Fréttablaðið - 17.03.2015, Qupperneq 48
17. mars 2015 ÞRIÐJUDAGUR| SPORT | 28
FÓTBOLTI Endurkoma Eiðs Smára Guð-
johnsen í íslenska landsliðið hefur kannski
legið í loftinu undanfarnar vikur nú þegar
nær dregur fyrsta mótsleik Íslands á árinu
2015, en íþróttadeild 365 hefur nú heimildir
fyrir því að Eiður Smári verði í hóp Lars
Lagerbäck og Heimis Hallgrímssonar sem
verður tilkynntur í lok vikunnar.
Eiður Smári Guðjohnsen hefur fundið sig
vel hjá Bolton í ensku b-deildinni og er einn
af fáum sóknarmönnum Íslands sem spilar
reglulega þessa dagana. Meiðsli og bekkj-
arseta annarra leikmanna í hans stöðu og
góð frammistaða Eiðs Smára í endurkomu
sinni til Bolton voru kannski einfalt reikn-
isdæmi fyrir Heimi og Lars þegar á hólm-
inn var komið.
Eiður Smári hefur sýnt áhuga á því að
spila áfram með landsliðinu og enda jafn-
vel landsliðsferil sinn á því að spila á stór-
móti en það sem er mikilvægast af öllu er
að hann er enn frábær fótboltamaður og er
í formi til að hjálpa landsliðinu.
Besti maður Bolton um helgina
Eiður Smári var besti maður Bolton að
mati stuðningsmannasíðu Bolton í 2-0 sigri
á Millwall þar sem hann lagði upp seinna
mark liðsins. „Samningur Ísmannsins
rennur út í sumar og við erum bilaðir ef
við gefum honum ekki annað ár. Þvílíkur
leikmaður,“ segir um Eið Smára á síðunni
Lion Of Vienna Suite sem gaf honum níu
fyrir frammistöðuna í leiknum.
Það eru liðnir næstum því sextán mán-
uðir síðan Eiður Smári Guðjohnsen klædd-
ist landsliðstreyjunni síðast, eða þegar
HM-draumurinn dó í Zagreb í nóvember
2013. Markahæsti landsliðsmaður Íslands
frá upphafi bræddi þjóðina þegar tár féllu
í sjónvarpsviðtali eftir leik en fær nú von-
andi fullt af uppklappsleikjum á meðan
íslenska landsliðið reynir að tryggja sig
inn á sitt fyrsta stórmót.
Eiður Smári Guðjohn-
sen lék sinn fyrsta lands-
leik í Eistlandi 24. apríl 1996
þegar hann, þá enn sautján
ára gamall, kom inn á sem
varamaður fyrir föður sinn.
Slæmt fótbrot í unglingalands-
leik í maí 1996 sá til þess að Eiður
Smári og Arnór léku aldrei saman
inni á vellinum en Eiður Smári spilaði ekki
landsleik tvö fyrr en haustið 1999.
Komi Eiður Smári inn á í leiknum við
Kasakstan verða liðin 18 ár, 11 mánuðir
og 5 dagar frá leiknum sem vakti heimsat-
hygli vorið 1996. Hann myndi með því slá
met Guðna Bergssonar um tæpan mánuð.
Getur náð metinu aftur í fjölskylduna
Faðir Eiðs Smára, Arnór Guðjohnsen, átti
sjálfur þetta met í rúm fimm ár eða allt þar
til að Guðni tók metið af honum í lok mars
2003. Eiður Smári getur því náð metinu
aftur í fjölskylduna.
Arnór lék sinn 73. og síðasta landsleik á
móti Liechtenstein í október 1997. Nákvæm-
lega fjórum mánuðum fyrr hafði Arnór
sjálfur tekið metið af Ríkharði Jónssyni
sem var fram að því fyrsti og eini íslenski
knattspyrnumaðurinn sem hafði náð því
að vera landsliðsmaður í meira en átján ár.
Guðni Bergsson sneri aftur í landsliðið í
byrjun sumars 2003 og lék þá þrjá síðustu
landsleiki sína en hafði þá ekkert verið með
landsliðinu frá 1997. Síðasti leikur Guðna
var í Vilníus í Litháen þegar íslenska
landsliðið vann 3-0 sigur á heimamönnum
í undankeppni EM 2004. Þá voru liðin 18
ár, 10 mánuðir og 11 dagar frá hans
fyrsta landsleik.
Hér til hliðar má sjá listann
yfir lengstu landsliðsferla
íslenskra knattspyrnukarla.
ooj@frettabladid.is
Slær Eiður metið
hans Guðna?
