Fréttablaðið - 05.03.2015, Blaðsíða 20
5. mars 2015 FIMMTUDAGURSKOÐUN
HALLDÓR
ÚTGÁFUFÉLAG: 365 miðlar ehf. STJÓRNARFORMAÐUR: Ingibjörg S. Pálmadóttir FORSTJÓRI: Sævar Freyr
Þráinsson ÚTGEFANDI OG AÐALRITSTJÓRI: Kristín Þorsteinsdóttir kristin@frettabladid.is FRÉTTASTJÓRI:
Sigurjón M. Egilsson sme@frettabladid.is. Fréttablaðið kemur út í 90.000 eintökum og er dreift ókeypis á heimili á
höfuðborgarsvæðinu og Akureyri. Einnig er hægt að fá blaðið í völdum verslun um á landsbyggðinni. Fréttablaðið
áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. ISSN 1670-3871
FRÁ DEGI
TIL DAGS
FRÉTTABLAÐIÐ Skaftahlíð 24, 105 Reykjavík Sími: 512 5000, ritstjorn@frettabladid.is AÐSTOÐARFRÉTTASTJÓRI: Andri Ólafsson andri@frettabladid.is HELGARBLAÐ: Erla Björg Gunnarsdóttir erla@frettabladid.is MENNING: Magnús Guðmundsson magnus@frettabladid.is
VÍSIR: Kolbeinn Tumi Daðason kolbeinntumi@365.is LJÓSMYNDIR: Pjetur Sigurðsson pjetur@frettabladid.is FRAMLEIÐSLUSTJÓRI: Sæmundur Freyr Árnason sfa@frettabladid.is ÚTLITSHÖNNUN: Silja Ástþórsdóttir siljaa@frettabladid.is
Ingimundur Sigurpálsson, forstjóri ríkis-
fyrirtækisins Íslandspósts (ÍSP), gerði því
skóna í viðtali í Fréttablaðinu á þriðjudag
að gagnrýni greinarhöfundar á starfsemi
fyrirtækisins væri á misskilningi byggð.
Það er á forstjóranum að skilja að
aðskilnaður einkaréttarstarfsemi og
samkeppnisrekstrar hjá Íslandspósti sé
óskaplega flókinn. Lögin eru hins vegar
einföld. Það má ekki niðurgreiða sam-
keppnisrekstur með tekjum af einkarétti.
Í ákvörðun 18/2013 hafnaði Póst- og fjar-
skiptastofnun forsendum og útreikningum
Íslandspósts á kostnaði sem er millifærð-
ur frá samkeppnisrekstri yfir á einkarétt.
Stofnunin taldi að ÍSP yrði að gera betur
grein fyrir ástæðum taprekstrar í ein-
stökum þjónustuflokkum í samkeppnis-
rekstri, þannig að unnt væri að meta
hvort verið væri að niðurgreiða sam-
keppni við einkaaðila. Fyrirtækið hefur
enn ekki gert hreint fyrir sínum dyrum
hvað þetta varðar.
Það er því misskilningur hjá forstjór-
anum þegar hann segir að hann hafi „ekki
fengið neinar meldingar frá eftirlits-
aðilum okkar um að við séum að gera eitt-
hvað rangt“. PFS hefur gert margvíslegar
athugasemdir við bókhald og fjárhagsleg-
an aðskilnað. Samkeppniseftirlitið hefur
beitt bráðabirgðaákvörðunum, hótað dag-
sektum og sent félaginu andmælaskjal,
þar sem kemur skýrt fram að stofnunin
telji samkeppnisbrot hafa átt sér stað.
Forstjórinn heldur því síðan fram að
sáttameðferðin, sem ÍSP hefur undirgeng-
izt hjá samkeppnisyfirvöldum, feli ekki
í sér að nein samkeppnisbrot hafi verið
framin, heldur sé „tilraun til að skýra
málin“. Sáttameðferð samkvæmt 17. grein
f. í samkeppnislögum hefst hins vegar
ekki nema talið sé að samkeppnisbrot hafi
átt sér stað og viðkomandi fyrirtæki sam-
þykki að undirgangast sátt.
