Fréttablaðið


Fréttablaðið - 17.03.2015, Qupperneq 2

Fréttablaðið - 17.03.2015, Qupperneq 2
17. mars 2015 ÞRIÐJUDAGUR| FRÉTTIR | 2 SPURNING DAGSINS H V ÍT A H Ú S IÐ /S ÍA Dásamlegur á brauðið og hentugur fyrir heimilið Engin fyrirhöfn ms.is TILBOÐ25 sneiðar ÍRAK Kúrdar í norðanverðu Írak minntust þess í gær að 27 ár voru liðin frá fjöldamorðunum í borginni Halabja. Allt að fimm þúsund manns létu þar lífið þegar liðsmenn Saddams Hussein gerðu árás með eiturvopnum á íbúa borgarinnar. Þúsundir manna til viðbótar létu lífið á næstu árum af völdum margvíslegra veikinda sem stöfuðu af eiturefnunum. Þetta gerðist á síðustu vikum stríðsins milli Íraks og Írans. Íranar og Kúrdar höfðu nýverið náð Halabja úr höndum liðsmanna Saddams, en árásin varð til þess að Saddam náði bænum aftur á sitt vald. - gb Írakar minntust í gær eiturefnaárása Saddams á Halabja: Þúsundir myrtar með eiturgasi FJÖLDAMORÐA MINNST Leikarar í Erbil, höfuðstað Kúrdahéraðanna í Írak, flytja sýningu um fjöldamorðin í Halabja árið 1988, þegar fimm þúsund létu lífið. NORDICPHOTOS/AFP HEILBRIGÐISMÁL Sala á íbúprófen- lyfjum er töluvert meiri hér en í nágrannalöndum okkar, auk þess sem hærra hlutfall er selt hér í lausasölu, samkvæmt athugun- um Lyfjastofnunar. Alls voru 3.690.624 dagskammtar seld- ir af lyfjnum á einu ári. Rúna Hauksdóttir Hvannberg, for- stjóri Lyfjastofnunar, segir þörf á að að finna orsökina. Karl Andersen, prófessor í hjartalækningum, segir að á hverju ári fái fólk hjartabilun af notkun lyfjanna. Þau séu vara- söm hjartveiku fólki þótt þau gagnist fjölda fólks við bólg- um og verkjum. Bæði taka þau fram að mikilvægt sé að fylgja leiðbeiningum hvað varðar skammtastærðir. „Veruleg aukning er á notk- un lyfja og ef notkun er meiri hér en í öðrum löndum er alltaf ástæða til þess að finna orsök- ina. Hugsanlega getur það verið áhyggjuefni,“ segir Rúna og segir alvarlegustu meinin tengd meltingarfærum og yfirleitt skammtaháð. „Algengustu meintilvikin eru tengd meltingarfærum. Maga- sár, blæðingar eða sáramynd- un í meltingarvegi, sem geta verið banvæn, sérstaklega hjá öldruðum. Ógleði, uppköst, nið- urgangur, uppþemba, harðlífi, meltingartruflanir, kviðverk- ir, tjörukenndar hægðir, blóðug uppköst, sáramunnbólga, versn- andi ristilbólga og Crohns-sjúk- dómur hafa komið fram. Sjaldn- ar hafa tilfelli magabólgu komið fram,“ segir Rúna. „Við alvarlegri eitrun sjást eitrunaráhrif á miðtaugakerfi, sem koma fram í sleni, stundum æsingi og áttavillu eða dái. Fyrir kemur að sjúklingar fái krampa. Börn geta einnig fengið vöðva- krampa,“ segir hún. Karl Andersen, prófessor í hjartalækningum, segir þá sem glíma við hjartveiki af ýmsu tagi þurfa að hafa varann á. „Almennt má segja um Íbúfen og gigtarlyf almennt að maður á að nota þau varlega. Þau virka vel á ýmsa verki, bólgur og tilfall- andi vandamál en ef fólk hefur óheftan aðgang að þeim og notar þau óspart þá getur það valdið vandamálum. Notkunin getur valdið aukinni vökvasöfnun, hjartabilun og nýrnabilun, sér í lagi hjá hjartveikum. Þó að þau séu seld án lyfseðils í 250 gramma töflum þá er enginn vandi að taka fleiri töflur. Þessi lyf eru hugsuð í skammtíma- notkun og það eru alls ekki allir sem þola þessi lyf,“ bendir Karl á. „Það kemur fyrir á hverju ári að fólk fær aukna hjartabilun af þessum lyfjum.“ kristjanabjorg@frettabladid.is Lausasölulyf geta verið hættuleg Þó að kaupa megi lausasölulyf án lyfseðils eru þau ekki skaðlaus. Hér á landi er selt meira af bólgueyðandi lyfjum en í nágrannalöndum okkar. Á hverju ári eru dæmi um slæm áhrif lyfjanna á hjartveika og vandamál tengd meltingarvegi. SELDIR DAGSKAMMTAR LYFJA Á ÍSLANDI árið 2014 eftir lyfjaflokkum Segavarnarlyf Bólgueyðandi lyf Lyf gegn nikótínfíkn Verkjalyf og hitalækkandi lyf Lyf við nefstíflu Ofnæmislyf Lyf við sýrutengdum sjúkdómum 7.791.000 3.690.624 2.452.179 1.861.706 1.482.913 1.462.330 1.020.726 Þau virka vel á ýmsa verki, bólgur og tilfallandi vandamál en ef fólk hefur óheftan aðgang að þeim og notar þau óspart þá getur það valdið vanda- málum. Karl Andersen, prófessor í hjartalækningum Þórunn, eiga vasapeningar ekki bara við um börn? „Jú, en greinilega verður gamall maður tvisvar sinnum barn.