Fréttablaðið - 04.03.2015, Page 45
MIÐVIKUDAGUR 4. mars 2015 | MENNING | 25
„Ég hef átt víólu í áratugi og gripið
í hana þegar svo ber undir,“ segir
Guðný sem þekkt er sem fiðlu-
leikari en spilar á víólu á Háskóla-
tónleikum í dag klukkan 12.30.
Júlía Mogensen verður á selló og
Richard Simm á píanó og á efnis-
skránni eru þrjú verk eftir Áskel
Másson. Meðal þeirra er tríó sem
hann samdi upphaflega fyrir klar-
inettu, selló og píanó en skrifaði
síðar klarinettupartinn á víólu.
Þannig hefur það aldrei verið flutt
áður.
Byrjað er á einleiksverki fyrir
píanó og að lokum verður Guðný
með einleiksverk á víólu. „Ég
ákvað að takast á við það úr því ég
var komin með víóluna í hendurn-
ar!“ segir konsertmeistarinn fyrr-
verandi.
Enginn aðgangseyrir er að tón-
leikunum og allir eru velkomnir.
- gun
Guðný grípur í víóluna þegar svo ber undir
Guðný Guðmundsdóttir, Júlía Mogensen og Richard Simm spila saman í Hátíðasal HÍ í hádeginu í dag.
TRÍÓ Þau Guðný, Richard og Júlía
frumflytja tríó eftir Áskel Másson í nýrri
mynd á ókeypis Háskólatónleikum.
Kristjana Arngrímsdóttir söng-
kona stígur á svið í Hömrum,
Menningarhúsinu Hofi, í hádeg-
inu klukkan 12 á föstudaginn,
ásamt eiginmanni sínum, Krist-
jáni Eldjárn. Þau flytja lög eftir
Kristjönu sem hún hefur samið
við ljóð og kvæði íslenskra
skáldkvenna og verða tvö lag-
anna frumflutt á tónleikunum.
Einnig verða á dagskránni lög
við ljóð Davíðs Stefánssonar.
Tónleikarnir falla undir Föstu-
dagsfreistingar sem Tónlistarfé-
lag Akureyrar stendur að. Súpa
er innifalin í aðgangseyrinum.
- gun
Flytja kvæði
skáldkvenna
HJÓNIN Kristjana og Kristján flytja
lög af væntanlegum diski í hádeginu á
föstudag.
Nú hefur verið opnað fyrir
umsóknir á Skjaldborgarhátíð-
ina – hátíð íslenskra heimildar-
mynda sem haldin verður um
hvítasunnuhelgina, 23.-26. maí,
í Skjaldborgarbíói á Patreks-
firði að vanda. Þetta er í níunda
sinn sem hátíðin verður haldin
en hún hefur fyrir löngu sannað
sig sem einn af mikilvægustu
viðburðum íslenskrar kvik-
myndamenningar, enda hafa
margar af áhugaverðustu heim-
ildarmyndum undanfarinna ára
verið frumsýndar þar. Má þar
nefna hina frábæru Salóme sem
hlaut aðalverðlaun hátíðarinnar
í fyrra og hefur í kjölfarið sópað
að sér alþjóðlegum verðlaunum.
Stefnt er að því að frum-
sýna um 15-20 nýjar, íslenskar
heimildarmyndir en auk þess
verða fersk og spennandi verk
í vinnslu kynnt á hátíðinni. Þá
verða hefðbundnir jafnt sem
óhefðbundnir utandagskrár-
viðburðir á sínum stað. Opið
er fyrir umsóknir til 17. apríl
en umsóknareyðublað og allar
frekari upplýsingar er að finna
á heimasíðu hátíðarinnar: www.
skjaldborg.com. - mg
Skjaldborg á
Patreksfi rði
SKJALDBORGARHÁTÍÐIN Þetta er í
níunda sinn sem hátíðin verður haldin
en hún hefur fyrir löngu sannað sig
sem einn af mikilvægustu viðburðum
íslenskrar kvikmyndamenningar.
Lágmúla
Laugavegi
Nýbýlavegi
Smáralind
Smáratorgi
Borgarnesi
Grundarfirði
Stykkishólmi
Búðardal
Patreksfirði
Ísafirði
Blönduósi
Hvammstanga
Skagaströnd
Sauðárkróki
Húsavík
Þórshöfn
Egilsstöðum
Seyðisfirði
Neskaupstað
Eskifirði
Reyðarfirði
Höfn
Laugarási
Selfossi
Grindavík
Keflavík
www.lyfja.is
Hugsum
um húðina
Þegar kalt er í veðri er mikilvægt að vernda húðina vel, líkt
við gerum til að vernda hana fyrir sólinni. Í Lyfju finnur
þú gott úrval hágæða krema sem halda allri fjölskyldunni
mjúkri í kuldanum.
Decubal
Ilmefnalausar húðvörur sérstaklega ætlaðar fyrir
þurra og viðkvæma húð.
20%
afsláttur
til og með 11. mars
Ceridal
Ceridal er fitukrem fyrir þurra og viðkvæma húð sem
veitir góða vörn í kulda og vindi. Má nota á sár og var-
ir. Hentugt fyrir börn og ungbörn enda án parabena,
ilm- og litarefna.
20%
afsláttur
til og með 11. mars
20%
afsláttur
til og með 11. mars
Íslensk húðlína fyrir alla fjölskylduna.
Apótek
Locobase
Án ilm- og litarefna. Repair fyrir þurra húð og exem,
Fedtcreme fyrir þurra húð og LPL fyrir þykka og
harða húð.
20%
afsláttur
til og með 11. mars
0
3
-0
3
-2
0
1
5
2
2
:3
2
F
B
0
5
6
s
_
P
0
5
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
4
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
0
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
1
2
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
3
F
F
-F
7
3
8
1
3
F
F
-F
5
F
C
1
3
F
F
-F
4
C
0
1
3
F
F
-F
3
8
4
2
8
0
X
4
0
0
5
A
F
B
0
5
6
s
C
M
Y
K