Fréttablaðið - 04.03.2015, Síða 40

Fréttablaðið - 04.03.2015, Síða 40
4. mars 2015 MIÐVIKUDAGUR| TÍMAMÓT | 20TÍMAMÓT Okkar ástkæri ÁRNI JÓHANNSSON Sóltúni 12, 105 Reykjavík, lést sunnudaginn 22. febrúar. Jarðarförin fer fram frá Langholtskirkju föstudaginn 6. mars kl. 13.00. Unnbjörg Eygló Sigurjónsdóttir Ágúst Þór Árnason Alma Oddgeirsdóttir Guðjón Trausti Árnason Kerstin Andersson Guðbjörg Gígja Árnadóttir Sigurður Már Jónsson Jóhanna Harpa Árnadóttir Þorsteinn Páll Hængsson Nína Þóra Rafnsdóttir Unnar Rafn Ingvarsson Sigurjón Rúnar Rafnsson María Kristín Sævarsdóttir og fjölskyldur. Ástkær eiginkona mín, móðir og amma, ÞÓRDÍS GERÐUR SIGURÐARDÓTTIR Vallarási 1, lést á líknardeild Landspítalans í Kópavogi laugardaginn 28. febrúar. Útför hennar fer fram föstudaginn 6. mars klukkan 13.00 frá Bústaðakirkju. Blóm og kransar eru vinsamlega afþakkaðir, en þeim sem vilja minnast hennar er bent á líknardeild LSH í Kópavogi. Björn Snorrason Páll Kristinsson Inga Kristinsdóttir Christian Scobie Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi og mágur, ÁRNI ARINBJARNARSON tónlistarmaður, Geitlandi 3, Reykjavík, lést á heimili sínu sunnudaginn 1. mars. Dóra Lydía Haraldsdóttir Arinbjörn Árnason Joanne Ruth Arnason Pálína Árnadóttir Margrét Árnadóttir Aron James, Joshua Ben Haraldur Haraldsson Páll Haraldsson Elskulegur eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir, afi og langafi, ALBERT JÚLÍUS KRISTINSSON Reykjavíkurvegi 52, Hafnarfirði, lést á líknardeild Landspítalans laugar- daginn 28. febrúar. Útförin fer fram frá Víðistaðakirkju miðvikudaginn 11. mars kl. 15. Blóm og kransar vinsamlegast afþakkaðir. Þeim sem vilja minnast hans er bent á Krabbameinsfélag Íslands. Elsa Kristinsdóttir Kristinn J. Albertsson Sigríður Ágústsdóttir Magnús Páll Albertsson Halla Björg Baldursdóttir Sverrir Mar Albertsson Gréta Garðarsdóttir barnabörn og barnabarnabörn. Tónlistarkonan Anna María Björns- dóttir hefur gefið út plötuna Hver stund með þér, ásamt Svavari Knúti. Á henni má finna lög sem hún samdi við ástarljóð sem afi hennar, Ólafur Björn Guðmundsson, samdi til ömmu hennar, Elínar Maríusdóttur. „Hann orti öll þessi ljóð til hennar yfir sextíu ára tímabil, alveg frá því þau kynnt- ust og þangað til þau voru orðin gömul. Það höfðu fáir í fjölskyldunni séð þau og hann leyfði okkur ekki að sjá þau fyrr en löngu seinna,“ segir Anna María. Þá hafi afi hennar tekið sig til og skrifað upp öll ljóðin inn í tölvu svo þau myndu varðveitast. Anna segir að þau hjónin hafi alltaf verið jafn ástfangin, alveg fram á síðasta dag, en þau létust með árs millibili. Anna segir það gaman að skoða fyrstu ljóðin sem fjalla um framtíð þeirra saman og svo þessi yngri, þegar hann er meira að þakka henni fyrir allan þann tíma sem þau hafi átt saman. „Það er svo gaman að sjá ljóðin sem hann skrifaði fyrst þegar þau eru ung og nýbúin að kynnast og svo ljóðin sem hann skrif- ar þegar hann er orðinn gamall, hvað ástin er enn til staðar og hvað hann ber enn sömu tilfinningar til hennar,“ segir hún og bætir við: „Hann horfði alltaf á hana með sömu aðdáunaraug- um.“ Aðspurð hvort hún eigi sér eftir- lætis ljóð eftir afa sinni, segir hún erf- itt að gera upp á milli þeirra. „Þau eru eiginlega öll í uppáhaldi á sinn hátt, en ljóðið Eitt lítið ljóð finnst mér þó sérstakega fallegt,“ segir hún. Er þetta önnur sólóplata Önnu, og sú fjórða í heildina, en hún hefur gefið út tvær plötur með Norrænu spuna- sönghljómsveitinni IKI í Danmörku. Fimmtudaginn 12. mars klukkan 20.00 verða haldnir útgáfutónleikar í Saln- um í Kópavogi. adda@frettabladid.is Samdi lög við gömul ástarljóð afa síns Anna María Björnsdóttir gefur út plötuna Hver stund með þér með lögum við ástarljóð sem samin voru til ömmu hennar á sextíu ára tímabili. FALLEGUR BOÐSKAPUR Anna segir ljóð afa síns vera fallegan boðskap