Eiður Smári Guðjohnsen er í hópnum hjá Lars Lagerbäck
og Heimi Hallgrímssyni fyrir leikinn á móti Kasakstan í
undankeppni EM 2016 28. mars næstkomandi.
SPORT
EIÐUR SMÁRI GUÐJOHNSEN 6.913 DAGAR
18 ÁR ● 11 MÁNUÐIR ● 5 DAGAR
Fyrsti Eistland (úti), 24. apríl 1996, 3-0 sigur
– Ef hann spilar á móti Kasakstan 28. mars 2015
GUÐNI BERGSSON 6.889 DAGAR
18 ÁR ● 10 MÁNUÐIR ● 11 DAGAR
Fyrsti: Færeyjar (úti), 1. ágúst 1984, 0-0 jafntefli
Síðasti: Litháen (úti), 11. júní 2013, 3-0 sigur
ARNÓR GUÐJOHNSEN 6.718 DAGAR
18 ÁR ● 4 MÁNUÐIR ● 20 DAGAR
Fyrsti: Sviss (úti), 22. maí 1979, 2-0 tap
Síðasti: Liechtenstein (heima), 11.október 1997, 4-0 sigur, Skoraði í
síðasta landsleiknum.
RÍKHARÐUR JÓNSSON 6.592 DAGAR
18 ÁR ● 0 MÁNUÐIR ● 17 DAGAR
Fyrsti: Noregur (heima), 24. júlí 1947, 4-2 tap
Síðasti: Írland (heima), 9. ágúst 1965, 0-0
EIÐUR SMÁRI GUÐJOHNSEN 6.419 DAGAR
17 ÁR ● 6 MÁNUÐIR ● 27 DAGAR
Fyrsti: Eistland (úti), 24. apríl 1996, 3-0 sigur
Síðasti: Króatía (úti), 19. nóvember 2013, 0-2 tap
ÁSGEIR SIGURVINSSON 6.289 DAGAR
17 ÁR ● 2 MÁNUÐIR ● 18 DAGAR
Fyrsti: Danmörk (heima), 3. júlí 1972, 5-2 tap
Síðasti: Tyrkland (heima), 20. september 1989, 2-1 sigur
RÚNAR KRISTINSSON 6.140 DAGAR
16 ÁR ● 9 MÁNUÐIR ● 22 DAGAR
Fyrsti: Sovétríkin (úti), 28. október 1987, 2-0 tap
Síðasti: Ítalía (heima), 18. ágúst 2004, 2-0 sigur
BIRKIR KRISTINSSON 5.958 DAGAR
16 ÁR ● 3 MÁNUÐIR ● 23 DAGAR
Fyrsti: Holland (úti), 27. apríl 1988, 1-0 tap
Síðasti: Ítalía (heima), 18. ágúst 2004, 2-0 sigur
SIGURÐUR JÓNSSON 5.940 DAGAR
16 ÁR ● 3 MÁNUÐIR ● 4 DAGAR
Fyrsti: Malta (heima), 5. júní 1983, 1-0 sigur
Síðasti: Úkraína (heima), 8. sept. 1999, 1-0 tap
ATLI EÐVALDSSON 5.559 DAGAR
15 ÁR ● 2 MÁNUÐIR ● 20 DAGAR
Fyrsti: Færeyjar (úti), 16. júní 1976, 6-1 sigur
Síðasti: Danmörk (heima), 4. sept. 1991, 0-0 jafntefli
HERMANN HREIÐARSSON 5.545 DAGAR
15 ÁR ● 2 MÁNUÐIR ● 6 DAGAR
Fyrsti: Kýpur (heima), 5. júní 1996, 2-1 sigur
Síðasti: Ungverjaland (úti), 10. ágúst 2011, 4-0 tap
LENGSTI LANDSLIÐSFERILL
LEIKMANNS ÍSLANDS
FÓTBOLTI Arsenal þarf á litlu
kraftaverki að halda í Mónakó í
kvöld þar sem liðið mætir heima-
mönnum í seinni leik liðanna í 16
liða úrslitum Meistaradeildar-
innar í fótbolta. Skytturnar eru
í vondum málum eftir 3-1 tap á
heimavelli og þurfa að skora þrjú
mörk í kvöld til að komast áfram.
Arsenal hefur fallið úr leik í 16
liða úrslitum keppninnar undan-
farin fjögur ár og nú gæti Arsene
Wenger, knattspyrnustjóri Arse-
nal, kvatt Meistaradeildina á
sínum gamla heimavelli.
