Fréttablaðið - 05.03.2015, Blaðsíða 28

Fréttablaðið - 05.03.2015, Blaðsíða 28
FÓLK|TÍSKA Ég vinn með olíu á dúk, líka með blýant og vatnslit og túss. Ég vinn málverkin með litlum pensli og mála doppur í rendur eða hringi, lag ofan á lag. Verkin vinn ég út frá náttúruhughrifum, stemmingu og hvernig ég upplifi litina í náttúrunni. Þar tengjumst við systurnar,“ útskýrir Hadda Fjóla Reykdal myndlistarmaður en hún vinnur nú að innsetningu í Gall- eríi Gróttu ásamt systur sinni, skart- gripahönnuðinum Hlín Reykdal. Sýningin verður opnuð fimmtudag- inn 12. mars kl. 17. Báðar hafa þær tekið þátt í samsýningum þar sem hver listamaður eða hönnuður sýnir sitt en þetta er í fyrsta skipti sem þær vinna að sameiginlegri innsetningu og í fyrsta sinn sem þær vinna saman systurnar. „Það hafði blundað í okkur að gera eitthvað saman og við gripum því tækifærið þegar það bauðst,“ segir Hlín. „Samstarfið hefur gengið áreynslulaust fyrir sig, við erum líkar á margan hátt. Hadda vinnur með punktinn og hringformið og ég með kúlur. Við köllumst líka á í litavali,“ segir hún en Hlín hannar skargripi sína úr tréperlum sem hún handmálar og blandar litina sjálf. „Það var einmitt skemmtilegt að sjá hvað við vorum ótrúlega nálægt hvor annarri þegar við fórum að vinna,“ segir Hadda Fjóla en um margra ára skeið var heilt haf á milli þeirra þegar Hadda bjó í Gautaborg í yfir tíu ár. „Við unnum sýninguna þannig að við töluðum mikið saman og héldum fundi og kíktum á vinnustofuna hjá hvor annarri. Við skoðuðum salinn líka vel og hugmyndin er að setja saman innsetningu og samspil sem áhorfand- inn mun upplifa,“ útskýrir Hadda Fjóla „Það er gaman fyrir mig sem hönn- uð að fara inn á svið myndlistarinnar en það er ákveðið bil á milli hönnunar og myndlistar,“ segir Hlín. „Ég er að hanna söluvöru sem er annar hlutur en að setja upp listaverk. Margir minna kúnna hafa reyndar hengt fest- arnar mínar upp á vegg hjá sér, sem mér þykir mikill heiður,“ segir Hlín og þær systurnar eru sammála um að vinnan við sýninguna hafi einnig gefið þeim nýja sýn á eigin verk. „Þetta var ofboðslega skemmtilegt vinnuferli,“ segir Hadda Fjóla. Systurnar verða með leiðsögn um sýninguna 13. mars kl. 15-17 og dag- ana 14. og 15. mars kl. 13-15. Sýningin stendur til 31. mars. Nánar má forvitnast um verk þeirra á haddafjolareykdal.com og hlinreykdal. com. SAMEINAST Í LIT HÖNNUNARMARS Systurnar Hlín og Hadda Fjóla Reykdal opna samsýningu í Galleríi Gróttu. Önnur er hönnuður og hin myndlistarmaður en verkin þeirra tengjast á margan hátt. Báðar sækja innblástur í hughrif frá litum í náttúrunni. DOPPUR Hadda Fjóla vinnur olíumálverk með fíngerðum pensli og hleður doppum lag fyrir lag. SKART Hlín hannar skartgripi úr trékúlum sem hún handmálar og sækir inn- blástur í litaflóru náttúrunnar. SYSTUR SÝNA Hlín og Hadda Fjóla Reykdal opna samsýningu í Galleríi Gróttu á HönnunarMars. Önnur er hönnuður og hin mynd- listarmaður. MYND/GVA Til hvers að flækja hlutina? 365.is Sími 1817 SJÁLFKRAFA í BESTA ÞREP! Í upphafi mánaðar byrja allir viðskiptavinir í 0 mínútum og 0 SMS-um. Það fer síðan eftir notkun í hvaða þrepi hann endar þann mánuðinn. 0 kr. 2.990 kr. 4.990 kr. 60–365 mín. og SMS Endalaust 60 mínútur og 60 SMS í GSM og heimasíma á Íslandi. 365 mínútur og 365 SMS í GSM og heimasíma á Íslandi. Endalausar mínútur og SMS í GSM og heimasíma á Íslandi. 0–60mín. og SMS 0 4 -0 3 -2 0 1 5 2 2 :1 0 F B 0 5 6 s _ P 0 4 0 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 2 9 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 1 7 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 2 8 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 4 0 4 -6 5 9 C 1 4 0 4 -6 4 6 0 1 4 0 4 -6 3 2 4 1 4 0 4 -6 1 E 8 2 8 0 X 4 0 0 4 A F B 0 5 6 s C M Y K
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.