í dansi og
leiklist og sett upp tvær jólasýning-
ar. Í fyrstu hafði ég enga trú á mér.
Ég var hvött til að mæta, fræðast
og kynnast fólkinu. Ég fékk leyfi
til að vera þiggjandi og þurfti ekk-
ert að gefa af mér til að vera sam-
þykkt. Síðan þá hef ég öðlast meiri
reynslu og sjálfstraust og fengið
tækifæri til að þróa mínar eigin
aðferðir bæði í leiklist og dansi.
Mitt markmið er að stofna leikhóp
þar sem listamenn og fólk sem kljá-
ist við geðraskanir vinna saman. Í
dag rækta ég hæfileika mína og
er sífellt að uppgötva nýja. Ég hef
lokið námi frá LHÍ og veit núna að
ég er ekki bara góð í dans- og leik-
list heldur hef ég uppgötvað að ég
er líka góð í mannlegum samskipt-
Finndu og ræktaðu
hæfi leika þína
Vitundarvakning meðal
ungs fólks um hefndar-
klám, heimildarmynd um
fátækt á Íslandi, námskeið
til að auka samfélagsvitund
ungra Víetnama, átak gegn
fordómum um psoriasis,
skráning sögu hælisleitenda
á Íslandi, námskeið fyrir
fatlaðar stelpur og þýðing
og talsetning á teiknimynd
þar sem aðalpersónan er
samkynhneigð voru meðal
þeirra verkefna sem hlutu
styrki mannréttindaráðs
Reykjavíkurborgar í lok síð-
asta árs. Ráðinu bárust 33 umsókn-
ir frá einstaklingum og félagasam-
tökum í haust, en 18 verkefni hlutu
styrkveitingu að þessu sinni. Um
er að ræða styrki til verkefna sem
samræmast mannréttindastefnu
borgarinnar og ætlað er að stuðla
að jafnræði borgarbúa og farsælu
og fjölbreytilegu mannlífi.
Mörg sveitarfélög bjóða upp á
að íbúar og grasrótarsamtök leiti
til þeirra með ósk um styrkveit-
ingu í tiltekin verkefni sem ætlað
er að bæta mannlífið með einhverj-
um hætti. Í Reykjavík eru árlega
veittir styrkir til ýmissa verkefna,
meðal annars á sviði velferðarmála,
íþrótta- og æskulýðsmála, menn-
ingarmála og mannréttindamála. Á
flestum sviðum eru styrkir einung-
is veittir árlega og umsóknarfrest-
ur þá á haustin, en mannréttindar-
áð úthlutar styrkjum tvisvar á ári,
bæði á haustin og vorin.
Á undanförnum árum
hafa fjölmargir einstakling-
ar og félagasamtök sótt um
styrki vegna ólíkra verk-
efna sem snúa að mann-
réttindum til mannréttind-
aráðs borgarinnar. Verkefni
sem hefðu mörg hver ekki
komist á legg nema vegna styrk-
veitinga ráðsins. Ljóst má vera að
innan grasrótarinnar er fullt af hug-
myndaríku hugsjónafólki sem vill
vinna gegn mismunun svo allir fái
notið sjálfsagðra mannréttinda og
bæta samfélagið með fjölbreyttum
verkefnum. Til að styðja við gerjun
og áframhaldandi þróun slíkra verk-
efna mun mannréttindaráð áfram
veita styrki til slíkra verkefna.
Nú styttist í næstu styrkveit-
ingu ráðsins og verður auglýst
eftir almennum styrkumsóknum
nú í mars. Áhugasamir eru hvatt-
ir til að kynna sér málin og sækja
um, en allar helstu upplýsingar má
finna á vefslóðinni reykjavik.is/
styrkir. Það er von mín að mann-
réttindaráði haldi áfram að ber-
ast ólíkar og spennandi umsókn-
ir frá borgarbúum svo borgin geti
áfram blómstrað á sviði jafnræðis
og mannréttinda.
Framsókn
mannréttinda
STJÓRNSÝSLA
Gunnlaugur H.
Jónsson
eðlisfræðingur
HEILBRIGÐIS-
MÁL
Lára G.
Sigurðardóttir
læknir, doktorsnemi
í lýðheilsuvísindum
og formaður
fag- og fræðsluráðs
Krabbameins-
félagsins
SAMFÉLAG
Magnús Már
Guðmundsson
varaborgarfulltrúi
og situr í mann-
réttindaráði fyrir
Samfylkinguna.
➜ Íþyngjandi lög og reglu-
gerðir virðast koma frá
Alþingi og íslenskum eftirlits-
stofnunum og eru stundum
í andstöðu við evrópsk lög
um frelsi og frjálsan fl utning
vöru og þjónustu.
➜ Hlutverka-
setur er starfs-
endurhæfi nga-
hæfi nga- og
virknimiðstöð.
Fólk kemur
til að auka
lífsgæði sín,
brjótast út úr
einangrun, halda sér virkum
eða undirbúa sig til náms
eða vinnu.
GEÐHEILBRIGÐI
Kremena
Demireva
María Gísladóttir
f. h. Hlutverkaseturs
➜ Nú styttist í næstu
styrkveitingu ráðsins
og verður auglýst eftir
almennum styrkum-
sóknum nú í mars.
Edna Lupita
0
3
-0
3
-2
0
1
5
2
2
:3
2
F
B
0
5
6
s
_
P
0
4
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
4
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
1
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
1
6
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
3
F
F
-D
E
8
8
1
3
F
F
-D
D
4
C
1
3
F
F
-D
C
1
0
1
3
F
F
-D
A
D
4
2
8
0
X
4
0
0
2
B
F
B
0
5
6
s
C
M
Y
K