Fréttablaðið - 04.03.2015, Blaðsíða 44
4. mars 2015 MIÐVIKUDAGUR| MENNING | 24
LEIKLIST ★★★ ★★
Þú kemst þinn veg
Sýnt í Norræna húsinu
HANDRIT FINNBOGI ÞORKELL JÓNSSON
LEIKARI FINNBOGI ÞORKELL JÓNSSON
LEIKSTJÓR: ÁRNI KRISTJÁNSSON
TÆKNIMAÐUR STEFÁN INGVAR VIGFÚSSON
TÓNLIST SVAVAR KNÚTUR
Garðar Sölvi Helgason hefur glímt
við geðklofa nær alla sína fullorð-
instíð, áratugir af ranghugmyndum
og baráttu við að komast í gegnum
dag hvern, jafnvel hverja mínútu,
hafa litað hans tilvist. En þó að
saga hans sé átakanleg er marga
ljósa punkta að finna því Garð-
ar hefur þróað með sér eins konar
umbunarkerfi til þess að koma sér í
gegnum daginn, eins konar jákvæða
uppbyggingarstefnu þar sem tíma-
kaupið er talið í mínútum frekar en
klukkutímum.
Finnbogi Þorkell hefur skrifað
leikrit út frá reynslu Garðars sem nú
heldur fyrirlestra í skólum og öðrum
stofnunum og var það frumsýnt nú
um helgina í fyrirlestrasal Norræna
hússins. Öll umgjörð er hin afslapp-
aðasta en áhorfendur sitja saman við
lítil fundarborð og okkur er boðið að
hlýða á fyrirlestur um líf Garðars
haldinn af ungum manni að nafni
Guðmann sem leikinn er af Finn-
boga.
Sýningin er því miður alltof lengi
í gang, sérstaklega miðað við stutt-
an sýningartíma, og töluverðum
tíma eytt í að kynna áhorfendur
fyrir Guðmanni en í raun komumst
við samt aldrei að nægilega miklu
um þennan mann. Hann hefur tekið
að sér að halda fyrirlestur um um-
bunarkerfi Garðars en er gríðar-
lega stressaður fyrir því verkefni.
Í stað þess fara djúpt ofan í sálarlíf
og sögu Garðars, sem er gríðarlega
ríkulegur heimur, fá áhorfendur
þess í stað kaffi og vandræðalegar
þagnir í boði Guðmanns.
Slíkar áherslur eru ekki alveg
fyllilega skiljanlegar þar sem lítil
þróun verður í persónu Guðmanns
og samband hans við Stefán, hálfmis-
heppnaða tæknimanninn, tekur tak-
mörkuðum breytingum. En það eru
aftur á móti senurnar úr lífi Garð-
ars sem færa sýninguna yfir á annað
og miklu áhugaverðara plan. Þar
sýnir Finnbogi hæfileika sína sem
leikari og leikskáld en hann bregð-
ur sér ekki bara í hlutverk Garðars
með góðum árangri heldur einnig
fjöldann allan af öðrum manneskj-
um sem hafa orðið á vegi hans.
Í þessum uppbrotum fá áhorfend-
ur merkilega sýn inn í hinn tvístr-
aða hugarheim Garðars þar sem
Finnbogi flakkar á milli tímabila í
hans lífi allt frá barnæsku til dags-
ins í dag. Hann berst ekki einungis
við sínar eigin ranghugmyndir um
Apollo-geimáætlun Bandaríkjanna
heldur einnig samfélagslega for-
dóma gagnvart sjúkdómi sínum.
Þetta er hið sláandi hjarta sýning-
arinnar en áhorfendur sjá það ekki
nægilega oft.
Tónlist Svavars Knúts er ávallt
ljúf en fingraför hans á sýningunni
hefðu mátt vera sterkari líkt og hjá
Árna Kristjánssyni sem stendur
samt sem áður nokkuð vel í sínu
hlutverki. Sýningin er fallegt mynd-
brot af margbrotnu ástandi en nær
aldrei nægilega sterkum tökum á
umræðuefninu.
Sigríður Jónsdóttir
NIÐURSTAÐA: Garðar á sér magnaða
sögu og þrátt fyrir nokkur virkilega falleg
augnablik er hún ekki nægilega vel sögð
í þessu verki.
Margbrotin veröld geðklofans
LÍSA Í UNDRALANDI Aðstandendum hefur tekist að skapa skemmtilega, spenn-
andi, litskrúðuga og dálítið brjálaða sýningu sem höfðar jafnt til ungra og fullorð-
inna leikhúsgesta.
