Fréttablaðið - 17.03.2015, Síða 10
17. mars 2015 ÞRIÐJUDAGUR| FRÉTTIR | 10
Suðurlandsbraut 20, Reykjavík | Sími 588 0200 | www.eirvik.is
Elica háfar
Framkvæmd EES-samningsins á
Íslandi: Alvarlegt ástand
Sverrir Haukur Gunnlaugsson er fyrrverandi
ráðuneytis stjóri utanríkisráðuneytisins og fyrrverandi
stjórnarmaður í Eftirlitsstofnun EFTA.
Pallborðsumræður með fulltrúum stjórnmálaflokka:
Árni Páll Árnason, formaður Samfylkingarinnar
Bjarni Benediktsson, fjármálaráðherra og formaður Sjálfstæðisflokksins
Birgitta Jónsdóttir, kafteinn Pírata
Frosti Sigurjónsson, formaður efnahags- og viðskiptanefndar Alþingis
og þingmaður Framsóknarflokksins
Guðmundur Steingrímsson, formaður Bjartrar framtíðar
Katrín Jakobsdóttir, formaður Vinstri hreyfingarinnar – græns framboðs
Fundarstjóri: Ólafur Þ. Harðarson, prófessor í stjórnmálafræði við HÍ.
Sverrir Haukur
Gunnlaugsson
Opinn fundur á vegum Alþjóðamálastofnunar Háskóla Íslands
í samstarfi við Evrópustofu
MIÐVIKUDAGINN 18. MARS KL. 12.00-13.30
Í HÁTÍÐARSAL HÁSKÓLA ÍSLANDS
EVRÓPUMÁL
Staða og horfur
EES-samningsins
www.ams.hi.is og www.evropustofa.is
Education and Culture
Lifelong Learning Programme
JEAN MONNET
SAMFÉLAGSMÁL Íbúum Reykja-
víkur fjölgaði um 592 á síðasta
ári sem er fjölgun um 0,5 pró-
sent. Fjölgaði hlutfallslega meira
í fjörutíu sveitarfélögum landsins
en í Reykjavík. Mest fækkun var
í Djúpavogshreppi en þar fækk-
aði íbúum um ríflega tíu prósent
á einu ári.
Þetta kemur fram í nýjum tölum
Hagstofunnar um íbúafjölda í
sveitarfélögum landsins þann
1. janúar 2015. Í ársbyrjun voru
landsmenn 329.100 talsins og hafði
fjölgað um 3.429 frá sama tíma í
fyrra. Fjölgun landsmanna er því
um eitt prósent.
Í þremur stærstu sveitarfé-
lögum landsins, Reykjavík, Kópa-
vogi og Hafnarfirði, fjölgar íbúum
samanlagt um 2.007. Í Kópavogi
fjölgaði íbúum hlutfallslega um
2,8 prósent en í Hafnarfirði um
1,9 prósent.
Ef svæði eru skoðuð í heild sést
að Vestfirðir standa í stað, örlítil
fækkun er á Austurlandi en fækk-
un á Norðurlandi vestra. Hin svæð-
in standa vel að vígi og fjölgun er
á landsbyggðunum í heild sinni.
Hins vegar, þegar sveitarfélög eru
skoðuð, kemur í ljós að fækkun er
umtalsverð á sumum svæðum.
„Það vekur athygli í þessum
tölum að íbúum sveitarfélaga í
námunda við sterka kjarna fjölg-
ar umtalsvert. Íbúum nágranna-
sveitarfélaga Reykjavíkur fjölg-
ar meira en íbúum í Reykjavík.