um ástina og hvernig hún geti vaxið og dafnað heila mannsaævi. MYND/DANIEL KARLSSON Ég get ekki sungið þér sólfagran óð né seitt burtu kulda og hregg, en örlítið fátæklegt, flöktandi ljóð að fótum þér hikandi legg. Og þó eru í ljóðinu líf mitt og sál mín lofgjörð og þökk fyrir allt, sem tendraði í hjarta mér brennandi bál og bugaði skammdegið kalt. Þú komst inn í líf mitt sem ljómandi vor og lífgaðir blómin mín öll. Og andblær þinn vermdi mín vonlausu spor er ég villtist um tómleikans fjöll. Þá varð förin mér ljúf, þá varð gatan mér greið, þá fékk ganga mín stefnu og mið. Þá varð framundan blómskrýdd og brosandi leið, þar blasti nú hamingjan við. Þú færðir mér lífið, þú færðir mér allt, sem fegurst og dýrast ég ann. Þú veizt kannski ei sjálf hve í sál mér var kalt unz ég sumar þíns ástríkis fann. En í hjarta mér geymi ég glitrandi sjóð, eina gleym-mér-ei, hún er til þín! – Svona örlítið fátæklegt, flöktandi ljóð er minn fjársjóður, ástin mín! Ágúst 1951 EITT LÍTIÐ LJÓÐ Bróðir okkar, SVEINN PÁLMASON Birkihlíð 7, Vestmannaeyjum, lést 23. febrúar. Útförin fer fram frá Landakirkju 7. mars klukkan 11. Systkini hins látna og fjölskyldur Elskulega móðir okkar, ÞURÍÐUR BJARNADÓTTIR frá Norðfirði, lést 26. febrúar 2015. Nú ertu hjá elsku pabba, megi guð geyma þig og varðveita. Þín er sárt saknað. Við viljum þakka starfsfólki hjúkrunarheimilisins Skjóls, þriðju hæð, fyrir góða umönnun og sýndan kærleik. Útförin fer fram frá hvítasunnukirkjunni Fíladelfíu 6. mars kl. 11.00. Gunnar Ársælsson Ingunn Ársælsdóttir Kolbeinn Ársælsson Bjarni Geir Ársælsson Margrét Ársælsson Agneta barnabörn og barnabarnabörn. Elsku hjartans pabbi minn, sonur okkar, bróðir, mágur, barnabarn og sambýlismaður, UNNAR INGI HEIÐARSSON Vallartúni 6, Akureyri, sem lést fimmtudaginn 19. febrúar verður jarðsunginn frá Akureyrarkirkju föstudaginn 6. mars klukkan 13.30. Þeim sem vilja minnast hans er bent á reikning Benonýs Inga sonar hans, 302-13-300328, kt. 280812-2690. Benoný Ingi Unnarsson Heiðar Rögnvaldsson Sigríður Jóhannesdóttir Magnús Guðjónsson Íris Huld Heiðarsdóttir Þorsteinn Björnsson Sigríður Ólafsdóttir Guðrún Helga Heiðarsdóttir Valur Oddgeir Bjarnason Guðrún Helga Kjartansdóttir Steinunn Ósk Eyþórsdóttir Þökkum auðsýnda samúð, kveðjur og hlýhug við andlát og útför eiginmanns míns, föður, tengdaföður og afa, EINARS RAGNARSSONAR tannlæknis, Lækjarási 11. Sérstakar þakkir fær Grétar Guðmundsson læknir og starfsfólk á deild B-2 LSH í Fossvogi. Gerður Pálsdóttir Kristín Gígja Einarsdóttir Þorsteinn Sverrisson Sigrún Elva Einarsdóttir Ari Pétur Wendel Þorgerður Arna Einarsdóttir Óttar Örn Helgason Einar Páll Einarsson og barnabörn. ODDBERGUR EIRÍKSSON skipasmiður, Ytri-Njarðvík, lést þann 27. febrúar sl. á Hrafnistu í Hafnarfirði. Hann verður jarðsunginn frá Ytri-Njarðvíkurkirkju föstudaginn 6. mars kl. 14.00. Kolbrún Oddbergsdóttir Guðmundur Oddbergsson og aðrir aðstandendur. Okkar ástkæri maður, faðir, stjúpfaðir, tengdafaðir og afi, BALDVIN BERNDSEN Lautasmára 51, Kópavogi, lést á heimili sínu þriðjudaginn 24. febrúar. Útför hans fer fram frá Grafarvogskirkju fimmtudaginn 5. mars kl. 15. Henný Hermannsdóttir Baldvin Örn Berndsen Berglind Helgadóttir Jóhanna Sigríður Berndsen Ragnar Baldvin Berndsen Jennifer Berndsen Margrét Lára Berndsen Evald Berndsen Unnur Berglind Guðmundsdóttir Niel Jeppe Árni Henry Gunnarsson Anna L. Sigurðardóttir og afabörn. 0 3 -0 3 -2 0 1 5 2 2 :3 2 F B 0 5 6 s _ P 0 4 0 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 2 9 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 1 7 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 2 8 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 3 F F -E D 5 8 1 3 F F -E C 1 C 1 3 F F -E A E 0 1 3 F F -E 9 A 4 2 8 0 X 4 0 0 4 A F B 0 5 6 s C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.