Fréttablaðið - 17.03.2015, Síða 16

Fréttablaðið - 17.03.2015, Síða 16
17. mars 2015 ÞRIÐJUDAGUR| SKOÐUN | 16 Liggurðu á skoðunum þínum? Það er algjör óþarfi . Sendu greinina þína á greinar@visir.is og við komum henni á framfæri hið snarasta. Pistlahöfundur Frétta- blaðsins, Sif Sigmarsdótt- ir rithöfundur, skrifar mikinn vandlætingar- pistil um framgöngu mína í deilum um áfeng- isfrumvarpið á þingi, síð- astliðinn föstudag. Sif leggur út af grein sem ég skrifaði nýlega í Fréttablaðið þar sem ég sagði að gríðarlegir hagsmunir væru í húfi fyrir stóru verslanakeðjurnar að fá áfengi í búðarhillur sínar og væri nöturlegt til þess að hugsa að hópur alþingismanna væri „reiðubúinn að ganga erinda þessara hagsmuna“. Hugmyndafræði og hagsmunir Rithöfundurinn segir að ég láti ekki sitja við það eitt að fara ásakandi orðum um það sem hún kallar „frelsis-elskandi þing- menn“ heldur sé ég að væna þá um „að leggja fram frumvörp svo einhver fyrirtæki úti í bæ geti grætt meiri pening“. Þannig kemst hún að orði. Hinn mögu- leikinn sé sá, segir hún, að ég sé að gera því skóna að þingmenn stjórnist gagnrýnislaust af hug- myndafræði. Skilja má á skrif- um Sifjar Sigmarsdóttur að mér sé minna gefið um að fjalla um sjálft áfengisfrumvarpið, en þeim mun meira leggi ég upp úr að gera mönnnum upp annarlegar hvatir fyrir stuðningi við það: Grein mín segi lítið „um áfengisfrumvarpið en allt um ástæður þess hvers vegna fólk þolir ekki stjórnmálamenn“. Og niðurstaða Sifjar er í spurnarformi: „Af grein Ögmundar leiðir: Annaðhvort eru stjórnmálamenn upp til hópa spillt, heimskt pakk. Eða: Stjórn- málamenn, eins og Ögmundur, láta sig sannleikann engu varða svo lengi sem ýkjurnar þjóna málstaðnum. Hvorugur veruleik- inn varpar sérlega jákvæðu ljósi á hina íslensku stjórnmálastétt. Er furða að hún sé óvinsæl?“ Nú er það svo að á Alþingi erum við kosin vegna þess að við viljum vinna ákveðnum mál- stað gagn og þess vegna ganga erinda hans. Ég hef aldrei farið dult með að ég hef viljað láta kjósa mig á þeirri forsendu að ég muni reyna að standa vörð um hagsmuni almenns launafólks, velferðarþjónustunnar, gegn einkahagsmunum sem ásæl- ast hana í fjárgróðaskyni, með náttúrunni, gegn stóriðju, gegn hernaðarhagsmunum stórvelda, með útgöngu Íslands úr NATO, gegn alþjóðasamningum á for- sendum auðvaldshagsmuna, svo sem TiSA-samningnum, með lýð- heilsusjónarmiðum og gegn því að ÁTVR verði lagt niður! Allt hefur þetta verið skýrt í mínum málflutningi og með sanni má færa fyrir því rök að ég „gangi erinda“ framangreindra hags- muna. Ekki myndi ég gera athugasemd við það. Að þjóna hagsmunum Alls ekki vil ég þó snúa út úr orðum Sifjar Sigmarsdóttur og hún hefur það til sín máls þegar hún gagnrýnir skrif mín að hug- takið að „ganga erinda“ hefur neikvæðari merkingu í mál- vitund okkar flestra en mætti skilja af framangreindum orðum mínum. Það skal tekið fram að sú var ekki hugsun mín að ætla neinum að ganga erinda ann- arra sem mútuþegi heldur hitt að benda á að gjörðir viðkom- andi þjóni tilteknum hagsmun- um. Ekki efa ég að það sé gert í þeirri trú að slíkt horfi til fram- fara. Það er rangt að ég hafi í umræddri grein verið meira upptekinn af því að gera mönn- um upp skoðanir en að ræða efnisinnihald frumvarpsins