Fréttablaðið - 17.03.2015, Page 45

Fréttablaðið - 17.03.2015, Page 45
ÞRIÐJUDAGUR 17. mars 2015 | LÍFIÐ | 25 Sir Elton John er vægast sagt ævareiður út í Dolce&Gabbana og þykir að sér vegið eftir yfir- lýsingar fyrirtækisins í garð samkynhneigðra fjölskyldna. Elton sendi frá sér býsna harð- orðan fylgitexta með mynd af köppunum á Instagram í kjöl- farið. Þar hvatti hann fylgjendur sína til að sniðganga hönnunar- fyrirtækið. Stjörnur á borð við Victoru Beckham hafa tekið upp hanskann fyrir Elton og sömu- leiðis Courtney Love, sem hyggst brenna allar þær flíkur sem hún hefur eignast frá fyrirtækinu. Stjórnendur Dolce& Gabb- ana segja Elton hafa misskilið þá. Það hafi ekki verið ætlunin að dæma. Þeir séu einfaldlega fylgis menn tjáningarfrelsisins. Hvetur til að sniðganga Dolce& Gabbana FALLEG FJÖLSKYLDA Elton ásamt eiginmanni sínum Daniel Furnish og sonum þeirra. NORDICPHOTOS Hönnunartvíeykið Domenico Dolce og Stefano Gabbana settu heim ríkra og frægra á hliðina í gær. Ástæðan er ummæli sem þeir létu falla við ítalska tímaritið Panorama. Þar tjáðu þeir skoð- anir sínar á barneignum sam- kynhneigðra, sem þeir telja ekki eiga rétt á sér, hvort sem er í formi ættleiðinga eða glasa- frjóvgunar. Þeir bættu jafnframt við að eina fjölskyldumynstrið sem boðlegt væri sé samsett af konu og karli. Þessi yfirlýsing þykir sæta tíðindum, en þessir herra- menn eru samkynhneigðir og voru kærustupar í tuttugu og þrjú ár. Upp úr slitnaði árið 2005 svo samband þeirra er ein- ungis faglegs eðlis í dag. Dolce& Gabbana valda ólgu TVÍEYKIÐ Dolce og Gabbana héldu nýverið tískusýningu þar sem mæðrum var gert hátt undir höfði. NORDICPHOTOS Í vikunni verða send út eitt þús- und póstkort um land allt. Skilaboð kortanna eru skrifuð af hópi fólks á öllum aldri og munu berast inn um lúgur fólks um allt land. Verkefnið Hönd í hönd er liður í Evrópuviku sem Mannréttinda- stofa Íslands stendur fyrir. „Þessi skemmtilegu póstkort eru send handahófskennt vítt og breitt um landið á næstunni og er ætlað að vekja fólk til umhugsunar um kyn- þáttafordóma,“ segir Fríða Rós Valdimarsdóttir hjá Mannréttinda- stofunni. Evrópuvikan er fastur liður í starfi stofunnar og fer nú af stað í sjötta skiptið. „Í ár herjum við á kynþáttafordóma og er markmið okkar að kveða niður hatrið sem fyrirfinnst í Evrópu í dag. Við vilj- um jafnframt kalla á meira umburð- arlyndi. Samfélagið er að breytast í fjölmenningarsamfélag og við eigum að vera þakklát fyrir það,“ segir Fríða Rós. Vikan mun einkennast af vitund- arvakningunni, en í dag munu tutt- ugu og sex grunnskólar taka þátt og leiðast umhverfis skólann sinn. Fríða Rós segir umræðuna mikil- væga, en Mannréttindastofa fái mikið af málum inn á borð til sín er varða kynþáttafordóma hér á landi. „Okkur sýnist versta staðan vera úti á vinnumarkaði, þar sem litið er fram hjá fólki með erlend nöfn í stórum stíl, burtséð frá menntun og fleiru. Við hvetjum alla til að vera með. Verkefninu verður svo slaufað með málþingi í Ráðhúsi Reykjavíkur,“ bætir Fríða Rós við. - ga Kveða kynþáttafordóma í kútinn með korti Eitt þúsund póstkort munu rata inn um bréfalúgur landsmanna í vikunni undir formerkjum fordómaleysis. HANDAHÓFSKENND HÖND Í HÖND Kynþáttafordómar leynast víða í sam- félaginu og ekki síst á vinnumarkaði. ASKJA · Krókhálsi 11 · 110 Reykjavík · Sími 590 2100 · askja.is Viðurkenndur sölu- og þjónustuaðili Mercedes-Benz á Íslandi Þú finnur „Mercedes-Benz Ísland“ á Facebook Aksturseiginleikar og búnaður Mercedes-Benz GLK sportjeppans gera vetraraksturinn að einskærri ánægju. 4MATIC aldrifskerfið eykur stöðugleika og öryggi. Kerfið er ávallt virkt og bregst strax við breyttum akstursaðstæðum t.d. mikilli úrkomu, ísingu eða snjó. Hjá Öskju á Krókhálsi 11 bíður þín glæsilegur GLK til sýnis og reynsluaksturs. Framúrskarandi hönnun fyrir snjó og hálku Bíll á mynd: Mercedes-Benz GLK 220 CDI BlueEFFICIENCY 4MATIC aldrifsbúnaður, 7 þrepa sjálfskipting, 170 hö., dráttargeta 2.400 kg, eyðsla frá 6,1 l/100 km í blönduðum akstri. FINAL EDITION pakki Off-road fjöðrun með 3 cm hækkun, aftengjanlegt dráttarbeisli, 17" álfelgur, heilsársdekk, skyggðar rúður, upphituð framsæti, rafdrifinn afturhleri, krómpakki og ljósapakki. Verð 7.990.000 kr. FRETTABLAÐ IÐ /G VA 1 6 -0 3 -2 0 1 5 2 1 :3 6 F B 0 5 6 s _ P 0 4 5 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 1 2 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 4 2 5 -D 3 8 8 1 4 2 5 -D 2 4 C 1 4 2 5 -D 1 1 0 1 4 2 5 -C F D 4 2 8 0 X 4 0 0 2 B F B 0 5 6 s C M Y K

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.