Þótt Arsenal hafi grafið sína
eigin gröf í fyrri leikjunum í 16
liða úrslitunum undanfarin ár
hefur liðið oftar en ekki spilað vel
í seinni leiknum og verið nálægt
því að komast áfram. Ekki má
gleyma ótrúlega 4-0 tapinu gegn
AC Milan fyrir þremur árum, en
þá kom liðið til baka og vann 3-0
á heimavelli. Öll nótt er því ekki
úti enn hjá lærisveinum Wengers.
„Við getum gert eitthvað ótrú-
legt í Mónakó,“ sagði Arsene Wen-
ger á blaðamannafundi. „Þeir eru
líklegri til að komast áfram en ég
trúi að við komumst áfram.“
Wenger veit vel að liðið gerði
stór mistök í fyrri leiknum á Emir-
ates-vellinum.
„Auðvitað væri ég frekar til í að
vera 3-0 yfir en þetta er staðan.
Við verðum að leiðrétta mistökin
okkar. Stundum gerir maður mis-
tök í lífinu sem ekki er hægt að
bæta fyrir. Þannig eru hlutirnir
ekki í fótboltanum því maður fær
alltaf tækifæri til koma til baka,“
sagði Arsene Wenger. - tom
Arsenal þarf að sækja til sigurs
Arsene Wenger gæti kvatt Meistaradeildina í 16 liða úrslitum fi mmta árið í röð.
VERÐUR AÐ VINNA Arsene
Wenger á ærið verkefni fyrir
höndum á sínum gamla heimavelli.
FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY
FÓTBOLTI FH tapaði í gær þriðja og síðasta æfingaleik
sínum á Marbella á Spáni er Hafnfirðingar mættu SJK
Seinajoen frá Finnlandi, sem unnu 2-0 sigur.
Finnarnir skoruðu bæði mörk sín í fyrri hálfleik en
þetta var fyrsti tapleikur FH á mótinu. FH-ingar
gerðu jafntefli við Vålerenga og unnu svo Noregs-
meistara Molde, 3-2, eftir að hafa lent 2-0 undir
í leiknum.
Atli Guðnason, Davíð Þór Viðarsson, Kass-
im Doumbia og Emil Pálsson skoruðu mörk
Hafnfirðinga í æfingamótinu á Spáni.
FH leikur næst gegn Fylki í Lengjubikarnum
á sunnudag. FH hefur unnið þrjá af fjóra leiki
sínum í A-riðli keppninnar en Fylkir er ósigrað að
loknum fimm leikjum.
FH tapaði fyrir Finnunum
HANDBOLTI Stjarnan er enn með í baráttunni um
sæti í úrslitakeppninni eftir afar mikilvægan sigur á
Íslandsmeisturum ÍBV í TM-höllinni í Garðabæ í gær,
28-26. Með sigrinum náði Stjarnan að jafna Fram að
stigum en liðin eru í 8.-9. sæti með fimmtán stig.
Garðbæingar voru með forystu frá fyrstu mínútu
í leiknum og náðu mest sex marka forskoti þegar
tæpur stundarfjórðungur var eftir. En þeir voru næst-
um búnir að kasta leiknum frá sér á lokasprettinum
og náði ÍBV að minnka muninn í eitt mark þegar
þrjár mínútur voru eftir. Nær komust Íslands-
meistararnir þó ekki.
Sex stig eru í næsta lið og er því útlit fyrir hreint
einvígi Fram og Stjörnunnar í lokaumferðum deildar-
keppninnar. Þau mætast einmitt í lokaumferðinni 2.
apríl. - esá
Stjarnan krækti í dýrmæt stig gegn meisturunum
MIKILVÆGT
Sverrir Eyjólfs-
son skoraði
sjö mörk í níu
skotum fyrir
Stjörnumenn
í gær, einu
minna en
stórskyttan
Egill Magnús-
son sem var
markahæstur.
F
RÉ
TT
AB
LA
Ð
IÐ
/V
IL
H
EL
M
1
6
-0
3
-2
0
1
5
2
1
:3
6
F
B
0
5
6
s
_
P
0
5
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
4
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
0
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
0
9
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
4
2
5
-D
D
6
8
1
4
2
5
-D
C
2
C
1
4
2
5
-D
A
F
0
1
4
2
5
-D
9
B
4
2
8
0
X
4
0
0
3
B
F
B
0
5
6
s
C
M
Y
K