eins og Sif Sigmarsdóttir fullyrðir. Árum saman hef ég skrifað um þessi mál í blöð og komið fram í fjölmiðlum þar sem ég hef reynt að færa málefnaleg rök fyrir afstöðu minni sem aftur eru grunduð á rannsóknum og athug- unum þeirra sem best þekkja til þessara mála. Málefnaleg rök Í Fréttablaðsgreininni sem verður Sif Sigmarsdóttur til- efni til fordæmingarskrifa sinna tek ég saman niðurstöður í fáum setningum: „Ljóst er að breytt sölufyrirkomulag myndi leiða til kostnaðarsamari dreif- ingar og þar með hærra vöru- verðs og skal því hér haldið til haga að álagning ÁTVR er lág en ekki há. Hátt verð á áfengi er hins vegar vegna skatta álaga ríkisins, óháð söluaðila. Við afnám ÁTVR myndi og draga úr vöruúrvali, einkum í smáum verslunum á landsbyggðinni, en ÁTVR tryggir að lágmarki 150 til 190 tegundir á jafnvel smæstu sölustöðum. Það er von að menn beini spurningum til flutnings- manna áfengisfrumvarpsins á þingi og vilji vita í þágu hverra þeir starfi þar sem þeir leggja til breytingar á kostnað heil- brigðissjónarmiða; breytingar sem hefðu í för með sér tap fyrir ríkissjóð og þar með skattgreið- endur þessa lands, minna úrval og hærra verð! Og síðast en alls ekki síst, hvernig er hægt að réttlæta það að hunsa ráðlegg- ingar og ákall nánast allra for- varnar- og ungmennasamtaka, Alþjóðaheilbrigðisstofnunar- innar, Landlæknisembættisins að ógleymdri ríkisstjórn Íslands sem samþykkt hefur forvarnar- stefnu sem hafnar markmiðum frumvarpsins?!“ Um alla þessa þætti hef ég fjallað ítarlega og málefnalega. Hagsmunabarátta á Alþingi Erfiðum tíma á sjúkra- húsi og í endurhæfingu er lokið. Sá slasaði hlakkar til að takast á við venju- legt líf að nýju. Smám saman hrannast upp erf- iðleikar. Líkaminn er í lagi, en tilveran er orðin mikið erfiðari, hlutirnir ganga ekki upp heima eða í vinnunni, fjölskyldan sér breyttan einstakling og vinirnir framtaksleysi og skort á áhuga. Einstaklingurinn reyn- ist óvinnufær, eða flosn- ar upp úr námi, en það sést engin fötlun utan frá. Framtaksleysi, eirðarleysi, skapsveiflur, skortur á athygli og gleymska eru algengar afleiðing- ar heilaskaða. Einnig skortur á innsæi í eigið ástand. Að ráða skyndilega ekki við þau verkefni sem áður reyndust einföld veldur andlegri vanlíðan sem sýnir sig í kvíða, þunglyndi og skapsveiflum, auk þess sem heilaskaðinn sjálfur getur orsakað þessi ein- kenni. Allir þessir þætt- ir geta valdið alvarleg- um röskunum í daglegu lífi. Margir einangrast félagslega, glíma við skert sjálfstraust og eiga í erf- iðleikum með nýja sjálfs- mynd við breyttar lífsað- stæður. Árlega þurfa 50-80 ein- staklingar á Íslandi sér- hæfða endurhæfingu vegna heilaskaða. Helstu ástæður eru umferðar- slys, föll og ofbeldis- áverkar. Einnig valda heilablóð- fall og sjúkdómar heilaskaða. Lítil úrræði eru í íslenska vel- ferðarkerfinu eftir að bráðameð- ferð lýkur. Það vantar stað sem býður upp á dagleg viðfangsefni sem hafa tilgang. Þar sem er tækifæri til að leita uppi hvað einstaklingur- inn er fær um að gera, þar sem hann getur upplifað að jafnvel lítið vinnuframlag hans skipti máli. Þar sem hann fær tækifæri til að byggja upp nýja jákvæða sjálfsmynd með nýja sýn á styrk- leika og kosti. Þörf fyrir Höfuðhús Hovedhuset í Danmörku og