LEIKLIST ★★★★ ★
Lísa í Undralandi
Leikfélag Akureyrar
LEIKGERÐ MARGRÉT ÖRNÓLFSDÓTTIR
LEIKARAR THELMA MARÍN JÓNSDÓTTIR,
BENEDIKT KARL GRÖNDAL, SÓLVEIG GUÐ-
MUNDSDÓTTIR, PÉTUR ÁRMANNSSON OG
SEX UNGIR LEIKARAR AF NORÐURLANDI.
LEIKSTJÓRN VIGNIR RAFN VALÞÓRSSON
HÖFUNDUR SVIÐSHREYFINGA OG DANSA:
BROGAN DAVISON
LEIKMYND OG BÚNINGAR SIGRÍÐUR SUNNA
REYNISDÓTTIR
LÝSING JÓHANN BJARNI PÁLMASON
TÓNLIST DR. GUNNI
Lísa í Undralandi er skáldsaga eftir
breska heimspekinginn Lewis Carr-
oll, sem fyrst kom út á frummálinu
árið 1865, fyrir réttum 150 árum.
Bókin kom fyrst út í íslenskri þýð-
ingu árið 1937. Bókin segir frá uppá-
tækjum ungrar stúlku að nafni Lísa,
sem hefur talsvert frjórra ímynd-
unarafl en gengur og gerist hjá
börnum á hennar aldri.
Leikgerð Margrétar Örnólfsdótt-
ur er byggð á þessari frægu skáld-
sögu. Þó má segja að hér sé aðeins
stuðst lauslega við söguna eða við
anda hennar, persónur sóttar í hana
eða í það minnsta nöfn persóna. Lísa
í leikgerðinni er látin, eins og í bók-
inni, elta hvíta kanínu ofan í holu
og lendir í Undralandi. Allt annað í
leikgerðinni er raunar nýtt og frum-
samið svo kannski má segja að hér
sé um nýtt íslenskt leikrit eftir Mar-
gréti Örnólfsdóttur að ræða.
Söguþráðurinn er eins og segir í
kynningu að Lísa er ósköp venjulega
óvenjuleg stelpa á Akureyri sem
hrútleiðist í skólanum. Skyndilega
birtist taugaveiklaður hvítur kan-
ínukall sem er orðinn alltof seinn
í afmælisveislu. Lísa eltir hann og
sogast inn í æsispennandi ævintýri
þar sem hún hittir brjálaða Hattar-
ann, Glottköttinn leyndardómsfulla,
hina óborganlegu rugludalla Laddídí
og Laddídamm, Kálorminn varhuga-
verða og auðvitað hina skelfilegu
Hjartadrottningu sem á afmæli akk-
úrat þennan dag.
Þegar ég heyrði af því að L.A.
væri að setja upp leiksýningu
byggða á ævintýrum Lísu í Undra-
landi varð ég strax nokkuð skept-
ískur á að það væri hægt á svo litlu
sviði og með þeim fátæklega tækni-
búnaði sem lítið leikhús úti á landi
hefur yfir að ráða. Það er skemmst
frá því að segja að þetta voru
ástæðulausar áhyggjur. Leikstjór-
inn og handritshöfundurinn hafa
hér skapað skemmtilega, spennandi,
litskrúðuga og dálítið brjálaða sýn-
ingu sem höfðar jafnt til ungra og
fullorðinna leikhúsgesta. Sýningin
er full af brellum, galdri og einföld-
um tæknilausnum sem í flestum til-
fellum gengur vel upp.
Það eru fjórir leikarar sem fara
með fjölda ólíkra hlutverka og
bregða sér í alls kyns gervi mis-
brjálaðra persóna. Allir stóðu þeir
sig með stakri prýði og eftir á að
hyggja finnst mér það með ólíkind-
um að þarna hafi ekki verið fleiri
leikarar á bak við. Auk þeirra voru
í sýningunni sex ungir leikarar sem
tóku þátt í hópsenum og í söngva-
og dansatriðum auk þess að skipa
smærri hlutverk. Þessi ungmenni
stóðu sig sömuleiðis afar vel og það
var sérlega gaman hvað allur leik-
hópurinn myndaði samstillta og fal-
lega heild.
Tónlist Dr. Gunna er fléttað
smekklega inn í verkið með dansi
og hressilegum sviðshreyfingum
og fjöri.
Þessi sýning hefur upp á að bjóða
allt það sem skemmtileg fjölskyldu-
ævintýraleiksýning þarf að hafa;
hetju, sem í þessu tilfelli er tíu ára
kvenhetja, fullt af skrítnum og
spaugilegum persónum sem koma
og fara með miklu hraði, litskrúð-
uga og kúnstuga búninga, fjöruga og
grípandi tónlist, vel útfærðar sviðs-
hreyfingar og dans, listileg farar-
tæki sem stundum eru vélknúin
tryllitæki og oftar þó drifin með
handaflinu einu saman.
