Fréttablaðið - 17.03.2015, Qupperneq 46
17. mars 2015 ÞRIÐJUDAGUR| LÍFIÐ | 26
BAKÞANKAR
Söru
McMahon
Vinkonurnar Jemma Triance og
Lisa Wilson ferðast til landsins
til þess að berja sólmyrkvann
augum þann 20. mars næstkom-
andi.
Þær koma frá Surrey á Eng-
landi og þetta er í annað skipti
sem þær ferðast til Íslands. Sól-
myrkvann munu þær upplifa úr
þyrlu en þær fara í þyrluferð með
Norðurflugi og fljúga yfir Eyja-
fjallajökul þar sem stoppað verð-
ur og útsýnisins notið.
„Það hefur verið lífsdraum-
ur að sjá sólmyrkva. Ég hef séð
fallegan tunglmyrkva í Chennai
á Indlandi og við höfum verið
svo heppnar að sjá tilkomumik-
il norðurljós bæði í Noregi og á
Íslandi,“ segir Jemma en þær
vinkonurnar komu til Íslands í
janúar árið 2013 og sáu þá norð-
urljósin sem marga ferðamenn
dreymir um að sjá og fóru auk
þess að kafa sem þær segja hafa
verið stórkostlega upplifun.
Þær munu þó hafa fleira fyrir
stafni og margt á dagskránni.
„Við förum líka í norðurljósaferð
og ferð um Þingvelli, Gullfoss,
Langjökul og Geysi og því fylgir
vélsleðaferð, við ætlum líka að
heimsækja Bláa lónið áður en við
fljúgum heim. En við skipulögð-
um ferðina þessa ákveðnu daga
með von um að sjá sólmyrkv-
ann líka,“ segir hún, en þyrlu-
flugið pöntuðu þær í október og
því óhætt að segja að hér sé um
skipulagða ferðamenn að ræða.
„Ég vann sem leiðsögumaður
ævintýraferða fyrir smáa hópa
og þekki því kosti þess að vera
skipulögð og plana fram í tím-
ann,“ segir Jemma þegar hún er
spurð að því hvort hún skipuleggi
öll sín ferðalög með slíkum fyrir-
vara.
Vinkonurnar langaði til þess
að komast út fyrir borgarmörkin
til þess að upplifa sólmyrkvann
og íslenskt landslag. „Lisa hefur
aldrei stigið fæti í þyrlu og er
mjög lofthrædd. En eftir að hún
fór í New York New York-hótel
rússíbanann í Las Vegas finnst
henni allir vegir færir,“ segir
Jemma um samferðakonu sína.
„Við erum ekki bara spennt-
ar, heldur alveg ótrúlega spennt-
ar,“ segir hún að lokum en þær
stöllurnar koma til landsins á
fimmtudag og munu dvelja yfir
helgina.
gydaloa@frettabladid.is
Pöntuðu þyrlufl ugið fyrir
rúmlega fi mm mánuðum
Vinkonurnar Jemma Trinace og Lisa Wilson koma hingað til lands til þess að upplifa sólmyrkann og munu
ferðast með þyrlu til þess að fá sem best útsýni. Þyrlufl ugið pöntuðu þær með mjög góðum fyrirvara.
SPENNTAR Lisa og Jemma eru ótrúlega spenntar fyrir ferðinni til Íslands og
tilbúnar í sólmyrkvann og að sjálfsögðu búnar að verða sér úti um viðeigandi
hlífðarbúnað. MYND/JEMMATRIANCE
■ Sólmyrkvi verður þegar tunglið
gengur á milli sólar og jarðar
og myrkvar sólina að hluta eða
í heild frá jörðu séð. Sólmyrkvi
á sér einungis stað þegar sólin,
tunglið og jörðin eru í beinni línu
og getur eingöngu orðið þegar
tungl er nýtt.
■ Sólmyrkvi getur verið þrenns
konar: almyrkvi, deildarmyrkvi eða
hringmyrkvi. Sólmyrkvinn sem
mun eiga sér stað á föstudaginn
er svokallaður almyrkvi en á Ís-
landi sést verulegur deildarmyrkvi.
■ Deildarmyrkvi er þegar tunglið
hylur sólina að hluta en þá eru sól
og tungl ekki í alveg beinni línu.
■ Í Reykjavík mun tunglið hylja um
97,5% sólarinnar og á Austurlandi
um 99,4%.
■ Sólmyrkvinn sem von er á er sá
mesti sem sést hefur á Íslandi
síðan almyrkvinn varð þann 30.
júní árið 1954.
■ Næst má vona að sjá almyrkva frá
sólu frá Evrópu þann 12. ágúst
árið 2026.
■ Vænta má þess að deildarmyrkv-
inn hefjist klukkan 08.38 í Reykja-
vík og verði í hámarki klukkan
09.37 en þá mun tunglið hylja
um 97,5% af skífu sólar. Deildar-
myrkva lýkur klukkan 10.39.
■ Varasamt er að horfa á sólmyrkva
án þess að nota viðeigandi
hlífðarbúnað.
Allar upplýsingar fengnar af
Stjornufraedi.is
SÓLMYRKVINN
20. MARS
Save the Children á Íslandi
DAGUR heilags Patreks, þjóðhátíðar-
dagur Íra, er haldinn hátíðlegur víða um
heim í dag.
FYRIR ÞÁ sem ekki þekkja til Patreks,
þá var hann um margt merkilegur maður.
Honum er meðal annars gefið að hafa
hrakið alla snáka sem hírðust á Eyj-
unni grænu á haf út – vísindamenn
halda því reyndar fram að snákar
hafi aldrei þrifist á Írlandi, en
það er óþarfi að hengja sig í smá-
atriðin.