hug- myndafræði Club-House hreyf- ingarinnar er fyrirmynd. Þar kemur fólk og leggur af mörkum það sem það er fært um. Það er þörf fyrir vinnuframlagið, því launaðir starfsmenn eiga ekki að anna öllum störfum. Það þarf að svara í síma, vökva blóm, búa til mat og ganga frá. Skrifstofustörf af ýmsu tagi er hægt að brjóta niður í viðráðanleg verkefni. Tiltekt og fjölbreytt smáverk af ýmsu tagi. Tækifæri til að vinna að áhuga- máli eða námi með nauðsynlegum stuðningi. Hvert verk sem tekist er á við getur styrkt sjálfsmynd- ina: víst get ég dugað til einhvers. Hér er áherslan á að læra og eflast í gegnum vinnuna. Að gera sýnilegt það sem einstaklingur- inn getur gert og finna vannýtta hæfileika. Mikilvægast er að efl- ast skref fyrir skref og uppgötva styrkleika sína. Leggja áherslu á öll litlu verkin í stóra viðfangs- efninu og að deila þeim á þátttak- endur eftir áhuga og getu. Tilgangur klúbbhúsanna er að rjúfa félagslega einangrun og brúa bilið út í samfélagið á ný. Markmiðin eru að vera hluti af virku vinnusamfélagi, þróa hæfni og félagslega færni, að vera virk- ur og að eiga innihaldsríkt líf. Lykilorð eru jafnræði og valdefl- ing, að vera þátttakandi og ger- andi í eigin lífi. Með réttum stuðningi eykst fólki færni við að sinna við- fangsefnum sem skipta máli. Skuldbinding til að mæta reglu- lega og leggja sitt af mörkum til starfsemi staðarins er vel til þess fallin að styrkja raunsæj- ar hugmyndir um eigin getu og möguleika. Það hjálpar einstak- lingnum til aukins innsæis gagn- vart sjálfum sér og öðrum, eflir sjálfstraust og eykur trú hans á að hafa eitthvað fram að færa. Þannig aukast möguleikar hans á að verða virkur í samfélaginu á ný, í starfi eða námi, í fjölskyldu sinni og félagslífi. Ljóst er að örlítið félag eins og Hugarfar hefur lítið afl til að berjast fyrir þessari starfsemi. En von okkar er að þeir sem ráð- stafa opinberu fé sjái þá brýnu þörf sem er fyrir íslenskt Höfuð- hús. Lífi sem er bjargað verður að gefast tækifæri til að lifa ➜ Árlega þurfa 50-80 einstaklingar á Íslandi sér- hæfða endurhæfi ngu vegna heilaskaða. SAMFÉLAG Anna Soff ía Óskarsdóttir Í stjórn Fagráðs um heilaskaða og Hugarfars, félags fólks með ákominn heilaskaða, aðstand- enda og áhugafólks um málefnið. STJÓRNMÁL Ögmundur Jónasson alþingismaður ➜ Nú er það svo að á Alþingi erum við kosin vegna þess að við viljum vinna ákveðnum málstað gagn og þess vegna ganga erinda hans. Smellin taska Canvas leður bakpo Verð: 12.990 kr Frábær hljómur Urbanears Pla an Verð: 9.590 kr. Tónleikar heim í stofu Marshall Acton - tveir litir Verð: 49.990 kr. Verndaðu tölvuna þína! Walk on Water fartölvuumslag Verð: 1.790 kr. Traustur í útilegunni Jabra Solemate ferðahátalari Verð: 23.990 kr. Þráðlaus tenging við tónlistina Mini WE - bluetooth Verð: 7.895 kr. Fermingarpakkar slá í gegnsem 1 6 -0 3 -2 0 1 5 2 1 :3 6 F B 0 5 6 s _ P 0 4 1 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 4 0 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 1 6 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 1 7 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 4 2 5 -F B 0 8 1 4 2 5 -F 9 C C 1 4 2 5 -F 8 9 0 1 4 2 5 -F 7 5 4 2 8 0 X 4 0 0 6 B F B 0 5 6 s C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.