Ég vil óska Leikfélagi Akureyr-
ar innilega til hamingju með þessa
hressilegu og skemmtilegu fjöl-
skyldusýningu.
Kristján E. Hjartarson
NIÐURSTAÐA: Hressileg og skemmtileg
fjölskyldusýning uppfull af góðum leik-
hús lausnum, léttri tónlist og vönduð í
allri framsetningu.
Við erum öll brjáluð hér
„Íslensk þjóðlagatónlist er kannski
í hugum einhverra eldgömul
íslensk danskvæði, eins og Goð-
mundur á Glæsivöllum sem við í
Ríó tókum á sínum tíma. Það sem
flutt verður á Folk Festival er
af sama meiði. Auðvitað er allt-
af þróun í tónlist og fram kemur
bæði yngra og eldra tónlistarfólk
með margvísleg blæbrigði af þjóð-
lagatónlist,“ segir Helgi Pétursson
Ríótríósmaður sem stendur að þjóð-
lagahátíðinni Folk Festival, ásamt
Snorra Helgasyni, syni sínum.
Helgi segir Folk Festival þá
fimmtu í röðinni hér á landi á jafn-
mörgum árum. „Félagi minn og
æskuvinur, Ólafur Þórðarson, byrj-
aði með hátíðina og þegar hann féll
frá ákváðum við að halda merkinu
á lofti,“ útskýrir hann.
„Tónlistarhátíðir af þessu tagi
eru mjög vinsælar í Skandinavíu
og Norður-Evrópu, líka í Winnipeg
og víðar í Kanada og nú fengum
við tækifæri til að bjóða tveimur
vesturíslenskum tónlistarmönnum
á hátíðina sem munu varpa ljósi á
þjóðlagatónlistarhefð Kanada.
Þeir kunna líka lög héðan sem þeir
flytja í heimalandinu og þessi hátíð
verður ugglaust til að auka á tengsl
þeirra við uppruna sinn.“
Folk Festival fer fram í Gym-
og Toniksalnum á Kexi hosteli við
Skúlagötu. Hún hefst annað kvöld,
fimmtudag, og stendur fram á
laugardagskvöld. Fjórir listamenn
koma fram á hverju kvöldi.
„Við höfum þrisvar áður verið
á Kexinu, þar er skemmtilegur
salur og eins og breiddin er mikil
hjá flytjendunum hefur hið sama
mátt segja um áheyrendahópinn á
undanförnum árum,“ segir Helgi
og fullyrðir að ekkert verði spar-
að til að skapa notalega og einlæga
stemningu.
Spurður um verkaskiptinguna
milli þeirra feðga svarar Helgi létt-
ur í bragði: „Já, við fengum Snorra
til að halda utan um þetta. Hann
hefur raðað þessu upp. Ég er bara í
snúningum og snatti.“
gun@frettabladid.is
Margvísleg blæbrigði
af þjóðlagatónlist
Fólk á ýmsum aldri, úr ólíkum áttum, fl ytur þjóðlagaskotna tónlist á Kexi hosteli
við Skúlagötu frá fi mmtudegi til laugardags á þjóðlagahátíðinni Folk Festival.
TÓNLISTARFEÐGAR Helgi og Snorri halda þjóðlagahátíðina 2015 í Gym- og Toniksalnum á Kexi hosteli. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
● Þeir listamenn sem koma fram á hátíðinni í ár eru Teitur Magnússon,
Ylja, Kólga, Funi, Moð, Lindy Vopnfjord frá Kanada, Klassart, Lay Low, JP
Hoe frá Kanada, Björn Thoroddsen, Pétur Ben og Egill Ólafsson.
● Dagskráin hefst kl. 20 öll kvöld og lýkur klukkan 23.30.
● Miðaverð á hátíðina er 3.000 krónur fyrir stök kvöld en 7.999 fyrir
passa sem gildir á öll þrjú kvöldin.
● Nánari upplýsingar um dagskrá hátíðarinnar er að finna á vefsíðu
hennar; www.folkfestival.is og á fésbókarsíðu hennar; facebook.com/
reykjavikfolkfestival.
Meira um Folk Festival 2015
MENNING
0
3
-0
3
-2
0
1
5
2
2
:3
2
F
B
0
5
6
s
_
P
0
5
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
4
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
0
4
K
_
N
Ý.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
1
3
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
3
F
F
-E
8
6
8
1
3
F
F
-E
7
2
C
1
3
F
F
-E
5
F
0
1
3
F
F
-E
4
B
4
2
8
0
X
4
0
0
3
B
F
B
0
5
6
s
C
M
Y
K