PATREKUR þessi var breskur
að uppruna og af góðu fólki kom-
inn. Faðir hans var djákni og
afi hans prestur, en þrátt fyrir
það var Patrekur lítt trúræk-
ið barn. Þegar hann var um
sextán ára gamall var hann
numinn brott af írskum sjó-
ræningjum (já, Írar voru
ekki bara fórnarlömb víkinga
og Breta) sem höfðu piltinn
með sér heim til Írlands.
NÆSTU SEX ÁR sinnti
Patrekur starfi fjárhirðis og gerðist
einkar guðhræddur. Það var svo fyrir til-
skipan drottins að Patrekur lét loks slag
standa, flúði prísundina heim til Englands
og ákvað að læra til prests.
AÐ NÁMINU loknu sneri Patrekur
aftur til Írlands í þeim erindagjörðum
að boða hinum heiðnu Keltum kristna
trú. Eitt helsta kennslugagn prestsins
var þriggja laufa smári, sem Patrekur
studdist gjarnan við þegar hann útskýrði
heilaga þrenningu fyrir Keltum. Í dag
er smárinn eitt helsta einkennismerki
Írlands og er ansi fyrirferðamikill á degi
heilags Patreks, en 17. mars er talinn vera
dánardagur dýrlingsins.
Í DAG minnist heimsbyggðin heilags
Patreks, dýrlings sem fældi brott snáka
frá eyju þar sem engir snákar voru, með
því að teyga Guinness, klæðast grænu og
hlýða á írska þjóðsöngva. Í dag eru allir
írskir.
SVO veltir maður því fyrir sér hvenær
veröldin öll mun taka við sér og halda upp
á 17. júní.
Sláinte mhaith!
ÁLFABAKKA
AKUREYRI
EGILSHÖLL
KRINGLUNNI
KEFLAVÍK
Sýnd með ísl. texta
Sýnd með ísl. texta
Æðisleg ný stuttmynd
Frozen Fever er sýnd á undan
VILLAGE VOICE
Frá Paul Thomas Anderson, leikstjóranum sem
færði okkur Magnolia, There Will Be Blood og
Boogie Nights
BALLET: SVANAVATNIÐ KL. 7.15
THE LITTLE DEATH KL. 5.30 - 8 - 10.20
THE GRUMP KL. 8
CHAPPIE KL. 10
ANNIE KL. 5.30
BIRDMAN KL. 10.20
ÖMURLEG BRÚÐKAUP KL. 5.30 - 8 - 10.40 - ÍSL TEXTI
THE LITTLE DEATH KL. 5.45 - 8 - 10.20
THE DUFF KL. 3.30 - 5.45 - 8
CHAPPIE KL. 8 - 10.40
ANNIE KL. 5
HRÚTURINN HREINN KL. 3.30
FIFTY SHADES OF GREY KL. 10.20
KINGSMAN KL. 8 - 10.45
KINGSMAN LÚXUS KL. 5 - 8 - 10.45
PADDINGTON KL. 3.30 - 5.45 - ÍSL TAL
ÞRIÐJUDAGSTILBOÐ
ÞRIÐJUDAGSTILBOÐÞRIÐJUDAGSTILBOÐ
CINDERELLA 5:25, 8
CHAPPIE 10:35
STILL ALICE 5:50, 8
VEIÐIMENNIRNIR 8, 10:10
HRÚTURINN HREINN 5:50
10:30
ÞRIÐJUDAGSTILBOÐ ÞRIÐJUDAGSTILBOÐ
Nýjasta plata rapparans Kend-
ricks Lamar, To Pimp a Butter-
fly var gefin út viku fyrir áætl-
aðan útgáfudag.
Upphaflega
átti platan að
koma út tuttug-
asta og þriðja
þessa mánað-
ar en hún var
gefin út á Spoti-
fy og iTunes
snemma að
morgni mánu-
dags. Lamar sendi frá sér röð
torræðra tísta á samskiptamiðl-
inum Twitter á sunnudag áður
en hann að lokum tísti tengli þar
sem hægt var að hala plötunni
niður.
Þetta er þriðja plata rappar-
ans en meðal gesta á To Pimp
a Butterfly eru Snoop Dog,
George Clinton og Ronald Isley.
Platan Good Kid, M.A.A.D. city
sem kom út árið 2012 og náði
töluverðum vinsældum.
Lamar sendir
frá sér plötu
Blowfly park 18.00
Óli prik 20.00
What we do
in the shadows 20.20, 22.00
Wild tales 22.00
ÞÝSKIR DAGAR:
The dark valley 18.00
The chambermaid Lynn 20.00
West 22.20
ÞRIÐJUDAGSTILBOÐ 1000 KALL MIÐINN!
HAPPY HOUR Á
BARNUM 17-20
ÞÝSKIR DAGAR
DEUTSCHE FILMTAGE
GERMAN FILM DAYS
BÍÓ PARADÍS
12.—22. MARS 2015
www.bioparadis.is
Bíó Paradís í samstarfi við Goethe-Institut, Danmörku og
sendiráð Sambandslýðveldisins Þýskalands, Reykjavík.
1
6
-0
3
-2
0
1
5
2
1
:3
6
F
B
0
5
6
s
_
P
0
4
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
1
1
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
4
2
5
-C
E
9
8
1
4
2
5
-C
D
5
C
1
4
2
5
-C
C
2
0
1
4
2
5
-C
A
E
4
2
8
0
X
4
0
0
2
A
F
B
0
5
6
s
C
M
Y
K