Loks uppástendur forstjórinn að
Íslands póstur eigi í raun enga keppinauta:
„Það er hægt að segja við fólk að við séum
á kafi í samkeppni en það er bara enginn
sem við erum að keppa við.“ Það er ákaf-
lega hæpið að keppinautar Íslandspósts,
til dæmis í prentþjónustu, gagnageymslu,
flutningsmiðlun, sendibílaþjónustu eða
póstdreifingu, skrifi upp á að þeir séu
ekki til.
Hér er ástæða til að ítreka spurninguna
úr fyrri grein: Á löggjafinn að láta ríkis-
fyrirtæki ganga þannig laust eins og fíl í
postulínsbúð, í ósanngjarnri samkeppni
við einkafyrirtæki? Alveg sérstaklega
þegar æðsti stjórnandi þess er haldinn
svona alvarlegum misskilningi um að
hann hafi ekkert gert af sér?
Misskilningur í postulínsbúðinni
SAMKEPPNI
Ólafur
Stephensen
framkvæmdastjóri
Félags atvinnu-
rekenda
R
æða Benjamíns Netanjahú, forsætisráðherra Ísraels,
í öldungadeild Bandaríkjaþings í fyrradag endur-
speglar stefnu sem heimsbyggðin hefur mátt horfa
upp á áratugum saman af hendi lands hans. Böðlast
skal áfram með ófriði, hvað sem tautar og raular.
Í ræðunni fann Netanjahú allt til foráttu viðræðum sem langt
eru komnar um kjarnorkuáætlun Írans. Hann hefur raunar
í nærri tvo áratugi haft uppi dómsdagsspár um yfirvofandi
kjarnorkuvopnaógn sem af
Íran stafi, án þess að þar hafi
nokkuð gengið eftir. Hann
sagði áætlunina (sem enginn
veit enn hvernig lítur út) ógna
heimsbyggðinni allri. Viðhorf
hans hafa mætt heilmikilli
gagnrýni á heimsvísu, enda
ljóst að samningur og eftirlit
í Íran hlýtur fremur að vera steinn í götu þróunar kjarnorku-
vopna þar en að flýta fyrir henni. Þannig hefur Obama Banda-
ríkjaforseti bent á að ekkert nýtt hafi komið fram í ræðunni og
engar lausnir þar að finna.
Einhver kynni líka að segja að forsætisráðherra Ísraels sé
glöggur á flísina í auga náungans, en blindur á bjálkann í eigin
auga. Í það minnsta var ekki að trufla hann feluleikur Ísraels
með eigin kjarnorkuvopn, stríðsglæpir og ofbeldi í garð Pal-
estínuaraba og ólögleg landtaka með margítrekuðum brotum á
alþjóðasamþykktum og -lögum. Eins kynni líka einhverjum að
þykja holur hljómur í herkvaðningu Netanjahús gegn hryðju-
verkum, verandi ráðherra ríkis sem á rót stofnunar sinnar í
hryðjuverkum og ofbeldisverkum í garð Breta sem áður fóru
með landstjórn í Palestínu.
Bandaríkjamönnum til hróss má segja að heimsókn
Netanjahús í öldungadeildina var ekki óumdeild. Tugir þing-
manna voru fjarverandi, flestir demókratar, auk sjálfs forseta
Bandaríkjanna, Baracks Obama. Aðstoðarmenn þingmanna
voru hvattir til að fylla auð sæti til þess að forsætisráðherrann
þyrfti ekki að hafa hálftóman salinn fyrir augunum. Frekar
pínlegt.
Uppistand Netanjahús á Bandaríkjaþingi er hins vegar
ástæða til að bregða ljósi á að nú, hálfu ári eftir svívirðilega
árásahrinu Ísraels á óbreytta borgara á Gasa sem lauk með
vopnahléi í september í fyrra, hefur uppbygging á svæðinu
ekki komist af stað á ný svo neinu nemi og herkví Ísraels
um Gasa með öllum sínum takmörkunum enn við lýði. Rifja
má upp, líkt og gert er í nýrri umfjöllun hjálparsamtakanna
Oxfam, að yfir hundrað þúsund heimili Palestínumanna voru
eyðilögð í árásunum.