Með sama hætti fjölgar meira í
nágrannasveitarfélögum Akur-
eyrar en Akureyringum,“ segir
Þóroddur Bjarnason, formaður
stjórnar Byggðastofnunar. „Þetta
á sér ýmsar skýringar en hækk-
andi fasteignaverð hefur eflaust
talsverð áhrif.“
Á suðvesturhorni landsins fjölg-
ar íbúum talsvert á Reykjanesi, í
Reykjanesbæ og Grindavík, en
einnig í Árborg
og Hveragerði
austan Hellis-
heiðar. „Fólki
fjölgar líka á
svæðum utan
áhrifasvæða
þéttbýlisstaða.
Þ a ð v e k u r
athygli að þau
átta sveitarfélög
þar sem fólksfjölgun er mest eru
fámennir hreppar víðsvegar um
landið,“ segir Þóroddur.
Athygli vekur að langmesta
fækkunin er í Djúpavogshreppi
þar sem íbúum fækkar um ríf-
lega tíu prósent á einu ári. „Árið
í fyrra var afar erfitt fyrir Djúpa-
vog og flutningur Vísis til Grinda-
víkur kostaði sveitarfélagið tíund
íbúafjöldans. Það er mikilvægt að
byggðarlagið nái viðspyrnu strax,“
segir Þóroddur. „Sem betur fer er
ástandið á Djúpavogi ekki dæmi-
gert fyrir landsbyggðirnar sem
eru margar í sókn.“
sveinn@frettabladid.is
Fjölgar í 45 sveitar-
félögum landsins
Landsmönnum fjölgaði um tæplega 3.500 í fyrra, eða um eitt prósent. Níu sveitar-
félög með yfir 5 prósenta fjölgun íbúa. Langmesta fækkunin í Djúpavogshreppi.
Stærsta breyting í atvinnumálum á Djúpavogi er flutningur Vísis til Grindavíkur.
GLEÐI Á 17. JÚNÍ Landsmönnum fjölgaði um tæplega 3.500 í fyrra. Mikil fjölgun
varð á sunnanverðum Vestfjörðum. FRÉTTABLAÐIÐ/DANÍEL
ÞÓRODDUR
BJARNASON
Sveitarfélag 2014 2015 Hlutfall
Reykjavík 121.230 121.822 0.49%
Kópavogur 32.308 33.205 2.78%
Hafnarfjörður 27.357 27.875 1.89%
Akureyri 18.103 18.191 0.49%
Reykjanesbær 14.527 14.924 2.73%
Garðabær 14.180 14.453 1.93%
Mosfellsbær 9.075 9.300 2.48%
Sveitarfélagið Árborg 7.889 8.052 2.07%
Akranes 6.699 6.767 1.02%
Fjarðabyggð 4.675 4.747 1.54%
➜ Tíu stærstu sveitarfélögin, fjöldi 2014, fjöldi
2015 og hlutfallsleg breyting milli ára
DÓMSTÓLAR Karlmaður sem hand-
tekinn var á Höfn í Hornafirði
á sunnudagskvöld vegna alvar-
legs heimilisofbeldis hefur verið
úrskurðaður í gæsluvarðhald fram
á fimmtudag. Úrskurðurinn var
kveðinn upp í Héraðsdómi Suður-
lands í gær, eftir nokkurra klukku-
stunda umþóttunartíma dómara.
Lögregla vildi í gær ekki veita
nánari upplýsingar að svo komnu
máli og er fréttastofu ekki kunn-
ugt um líðan þolanda ofbeldisins.
- gs
Grunaður um ofbeldisverk:
Í gæsluvarðhald
til fimmtudags
IÐNAÐUR Kjósarhreppur hyggst
ekki vera með í samstarfi sveit-
arfélaga í Grundartanga Þróun-
arfélagi ehf.
„Samkvæmt þessum drögum
að hluthafasamkomulagi verða
helstu viðfangsefni félagsins
meðal annars að vinna að stofn-
un iðnaðar- og framleiðsluklasa á
Grundartangasvæðinu og greiða
fyrir uppbyggingu, vinna að
stofnun þróunarseturs í málm-
iðnaði og málmtækni og greiða
fyrir uppbyggingu atvinnufyrir-
tækja á svæðinu,“ segir í bókun
sveitar stjórnar Kjósarhrepps.