“ Félag eldri borgara hefur gagnrýnt lengi það fyrirkomulag á öldrunarheimilum landsins að skammta vistmönnum lífeyri sinn. Þórunn er formaður Félags eldri borgara. NEYTENDAMÁL Alls hafa 1.900 bif- reiðar á landinu verið innkall- aðar af framleiðendum frá ára- mótum í alls 15 innköllunum. Er þessi fjöldi óvenju mikill að mati Neytendastofu. Fjöldi innkall- aðra bifreiða hefur vaxið síðustu ár en tímabilið frá áramótum slær öllu við. Ekki er þó um það að ræða að gallar í bifreiðum séu að verða algengari en tíðkast hefur. Guð- rún Lárusdóttir, gæðastjóri stjórnsýslusviðs Neytendastofu, segir neytendur nú í auknum mæli njóta vafans ef líkur á göll- um er annars vegar. „Framleið- endur eru varari um sig en áður. Við höfum ekki séð viðlíka fjölda innkallaðra bifreiða áður, en það er alveg ljóst að tilkynningum hefur farið fjölgandi undanfarin ár,“ segir Guðrún. Þetta þýði í raun að mati Guð- rúnar að fyrirbyggjandi aðgerðir sem þessar komi neytendum vel. „Í sjálfu sér er þetta mjög gott mál fyrir neytendur því þarna er gripið inn í áður en slys gerast eða bifreiðar verði fyrir frekari tjóni af völdum galla.“ Neytendastofa heldur skrá yfir tilkynningar af þessu tagi. Stofn- unin sjálf hefur aðeins einu sinni á síðustu árum óskað eftir inn- köllun bifreiða. Ef upp kemur um líklega galla í bifreiðum er eigendum þeirra mjög fljótt tilkynnt um það og þeim boðið að koma bílunum til viðgerðar sér að kostnaðarlausu. - sa Fjöldi innkallaðra bifreiða á landinu frá áramótum slær öll met. Neytendastofa fylgist með gangi mála: 1.900 bifreiðar innkallaðar frá áramótum ÖRYGGIÐ KANNAÐ Gripið er inn í áður en slys eiga sér stað eða bílar verði fyrir frekara tjóni. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA ÍSRAEL Kosningabaráttan í Ísrael hefur ekki snú- ist um Palestínudeiluna nema að mjög óverulegu leyti. Ekki er að sjá að mikil stefnubreyting verði gagnvart Palestínu þótt stjórnarskipti verði. Efnahagsmálin virðast frekar skipta kjósendur máli, ekki síst húsnæðismálin. Kosningaþátttak- an árið 2013 var ekki nema 67 prósent, sem þykir lítið miðað við það sem almennt hefur tíðkast í ísraelskum kosningum. Stjórnmálaskýrendur spá því að hún verði aftur með dræmara móti. Likud-flokki Benjamíns Netanjahú forsætis- ráðherra er spáð 20 til 23 þingsætum á 120 manna þjóðþingi Ísraels. Síonistabandalagi þeirra Isaacs Herzog og Tzipis Livni er spáð 24 til 26 þingsæt- um. Þótt Síonistabandalaginu sé spáð fleiri þing- mönnum þyrftu liðsmenn þess, ekki síður en liðs- menn Likud-flokksins, vel á fjórða tug þingmanna úr öðrum flokkum til að geta myndað stjórn. Ísraelar ganga að kjörborðinu í dag. Alls er ell- efu flokkum og flokkabandalögum spáð mönnum á þing. - gb Ísraelskir kjósendur virðast hafa minnstan áhuga á Palestínudeilunni: Efnahagsmálin ráða úrslitum ISAAC HERZOG Takist Natanjahú ekki að mynda stjórn tekur Herzog væntanlega við, en hann er leiðtogi Verkamanna- flokksins sem genginn er í Síonistabandalagið með Tsipi Livni. FRÉTTABLAÐIÐ/EPA SAMGÖNGUR Bæjarstjórn Seyðis- fjarðar segist leggja þunga áherslu á að við gerð samgönguáætlunar til fjögurra ára verði gert ráð fyrir að rannsóknum vegna Seyðisfjarð- arganga verði lokið á fyrsta ári. „Full samstaða er um fram- kvæmdina af hálfu sveitarfélaga á Austurlandi samanber ályktun frá síðasta aðalfundi Sambands sveit- arfélaga á Austurlandi sem hald- inn var á liðnu hausti. Bæjarstjórn- in skorar á innanríkisráðherra, samgönguráð og vegamálastjóra að beita sér fyrir því að svo verði,“ segir bæjarstjórnin. - gar Segja samstöðu á Austurlandi: Vilja göng til sín í forgang BANDARÍKIN Milljónamæringur- inn Robert Durst var handtekinn í New Orleans um helgina. Honum er gefið að sök að hafa myrt þrjár manneskjur, eiginkonu sína, fjöl- skylduvin og nágranna, á árunum 1982 til 2001. Durst hafði gleymt að taka af sér þráðlausan hljóðnema við upp- tökur á heimildarmynd um líf hans og heyrðist í einrúmi játa á sig glæpina. Hann hefur áður mætt fyrir dómstóla vegna morðsins á nágranna hans, Morris Black, en var sýknaður á grundvelli sjálfs- varnar. - srs Auðkýfingur fyrir dóm: Játaði óvart á sig manndráp 1 6 -0 3 -2 0 1 5 2 1 :3 6 F B 0 5 6 s _ P 0 5 5 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 0 2 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 4 2 5 -C 9 A 8 1 4 2 5 -C 8 6 C 1 4 2 5 -C 7 3 0 1 4 2 5 -C 5 F 4 2 8 0 X 4 0 0 1 B F B 0 5 6 s C M Y K

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.