Væntanlega er Netanjahú ljóst að ræða hans á Bandaríkja-
þingi kemur ekki til með að skipta nokkru máli varðandi nýjan
fjölþjóðasamning við Íran um kjarnorkueftirlit, né heldur hafa
áhrif á stuðning Bandaríkjanna við Ísrael. Herská ræða hans
er til heimabrúks í komandi þingkosningum í Ísrael, sem fram
fara eftir um hálfan mánuð. Óskandi er að herskáir ofbeldis-
menn zíonismans, á borð við Benjamín Netanjahú, beri skarðan
hlut frá borði í þessum kosningum og til valda komist skynsamt
fólk sem getur látið af ofbeldi og ofríki í garð nágranna sinna í
Palestínu. En líkast til er það langsótt.
Netanjahú er blindur á bjálkann í eigin auga:
Til heimabrúks
Óli Kristján
Ármannsson
olikr@frettabladid.is
Barnsleg og einlæg sjálfumgleði
Ekki skal það selt dýrara verði en látið
var fyrir í upphafi kaupferils, en sú
saga gengur fjöllunum hærra að RÚV
hafi opnað nýjan vef í vikunni. Það
er alltaf gaman og fallegt að fylgjast
með fólki sem er ánægt með eigin
störf, til eru þeir sem enn tala um
handrið sem þeir smíðuðu og settu
upp fyrir tuttugu árum og sjá má á
göngustígum borgarinnar. Barnsleg
gleði yfir eigin verkum er einmitt það,
barnsleg– og börn eru krútt.
Daginn sem vefurinn var
opnaður mátti heyra nýmiðl-
astjóra RÚV útlista kosti nýju
síðunnar í morgunfréttum,
öðrum morgunfréttum,
Morgunútgáfunni og
Virkum morgnum
(já, morgundagskrá
RÚV leggur áherslu á morgnana í
þáttaheitum) og svo var hann kynntur
til sögunnar í hádegisfréttum. Um
dagskrá nýmiðlastjórans eftir hádegi
er ekki vitað, þar sem almenn störf
trufluðu hlustun þess er hér ritar.
Til hamingju Ísland
Fáir glöddust jafn mikið og Elísabet
Ólafsdóttir, samskiptafrömuður RÚV.
RÚV óskaði þjóðinni til hamingju
með RÚV á Facebook-síðu RÚV með
orðunum: „Til hamingju Ísland!“ En
að allt öðru. Einu sinni var stjórn-
málamaður í Bandaríkjunum sem
heitir Al Gore. Hann álpaðist til þess
að láta sem hann hefði átt mikinn
þátt í umbyltingu internetsins,
en uppskar ekkert nema
hlátur og hæðnisglott.
Hættum þessu spéi
Össur Skarphéðinsson er ekki vanur
að liggja á skoðunum sínum. Hann
ræddi á þingi í gær eitt af hjartans
málum sínum, vöxt og viðgang
lífríkisins í Þingvallavatni, en þó
sérstaklega urriðans. Og svo virtist
sem Össuri leiddist karp samþings-
manna sinna um ómerkilega hluti,
að minnsta kosti hóf hann mál sitt
á þessum orðum: „Herra forseti.
Það er sannarlega tímabært
að Alþingi taki upp alvöru
mál.“ Skemmtilega
einlæg opnun á hjartans
mál þingmannsins.
kolbeinn@frettabladid.is
0
4
-0
3
-2
0
1
5
2
2
:1
0
F
B
0
5
6
s
_
P
0
3
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
3
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
2
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
2
5
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
4
0
4
-7
E
4
C
1
4
0
4
-7
D
1
0
1
4
0
4
-7
B
D
4
1
4
0
4
-7
A
9
8
2
8
0
X
4
0
0
6
B
F
B
0
5
6
s
C
M
Y
K