Þegar oddviti hreppsins hafi
skrifaði undir viljayfirlýsingu
um samstarfsvettvang á Grund-
artanga í lok nóvember 2014 hafi
hún snúist um umhverfismál og
mótun framtíðarsýnar um svæð-
ið.
Hvalfjarðarsveit, Akranes,
Reykjavík, Faxaflóahafnir, Borg-
arbyggð og Skorradalshrepp-
ur auk Kjósarhrepps áttu sam-
kvæmt núverandi drögum að eiga
jafnan hlut í félaginu. Fyrst töldu
þrír aðilarnir áttu að eiga hver
sinn stjórnarfulltrúa en síðast-
nefndu sveitarfélögin þrjú aðeins
einn sameiginlegan fulltrúa. Það
fella Kjósverjar sig ekki við og
ekki heldur stefnu félagins.
„Kjósarhreppur hefur ekki
talið það vera fyrir hagsmuni
íbúa og atvinnurekstrar í sveit-
arfélaginu að stuðla að frekari
uppbyggingu á stóriðju á Grund-
artanga í Hvalfirði,“ segir sveit-
arstjórnin. - gar
Sveitarstjórn Kjósarhrepps dregur sig út úr samstarfi um þróunarfélag á Grundartanga:
Kjósverjar hafna frekari stóriðju í Hvalfirði
GRUNDARTANGI Ekki hagsmunir íbúa
í Kjósarhreppir að stuðla að meiri stór-
iðju á Grundartanga. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
STJÓRNMÁL Lögregla var með við-
búnað vegna mótmæla sem boðað
var til á Facebook „gegn valdníðslu
stjórnvalda“ við Alþingishúsið síð-
degis í gær. Um 300 manns mættu.
Um var að ræða þriðja mótmæla-
fundinn síðan utanríkisráðherra
sendi ráðamönnum umdeilt bréf
um viðræðuslit við ESB. Matthías
Freyr Matthíasson, einn aðstand-
enda mótmælanna, segir að hann
og félagar hans hafi fengið hug-
myndina fyrir helgi og mótmælin
því ekki á vegum neinna samtaka.
„Fyrir mér er þetta tvíþætt. við
erum að mótmæla brotum á kosn-
ingaloforðum. Formenn stjórnar-
flokkanna lofuðu því fyrir síðustu
alþingiskosningar að kosið yrði um
framhald aðildarviðræðna,“ segir
Matthías. „Í öðru lagi erum við að
mótmæla bréfi utanríkisráðherra
til ESB. Utanríkisráðherra veit
að hann getur ekki afgreitt málið
á þinginu og fer þá bara fram hjá
því. Þetta er ekkert nema hroki og
yfirlæti og það skilur enginn neitt
í þessu bréfi.“
Nálægt átta þúsund manns
mættu síðastliðinn sunnudag á
mótmæli á vegum hópsins Vor14.
Á þeim fundi var skorað á þing-
menn að standa vörð um þingræðið
í landinu og afsagnar ríkisstjórnar-
innar krafist.
- srs
Um 300 manns mættu á mótmæli gegn bréfaskrifum utanríkisráðherra:
Mótmæla yfirgangi stjórnvalda
GEFUR YFIRVÖLDUM FINGURINN
Mótmælin að þessu sinni voru sjálf-
sprottin. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
1
6
-0
3
-2
0
1
5
2
1
:3
6
F
B
0
5
6
s
_
P
0
5
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
4
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
0
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
1
0
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
4
2
5
-D
8
7
8
1
4
2
5
-D
7
3
C
1
4
2
5
-D
6
0
0
1
4
2
5
-D
4
C
4
2
8
0
X
4
0
0
3
A
F
B
0
5
6
s
C
M
Y
K